Þjóðviljinn - 13.04.1991, Page 19
VIÐHOKF
▲ Þórarinn Magnússon skrifar;
Orfá orð í tilefni auglýsingar
f dag, 10. april, barst mér í
hendur Þjóðviljinn frá í gær, hvar í
er að finna auglýsingu frá Félagi
íslenskra náttúruffæðinga. Þar eru
háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn
hvattir til að gefa núverandi ráð-
herrum (þeim sem settu bráða-
birgðalögin) „ekki annað tækifæri"
eins og það heitir. Á mæltu máli
þýðir það að kjósa ekki einhvem
af núverandi ríkisstjómarflokkum í
alþingiskosningunum 20. apríl
næstkomandi.
Eg hygg að þetta sé næsta ein-
stæð auglýsing frá stéttarfélagi,
a.m.k. síðustu áratugina. Sem með-
limur í Félagi íslenskra náttúru-
fræðinga mótmæli ég þessum
vinnubrögðum harðlega og undir-
strika að stjórn félagsins hefur
enga heimild til að birta auglýs-
ingu af þessu tagi í mínu nafni, það
vil ég að komi fram.
Og meðal annarra orða, um
hvað er félagið að biðja? í raun og
vem um það að háskólamenntaðir
ríkisstarfsmenn gefi Sjálfstæðis-
flokknum nánast frítt spil. Telur
stjórn Félags íslenskra náttúru-
fræðinga það vera í verkahring fé-
lagsins að ganga erinda einhvers
stjómmálafíokks? í þessu tilfelli
fyrst og fremst Sjálfstæðisflokks-
ins. Ég neita að taka þátt í því.
Eitt enn: halda ráðamenn fé-
lagsins að kosningar til Alþingis
snúist eingöngu um setningu
bráðabirgðalaga og/eða kjaramál?
Nei sannarlega kemur þar fjöl-
margt annað til, sem ég ætla ekki
að ræða frekar hér. I þessu sam-
bandi virðist mér þó full ástæða til
að minna á að þær snúast meðal
annars um byggingu risaálvers og
mengun íylgjandi því, um náttúm-
og umhverfisvemdarmál og fleiri
slík mál, sem ættu að vera meðlim-
um Félags íslenskra náttúmfræð-
inga hugleikin ekki síður en kjara-
mál.,
Ég vil þess vegna að lokum,
hvetja alla þá félaga sem áhyggjur
hafa af þessum málum og búsettir
em í Reykjavík til að styðja Auði
Sveinsdóttur, formann Landvemd-
ar, í kosningunum 20. apríl næst-
komandi. Hún skipar þriðja sætið á
lista Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík. Auður er í hópi skeleggustu
málsvara náttúru- og umhverfis-
vemdar hér á landi, og ein af fáum
sem reyna að horfa á þau mál í
víðu samhengi. Hún á því fúllt er-
indi inn á Alþingi íslendinga, hvað
sem öllum bráðabirgðalögum líður.
Umönnun aldraðra
í drögum að fmmvarpi að al-
mannatryggingalögum er gert ráð
fyrir að umönnunamppbót komi í
stað makabóta. Núna er það ein-
göngu maki sem fær bætur fyrir að
stunda maka i veikindum hans. En
í ffumvarpsdrögunum geta böm og
skyldmenni fengið þessar bætur og
er það vel. Það væri mjög mikið
réttlætismál að þetta ákvæði kæm-
ist til framkvæmda.
En hefúr t.d. nokkur hugsað,
hvemig er afstaða þess fólks sem
er heima og annast foreldri.
Ég veit um dæmi þar sem ung
kona sagði upp atvinnu sinni til að
annast foreldn sitt.
Til að hafa einhverjar tekjur
var hún á launaskrá hjá Félags-
málastofnun og fékk greitt fyrir
heimilishjálp og foreldrið hafði
eitthvað úr lífeyrissjóði. Þannig
gátu þau klofið framfærsluna.
En nú gerist það að foreldrið
fer á sjúkrahús og deyr. Hvað verð-
ur um dótturina í þessu tilfelli?
Hún stendur uppi algjörlega pen-
ingalaus. Frá þeim degi sem for-
eldrið fer á sjúkrahús falla lífeyris-
sjóðsgreiðslur og greiðslur frá Fé-
lagsmálastofnun niður. Hvar er
réttur þessa einstaklings, sem vildi
gera vel við sitt foreldri síðustu
æviárin? Hann er nákvæmlega
A Sigurrós M. Sigurjónsdóttir skrifar:
hvílir meir á fjölskyldunni
enginn. Það þarf að koma til ein-
hver réttur til þeirra sem annast
sína nánustu ekki bara að þeir fái
einhverjar umönnunaruppbætur
heldur að þeir fái að halda þeim
einhverja mánuði eftir andlát eða
sjúkrahúslegu, því sá sem er heima
er ekki farinn í vinnu strax og ætt-
inginn fer á sjúkrahús, þvi mögu-
leiki er á að hann komi heim aftur,
og enginn lifir á loftinu á meðan.
Rétturinn á að vera sá sami og
með almennt launafólk, það fær
laun í 3 mánuði eftir að það segir
upp störfúm.
Þetta þarf að komast inn í lög
um almannatryggingar. Það þarf að
skapa þeim öryggi, sem ætla að
annast sina nánustu, það gerir eng-
inn, sem starfar utan heimilis.
Svo er það aftur annað mál
hvernig búið er að öldruðum í
þessari ríku borg Reykjavík, hún
hefur lítið gert af því að byggja
upp hjúkrunarþjónustu fyrir aldr-
aða.
Það er nú búið að tala og skrifa
um það mál einhver býsn og kann-
ski að bera í bakkafullan lækinn að
bæta þar við.
En ég held að þörfin sé svo
brýn að það verði bara ekki komist
hjá því að gera eitthvað.
Má ekki t.d. kaupa notað hús-
næði og gera það upp þannig að
það falli að þeirri starfsemi sem
þar á að fara fram.
Ég tel að ekki þurfi að koma til
fúllkomin og dýr sjúkrastofnun til
að annast fólk sem ekki hefur feril-
vist fengur vegna öldrunar, heldur
hlýlegt og gott atlæti.
Þessi mál hvíla í æ meiri mæli
á nútímafjölskyldunni, þar sem all-
ir eru útivinnandi, ekki kemst hún
af öðruvísi, en að hafa laun, og þá
er komið að því, hver á að annast
foreldra?
Réttur þeirra sem ætla að ann-
ast sina nánustu þarf að vera skýr.
A Bjami Hannesson skrifari
Jörundur II!?
Margvísleg og óvænt tíðindi
gerast nú í stjómmálabaráttunni,
þau helst að skipt var um formann
í Sjálfstæðisflokknum og „hinn
nýi stíll?“ nýkjörins formanns
sem virðist aðallega felast í því að
draga til sín og gera að stefnu
sinni, draug þann (frjálshyggju í
markaðsmálum) sem riðið hefur
húsum í efnahagslifi USA og
Bretlands og víðar síðastliðin 10
ár og valdið stórtjóni hjá öllum
þjóðum sem sleppt hafa honum
lausum í efnahagslífi sínu og
valdið óhófseyðslu umfram efni
og áratugaferill þessa efnahags-
lega draugagangs hefur skilið
þjóðimar eftir svo skuldugar að
ógerlegt er að greiða þær upp án
verðbólgu sem þykir ærðið hættu-
legur og vandasamur greiðslu-
máti.
Þennan draug átti að vísu að
bjóða Islendingum árið 1979 en
þá var því hafnað, en upp úr 1983
var draug þessum laumað hægt og
sígandi inn i stjómarhætti þáver-
andi stjómar og afleiðingar þær
sömu og í USA gífurlegur halli á
ríkissjóði og botnlaus erlend
skuldasöfhun, óráðsía í fjármuna-
meðhöndlun og meðfylgjandi
gjaldþrot einstaklinga og fyrir-
tækja.
(Geta má þess að ríkissjóðs-
halli 1983-'88 var um smt. 24
miljarðar og erlendu skuldirnar
hækkuðu um 60 miljarða kr.
hvorttveggja á núvirði.)
Maður hélt að flestir væru
búnir að fá nóg af draugagangi
þessum í það minnsta var Þor-
steinn Pálsson búinn að læra það
af dýrkeyptri reynslu og um 48%
landsfúlltrúa Sjálfstæðisflokksins
sennilega verið búnir að læra þá
lexíu líka.
Það em næsta undarleg þessi
formannsskipti hjá Sjálfstæðis-
flokknum, þetta er í fyrsta skipti
sem þeir kjósa formann með aug-
ljósan dictartorpersónuleika.
Það voru að vísu ekki nema
52% landsfúndarfúlltrúa sem kusu
hann, þannig að tæpur helmingur
hefúr verið efins eða á móti slíku
vali.
Ef teningunum hefur verið
kastað og nú sitja þeir uppi með
gripinn, sem miðað við fyrstu
sporin eftir kjörið má hæglega
líkja við Jörund sáluga hunda-
dagakóng, það var hans fyrsta
verk að fara til spákonu í beinni
sjónvarpsútsendingu og láta spá
fyrir sér, hefúr sennilega tekið sér
þar Ronald Reagan fyrrv. forseta
USA sér til fyrirmyndar (Hunda-
dagakóngur þess ríkis!), því hann
tók vist engar mikilvægar ákvarð-
anir án þess að fara til stjömuspá-
manna, illt er til þess að vita ef
kaffibollar eða stjömur himinsins
eiga eftir að ráða úrslitum um
mikilvægar ákvarðanir, alltént
gafst stjómartími Reagans hörmu-
lega fyrir bandarisku þjóðina.
Annað verk „höfðingjans“var
að lýsa því yfir að „taka til athug-
unar“ að selja ýmsar mikilvægar
ríkiseignir sem sinnt hafa al-
mannaþjónustu, mun það vera eft-
irherma pólitískra aðgerða frá
Bretlandi, en þar lauk þeim þætti
þannig að forsvarsmanni þeirra
aðgerða var slátrað út úr stjóm-
málum af eigin flokksmönnum
eins og pólitískri hundtík sem öll-
um var orðin til ama og leiðinda,
ef mig minnir rétt þá var það eitt
af fyrstu verkum Jörundar að slá
eign sinni á landssjóð þess tíma
og þessar áætlanir Davíðs Odds-
sonar þykja mér keimlíkar.
Þriðja verk „höfðingjans" var
að fara i fundarherferð um landið,
(minnir mig að Jörundur sálugi
gerði það líka og þótti víst gaman-
samur á stundum), greinarritara
lék nokkur forvitni á að vita hvort
að „höfðingi" þessi nýkjömi hefði
einhverja nýtilega eiginleika sem
að gagni mætti koma ef hann næði
þeim völdum sem að löngun hans
stendur augljóslega til, mætti því á
fyrsta fimd á Akureyri, fannst mér
fundurinn ganga helst út á að
„höfðinginn“ segði misgáfulega
brandara um pólitíska andstæð-
inga. Þótti greinarritara það illt að
hafa keyrt um 150 kílómetra til
þess eins að hlusta á „Jörundar-
brandara" hins nýkjöma formanns
og lagði því fyrir hann skriflega
fyrirspum frá Bjama Hannessyni
til hr. Davíðs Oddsonar.
Byggingarkostnaður orkuvera,
háspennulína og tengivirkja á veg-
um Landsvirkjunar vegna afhend-
ingar á um 2900 GWh af raforku
til hugsanlegar Atlantalálbræðslu
er að núvirði a.m.k. 48 miljarðar
króna eða um 840 miljónir USA $
á verðlagi des. 1990 og ljóst er að
þá upphæð verður að taka að láni.
Spumingin er eftirgreind.
Hvert þarf verð orkunnar að
vera í mills. pr. kwH til að Lands-
virkjun geti borgað líklega nafn-
vexti af lánunum?
Viðaukaspumingar.
Miðað við 8,5% nafnvexti?
Miðað við 7,5% nafnvexti?
Miðað við 6,5% nafnvexti?
Miðað við 5,5% nafnvexti?
Hvert þarf orkuverðið að vera
í USA $ millsum?
Svarið var kurteislegt og inní-
haldlítið fimulfamb um álmálið,
en engin tala var nefnd, einungis
það að „útreikningar lægju fyrir“
en ekkert getið hvar og hvort að
opinber aðgangur væri að þeim.
Fyrirspyrjandi var ekki
ánægður með þetta svar og gerði
siðar aðra fýrirspum og einfaldari
en hún var þessi.
Þarf Landsvirkjun að greiða
nafnvexti eða raunvexti?
Ekki svaraði Davíð Oddsson
því en lét fundarstjóra svara að
viðmið væri 5,5% raunvextir.
1. Útreikningar á teknahlið ál-
málsins að því er varðar greiðslur
fyrir raforku er farið með eins og
erlendar „mafíur“ em taldar fara
með sín viðskiptaleyndarmál, sem
sé það er algert „tabú“ að nefna
það á nokkum hátt.
2. Svo grandgæfilega er farið
með þetta „leyndarmál" að jafn-
vel þingmönnum er ekki gert
grein fyrir því og bendi þar á
skýrslu iðnaðarráðherra til Al-
þingis sem er þannig frá gengin að
með engu móti er hægt að gera sér
grein lyrir teknahlið Landsvirkj-
unar án viðaukaupplýsinga.
3. Davíð Oddsson ætti að vera
manna kunnugastur um efnahags-
leg viðmið í samningunum sem
fulltrúi eignaraðila í Landsvirkjun
og sem stjómarmaður þar, ásamt
því að vera samningamaður Is-
lendinga í viðræðum við hina er-
lendu aðila.
4. Þarna var ekki verið að
spyrja um samningaleyndarmál
heldur forsendur og fræðileg við-
mið vegna þagnarmúra um þau
mál.
1. Auðsannanlegt er að erlend
lánskjör og lánasamningar eru
ekki með greiðslur í raunvöxtum
heldur nafnvöxtum og þá verður
að greiða og af 48 miljarða fjár-
festingu sem er á gengi 57 kr. pr. $
um 840 miljónir dollara.
8,5% vextir = 71,4 miljónir $
7,5% vextir = 63 miljónir $
6,5% vexlir = 54,6 miljónir $
5,5% vextir = 46,2 miljónir $
Þá er komið að hinu mikla
leyndarmáli en það er það að
greiðslur fyrir raforku sem duga
til greiðslu á 8,5% nafnvöxtum
þurfa að vera minnst 24,6 mills pr.
kWh = 71,3 miljónir $.
Við 7,5% vexti minnst 21,7
mills pr kWh = 62,9 miljónir $.
Við 6,5% vexti minnst 18,8
mills pr. kWh= 54,5 miljónir $.
Við 5,5% minnst 15,9 mills pr.
kWh = 46,1 miljónir $.
2. Áætlaðar greiðslur Atlantal
álbræðslunnar mun vera fyrir
2900 GWh 13,5 mills pr kWh
fyrstu 5 árin sem gera smt. um
39,1 miljón $ dollara á ári getur
þá hver sem er reiknað út tekju-
vöntun Landsvirkjunar miðað við
hinar mismunandi gefnu vaxtafor-
sendur.
3. Erlendir meðalnafnvextir af
langtímalánum (USA) undanfar-
andi 10 ára eru um 13,78% og
meðalraunvextir eru um 6,94%.
(Heimild Þjóðhagsstofhun)
4. Þetta sannar að bara til að
greiða nafnvextina þarf verð pr.
mills að vera um 25 til 30 mills og
þó að vaxtamun milli nafnvaxta
og raunvaxta væri stöðugt skuld-
breitt þá þyrfti verðið að vera um
21 mills pr. kWh til að tekjur nægi
til að greiða vextina, þetta þýðir
og sannar að þau verð sem nú eru
í umræðunni 12-15 mills pr. kWh
bjóða upp á minnst 1,5 miljarðs
króna árlegan hallarekstur hjá
Landsvirkjun.
5. Þetta sannar að Davíð
Oddsson hefur vikið sér undan að
svara um mikilsvert hagsmunamál
þar sem verið er samkvæmt nú-
verandi verðmiðum að vísa á
minnst 1,5 miljarðs króna árlegan
halla hjá Landsvirkjun, þannig kýs
hann að byija sinn stjómmálaferil
og er því ljóst að vinna þarf að því
að hann verði fyrrverandi sem
fyrst og valdi ekki hlutfallslega
ámóta tjóni í íslensku efnahagslifi
og R. Reagan í USA. Varist þvf
xD í komandi kosningum.
Þær kosningar sem nú fara í
hönd em óvanalegar mikilvægar,
sjálfstæðismenn hafa nú kosið for-
mann sem er augljós fulltrúi hinna
fégráðugustu innan þess flokks,
manna sem hafa það eitt viðmið
að græða sem mest, á eins stuttum
tíma og hægt er, og með hvaða
ráðum sem mögulegt er að beita,
án nokkurs tillits til framtíðar-
hagsmuna þjóðarinnar.
Alþýðuflokkurinn virðist ætla
í samstjóm með sjálfstæðismönn-
um eftir kosningar og þó að innan
þess flokks séu nýtilegir menn þá
eru í stjórn flokksins þeir menn
sem helst ættu að vera í elítu Dav-
íðs Oddsonar og atkvæði greidd
Alþýðuflokknum em því atkvæði
óbeint greidd Davíð Oddssyni.
Varist því xD eða xA i kom-
andi kosningum.
Síða 19
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991