Þjóðviljinn - 13.04.1991, Page 28
Auður Sveinsdóttir
iandslagsarkitekt er í 3. sæti G-listans í
Reykjavtk. Hún er núverandi formaður
Landverndar, en þar hefur hún hefur setið í
stjórn síðastiiðin 8 ár. Auður er formaður
félags íslenskra landslagsarkitekta. Hún
verður glæsilegur fulltrúi umhverfisverndar-
sjónarmiða á Alþingi íslendinga - í málaflokki
sem mun brenna á íslenskri þjóð á næstu
árum. í síðustu kosningum vantaði innan við
200 atkvæði til að tryggja 3ja manninn inn í
Reykjavík. Pann herslumun má ekki vanta
nú!
Sigríður Jóhannesdóttir
kennari er í 2. sæti G-listans á Reykjanesi.
Sigríður er kennari í Keflavík og hefur
verið í stjórn Kennarasambands íslands sl. 7
ár og setið jafn lengi í samninganefnd KÍ.
Hún er formaður orlofssjóðs Kl og fulltrúi
samtakanna í norrænu kennarastarfi.
Reynsla hennar, dugnaður og þekking
nýtist vel á Alþingi.
Guðrún Helgadóttir
alþingismaður er í 2. sæti G-listans í
Reykjavík. Guðrún hefur setið á Alþingi
íslendinga frá 1979. Þar hafa önnur
viðfangsefni hennar reynst góður
bakhjarl: Starf að málefnum aidraðra og
öryrkja hjá Tryggingarstofnun ríkisins,
ritstörf um börn og unglinga, seta í
borgarstjórn o.fl. Síðastliðin 2 ár hefur
Guðrún gegnt stöðu forseta sameinaðs
Alþingis, fyrst íslenskra kvenna í sögu
þjóðarinnar. Guðrún er einn af
brautryðjendum íslenskrar kvennabaráttu
/ Reykjavík og Reykjanesi eru þrjár konur í efstu sætum
á listum Alþýðubandalagsins.
Rödd kvenna er sterk í Alþýðubandalaginu. Sem dæmi má
nefna að 2 þeirra gegndu lykilhlutverkum á Alþingi síðasta
kjörtímabil; Guðrún Helgadóttir sem forseti Sameinaðs þings
og Margrét Frímannsdóttir sem þingflokksformaður Alþýðu-
bandalagsins. í þessum kosningum getum við fjölgað konum
verulega í þingliði flokksins.
Á öllu landinu eru í kjöri konur sem vilja taka á fyrir íslenska
þjóð - konur sem þoraoggeta!
Styrkjum stöðu kvenna um land allt
- kjósum G - listann!
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Flokkur sem getur - fólk sem þorir !