Þjóðviljinn - 20.04.1991, Blaðsíða 9
Yiðhqrf
Styðjum jöfnuð
og umhverfisvernd
S slendingar eru rík þjóð og
Ihafa lengi verið í A-flokki.
Þjóðartekjur á mann eru
einhverjar þær hæstu í
heimi. Einkaneysla á mann
mæld í dollurum er um 25%
hærri en hjá öðrum Norður-
landaþjóðum. Um 500 bifreiðar
eru á hverja 1000 íbúa sem er
hæsta hlutfall sem þekkist í Evr-
ópu.
En íslendingar eru einnig sú
Norðurlandaþjóð þar sem minnsta
jafnréttið er í tekjum; hér rikir
meiri mismunur í ráðstöfunartekj-
um einstakra fjölskyldna en víða
erlendis. Við teljum okkur vera
mikla menningarþjóð en samt veit-
um við minna fjármagni til
menntamála á hvert mannsbam en
hinar Norðurlandaþjóðimar og
flestar þjóðir Evrópubandalagsins.
Hafa þó framlög ríkisins til
menntamála aukist nokkuð að
raungildi undanfarin þrjú ár.
Miðað við höfðatölu er framlag
okkar til þróunaraðstoðar aðeins tí-
undi hluti þess sem algengt er með
þjóðum Vestur- og Norður- Evr-
ópu. Um 70% Islendinga telja samt
þessa þróunaraðstoð vera nógu
mikla eða jafnvel of mikla. Við er-
Fyrirmælum
um sem sagt bókstaflega að drep-
ast úr sérgæðahyggju og sjálfsvor-
kunnsemi sem stjómmálamennim-
ir kynda undir hvenær sem færi
gefst.
Þjóðin er ung og því er aldrað
fólk tiltölulega fátt hér á landi. En
þessu fólki sinnum við samt illa.
Við sinnum líka bömum illa.
Miðað við höfðatölu emm við
einhverjir mestu sóðar í heimi; við
göngum illa um náttúru okkar og
mengum mikið.
Fleira má neikvætt telja en
þessi upptalning verður að duga í
bili þótt freistandi væri að halda
henni áfVam vegna þess að það er
kjördagur og meiningin er að sýna
fram á nauðsyn þess að kjósa eina
stjómmálaflokkinn sem í áraraðir
hefiir bent á alla fyrrgreinda bresti
í samfélagi okkar og krafist úrbóta.
Við þurfum sem sagt að efla
samstöðu manns með manni, bæði
hér á landi og í alþjóðamálum. Það
er þetta sem kallað er félags-
hyggja. Alþýðubandalagið er
fremsti fúlltrúi félagshyggjunnar á
Islandi á sama hátt og Sjálfstæðis-
flokkurinn er helsti fulltrúi þeirrar
sérgæðahyggju sem á ýmsan hátt
hafnað
A Adda Bára
er að gera Islendinga að viðundri
meðal siðmenntaðra þjóða.
Við þurfúm einnig að stórefla
allar mengunarvamir og græða
landið.
Markmið stjómmálanna eiga
því að vera jöfnuður og umhverfis-
vernd.
I baráttusæti G-listans í
Reykjavik er Auður Sveinsdóttir,
sem óneitanlega er góður fulltrúi
þessara markmiða. Við þurfúm að
tryggja henni þingsæti í dag.
Góðir félagar í stjórn Fé-
lags íslenskra náttúru-
fræðinga. Þið hafið
gert ykkur sek um fá-
heyrð félagsleg afglöp með því
að birta í nafni stéttarféiags
okkar auglýsingu, sem færir há-
skóiamenntuðum ríkisstarfs-
mönnum þau tilmæli, að ekki
skuli þeir kjósa neina núver-
andi ráðherra. Til öryggis eru
þeir taldir upp og byrjað á ráð-
herrum Alþýðubandalagsins.
Þið hafið ekkert umboð til að
senda slík fyrirmæli í nafni stétt-
arfélags til eins eða neins. Kosn-
ingaáróður verðið þið að stunda í
eigin nafni.
Það er leitt til þess að vita, að
þið hafi grafið ykkur svo djúpt
niður í skotgrafir, að þið sjáið
ekkert annað í stjómmálum en ein
vond bráðabirgðalög. Venjulegt
fólk, sem stendur á jafnsléttu, sér
svo ótalmargt fleira og mikilvæg-
ara. Eftir þessa dæmalausu aug-
lýsingu ykkar þykir mér það eitt
slæmt að geta ekki kosið alla Al-
þýðubandalagsráðherrana með
tölu, og alveg sérstaklega vildi ég
geta kosið hinn ágæta náttúm-
fræðing Steingrím J. Sigfússon.
Það er hins vegar harla góður
kostur að vera Reykvíkingur og
eiga þess kost að kjósa Svavar
Gestsson, sem reynst hefur
menntun og menningu þessa
lands hinn nýtasti maður.
Eg hef verið erlendis, og því
ekki átt þess kost að bregðast við
auglýsingu ykkar fyrr. Nú er ekki
Iengur tími til ýtarlegra svara, en
ég vil láta ykkur vita að boðskap
ykkar hefi ég séð og er staðráðin í
að hafa hann að engu.
Adda Bára Sigfúsdóttir er
veðurfræðingur.
Afbrot
á síðari hluta
19. aldar
S t er komið ritið Því dæm-
Uist rétt að vera. Afbrot,
refsingar og íslenskt
samfélag á síðari hluta
19. aldar eftir dr. Gísla
Ágúst Gunnlaugsson lektor í sagn-
fræði við Háskóla íslands. Ritið er
hið 28. í ritröðinni Ritsafn Sagn-
fræðistofnunar, en ritstjóri hennar
er Jón Guðnason prófessor.
í ritinu er fjallað um félagssögu-
legar rannsóknir á afbrotum og refs-
ingum erlendis og hérlendis. Greint
er frá helstu kenningum og aðferð-
um erlendra sagnffæðinga sem slíkar
rannsóknir hafa stundað og þær síð-
an notaðar til rannsóknar á afbrotum
og refsingum á Islandi á síðari hluta
19. aldar. Meginviðfangsefni höf-
undar er að ieita svara við spuming-
unni: Hvað segja afbrot og refsingar
okkur um íslenska samfélagsgerð
fyrr á tímum? í ritinu er gerð úttekt á
því hvers konar mál komu fyrir rétt í
þremur sýslum á síðari hluta 19. ald-
ar. Á grundvelli þeirrar athugunar
eru valdir málaflokkar athugaðir sér-
staklega. Þeir eru: Hórdómur og leg-
orð, dulsmál, brot á atvinnustéttalög-
gjöfinni, þjófnaðir og skuldamál.
Siðferðisbrotin og dulsmál eru eink-
um könnuð með hliðsjón af stöðu
ógiftra kvenna á síðari hluta 19. ald-
ar, brot á atvinnustéttalöggjöfinni og
þjófnaðir með tilliti til virkni félags-
legs taumhalds og ráðandi þjóðfé-
lagsviðhorfa, en skuldir með hlið-
sjón af breytingmn á verslun og
samfélagsháttum. í ritinu er sérstak-
ur kafii um réttarvitund og refsivið-
horf og í bókarlok eru dregnar niður-
stöður og þær bomar saman við nið-
urstöður erlendra ffæðimanna, eink-
um sænskra.
Því dæmist rétt að vera er 100
bls. að lengd og annast Sögufélag,
Garðastræti 13b, dreifingu ritsins.
Kosningamiðstöðvar G-listans
Opið á kjördag í Iðnó og á Laugavegi 3 frá kl. 09
Kaffi og veitingar!
Upplýsingar um kjörskrá og kjörstaði ásamt aðstoð
vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu er á
Laugavegi 3, símar 28141 og 628272.
Aðrir símar: f Iðnó 620747 og á
Laugavegi 3, 628274 og 17500.
Bílasími: 620106
Kosningavakan er á Hótel Borg. Húsið opnað kl. 21
Lítið inn á kjördag í kaffi og spjall!
GJistinn
í Reykjavík
TEG: 8001
TEG: 8178
TEG: 9177
TEG: 9183
LITUR: SVART/BRUNT. SVART/SVART
SVART/GRÆNT
VERÐ: 6.690 kr.
LITUR: BRUNT 0G SVART
VERÐ: 6.890 kr.
LITIR: OÖKKBLÁTT,BRÚNT OG SVART
VERÐ: 6.490 kr.
LITIR: SVART OG BRUNT
VERÐ: 6.690 kr.
NY SENDiNG AF GLÆSILEGUM KVENSKOM FRA SPANI. STÆRÐIR 3 - 8 í HÁLFUM OG HEILUM NUMERUM.
cy
^PÓSTSENDUM
4
■gK
Skór ú ollo fjölskylduno
Uíi
LAUGAVEGI 95
iar 62 45 90
-J
Síða 9
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. apríl 1991