Þjóðviljinn - 27.04.1991, Side 5
L AU G ARD AGSFRETTIR
Stjómarmvndun
Ætla ser fjora daga
WF lukkan sex í gærdag kall-
aði forseti íslands Vigdís
Finnbogadóttir Davíð Oddsson
formann Sjálfstæðisflokksins á
sinn fund og fól honum mynd-
un ríkistjórnar er njóti meiri-
hlutafylgis á Alþingi. Jón Bald-
vin Hannibalsson formaður Al-
þýðuflokksins var þá nýgengin
af fundi forseta en þar lýsti
hann þeim vilja sínum að Davíð
fengi stjórnarmyndunarum-
boðið.
Aðspurður taldi Davíð að það
myndi taka íjóra daga að mynda
stjóm Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins. Stuttu áður hafði
Jón Baldvin lýst þvi að stjómar-
myndunin myndi ekki taka lang-
an tíma þar sem ekki væri ætlunin
að gera langan og itarlegan
stjómarsáttmála heldur ætti að
gera verkefnalista sem gæti rúm-
ast á tveimur A-4 blöðum einsog
Jón Baldvin orðaði það. Fyrsti
formlegi viðræðufundur aðila
hefst i dag klukkan tvö.
Jón Baldvin og Steingrímur
Hermannsson formaður Fram-
sóknarflokksins töluðust við i
gærmorgun og eftir þann fund
taldi Steingrímur mögulegt að ná
saman þrátt fyrir allt en Jón Bald-
vin taldi að betra yrði fyrir Al-
þýðuflokkinn að ná samkomulagi
um landbúnaðarmál, sjávarút-
vegsmál og niðurskurð rikisút-
gjalda í samvinnu við Sjálfstæðis-
flokk.
Það er ljóst að þrátt fyrir
óánægju margra alþýðuflokks-
manna er búið að vinna mikið í
stjómarsamningi þessara tveggja
flokka. Steingrímur sagði á
blaðamannafundi sem hann hélt í
Stjómarráðinu í gær að hann vissi
til þess að Jón Sigurðsson og
fleiri alþýðuflokksmenn hefðu
verið famir að vinna að viðreisn-
arstjóm fyrir tveim mánuðum.
Jón Baldvin hafði ekki annað um
þetta að segja en að þá vissi Stein-
grímur meira en hann.
Það var um fimm í gær sem
Jón Baldvin fór á fund forseta ís-
lands, þá beint af þingflokksfundi
Alþýðuflokksins. A fundinum
vom ekki greidd atkvæði um
hvort stjómarmynstrið yrði ofaná,
viðreisn Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks eða félagshyggju-
stjóm með Alþýðubandalagi,
Framsóknarflokki og Kvenna-
lista. Jón Baldvin sagði að Gunn-
laugur Stefánsson einn þing-
manna hefði lýst þeirri skoðun
sinni að reyna ætti til þrautar að
koma á fót vinstri stjóm.
En ljóst er að nokkrir fleiri
þingmenn Alþýðuflokksins eru
Gunnlaugi sama sinnis þó þeir
hafi ekki tekið jafn sterkt til orða.
Jóhanna Sigurðardóttir varafor-
maður Alþýðufiokksins hefur
verið sett í þann flokk, en hún
setti á flokksstjómarfundinum á
fimmtudag húsnæðismálin sem
skilyrði fyrir samvinnu við Sjálf-
stæðisflokkinn.
Gunnlaugur sagði í gær í sam-
tali við Þjóðviljann að hann vildi
ekki leggja mat á það mat Jóns
Baldvins að hann einn hefði talað
með því að reyna hefði átt til
fullnustu að mynda vinstri stjóm
undir forystu Alþýðuflokksins.
Gunnlaugur vildi þó bæta við að
hann treysti Jóni Baldvin full-
komlega til að leiða viðræðumar
við Sjálfstæðisflokkinn.
Jón Baldvin segist benda á
Davíð sem forsætisráðherraefni
með fulltingi alþýðuflokksmanna
sem flestir hafi talað með Við-
reisn á flokksstjómarfundi Al-
þýðuflokksins í fyrradag. Þar töl-
uðu 26 og taldi Jón Baldvin að 16
hefðu talað með Viðreisn, fáir
gegn, en nokkrir hafi staðið þar á
milli. En margir alþýðuflokks-
menn sem Þjóðviljinn talaði við í
gær mátu þetta frekar þannig að
12 hefðu talað með Viðreisn en
11-12 á móti.
„Eg tel þetta svartasta daginn
í sögu íslenskrar jafnaðarmanna-
hreyfingar, því að líklegast fáum
við aldrei aflur þetta tækifæri til
að mylja valdakerfi Sjálfstæðis-
flokksins niður,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson formaður Al-
þýðubandalagsins í gær, en hann
á fundi með forsetanum sagðist
telja að Steingrimur ætti að fá
umboðið. Steingrimur sagði for-
setanum að hann teldi sig geta
komið saman stjóm fjögurra
flokka eða félagshyggjustjóm á
sínum fundi með forsetanum í
gærmorgun. En fulltrúar Kvenna-
lista Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
og Kristín Halldórsdóttir sögðu
það sem allir sáu að það stefndi í
viðræður um viðreisnarstjóm og
því væri ekki rétt að benda á að
Steingrímur ætti að fá umboðið
að þessu sinni.
-gpm
Davlð Oddsson kemur á fund forseta Islands Vigdlsar Finnbogadóttur (gærdag þar sem hann sagðist telja sig
geta myndað meirihlutastjórn á þingi. Slðar staðfesti Jón Baldvin Hannibalsson þetta við forsetann og hún
veitti Davið umboð til stjórnarmyndunar klukkan sex ( gær. Mynd: Kristinn.
Vígtólum
fækkar á
Miðnes-
heiði
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Þjóðviljans hafa
Bandaríkjamenn ákveðið að
fækka F-15 orrustuþotum í 57.
flugsveitinni Miðnesheiðinni,
úr 18-19 vélum í 12 og mun það
koma til framkvæmda í nóv-
ember næstkomandi.
Amór Siguijónsson hjá Vam-
armálaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins segist ekki geta staðfest
þetta þar sem ákvörðun um
þennan niðurskurð hefur ekki
borist þeim til eyma. Hann segist
ekki vita betur en að það sé ekki
til umræðu af hálfu Bandaríkja-
manna að fækka orrustuþotum á
Miðnesheiði og þá sérstaldega
vegna þess að fjöldi þeirra sé nú
í algjöru lágmarki. Amór segir
að allar breytingar í þessum efh-
um séu ekki gerðar án samráðs
við íslensk stjómvöld. „Eg mun
hinsvegar láta kanna þetta, því
það er alveg nýtt fyrir okkur að
búið sé að taka ákvörðun um
þessa fækkun“, sagði Amór Sig-
uijónsson.
-grh
Gegn ofurvaldi Sjálfstæðisflokksins
Stjórnir Alþýðuflokks-, Al-
þýðubandalags- og Fram-
sóknarfélaganna í Hveragerði
hafa sent frá sér sameiginlega
yfirlýsingu þar sem lögð er
áhersla á að þessir flokkar
standi þétt saman gegn ofur-
vaidi Sjálfstæðisflokksins. Yflr-
iýsingin fer hér á eftir:
„Við undirrituð teljum úrslit
Alþingiskosninganna 20. apríl sl.
skýr tilmæli til forystumanna
flokka okkar um að halda áfram
stjómarsamstarfi. Við teljum
nauðsyn að þessir fiokkar standi
nú þétt saman gegn ofurvaldi
Sjálfstæðisfiokks, þar sem frjáls-
hyggja og sérhagsmunapot virðist
í stöðugum uppgangi og þá eink-
um í höfuðvígi hans í Reykjavík.
Ríkisstjóminni hefur á síðustu
tveimur árum tekist að ná undra-
verðum árangri í viðureigininni
við verðbólguna og er ástæðu-
laust að hætta þeim árangri með
því að leiða Sjálfstæðisfiokk til
stjómarforystu nú þegar örðugasti
hjallinn er að baki. Ef þeirri stjóm
tækist sæmilega myndi Sjálfstæð-
isfiokkurinn komast í þá aðstöðu
að geta hreykt sér af verkum ann-
arra. Ef miður fer, sem er líklegra,
yrði þeim fiokki, sem gekk til lið-
sinnis við Sjálfstæðisfiokk refsað
í næstu kosningum. Það versta er
að brotthlaup frá samstarfi félags-
hyggjuflokka nú leiddi til þess að
erfitt yrði að hefja slíkt samstarf
að nýju. Fyrir okkur, sem staðið
höfum að samstarfi á sviði sveita-
stjómarmála í Hveragerði með
góðum árangri, yrði slík niður-
staða til mikilla vonbrigða."
Undir þetta skrifa stjómir fé-
laganna þriggja en yfirlýsingin
var send til flokkstjóma Alþýðu-
flokks, Alþýðubandalags og
Framsóknarfiokks. -Sáf
Grandi hf.
Heildarvelta tæpir 3 miljarðar
eildarvelta Granda hf. í
fyrra nam tæpum þremur
miljörðum króna og var heild-
arafli sjö togara fyrirtæksins
rúmlega 28 þúsund tonn. Hagn-
aður af rekstri fyrirtækisins
nam rúmum 190 miljónum
króna. 1 lok síðasta árs nam eig-
ið fé fyrirtækisins 1.330 miljón-
um króna eða 40% af heildar-
eignum. Meðalfjöldi starfs-
manna var um 392 og launa-
greiðslur voru 832 miljónir
króna.
Þetta kom fram á aðalfundi
fýrirtækisins sem haldinn var í
gær. Athygli vekur að um tveir
þriðju hlutar afurðanna í verð-
mætum fóru á markað í S- og V-
Evrópu og hefúr það hlutfall
aldrei verið hærra. Til Bandaríkj-
anna fóru aðeins 7% framleiðsl-
unnar sem er minna en áður hefur
þekkst. Þéssar markaðsbreytingar
skýrast af slöku gengi dollars og
háu söluverði í Evrópu.
Heildarframleiðsla fyrirtækis-
ins í fyrra nam samtals 9.650
tonnum og þar af nam framleiðsl-
an í landi 7.480 tonnum af fryst-
um sjávarafurðum, en úti á sjó
voru framleidd 2.170 tonn. Af
heildarafia voru seld 6.500 tonn
erlendis, en 7.400 á innlendum
fiskmörkuðum. Að viðbættri
vinnslu úr eigin skipum voru
keypt rúmlega sjö þúsund tonn á
innlendum fiskmörkuðum til
vinnslu.
A síðasta ári var tekin i notk-
un ný vinnslulína til framleiðslu á
hágæðaþorski í smásölupakkn-
ingar íyrir ítalskan markað, auk
þess sem kannanir hafa verið
gerðar á svipaðri framleiðslu á
karfa fyrir þýska og franska neyt-
endur.
Síðastliðið haust voru Grandi
hf. og Hraðfrystistöðin sameinuð
í eitt fyrirtæki. Hlutafé þeirra var
þá aukið um 200 miljónir króna
vegna sameiningarinnar og til
sölu á almennum hlutabréfamark-
aði. A árinu voru seld hlutabréf að
nafnvirði 103,7 miljónir króna
fyrir samtals 187,4 miljónir. Hlut-
hafar eru nú 357, en voru aðeins
65 í árslok 1989.
-grh
LIN
Hátt í 90 prósent tilbaka af lánum
Varlega áætlað fæst 84-88
prósent tilbaka af lánum
Lánasjóðs íslenskra náms-
manna. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans er þetta niðurstaða
Ríkisendurskoðunar sem ný-
verið vann skýrslu um sjóðinn
fyrir stjórn LIN. Stjórnin fjall-
ar um skýrsluna á fundi sínum í
dag.
Þetta hlutfall fæst með nokkru
vanmati, sé hinsvegar reiknað án
þess að fara varlega í sakimar
hljóðar áætlunin upp á að yfir 90
prósent af útlánuðu fé fáist til
baka að raungildi.
Hinsvegar reiknaði stofnunin
þetta hlutfall miðað við að sex
prósent vextir væm á lánunum. Þá
fengust aðeins 65 prósent til baka,
en í dag eru lánin vaxtalaus en
verðtryggð og greiðast á 40 ámm.
Annars vegar er greidd ein föst af-
borgun og hinsvegar er greidd af-
borgun sem tekur mið af tekjum
hins fyrrverandi námsmanns.
Þannig greiða flestir um fimm
prósent af launum sínum tilbaka á
hveiju ári í 40 ár.
Sú reikningsaðferð að miða
við sex prósent vexti á lánunum
hefur verið gagnrýnd enda mætti
þá alveg eins reikna með átta pró-
sent vöxtum og fá verra hlutfall
eða með lægri vöxtum og fá þá
betra hlutfall.
Annars mun skýrslan gefa
nokkuð jákvæða mynd af sjóðn-
um sérstaklega sé tekið mið af
öðmm opinbemm sjóðum sem
greiða niður vexti.
-gpm
Laugardagur 27. aprí!1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 5