Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 6
„Hættulegasta ríki heims“
Kim II Sung - í hans augum er gangur mála ( heiminum allrasíðustu ár
að Kkindum ragnarakakenndur.
Kimfeðgar, sem horfa
kvíðnir fram á veginn í
vaxandi alþjóðlegri einangrun
að kalda stríði loknu, líta e.t.v. á
kjarnavopnafælingu sem hinstu
vörn ríkis síns
Norður-Kórea er þannig í
sveit sett að varla kemur til þess
að hún verði skilgreind sem
„svæðisbundið stórveldi“. Hitt
Kóreuríkið, Suður-Kórea, er
miklu sterkara efnahagslega, hef-
ur her mikinn og þar að auki
bandarískan her í landinu sér til
fulltingis.
Þar að auki eru alltum kring
Kína, Sovétríkin og Japan, sem
öll má kalla risaveldi sökum
mannfjölda, náttúruauðlinda og
efnahagsmáttar.
Eigi að síður kallaði banda-
ríska blaðið New York Times
Norður-Kóreu nýverið „hættuleg-
asta ríki heims“ og dró þann lær-
dóm af eigin athugunum og um-
mælum háttsettra manna á vegum
Bandaríkjastjómar. Og það sem
frá Japönum, Sovétmönnum og
Suður-Kóreumönnum hefur
heyrst undanfarið um ríki þetta
bendir til þess að þeir séu ekki
mjög fjarri því að vera blaðinu
sammála í þessu efni.
Lee Yong-koo, vamarmála-
ráðherra Suður-Kóreu, sagði fyrir
skömmu við fréttamenn að ef
Norður-Kórea eignaðist kjama-
vopn, gæti svo farið að Suður-
Kórea sæi sig tilneydda að ráðast
á atómstöðvar grannríkisins, til að
fyrirbyggja að það beitti kjama-
vopnum gegn Suður-Kóreu. Svo
er að heyra að ráðherrann hafi í
þetta sinn talað af sér, því að þeg-
ar á eftir lýsti ráðuneyti hans yfir
að ummælin væm tekin aftur
„eins og þau hefðu aldrei verið
sögð“. En skaðinn var skeður; í
Pyongyang, höfuðborg Norður-
Kóreu, sögðu menn að ummælin
væru í raun „stríðsyfirlýsing".
Gorbatsiov heim-
sækir Suour-Kóreu
Kim II Sung, einræðisherra
Norður- Kóreu, kallaður „leiðtog-
inn mikli“ af þegnum sínum og
kominn undir áttrætt, hefur verið
við völd í 43 ár samfleytt, eða
lengur en nokkur annar núverandi
ríkisleiðtogi veraldar. Líkur em á
því að hann horfi ekki fram á veg-
inn með bjartsýni einni saman.
Skipting Kóreu i tvö ríki er af-
sprengi kalda stríðsins, sem var
þeirri skiptingu og þar með norð-
urkóreanska ríkinu tilvistartrygg-
ing meðan það var og hét. En síð-
ustu ár hefur Kim mátt horfa upp
á að flokkseinræði kommúnista
hmndi eins og spilaborg í Austur-
Evrópulöndum og Mongólíu og í
Sovétríkjunum hefúr stómm úr
því dregið.
Með Norður-Kóreu og
Bandaríkjunum hefur verið fjand-
skapur frá því í Kóreustríði, með
þeim afleiðingum að Bandaríkin
hafa séð til þess að Norður-Kórea
hefur mikið til verið útilokuð frá
viðskiptum við heiminn utan ríkja
undir stjóm kommúnista. Við-
skipti Norður-Kóreu hafa því
einkum verið við Sovétríkin og
Kína. En nú leggja þessi stórveldi
áherslu á sem mest viðskipti og
bætt samskipti við Vesturlönd og
Japan og skeyta lítt um hagsmuni
Norður-Kóreu í því sambandi.
Gorbatsjov Sovétríkjaforseti er
nýkominn heim úr opinberri
heimsókn til Suður- Kóreu. Þá
heimsókn, sem og aukin og sífellt
vinsamlegri sambönd Sovétríkj-
anna og Suður-Kóreu undanfarið,
lítur Kim alvarlegum augum sem
svik „sósíalískrar“ bræðraþjóðar.
Endalok kalda stríðsins hafa
sem sé leitt til þess að Norður-
Kórea er einangraðri en nokkru
sinni fyrr. Þar hafa ráðamenn nú
vaxandi áhyggjur af að örlög ríkis
þeirra verði á sömu lund og Aust-
ur- Þýskalands, að það verði með
samþykki jafnt „vina“ sem óvina
innlimað í hitt kóreanska ríkið,
sem er íjölmennara og rikara.
Flestra hald er að hinn aldraði
norðurríkisleiðtogi muni flest
vilja gera til að koma í veg fyrir
að svo fari. Vera kann að hann
treysti í því efni einkum á her-
styrk sinn, sem innan skamms
verður væddur kjarnavopnum, ef
grunsemdir ýmissa erlendra aðila
hafa við rök að styðjast.
Norður-Kórea hefur 22-23
miljónir íbúa, um miljón manna
her, um 700 stríðsflugvélar og
hundruð Scud- eldflauga, sem
keyptar voru af Sovétríkjunum og
síðan endurbættar. Riki þetta, sem
hefur aðeins nokkrum miljónum
fleiri íbúa en Irak, virðist efiir töl-
um þessum að dæma vera næstum
eins mikið herveldi og hitt var
fyrir Persaflóastríð, en vera kann
að vísu að Norður-Kóreumenn,
sem varla hafa átt eins greiðan að-
gang að vestrænum vopnasölum
og Irakar, hafi ekki jafn tæknileg-
an vopnabúnað og Saddam hafði.
Ákveðið hefur verið að Kim
Jong II, fimmtugur sonur „leið-
togans mikla“, taki við ríki af
honum. Umdeilt er að vísu hversu
mikil völd „leiðtoginn ástkæri“,
eins og ríkiserfinginn er kallaður,
hafi, en sumra mál er að faðir
hans hafi síðustu árin látið hann
ráða flestu. Óvinir þeirra feðga
segja að hann sé ekki föðurbetr-
ungur, heldur að líkindum ófyrir-
leitnari og óútreiknanlegri en
gamli maðurinn. Suðurkóreanska
leyniþjónustan, sem að vísu er síst
af öllum hlutlaus aðili þegar um
feðga þessa er að ræða, telur að
Kim yngri hafi staðið á bak við
sprengjutilræði við suðurkóre-
anska sendinefnd 1983 í Rangún,
höfuðborg Búrma, en þá fórust 17
menn. Sami aðili kennir „leiðtog-
anum ástkæra“ um sprengingu,
sem grandaði suðurkóreanskri
farþegaþotu 1987. Þá fórust 115
manneskjur.
Norður-Kóreustjóm sjálf seg-
ist alls ekki hafa í hyggju að eign-
ast kjamavopn. En hin og þessi
ríki taka þeim fullyrðingum með
tortryggni og styðjast í því m.a.
við myndir teknar úrbandarískum
gervihnöttum af kjamorkuvemm
við Yongbyon, um 100 km norður
af Pyongyang.
Japanskir sérfræðingar hafa út
ffá athugun á myndunum og öðr-
um heimildum sagt að þar muni
einkum eiga að framleiða tiltölu-
lega litlar kjamasprengjur, ætlað-
ar í tiltölulega skammdrægar
flaugar og til notkunar á vigvelli.
1985 skrifaði Norður-Kórea
að vísu undir sáttmálann gegn
dreifingu kjamavopna og mun
hafa gert svo einkum fyrir ein-
dregnar fortölur sovésku stjómar-
innar. En Norður- Kóreustjóm
hefúr eftir sem áður þvemeitað að
leifa alþjóðlegt eftirlit með kjam-
orkuverum sínum, en kveðið er á
um slíkt eflirlit i sáttmálanum.
Þetta hefur ásamt með öðm
aukið þykkjuna milli Norður-
Kóreu og Sovétríkjanna og nýver-
ið gaf sovéska stjómin í skyn, að
hún myndi hætta öllu samstarfi í
kjamorkumálum við Norður-Kór-
eu, nema stjómin þar færi að
ákvæðum áminnsts sáttmála. Jap-
anska stjómin, sem þeir Kimfeðg-
ar vilja gjaman vingast og komast
í efnahagsleg sambönd við til að
ijúfa einangrun sína, segir: Þið fá-
ið hvorki stjómmálasamband við
eða efnahagshjálp frá okkur með-
an þið standið ekki við sáttmál-
ann.
Við leyfum ekkert eftirlit með
okkar kjamorku fyrr en Bandarík-
in hætta að ógna okkur með
kjamavopnum, svara þeir feðgar.
Og það gera Bandaríkin vissu-
lega. Má vera að eftir það, sem
skeð hefúr í heiminum allra síð-
ustu ár og sumt hefúr trúlega
ósvikinn ragnarakasvip í augum
„leiðtogans mikla“, sé nú eigin
kjamavopnafæling eina vömin,
að hans dómi.
„Kóreönsk atómvopn eru
mesta ógnunin við stöðugleikann
í Austur-Asíu,“ sagði nýlega
Richard Solomon, aðstoðamtan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna.
Um málefni Kóreu, eins og
margt fleira, er nú heilmikið sam-
ráð með Bandaríkjunum og Sov-
étríkjunum. Sovéskir sérffæðing-
ar um kjamavopn hafa sagt koll-
egum sínum bandarískum, að úr
því sem komið væri gætu Sovét-
menn fátt gert til að koma í veg
fyrir að Kimfeðgar smiðuðu sér
kjamavopn. Og hugsanlegt væri
að þeir réðu slíkum tækjum innan
sex mánaða.
Kókaínbarónar plægja Evrópuakur
Kókaínbarónamir svonefndu í
Suður-Ameríku eru sífellt að finna
upp á nýjum leiðum til að dreifa for-
boðinni framleiðslu á alþjóðlcgum
markaði. Undanfarið hafa þeir fært út
kvíamar og komið sér upp æ flóknara
dreifmgarkerfi vítt og breitt um Suð-
ur-Ameríku til að flytja kókaín á Evr-
ópumarkað sem verður stöðugt mikil-
vægari.
Þetta er staðhæft á alþjóðlegri
ráðstefnu sem fram fer um þessar
mundir I Kólombíu um baráttu gegn
dreifingu og sölu eiturlylja.
í krafti ótölulegra fjármuna gera
kókaínbarónamir sér lítið fyrir og
flytja starfsemina milli landa og
borga Suður-Ameríku eftir því sem
yfirvöldum og löggæslu verður
ágengt við að komast að og uppræta
hefðbundnar flutningaieiðir á eitrinu.
Talið er að um þessar mundir sé
mikið magn kókaíns flutt út og
smyglað ffá brasilísku hafnarborginni
Santos og Buenos Aires í Argentínu
yfir til Rotterdam I Hollandi. Til hafn-
ar í Rotterdam koma daglega um
7000 vörugámar þannig að annað er
óhjákvæmilegt en að talsvert magn af
eitrinu slcppi fram hjá vökuulu auga
tollvarða og fíkniefnalögreglu.
Ástæða þess að kókaínbarónamir
renna um þessar mundir hým auga til
Evrópu er sú að markaður fyrir efnið I
Norður-Ameríku virðist vera mettað-
ur, en enn er talin von til þess að ýta
undir og auka kókaínnotkun austan
Atlantsála.
Að mati flkniefnalögreglu I Kól-
umbíu hafa kókaínbarónamir komið
sér upp miðstöð fyrir dreifmgu og
sölu efnisins I Evrópu á Spáni og Ital-
íu. Talið er að undanfarin tvö ár hafi
um 60 af hundraði þess kókaíns sem
borist hefur til Evrópu komið frá
,Jieildsölum“ I þessum tveimur lönd-
um. Þá er talið að vikapiltar kókaín-
barónanna í Evrópu séu vel skipu-
lagðir glæpahringir, og hefúr mafían
ítalska legið þar sterklega undir gmn.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Lárus Jónatansson
vélvirki
andaðist að heimili sínu 26. apríl.
Hallveig Einarsdóttir
Einar Örn Lárusson
Lárus G. Lárusson Sigrfður Þ. Friðgeirsdóttir
barnabörn og barnabamabörn.
Allt að 2000 deyja á dag
Hjálparstarfsmenn á vegum
Sameinuðu þjóðanna,
staddir á írask-írönsku landa-
mærunum, sögðu í gær að dauðs-
foll meðal kúrdneskra flótta-
manna þar væru allt að 2000 á
dag. Hrynur flóttafólkið, einkum
börn og gamalt fólk, niður úr
ýmsum sjúkdómum og vegna
þess að enn fer því fjarri að mikl-
Tyrkneskur hermaður grenjar að
fréttamönnum, sem staðið höfðu
hann að því að skjóta á kúrd-
neska flóttamenn.
um fjölda þess hafi verið séð fyr-
ir því brýnasta. Mikill skortur er
þar enn á lyfjum, fatnaði, mat-
vælum og skýlum.
Að vísu er svo að heyra að
hjálp utan frá til flóttamannanna
berist nú til Irans í auknum mæli,
en á því að hjálp bærist þangað hef-
ur verið nokkur tregða, einna helst
vegna fjandskapar Bandaríkjanna
og Irans.
íraskir hermenn, sem síðustu
daga hafa í hundraðatali verið í
Zakho, smáborg vestan til I íraska
Kúrdistan, eru að sögn talsmanna
vesturlandahersveita á staðnum
famir þaðan, eftir að þær hersveitir
höföu hótað að beita vopnum gegn
þeim ef þeir færu ekki með góðu.
George Bush, Bandaríkjafor-
seti, lýsti því yfir i gær að banda-
rískar hersveitir yrðu í íraska Kúrd-
istan meðan þeirra væriþörf þar til
vemdar Kúrdum gegn Iraksstjóm.
Hann sagði ennfremur að hann
vildi að Saddam Iraksforseta yrði
steypt af stóli og sagði að eðlileg
samskipti yrðu ekki tekin upp á ný
með Bandaríkjunum og írak meðan
„maður þessi“ væri við völd og „ég
er forseti."
Jaffar Guly, talsmaður Lýðræð-
isflokks Kúrdistans, hvatti í dag til
þess að Sameinuðu þjóðimar eða
andstæðingar íraks í Persaflóastríði
ábyrgðust að lraksstjóm stæði við
samkomulagið um sjálfstjóm; sem
hún gerði í s.l. viku við Iraks-
Kúrda. „Við emm ekki svo bama-
legir að við treystum Saddam,"
sagði Guly. Síðan vesturveldaher-
sveitir fóm inn í Norður-írak em
flóttamenn famir að streyma þang-
að sem þær hafa stöðvar, en fréttir
frá flóttafólkinu benda til þess að
fjölmargt af því áræði ekki að snúa
heim, þar eð það sé í óvissu um,
hversu mikil vemd bandamanna
verði og hvað hún standi lengi.
Borgarbúar í Zakho sögðu ffétta-
mönnum I gær að sumir leyniþjón-
ustuliðanna, sem írösk yfirvöld
segjast hafa kallað á brott, heföu
skipt um föt og farið hvergi.
Ekki er laust við ýting milli
vesturlandaríkja og framkvæmda-
stjóra S.þ., Perez de Cuellar, í
þessu máli. Hann sagði í gær að
S.þ. myndu taka við umsjón flótta-
mannabúðanna í íraska Kúrdistan
innan nokkurra daga.
Saúdi-Arabíustjóm hefúr lofað
að taka við 7000-8000 flóttamönn-
um ffá Suður-írak, sem leituðu á
náðir bandamannahers. Talsmenn
íraskra sjítasamtaka segja að enn sé
barist sunnanlands og kváðu sína
menn hafa náð Basra á sitt vald í
fyrrinótt, en haldið henni aðeins
skamma hrið.
6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 27. apríl 1991
\