Þjóðviljinn - 27.04.1991, Síða 17
Flugeldar liggja út um allt
Nanna Karen Alfreðsdóttir 7 ára.
Þóra Björk Þórðardóttir 10 ára.
1991
Sumarið
Þegar ég hleyp út á sumrin
finn ég tcert loft, ómengað.
Það er fuglasöngur í loftinu
og sólin skín svo heitt
að égfer úr jakkanum
og hleyp til að fá hlýja goluna
inn á bolinn minn.
(Salka Guðmundsdóttir 10 ára)
Ráðaleysi
I Irak er vont að vera.
I Amríku ekkert að gera.
Hussein og Bush
ég teikna með túss
og krota yfir myndina þvera.
(Atli Páll Hafsteinsson 11 ára)
Blómið tásuspor
Eg var krakki,
en ég breyttist í blóm.
Sólin skein á mig, blómið.
(Svanbjörg Helga Björnsdóttir
5 ára)
Kertið
Kertið stendur þögult á borðinu
og horfir út í svart myrkrið
sem umlykur það.
(Þórunn Helga FeUxdóttir 9 ára)
r
Astin
Astin er dásamleg,
ekki gráta,
ég held utan um þig.
(Sævar Már Björnsson 11 ára)
Svona gengur lífið dag eftir dag,
ár eftir ár og öld eftir öld,
fyrst kemur dagur, svo kemur
kvöld.
(Svanborg Gísladóttir 12 ára)
Arið er liðið.
Flugeldar liggja út um allt.
Púðurlyktin í loftinu
berst inn um gluggann.
Fólkið hjúfrar sig uppi i rúmi
eftir gamlársvökuna.
Nú er komið nýtt ár
með von um betri tíð
ogfrið á jörðu.
En þá kemurpúðurlykt
utan úr heimi.
(Elías Freyr Guðmundsson 12 ára)
Þetta er smá sýnishom úr nýrri ljóða-
bók, sem kom út á sumardaginn fýrsta.
Höfundar ljóðanna mættu við hátíðlega at-
höfii i Listasafni ASÍ og fengu þar afhent
fyrstu eintökin. Þeir voru ekki háir í loft-
inu, þeir elstu 13 ára og þeir yngstu 3 ára.
Þama vom líka mættir höfundar mynda,
sem skreyta ljóðbókina og vom þeir á
sama reki og höfundar ljóðanna.
Bókin ber heitið, Ljóðabók bamanna,
ljóð eftir böm fyrir böm og fúllorðna, og er
hún gefin út í tilefni 75 ára afmælis Al-
þýðusambands íslands. Það er Iðunn sem
Ásmundur Stefánsson forseti ASl afhendir ungu höfundunum fyrstu eintök Ljóðabókar
barnanna við hátfðlega athöfn í Listasafni ASl á Sumardaginn fyrsta. Mynd Róbert.
gefúr út bókina, en menntamálaráðuneytið
hefúr lagt málinu lið.
Alls bámst 6000 Ijóð inn, allstaðar að
af landinu, cn i bókinni em einungis
hundrað ljóð. Útgáfunefhd sem í áttu sæti
Bergþóra Ingólfsdóttir, Hörður Zóphanías-
son, Kristín Mar, Olga Guðrún Ámadóttir
og Þórgunnur Skúladóttir, sá um að velja
ljóðin í bókina. I eftirmála með bókinni
segir að útgáfúnefndinni hafi verið mikill
vandi á höndum við valið, en að leiðarljósi
var haft að draga fram sem fjölbreyttasta
mynd af þeim hugarheimi sem birtist i
ljóðum bamanna.
Og fjölbreytileikann vantar ekki. Yrk-
isefnin em úr öllum áttum og fátt mannlegt
sem ekki er ort um. Náttúmstemningar,
ástarljóð, heimsósómakvæði, samfélags-
myndir, heimsfréttimar og líðandi stund
em meðal viðfangseftia þessara ungu
skálda. Og víst er um það að túlkun bam-
anna á viðburðum dagsins, manninum og
umhverfmu opnar fullorðnum nýja sýn á
tilvemna, bemska sýn sem í flestum tilfell-
um er sannari og einlægari en við eigum að
venjast.
I formála að bókinni segir Svavar
Gestsson menntamálráðherra:
„Það er gott að vita framtíð íslensku
þjóðarinnar í höndum þessa unga fólks
sem yrkir á þessa bók og það er gott að vita
af baráttunni fyrir réttlæti og jafnrétti á
vegum verkalýðssamtakanna sem hafa
framsýni og menningarlegt innsæi til að
hrinda af stað útgáfú á þessari bók. Sá
maður sem ekki finnur hlýja golu inn um
bolinn sinn við að lesa þessa bók einu sinni
ætti að lesa hana þrisvar." -Sáf
Vindurinn
Ég heyri
eitthvert hljóð.
Það heyrðist
i vindinum.
Vindurinn fer
i lækinn.
Hann klifrar
i klettana.
Vindurinn er
með augu.
Eg sá það.
Hann klappar
fjallinu.
(Gunnar Sveinn
Rúnarsson 3 ára
Lind Björk HaU-
dórsdóttir 3 ára og
VUhjálmur Rúnar
Vilhjálmsson 3 ára)
Anna Margrét Vignisdóttir 6 ára: „Ég I dýrabúöinni á Akureyri"
Laugardagur 27. apríl 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 17