Þjóðviljinn - 27.04.1991, Page 18
Syfjaður Bent Larsen
missti af meistaratitlinum
Danski stórmeistarinn Bent
Larsen er orðinn fastagestur á
danska meistaramótinu. Þó skák-
líf í Danmörku velti ekki háum
upphæðum þá er Bent Larsen
ávallt mikils metinn þar og þykir
ekki tiltökumál að ná i hann alla
leið til Buenos Aires þar sem
hann heldur heimili ásamt argent-
ískri eiginkonu sinni. Ekki er jafn
mikið látið með kollega hans
Curt Hansen. Er Larsen fékk stór-
fé fyrir að vera með á danska
meistaramótinu 1989 og Curt,
sem þó var hærri á stigum og hef-
ur náð frábærum árangri á liðnum
árum, var ekki boðin króna fór
hann i verkfall eins og Benóný
forðum.
Meistaramótið í ár var í
Kaupmannahöfn og lauk um
páskana. Það var skipað 12 skák-
meisturum þar af tveimur stór-
meisturum og sjö alþjóðlegum
meisturum. Larsen var langstiga-
hæstur en hinn trausti skákmaður
Lars Bo Hansen kom næstur. Bú-
ist var við harðri keppni þeirra
um titilinn. Lengi vel leit þó út
íyrir auðveldan sigur Bents. Þeg-
ar tvær umferðir voru til loka
mótsins var hann með örugga for-
ystu 7 vinninga af níu möguleg-
um, vinningi á undan Erling Mor-
tensen og hinum 17 ára gamla
Peter Heime Nielsen.
En næst síðasta umferð móts-
ins varð afdrifarík. Larsen hefur
aldrei hagað fótaferðartíma sín-
um eins og annað fólk, hann er
nátthrafn og morgunumferðir eit-
ur í hans beinum. Tvær síðustu
umferðimar hófust kl. 9 um
morguninn, í 10. umferð tapaði
Bent sinni fyrstu skák gegn Klaus
Berg. Erling vann gjörtapaða
stöðu gegn Jens Kristianesn og
Nielsen gerði jafntefli við Bjöm
Brinck Klaussen. Fyrir síðustu
umferð stóðu þeir jafnfætis Bent
og Erling Mortenesen. Larsen
tefldi við Nielesen byggði upp yf-
irburðastöðu, vann skiptamun og
virtist eiga allskostar við and-
stæðinginn er honum urðu á
hrikaleg mistök og tapaði. Mor-
tensen gat náð efsta sætinu einn
en fórst illa að vinna úr yfirburða-
stöðu í skák sinni við Jan Sören-
sen og varð jafntefli niðurstaðan.
Urslitin urðu því þessi:
1.-2. Mortensen og Nielsen 7
1/2 v. 3. Larsen 7 v. 4. - 5. Rasm-
ussen og Bo Hansen 6 1/2 v. 6. -
7. Schandorff og Berg 8. Kristi-
ansen 5 v. 9. Sörensen 4 1/2 v. 10.
Helgi
Ólafsson
- 11. Claussen og Hoi 4 v. 12.
Holst 2 1/2 v.
Efstu menn þurfa að tefla ein-
vígi um titilinn. Lokaniðurstöð-
una er ekki hægt að túlka á annan
veg en sem mikil vonbrigði íyrir
Bent Larsen sem tefldi leikandi
létt langt fram eftir móti. Lítum á
skák hans úr fyrstu umferð sem
minnir á gömlu góða dagana þeg-
ar kantpeðin mku fram og ollu
meiri glundroði en dæmi þekktust
um:
Bent Larsen -
Jens Kristiansen
Tsjigorin vörn
1. Rf3 Rc6
2. d4 d5
3. Bf4
(Tsjigorin - afbrigðið sést
sjaldan núorðið því eftir 3. c4
Bg4 stendur hvítur betur að vígi
samkvæmt fræðunum. En Larsen
fer sjaldan troðnar slóðir.)
3... Bg4
4. Rbd2 e6
5. c3 Rf6
6. e3 Bd6
7. Bb5 0-0
8. Bxc6 bxc6
9. Da4 Bxf3
10. RxO c5
11. dxc5 Bxc5
12. 0-0 Bd6
13. Hadl Bxf4
(Svartur hefði átt að vanda
þessi uppskipti meira. Mun eðli-
legra er 13. .. c5 og staðan er í
jafnvægi.)
14. exf4! c5
15. Hfel Db6
16. He2 Had8
17. g3 Hd6
18. Re5 c4
19. Dc2 g6
20. Hd4 Dc7
21. h4!
(Larsen er mættur á svæðið.
Þessi ffamrás virðist ekki ýkja
hættuleg en engu að síður ræður h
- peðið úrslitum.)
21.. . Hb6
22. b3 cxb3
23. axb3 Hfb8
24. b4 Hc8
25. Da4!
(Larsen skeytir ekki um peðið
á c3 enda er svarti riddarinn á
leiðinni til e4. Nú væri best að
leika 25. .. Dxc3 26. Dxa7 Dc7
(ekki 26. .. Dxd4 27. Dxf7+ Kh8
28. Ha2! með hótuninni 29. 29.
Ha7) og hvítur stendur aðeins
betur að vígi.)
25.. . Db7
26. He3 Re4
27. Hexe4!
(Skiptamunsfóm sem byggir
á hárfínni tilfinningu fyrir stöð-
unni.)
28.. . dxe4
28. Hd7 Ha6
29. Ddl! Hc7
30. Hd8+ Kg7
31. h5!
(Glæsileg stunga. Svartur er
vamarlaus.)
31.. . f6
(Svartur velur nærtækasta
leikinn. Hótunin var 32. h6+
Kxh6 33. Hg8! og vinnur. 31. ..
Hc8 var annar möguleiki en eftir
32. h6+ Kxh6 33. Rg4+ Kg8 34.
Hxc8! Dxc8 35. Dd4+ vinnur
hvítur t.d. 35... Kg8 36. Rh6+ og
drottningin fellur eftir 36. .. KfB
37. Dh8+ eða 35... e5 36. Dxe5+
f6 37. De7+ Kh8 38. Rxf6 o.s.ffv.
Larsen hefur reiknað dæmið til
enda og lokafléttan er stórglæsi-
leg.)
32. Hg8+! Kxg8
33. Dd8+ Kg7
34. h6+ Kxh6
35. Rg4+ Kh5
36. Rxf6+ Kh6
37. Rg4+
- Kristiansen gafst upp því
hann verður mát t.d. 37. .. Kg7
38. Df6+ Kg8 39. Rh6 mát!
Larsen var ekki til setunnar
boðið er mótinu lauk. Sama dag
og mótinu lauk tók hann flugið til
Buneos Aires þar sem mót til
heiðurs öldnu kempunni Miguel
Majdorf var að hefjast.
lirslitin hefjast á laugardaginn
é: ÁK106
V:Á9
♦: ÁK84
♦:K106
.Hin árlega parakeppni Bridge-
sambands Islands verður haldin
helgina 4.-5. maí næstkomandi.
Þessi keppni hefur verið vinsæl og
skemmtileg og í kringum 40 pör
hafa tekið þátt í henni undanfarin ár.
Keppnin verður haldin í húsi
Bridgesambandsins, Sigtúni 9 og er
keppnisgjald kr. 6.500. Spilaður
verður barómeter 2 spil rnilli para.
Skráning er hafin á skrifstofu sam-
bandsins s. 91- 689360 og skrán-
ingu lýkur fimmtudaginn 2. maí.
Minnt er á að þessi keppni er öllum
opin og spilað er um gullstig.
Núverandi Islandsmeistarar í
parakeppni em Kristjana Stein-
grímsdóttir og Ragnar Hermanns-
son, en þau unnu keppnina mcð
glæsibrag sfðasta ár.
Úrslit íslandsmótsins í tví-
menning 1991 fara fram í Sigtúni 9,
helgina 27.-28. apríl næstkomandi.
Þar spila 32 pör, 25 efstu sætin úr
undanúrslitunum sem voru helgina
13.-14. apríl ásamt 7 svæðameistur-
um sem komast beint inn í úrslit.
Svæðameistarar Suðurlands gátu
ekki verið með þessa helgi og því
var einu sæti meira til úthlutunar úr
undankeppninni. íslandsmeistarar
fyrra árs, Valur Sigurðsson, og Sig-
urður Vilhjálmsson eru báðir með
ný andlit á móti sér við græna borð-
ið og gátu því ekki nýtt sér þann rétt
að fara beint í úrslit, en komust
samt báðir gegnum hreinsunareld
undankeppninnar og keppa sitt í
hvoru lagi um að verja titilinn.
Minnt er sérstaklega á að úrslitin
verða spiluð að þessu sinni í húsi
Bridgesambands Islands, Sigtúni 9,
og hefst spilamennska kl. 11.
Töfluröö í úrslitum ís-
landsmóts í tvímenn-
ing 1991
1. Jakob Kristinsson - Pétur Guð-
jónsson
2. Valur Sigurðsson - Guðmundur
G. Sveinsson
3. Birgir Öm Steingrímson - Þórð-
ur Bjömsson
4. Guðlaugur R. Jóhannsson - Öm
Amþórsson
5. Sigurður Vilhjálmsson - Rúnar
Magnússon
6. Guðmundur Páll Amarson -
Þorlákur Jónsson
7. Björgvin Leifsson - Jóhann
Gestsson
8. Friðjón Þórhallsson - Sigfús Öm
Ámason
9. Steinar Jónsson - Ólafur Jóns-
son
10. Hrólfur Hjaltason - Ásgeir Ás-
bjömsson
11. Sverrir Ármannsson - Matthías
Þorvaldsson
12. Pálmi Kristmannsson - Ólafur
Jóhannsson
13. Páll Þ. Bergsson - Jömndur
Þórðarson
14. Hannes Jónsson - Jón Ingi
Bjömsson
15. Isak Öm Sigurðsson - Valgarð
Blöndal
16. Runólfur Jónsson - Gunnar
Þórðarson
17. Hermann Lámsson - Ólafúr
Lámsson
18. Ásmundur Pálsson - Guð-
mundur Pétursson
19. Vilhjálmur Sigurðsson - Þráinn
Sigurðsson
20. Bragi Hauksson - Sigtryggur
Sigurðsson
21. Jón Baldursson - Aðalsteinn
Jörgensen
22. Ómar Jónson - Guðni Sigur-
bjamason
23. Anton Haraldsson - Stefán
Ragnarsson
24. Oddur Hjaltason - Eiríkur
Hjaltason
25. Stefán G. Stefánsson - Skúli J.
Skúlason
26. Amar Geir Hinriksson - Einar
Valur Kristjánsson
27. Karl Alfreðsson - Tryggvi
Bjamason
28. Kjartan Ingvarson - Erlingur
Amarson
29. Guðjón Einarsson - Þórður
Sigurðsson
30. Kristófer Magnússon - Frið-
þjófur Einarsson
31. Júlíus Snorrason - Sigurður
Sigurjónsson
32. Gylfi Baldursson - Sigurður B.
Þorsteinsson
I síðasta þætti sáum við efstu
menn í áunnum bronsstigum á síð-
asta ári. Við skulum líta aðeins nán-
ar á stigaskrána.
Flest gullstig á síðasta ári hlutu:
Valur Sigurðsson 149, Sigurður
Vilhjálmsson 146, Magnús Ólafs-
son 95, Hrólfúr Hjaltason 87, Aðal-
steinn Jörgensen 86, Bjöm Ey-
steinsson 86 og Sævar Þorbjömson
82.
Flest silfurstig hlutu:
Aðalsteinn Jörgensen 262, Jón
Baldursson 258, Anton R. Gunnars-
son 253, Ingi St. Gunnlaugsson
215, Einar Guðmundsson 215,
Guðjón Guðmundsson 215 og Ólaf-
ur G. Ólafsson 215. Þeir fjórir síð-
astnefndu mynda sveit Sjóvá Al-
mennar á Akranesi, sem var afar
sigursæl á síðasta ári.
í heildina yfir landið, skomðu
eftirtaldir aðilar mest:
Valur Sigurðsson 159, Sigurður
Vilhjálmsson 157, Aðalsteinn Jörg-
ensen 116, Jón Baldursson 110,
Hrólfúr Hjaltason 109, Magnús Ól-
afsson 105, Sævar Þorbjömsson
104, Ásgeir P. Ásbjömsson 103,
Bjöm Eysteinsson 100 og Guð-
mundur Sv. Hermannsson 90.
Þess má til gamans geta, að Jón
Baldursson hefúr skorað að meðal-
tali um 100 meistarastig á ári, ffá
því að nýja skráningin var tekin
upp, 1. mars 1976. Hann er nú
skráður fyrir 1367 stigum. Á þess-
um tíma hefúr hann sigrað íslands-
mótið í tvímenning 4 sinnum (4 ár í
röð) og sveitakeppnina 4 sinnum
(bætti 5. titlinum við um páskana).
Að auki hefúr hann 4 bikarmeist-
aratitla í sveitakeppni.
Isfirðingar gangast fyrir Opnu
stórmóti í tvímenning í ágúst á
þessu ári. Nánar síðar.
Síðasta spilið í fyrri hálfleik í 4.
umferð Islandsmótsins, spil nr. 16,
er fyrir margra sakir nokkuð merki-
legt spil. Lítum aðeins á hendur
N/S:
4: G85
♦: G10862
♦: G6
*:Á76
Á 7 borðum af 8 varð Suður
sagnhafi i 3 gröndum. Útspil Vest-
urs er allsstaðar það sama, laufa-
þristur. Lítið og drottning ffá Aust-
ur. Þú tekur á kónginn og hvað nú?
Leggur niður spaðaás, ekkert
gerist. Spilar lágum tígli að tígul-
gosa, sem Austur tekur á drottningu
og sendir lauf um hæl tilbaka. Þú
„dúkkar“ einn gang og inni á laufa-
ás reynir þú spaðasvíningu, eða
hvað? Jamm, þannig gekk það fyrir
sig á flestum borðum. Og einn nið-
ur alls staðar, nema á einu borði.
Þar sá sagnhafi aðeins lengra í spil-
inu. Með því að sameina tvo mögu-
leika í einn. Eftir laufaútspilið,
heima á kóng, er rökrétt að leggja
niður ás og kóng í spaða, áður en
tíglinum er spilað að gosa. Með þvi
vinnst; Drottning getur verið stök
eða önnur og enn getur tíguldrottn-
ing verið rétt fýrir ffaman gosa. í
reynd var spaðadrottning önnur í
Vestur, þannig að sagnhafi var verð-
launaður í spilinu og fékk sína 9
slagi.
Karl Sigurhjartarson spilaði
hins vegar á áttunda borðinu, 5
spaða á spilið og fékk 10 slagi. Það
spil er gullfallegur samningur og
vinnst alltaf ef sami maðurinn á tí-
gullengdina (fjórlitinn) með spaða-
dömunni. Sem var einmitt staðan,
því Vestur átti:
D2-753- 10732-G953.
Þeir gáfú oft vel 4-3 tromp-
samningamir í hálit á nýafstöðu ís-
landsmóti, á sama tíma og úttekt i
grö'ndum eða láglit var vonlaus.
18 SlÐA — NYTT HELGARBLAÐ Laugardagur 27. apríl 1991