Þjóðviljinn - 16.05.1991, Page 4
FHETTIK
A Umsjón: Dagur Þorleifsson
Rocard sagður stefna á forsetastól
Michel Rocard, fráfar-
andi forsætisráðherra
Frakkiands, er sextug-
ur að aldri, fæddur 23.
ág. 1930 í Courbevoie, skammt
frá París. Foreldrar hans voru
mótmælendur. Þeir eru ekki
nema lítill minnihluti Frakka, en
að jafnaði menntaðri og félags-
lega betur settir en þorri ann-
arra landsmanna.
Rocard gekk í suma af landsins
bestu skólum og lagði stund á
stjómmálavísindi. Afskipti af
stjómmálum hóf hann á sjötta ára-
tugnum, starfaði þá í kristilegum
stúdentasamtökum og var um
skeið róttækur vinstrimaður. Síðan
færðist hann í stjómmálum inn að
miðju.
1967 varð hann formaður lítils,
róttæks vinstriflokks, sem sótti
fylgi sitt til 68-kynslóðarinnar svo-
kölluðu, og bauð sig fram á móti
Georges Pompidou, eftirmanni de
Gaulle, í forsetakosningunum
1969, en fékk aðeins 3,6 af hundr-
aði atkvæða. Eflir að Sósíalista-
flokkurinn gamli fór að eflast á ný
undir forustu Mitterrands gekk Ro-
card í hann 1975. Eftir að Mitterr-
and varð forseti varð hann fyrst
skipulagsmála- og siðar landbún-
aðarráðherra.
Síðamefnda embættið er mikil-
vægt í Frakklandi, þar sem bændur
em tiltölulega ljölmennir og vel
skipulagðir. 1988, þegar Mitterr-
and hafði verið endurkjörinn for-
seti, gerði hann Rocard að forsæt-
isráðherra. Varð hann fjórði forsæt-
isráðherrann sem þjónaði undir
Mitterrand.
I því háa embætti hefur Rocard
ekki átt sjö dagana sæla. Þessi
smávaxni, snotri og duglegi maður
hefur í því ekki aðeins stöðugt
mátt stríða við illvíga stjómarand-
Rocard - hefur ekki átt
sjö dagana sæla sem
forsætisráðherra.
Mitterrand (t.h., hér með Gorbatsjov
Sovétríkjaforseta á gangi við
Elyséehöll) er sagður hafa komið
leiðinlegustu og óvinsælustu
verkunum á Rocard.
Frakkland: Fyrsta
konan á
forsætisráðherrastóli
Michel Rocard, forsætis-
ráðherra Frakklands, sagði af
sér í gær eftir þrjú ár í því
embætti. Við af honum hefur
tekið Edith Cresson, fyrrum
ráðherra um Evrópumál. Er
hún fyrsti forsætisráðherra
FrakkJands sem er kona.
Síðustu dagana hefur orðróm-
ur verið á gangi um að Rocard
væri í þann veginn að fara frá.
Hann hefur átt undir högg að
sækja á þingi, þar sem hann hef-
ur ekki haft mcirihluta á bakvið
sig, og hefur gjaman gripið til
laga um neyðarástand til að
koma frumvörpum í gegnum
þingið. Hefur hin hægrisinnaða
stjómarandstaða sótt fast að hon-
um og krafist afsagnar hans.
Talið er að Mitterrand forseti,
sem þegar er farinn að hugsa
fram á við til næstu almennu
kosninga 1993, telji að nú sé hag-
stætt að gefa stjóminni nýtt og
„ferskt" andlit. Þar að auki hafa
þeir Rocard aldrei verið neinir
sérstakir vinir.
Edith Cresson, sem er 57 ára
að aldri, er hinsvegar náinn vinur
Mittenrands. Hún er dugnaðar-
kona mikil að sögn og kalla
fréttamenn hana eindreginn sósí-
alista. Þeim Rocard hefur ekki
lynt sérlega vel saman, þannig
sagði hún sig úr stjóm hans í okt.
s.l. út af óánægju með stefnu
hans í efnahagsmálum.
EB-stjóm vill
bann á tóbaks-
Wuglýsingar
Framkvæmdastjóm Evrópu-
bandalagsins lagði til í gær að tób-
aksauglýsingar yrðu bannaðar í
öllum aðildarríkjum bandalagsins.
Meirihluti stjóma ríkjanna verður
að samþykkja þetta til þess að það
nái fram að ganga. 1 tillögu stjóm-
arinnar er gert ráð fyrir að bannið
verði komið til framkvæmda fyrir
miðjan áratuginn.
Vasso Papandreú, fulltrúi sá í
stjóminni er fer með heilbrigðis-
mál, sagði við fréttamenn af þessu
tilefni að bannið myndi einkum
verða til vemdar ungu fólki, sem
væri áhrifagjamast þegar auglýs-
ingar væru annarsvegar.
Shintaro Abe, utanríkisráðherra
Japans 1982-86 og einn af áhrifa-
stöðu mið- hægrifylkingarinnar í
frönskum stjómmálum, heldur og
ofl sætt harðri gagnrýni úr eigin
flokki. Og varla verður sagt að for-
setinn, kænn maður og að sumra
sögn allbrögðóttur, hafi staðið ein-
dregið á bakvið hann. Rocard er
metnaðargjam ekki síður en hver
annar og hafði ekki lengi verið í
Sósíalistaflokknum er hann fór að
keppa við Mitterrand um fomstu
þar og sjálfan forsetastólinn. Mitt-
errand mun hafa látið krók koma
móti bragði með því að skipta
markvisst verkum með þeim þann-
ig, að Rocard fengi höfuðverkinn
af því að ráða fram úr málum, sem
ólíkleg væm til að vekja athygli
kjósenda eða að afla honum vin-
sælda. Sjálfur hefur Mitterrand
einkum sinnt utanríkis- og hermál-
um.
Rocard hefur á stjómartíð sinni
yfirleitt ekki haft ömggan meiri-
hluta á þingi, átt því í basli við að
koma fnxmvörpum gegnum það og
mestu stjómmálamönnum lands-
ins, lést í gær, 67 ára að aldri.
Hann var í mörg ár talinn lík-
legur til að verða forsætisráðherra,
en úr þeim líkum mun hafa dregið
undanfarið vegna versnandi heilsu
hans. Bollalagt er nú um hvort frá-
fall hans muni veikja stöðu Kaifús
forsætisráðherra, en kjörtímabil
hans sem formanns Frjálslynda
lýðræðisflokksins, valdaflokks
Japans, rennur út í október.
Norðmenn
banna CNN
Yfírvöld í Noregi ætla að
banna útsendingar þangað frá
bandarísku gervihnattasjónvarps-
stöðinni Cable News Network
(CNN), vegna þess að í þeim em
áfengisauglýsingar. Tekur bannið
gildi 1. ág. Bannað er að auglýsa
áfengi í Noregi.
Bannið kemur ekki til með að
hafa nein áhrif á sjónvarpsgón
þeirra Norðmanna, sem hafa gervi-
hnattadiska. CNN náði scm kunn-
ugt er mikilli frægð í Persaflóa-
stríði.
Sovéskum gyðingum neitað hælis utan
rá janúar 1990 tii febrúar
1991 komu um 225.000
sovéskir _ innflytjendur til
ísraels. A sama tíma sett-
ust yfir 10.000 gyðingar að á
herteknu svæðunum á Vestur-
bakkanum, Gaza-svæðinu og
Golan-hæðum, en slíkt landnám
brýtur í bága við alþjóðalög og
yfirlýsingar Öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna.
Innflutningur sovéskra gyðinga
hefur aukið mjög á spennu á hús-
næðismarkaði í Israel og aukið eft-
irspum eftir landnámi á herteknu
svæðunum.
Sovésku gyðingamir virðast
vera orðnir bitbein í pólitískum
skollaleik sovéskra, vestrænna og
ísraelskra stjórnvalda. Þannig
gerðist það í marsmánuði síðast-
liðnum, að David Levy, utanríkis-
ráðherra Israels, fór þess á leit við
Helmut Kohl, kanslara Þýskalands,
að Þýskaiand hætti að veita sov-
éskum gyðingum hæli, en eftirsókn
þeirra eftir hæli í Þýskalandi hafði
farið vaxandi og hafði þýska sendi-
ráðið veitt um 110 innflutnings-
leyfi til sovéskra gyðinga á viku að
meðaltali fyrir ftínd þeirra. Kohl
kanslari er sagður hafa lofað ráð-
herranum að veita þessum sovésku
gyðingum ekki stöðu sem pólitísk-
um flóttamönnum.
Heimildir frá ísrael herma, að
ísraclsk stjórnvöld hafi beitt
Bandaríkjastjóm svipuðum þrýst-
ingi til þess að hætta við að auka
fjölda leyfilegra sovéskra innfiytj-
enda úr 40 í 70.000 á ári.
Sovéskir gyðingar sem koma
til ísraels fá ekki innfiytjendaleyfi
til Bandaríkjanna samkvæmt sams-
konar samkomulagi.
Heimildir frá Israel herma, að
hlutfallslega stór hluti sovéskra
innfiytjenda til ísraels sé mennta-
fólk, læknar og verkfræðingar.
Þannig segir ísraelska fréttablaðið
„Israeli Mirror“ frá því að um
1000 sovéskir gyðingar með lækn-
ismenntun hafi komið saman fyrir
skömmu til að krefjast réttar til
vinnu og mótmæla sérstökum
hæfnisprófum sem þeir voru látnir
gangast undir, þar sem um 800
innflytjendur með læknismenntun
og starfsreynslu höfðu verið lýstir
óhæfir til læknisstarfa. Sovésku
innfiytjendurnir hafa jafnframt
skapað spennu á vinnumarkaði í
Israel, þar sem þeir ganga fyrir um
vinnu gagnvart Palestínumönnum
sem ekki játa gyðingatrú.
í ísraelskum fjölmiðlum hefur
borið á gagnrýni vegna þess að
margir hinna sovésku gyðinga séu
ekki hreinræktaðir gyðingar í raun
og veru, heldur sigli undir folsku
fiaggi.
Mordehai Eliyahu, yfirrabbí
Israels lýsti því hins vegar nýlega
yfir eflir heimsókn til Moskvu, að
ísraelska innflytjendaskrifstofan
þar hefði nú komið fyrir þennan
neyðst til þess að reiða sig í þeim
tilgangi á hjálp frá miðjumönnum
og kommúnistum. 11 sinnum hefúr
vantraust verið borið fram á þingi
gegn stjóm hans, en honum hefúr
telast að hrinda þeim atlögum öll-
um, sumum með því að grípa til
einskonar neyðarástandslaga.
2,5 miljónir manna em nú án
atvinnu í Frakklandi og atvinnu-
leysið fer vaxandi, félagslegt mis-
rétti einnig. Margir þeir sem gagn-
rýna Rocard, þar á meðal menn í
Sósíalistaflokknum, segja hann
hafa gert ónógar ráðstafanir gegn
þessari óheillaþróun og að jafnvel
hafi sumt, sem hann hefúr staðið
fyrir, gert illt verra í þeim efnum.
Er þá einkum bent á að hann sé um
of trúaður á fijálsa markaðinn og
spamað af ríkisins hálfu.
Rocard reyndi að komast í
framboð til forsetaembættisins fyr-
ir Sósíalistaflokkinn bæði 1981 og
1988, en varð í bæði skiptin að láta
í minni pokann íyrir Mitterrand. í
kosningabaráttunni 1988 steig
hann talsvert í vænginn við mið-
hægrifylkinguna og kynnti sig sem
mann breiðrar miðju, fremur en
Sósíalistaflokksins sem slíks. En
ekki mun hann hafa orðið vinsælli
í kjama þess flokks við það.
Þó að Rocard nú lækki í stjóm-
málum telja menn sérfróðir um
ffanska pólitík ólíklegt að hann
muni hætta í þeim. Sagt er að hann
stefni þegar á að bjóða sig fram til
forsetastólsins í kosningunum
1995. Þá hættir Mitterrand, sem nú
er hartnær hálfáttræður. Ekki er
talið að sá gamli kæri sig um hann
sem eftirmann sinn, en niðurstöður
skoðanakannana benda til þess að
hann sé manna líklegastur til að
vinna næstu forsetakosningar fyrir
Sósíalistaflokkinn.
Allir pólitískir
fangar frá Rob-
ben Island
I gasr var flogið með síðustu
pólitísku fangana, sem hafðir vom
í haldi á Robben Island í mynni
Tableflóa við Höfðaborg, til Poll-
smoorfangelsis skammt frá þeirri
borg á meginlandinu. Em þar með
orðin þáttaskil í sögu Robben Is-
land, sem varð eitt af heimsins
mest umtöluðu fangelsum afþví að
þar sat Nelson Mandela, kunnasti
leiðtogi suðurafrískra blökku-
manna, fanginn 18 af 27 árum
fangelsisvistar sinnar.
Robben Island verður eftirleið-
is haft fyrir aðra fanga en pólitíska
og munu suðurafrísk yfirvöld telja
að þess sé ærin þörf, þar eð fang-
elsi landsins em flest að sögn yfir-
full.
Síðustu pólitísku fangamir á
eynni, 28 talsins, hafa fiestir fastað
í hálfan mánuð, til að leggja
áherslu á kröfur um að þeir verði
látnir lausir án tafar.
---------------------
Israels
leka með gaumgæfilegri rannsókn
á persónuskilríkjum og fortíð um-
sækjenda.
I allri þeirri umræðu, sem fram
hefur farið undanfarið um „nýja
heimsskipan" í tengslum við sam-
þykktir Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna vegna innlimunar Kúvæt
virðist vandamál sovéskra innfiytj-
enda til ísraels vera feimnismál,
þótt ekki verði annað séð en að
með þessum fólksflutningum sé
meðvitað verið að torvelda lausn á
þeim hnút, sem Palestínumálið er
fyrir friðsamlegri skipan mála í
heiminum.
-ólg.
Fimmtudagur 16. maí 1991
Síða 4