Þjóðviljinn - 16.05.1991, Blaðsíða 8
Hvalveiðar í augsýn?
Fulltrúar tslands í vísinda-
nefnd Alþjóða hvalveiði-
ráðsins hyggjast leggja
fram tilllögu að bráða-
birgðaveiðikerfi sem myndi
heiraiia ísiendingum nú
þegar veiðar á 92 langreyðum og
192 hrefnum. Tillagan verður
rædd í nefndinni um helgina og
verði álit hennar jákvætt verður
máiið lagt fyrir ársfund hvaiveiði-
ráðsins 26. maí.
Bráðabirgðakerfi þetta myndi
aðeins gilda þar til nýtt veiðikerfi,
sem unnið hefur verið að undanfarin
ár, kemst i gagnið. Deildar meining-
ar eru uppi um hvenær það getur
orðið. Jóhann Siguijónsson, einn
þeirra sjö íslendinga sem sitja í vís-
indanefndinni, segist telja að nýtt
kerfi, sem stefnt var að lægi fyrir
1990, geti í fýrsta lagi farið að virka
árið 1993. Mörgum þyki vinnan við
það hafa tekið ótrúlega langan tíma
og þess vegna sé tillaga um bráða-
birgðakerfi og -kvóta lögð ffam nú.
Mótrökin gætu hins vegar orðið þau
að nýja kerfið geti tekið gildi fljót-
lega og bráðabirgðakerfi því óþarft.
,Aðalvinna vísindanefndarinnar
á þessum fúndi er fólgin i að ræða
fimm mismunandi tillögur að nýju
stjómunarkerfi," segir Jóhann.
„Gamla veiðikerfið hefur ýmsa
ágalla og tillögumar miðast að því
að sniða þá af. Aðalgallinn við kerf-
ið eins og það er í dag er sá að ýmsir
þættir í notkun þess byggja á hlutum
sem við ekki þekkjum.
Væntanlegt nýtt kerfi gerir til
dæmis ekki ráð fyrir eins nákvæm-
um upplýsingum um ýmsa þætti
varðandi mat á veiðiþoli. Það miðar
sem sagt að þvf að kvótar verði settir
á með meira öryggi en áður og tekur
meira tillit til þess hvers konar upp-
lýsingar eru til um hvem einstakan
stofn.“
Enda þótt vísindanefndin sé á
lokaspretti í sinni vinnu nú segir Jó-
hann að það eitt tryggi ekki að nýja
kerfið taki gildi á næstunni. „Það
getur tekið tíma að fjalla um það í
ráðinu sjálfú og enn meiri tíma að
koma því í gagnið þvi ef til vill þarf
að gera enn ffekari athuganir á því
kerfi sem verður ofan á,“ segir Jó-
Rengisskurður f
Hvaifirði þegar
hvalveiðar voru
enn leyfðar.
hann. Hann vildi engu spá um undir-
tektir við íslensku tillögunni, en
sagði hana ekki miða við hámarks-
nýtingu stofha, heldur mun minni
kvóta á meðan beðið væri eftir nýju
kerfi.
Ámi Finnsson, talsmaður
Greenpece á tslandi, segist ekki bú-
ast við því að íslenska tillagan verði
samþykkt og Grænfriðungar séu
henni andvígir. .Ársfúndur ráðsins í
fýrra lagðist gegn tillögum íslend-
inga um kvóta. Við teljum að íslend-
ingar eigi að bíða eftir nýju veiði-
kerfi, hvort heldur það tekur eitt eða
tvö ár.“
Nokkrir fúlltrúar Grænffiðunga
heimsækja ísland f tilefhi ársfúndar-
ins, en hyggjast ekki efna til mót-
mælaaðgerða hérlendis að sögn
Áma. -vd.
Ályktanir sambandsþings
Verkamannasambandsins
Sambandsstjórn Verka-
mannasambands Is-
lands kom saman til
fundar á Akureyri dag-
ana 13. til 14. maí. Hér á
eftir fara ályktanir fundarins
um kjaramál og um vaxtastefnu
ríkisstjórnarinnar.
Hækkun lægstu launa
óhjákvæmileg í komandi
samningum
Fundur sambandsstjómar Verka-
mannasambands Islands, haldinn á
Akureyri 13.-14. maí 1991, telur að
árangur sá sem febrúarsamningur að-
ila vinnumarkaðarins og þáverandi
ríkisstjómar stefndi að, hafi náðst í
flestum meginmarkmiðum. Aðeins
eitt meginmarkmið samningsins,
hækkun kaupmáttar launa, og þá
fýrst og fremst hinna lægstu, á eftir
að koma ffam.
Fundurinn telur að sú reynsla,
sem þessi samningsgerð færir okkur,
sé dýrmæt varðandi það að hægt er
að halda verðbólgu í skefjum og
halda aftur af kostnaðarhækkunum,
sé um það almenn samstaða í þjóðfé-
laginu.
Þrátt fýrir að einstökum hags-
munahópum hafi, í krafti stöðu sinn-
ar í viðkvæmum atvinnuvegum, tek-
ist að ganga út fýrir launaramma
samningsins, breytir það ekki þeim
meginárangri sem af samningnum er.
Meginmarkmið komandi samn-
inga verður að auka kaupmátt lægstu
launa og viðhalda því efnahagslega
jafnvægi sem febrúarsamningurinn
hefúr skapað. Fundurinn telur að til
þess að það geti orðið, verði að
ganga til margþættra aðgerða í
skatta-, efhahags-, atvinnu- og fé-
lagsmálum.
Stefna verður að því að full at-
vinna haldist. Leggja ber áherslu á
nýtingu orkulinda og uppbyggingu
orkufreks iðnaðar, endurskoða þarf
núgildandi fiskveiðistefnu.
Hækka þarf skattfrelsismörk og
verður eftir því gengið að hin pólit-
ísku öfl standi við loforð sín í þeim
efnum.
Taka ber upp tekjutengdar bama-
bætur.
Efla ber félagslega húsnæðis-
kerfið og byggðar verði eða keyptar
a.m.k. 100 íbúðir árlega.
Taka ber upp tekjutengdar hús-
næðisbætur.
Lækka ber virðisaukaskatt af
kjöti, mjólk og fiski.
Veita ber auknu fjármagni, hjá
riki og sveitarfélögum, til uppbygg-
ingar bamadagheimila.
Taka ber ákvörðun um jöfnun líf-
eyrisréttar allra landsmanna og innan
hvaða tímamarka því skuli lokið.
Jafna ber orkuverð og húshitun-
arkostnað.
Leggja ber annað skattþrep á
tekjur yfir 170 þúsund. Skattleggja
ber fjármagnstekjur.
Áfhema ber skattaívilnun vegna
hlutabréfakaupa.
Óhjákvæmilegt er að til komi
sérstök hækkun lægstu launa. Sú
launahækkun verður að vera innan
þeirra markmiða sem samningar
setja varðandi efnahagslegt jafnvægi.
Svigrúm verður að vera til leið-
réttinga í einstökum samningum,
sem teljast utan aðalkjarasamninga.
Þær leiðréttingar verða að vera á
ábyrgð samningsaðila og verður ekki
velt út í verðlag. Ná þarf samkomu-
lag milli ASI og VSI um, að vinna
að þessum málum verði hafin sem
fýrst. Henni skal vera lokið fýrir 15.
september nk. og verði gengið frá
þessum samningum jafnhliða aðal-
kjarasamningi.
Næsti kjarasamningur gæti verið
án tímamarka og byggður á því, að
allir samningsaðilar, aðilar vinnu-
markaðarins, samtök bænda og ríki
og sveitarfélög taki ábyrgð á því að
standa vörð um markmið hans.
Telji einhver aðili slíks samnings
að einn eða fleiri ábyrgðaraðilar hans
hafi hlaupið frá markmiðum hans
eða rofið friðarskyldu samningsins,
getur hann krafist viðræðna um
ágreininginn, en verður að öðru leyti
fijálst án samráðs við önnur heildar-
samtök, sem að samningnum standa,
að lýsa sig óbundinn af honum og
getur krafist viðræðna um endumýj-
un hans.
Vaxtahækkunin brot
á þjóðarsáttinni
Við gerð kjarasamninga í febrúar
á siðasta ári tók langstærsti hluti
launþega fullan þátt i því, ásamt t.d.
bændum, ríkisvaldi og atvinnurek-
endum, að knýja niður verðbólguna
og koma því lagi á efhahagsmálin,
sem voru frumskilyrði þess að at-
vinnulífið gæti þróast með eðlilegum
hætti, þannig að þeirri óheillaþróim
sem átt hafði sér stað í kaupmætti,
yrði síðan snúið við.
Við þessar aðgerðir gjörbreyttust
rekstrarlegar aðstæður, eins og sjá
má á aíkomu fýrirtækja um land allt
sem skiluðu hagnaði á síðasta ári
sem nemur tugum og hundruðum
milljóna hjá hveiju fyrirtæki, ekki
síst vegna minni fjármagnskostnaðar.
Þess vegna hlýtur sambands-
stjóm Verkamannasambands íslands
að lýsa andstöðu sinni við þá hækk-
un vaxta sem nú þegar er orðin og
hefur verið boðuð, allt að 30%
hækkun, þetta er ólíðandi brot á
þeim kjarasamningum sem gengið
hafa undir nafhinu „þjóðarsátt".
Með hækkun kostnaðarþátta eins
og vaxta er verið að eyða árangri
þessarar samningsgerðar og færa
hagnað af henni til þeirra sem ekkert
hafa til hennar lagt, í stað þess að
launafólk fái að njóta eins og um var
samið. Sambandsstjóm V.M.S.Í. var-
ar alvarlega við aðgerðum af þessu
tagi; um þær verða engar sættir.
Spilakvöld
eidri borgara
Félag eldri borgara í
Kópavogi verður með spila-
kvöld að Auðbrekku 25 annað
kvöld, föstudag 17. maí, sem
hefst kl. 20.30. Dans á eftir að
venju. Jón Ingi og félagar sjá
um fjörið. Aðgangur kr. 450.
Vísnavinir
endurvaktir
Vísnavinir hafa endurvak-
ið félag sitt eftir nokkurt hlé.
Nk. þriðjudag, 21. maí kl.
20.30, hittast þeir í kaffistofú
Norræna hússins og taka þar í
gítar og jafnvel fleiri hljóð-
færi. Allir sem hafa áhuga á
vísnasöng og tónlist og hafa
jafnvel eitthvað í pokahominu
sem þeir vilja koma á fram-
færi, era hvattir til að láta sjá
sig.
Skordýra-
rannsóknir
í fomleifafræði
Breski fomvistffæðingur-
inn dr. Paul C. Buckland held-
ur fýrirlestur í dag kl. 17.15 í
Þjóðminjasafni Islands kl.
17.15 um notkun og niður-
stöður skordýrarannsókna í
fomleifafræði.
Fylgst með
sauoburði
Náttúravemdarfélag Suð-
vesturlands verður með kynn-
ingu á íslensku sauðkindinni
nk. laugardag, 18. maí. Farið
verður í heimsókn á sauðfjár-
bú í Grafningnum og fýlgst
með sauðburði. Lagt verður af
stað ffá inngangi Húsdýra-
garðsins í Laugardal kl. 13.30
og komið aftur í bæinn um kl.
18. Ferðin er liður í kynningu
á húsdýrunum sem Náttúra-
vemdarfélag Suðvesturlands
gengst fýrir í sumar í sam-
vinnu við Upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins og nefnist
kynningin Húsdýrin okkar. Á
hálfsmánaðar fresti verður
sérstök kynning á einu ís-
lensku húsdýranna. Farið
verður ffá Húsdýragarðinum
og dýrin sótt heim í þeirra
eðlilega umhverfi. Fargjald er
kr. 600 á mann.
BLÖNDUVIRKJUN
Hæsta lyftan
tekin í notkun
Nýverið var hæsta lyfta
landsins, sem er í Blöndu-
virkjun, tekin í notkun. Lyftu-
göngin era þau lengstu hér-
lendis, 270 metrar, sem sam-
svarar 27 hæða íbúðarhúsi.
Þau era um sex sinnum hærri
en lyftustokkur Hallgríms-
kirkju. Lyftan er jafnframt
hraðskreiðasta lyfta landsins,
hraðinn tæpir tveir metrar á
sekúndu. Lyftan er notuð til
flutnings á starfsmönnum
milli vélarhúss og stöðvarhúss
virkjunarinnar. Héðinn hf sá
um hönnun, smíði og uppsetn-
ingu lyftunnar og var kostnað-
ur samtals 27,2 miljónir
króna.
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. maí 1991
Síða 8