Þjóðviljinn - 16.05.1991, Blaðsíða 9
A Umsión G. Pétur Matthfasson
ÞING
Tillögur um líflegri og
styttri umræður á Alpingi
Megintilgangur þessarar breytingar er sá að gera umræður
liflegri, skoðanaskipti hraðari og jafnfrarat að stytta um-
ræður, sagði Páll Pétursson, Frfl., þegar hann mælti fyrir
frumvarpi til laga um þingsköp Alþingis í neðri deild í gær.
Breytingin, sem hann var að tala um, felur i sér að þing-
mönnum verður heimilt að veita stutt andsvör við ræðum
annarra þingmanna - það sem á erlendu máli er kallað „replikker“.
,Jiér er um mikilvægt nýmæli að
ræða. Eru íyrirmyndir að henni sótt-
ar til þjóðþinga nágrannalanda okkar
rar sem þetta umræðuform hefur
)ótt gefa góða raun. Það hefur oft
)orið við að þingmenn hafi ekki
komið að andsvörum sínum við ræð-
um annarra þingmanna eða ráðherra
fyrr en mörgum klukkustundum eftir
að þær voru fluttar,“ sagði Páll, en
samkvæmt þessu nýja ákvæði geta
þingmenn með leyfi forseta veitt
stutt andsvör i allt að tvær mínútur
við ræðu strax og hún hefur verið
flutt og getur ræðumaður síðan svar-
að andsvarinu.
Þetta er ein af fjölmörgum breyt-
ingum sem fyrirhugaðar eru á þings-
kapalögum Alþingis, en frumvarpið
er flutt af fulltTÚum allra flokka og
er nokkuð víðtæk samstaða um
frumvarpið. Þó er líklegt að það taki
einhveijum breytingum í meðfÖrum
sémefhda beggja deilda sem ræða
eiga þetta mál sem og stjómlaga-
frumvarpið.
Einnig á að reyna að lífga þing-
haldið með því að leyfa á sérstökum
fundi, í allt að hálftima, óundirbúnar
fyrirspumir til ráðherra. Sagði Mar-
grét Frímannsdóttir, Abl., f efri deild
að um væri að ræða tilraun sem gæfi
þingmönnum tækifæri til að spyria
ráðnerra beint um þau mál sem efst
væm á baugi í þjóðfélaginu á hveij-
um tíma. Þannig að það má á hausti
komanda búast við líflegu þingi og
ef til vill fjölgar áhorfendum þá á
þingpöllunum.
Helst hafa menn óttast að með
ví að afnema deildaskiptingu Al-
ingis fái frumvörp ekki nægilega
vandaða umfjöllun. Bent hefur verið
á að seinni díeild hafi stundum upp-
ötvað misfellur sem fyrri deildin
om ekki auga á. Til þess að reyna
að bæta úr þessu mun nú meðal ann-
ars verða nauðsynlegt að senda
frumvarp aftur til nefndar sé því
breytt við aðra umræðu á annan veg
en nefhdin ætlaði.
Þá vilja menn líka að reyna að
takmarka ræðutíma manna þar sem
nú fjalla 63 þingmenn í einni deild
um öll mál sem áður gerðist samtím-
is í tveimur deildum og gætu umræð-
ur þess vegna dregist. Þetta felst
helst í takmörkunum á timalengd ut-
andagskrárumræðna og umræðna um
þingsköp.
Lagt er til að málshefjandi um-
ræðu utan dagskrár fái 30 mínútur,
sem og ráðherra, til að svara, en að
aðrir fái 15 mínútur til umráða.
Einnig að enginn megi tala oftar en
tvisvar. Einnig er lagt til að ræðutími
i þingskaparumræðu verði takmark-
aður við nmm mínútur.
Ekki eru allir þingmenn sáttir við
essa breytingu og telja til dæmis
ingkonur Kvennalista heldur þrengt
að málffelsi þingmanna með þessu
en það bitnar að sjálfsögðu mest á
stj ómarandstöðunni.
Hinsvegar fær stjómarandstaðan
nokkuð meiri völd þar sem með
breytingimum þarf 2/3 atkvæða til að
samþykkja afbrigði. Þeim er sérstak-
lega beitt þegar flýta þarf málum í
gegnum deildu. Með þessu má búast
við að hamagangurinn minnki eitt-
hvað við þinglok fyrir jól og á vorin,
einsog Þjoðviljinn skýrði ífa í gær.
Þá em fyrirhugaðar töluverðar
Jóhann Ársælsson Alþýðubandalagsmaður að vestan hnippir hér I Hjörteif Guttormsson flokksbróður sinn aö austan og
er ef til vill að spyija hann út I tillögur um takmarkaðan ræöutlma manna I utandagskrárumræðum. Mynd: Kristinn.
breytingar á nefndafyrirkomulagi
þingsins. Gert er ráð fyrir að fasta-
nefndir verði 12 í stað 23. Af þeim
hafa 11 starfað áður en umhverfis-
nefnd er ný. Með nýja fyrirkomulag-
inu verður verkaskipting nefndanna í
megindráttum hin sama og í stjómar-
ráðinu. Framvegis mun fjárveitinga-
nefhd heita íjárlaganefnd og fjár-
hags- og viðskiptanefhd hlýtur heitið
efnahags- og viðskiptanefnd.
Þá íjölgar í nefhdunum úr sjö
þingmönnum í níu, en með fækkun
nefndanna eykst mikilvægi starfsins
og þykir rétt að tryggja að þingflokk-
ar eigi fulltrúa í sem flestum nefhd-
um þingsins. Svavar Gestsson, Abl.,
viðraði einnig þá hugmynd að stjóm-
arandstaðan hefði formennsku í ein-
hveijum nefnda þingsins. Þó þannig
að stjómarflokkar hefðu áfram
meirihluta í nefhdinni. Þetta og ann-
að verður væntanlega rætt í sér-
nefhdum níu þingmanna í báðum
deildum í þessari viku og þeirri
næstu en stefnt er að því að málin
tvö komi úr nefnd í síðustu viku
mánaðarins.
Að lokum má geta þess að með
breytingunum hyggst Alþingi tækni-
væða atkvæðagreiðslu um þingmál.
„Stefht er að því að í sumar verði
sett upp atkvæðagreiðslukerfi þannig
að þingmenn greiði atkvæði með þvi
að ýta á hnapp og þau skilaboð kom-
ist til tölvu og úrslit atkvæðagreiðslu
birtist á skjá í þingsalnum eftir nokk-
ur augnablik," sagði Margrét. Hún
býst við því að fyrirkomulagið muni
flýta alln afgreiðslu mála auk þess
sem allar atkvæðagreiðslur verði i
raun nafhaköll og þannig auðveldara
að ná fram afgreiðslu T málum en
með handauppréttingum.
Forsetar þingsins
Alþingi á góðri leið með
að verða ein málstofa
Nú í vikunni voru í síðasta
sinn kosnir þrír forsetar Alþing-
is; forseti sameinaðs þings, efri
og neðri deildar. Framvegis
verður einn forseti og fjórir
varaforsetar sem saman skipa
forsætisnefnd þingsins. Þetta er
háð því að frumvarp til laga um
breytt þingsköp verði þannig
samþykkt.
Salome Þorkelsdóttir, Sjfl., var
kosin forseti sameinaðs þings,
fyrsti varaforseti Jón Helgason,
Frfl., og annar varaforseti Gunn-
laugur Stefánjson, Alfl. Skrifarar
voru kosnir Ami M. Matthiesen,
Sjfl., og Valgerður Sverrisdóttir,
Frfl.
Matthías Bjamason, Sjfl., var
kosinn forseti neðri deildar, Hjör-
leifur Guttormsson, Abl., fyrsti
varaforseti og Össur Skarphéðins-
son, Alfl., annar varaforseti. Skrif-
arar vom kosnir Gunnlaugur Stef-
ánsson, Alfl., og Kristinn H. Gunn-
arsson, Abl.
I efri deild var Karl Steinar
Guðnason, Alfl., kosinn forseti,
Kristín Einarsdóttir, Kvl., fyrsti
varaforseti og Egill Jónsson, Sjfl.,
annar varaforseti. Skrifarar vom
kosnar þær Lára M. Ragnarsdóttir,
Sjfl., og Jóna Valgerður Kristjáns-
dóttir, Kvl. Þess má geta að verði
nýju þingskapareglumar sam-
þykktar leggjast störf skrifara af en
starfsmenn Alþingis munu sinna
því verki í stað þingmanna.
* gær var mælt fyrir frumvarpi
F til stjórnskipunarlaga um
I breytingu á stjórnarskránni í
A efri deild í gær. Margrét Frí-
mannsdóttir, Abl., mælti fyrir
frumvarpinu og sagði að kjarni
þess væri afnám deildaskiptingar
Alþingis, sem þannig myndi
starfa framvegis í einni málstofu.
Frumvarpið er samhljóða frum-
varpi sem samþykkt var á síðasta
þingi en er endurflutt nú til stað-
festingar likt og stjórnarskrá lýð-
veldisins kveður á um.
Benti Margrét á að staðfestingin
væri háð því að fmmvarpið breyttist
ekki í meðforum þingsins því ann-
ars þyrfti að ijúfa þing og efna til
kosninga á ný. Vildi hún að menn
hefðu þetta í huga við umræðuna
sem og þá samstöðu sem heföi
náðst um málið, en fhunvarpið er í
bæði skipti flutt af fulltrúum allra
þingflokka.
Margrét benti á nokkur atriði í
fhimvarpinu þó hún teldi ekki þörf
á mikilli umræðu um frumvarpið
sem hefði verið ítarlega rætt á síð-
asta þingi. Hún telur að með frum-
varpmu sé með ýmsum hætti reynt
að styrkja stöðu Alþingis í stjóm-
kerfinu.
„Þannig mun Alþingi starfa allt
árið sem er tvímælalaust mikið
framfaraspor. Það mun annarsvegar
leiða til þess að nefndir þingsins
geti starfað allt árið í fullu umboði
og hins vegar til þess að Alþingi af-
salar sér aldrei sínum hluta löggjaf-
arvaldsins yfir til framkvæmda-
valdsins eins og verið hefur,“ sagði
Margrét.
Við breytingamar náðist þó ekki
samkomulag um að afhema ákvæði
sem heimila rikisstjóm að gefa út
bráðabrigðalög þó margir þingmenn
hafi á síðasta þingi haft áhuga á því.
Rétturinn verður þó að nokkru leyti
takmarkaður.
„Að vísu mun ríkisstjóm hafa
áfram heimild til þess að leggja til
við forseta að gefa út bráðbrigðalög
meðan þingfrestanir standa, en það
er skilningur allra sem að þessu
máli hafa staðið að til þess komi
ekki nema í sérstökum neyðartilvik-
um, heldur verði tekinn upp sá nýi
siður að verði þörf á skjótn löggjöf
utan venjulegs starfstíma Alþingis,
til dæmis yfir sumartímann, þá
verði Alþingi kallað saman til auka-
funda til þess að afgreiða hana með
eðlilegum hætti,“ sagði Margrét.
Þá minntist hún á þriðju megin-
breytinguna í þessu stjómlagaftum-
varpi sem varðar þingrof. En sam-
kvæmt frumvarpinu verður þing
ekki rofið nema frá kjördegi. Það er
að segja að á haustin milli kosninga
verður þingi slitið og nýtt þing sett
samstundis. „Það mun leiða til þess
að landið verður aldrei þingmanns-
laust eins og gerst hefur nokkrum
sinnum, síðast haustið 1979,“ sagði
Margrét áður en hún vék að frum-
vaipi um breytingar á þingskapar-
lögum. Nauðsynlegt er að breyta
þingsköpum vegna þessara breyt-
mga á stjómarskránni og ræddu
þingmenn í báðum deildum Alþing-
ís það frumvarp í gær. Lítið var rætt
um stjómlagafrumvarpið enda má
ekki breyta einum staf þar eigi
frumvarpið að verða að lögum á
þessu þingi.
Frá þingsetningu. Að vanda stóð lögreglan heiðursvörð þegar forsetinn og þingmenn gengu úr Dómkirkjunni I Alþingis-
húsið við þingsetningu 114. löggjafarþings landsins á mánudaginn. Mynd: Jim Smart.
Síða 9
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. maí 1991