Þjóðviljinn - 16.05.1991, Page 5

Þjóðviljinn - 16.05.1991, Page 5
ElLENDAR FMETTIR Umsjón: Dagur Þorleifsson V ítahringur neyðarinnar í Bangladesh Ofsaveður steypti sex metra hárri flóðbylgju yflr flatt land og fátækt og illa varið: Bangladesh. Hundruð þúsunda týndu lífl, landlægt hungur verður enn sár- ara og útbreiddara og mannskæðara - og umheimur- inn bregst Utt við, rétt sem hann hafi afskrifað Bangladesh. Þar sé um að ræða þvílikan vítahring eymdar að ekkert verði að gert. Einu sinni var Bengal ríkt land, framburður stórfljóta tryggði ríku- lega uppskeru fjórum sinnum á ári. En fljótin sem áður voru landinu til auðlegðar eru nú til bölvunar: eyðing skóga á vatnasvæði Ganges og Brahmaputra veldur því, að á stórrigningatímum flæða þau með ofsa yfir bakka sína og ryðja á undan sér feiknamagni af við- kvæmum jarðvegi óshólmanna. Og síðan koma stormar miklir af Ben- galflóa og ráðast á þetta lága land úr hinni áttinni - með herfílegum afleiðingum. Slík flóð og daufleg viðbrögð valdhafa urðu til þess árið 1970 að íbúar þessa lands, sem þá hét Aust- ur-Pakistan, gerðu uppreisn gegn Pakistan. Indland blandaði sér í þann ófrið og niðurstaðan varð sú að Bangladesh varð sjálfstætt riki. En öngvar af þeim vonum sem kviknuðu við sjálfstæðistökuna hafa ræst. Stjómarfar í landinu hef- ur verið illt og spillt og mest á ábyrgð hersins. Þróunaraðstoð hef- ur nýst illa. Til dæmis að taka hef- ur ekkert sem heitið getur orðið úr áætlunum sem gerðar vom eftir flóðin 1970 um að reisa á óshólm- unum um 2500 steinsteypt byrgi til að hýsa mannfólkið á hættutímum og svo hlaða sem víðast háa palla fyrir búfénað. Ekki einu sinni við- vörunarkerfi, sem eiga að gefa fólki merki um að ofsaveður fari í hönd, virka sem skyldi. Bangladesh er sem fyrr segir eitt fátækasta riki heims og hið þétbýlasta: á aðeins um 145 þús- und ferkílómetrum búa nær 120 miljónum manna eða 770 á hvem ferkílómetra. Og vítahringur neyð- arinnar er svo rammur, að sjón- varpsmyndir af hörmungum vekja lítil viðbrögð úti um heim og nú síðast sýnu minni en t.d. fféttir af neyð Kúrda. Engu líkara en aðrar þjóðir hafi gefið Bangladesh upp á bátinn og vilji sem minnst um það auma land vita. Þar geti ekkert gerst nema illt væri. Bandaríkin sendu sjö miljónir dollara í neyðar- hjálp nú síðast, Þýskaland tíu milj- ónir marka, aðrar þjóðir eru enn naumari. áb byggði á Spiegel Llk manna og dýra á „hættulegustu strönd heimsins". Jiang Zemin (t.v.) og Li Peng, forsætisráðherra Klna - þeir hafa blendnar end- urminningar fá heimsókn Gorbatsjovs. Endumýjuð vináttubönd Jiang Zemin, aðalritari kinverska kommúnistaflokksins, kom í gær til Moskvu og mun ræða þar við Gorbatsjov forseta og fleiri ráðamenn. Er þetta í fyrsta sinn, sem æðsti maður kin- verskra kommúnista heimsækir Sovétríkin frá því að Maó formaður kom þangað fyrir 34 árum. Enda þótt ekki standi til að fullar sættir í hugmyndafræðileg- um efnum takist með kommúnísku stórveldunum er litið á þessa heim- sókn sem staðfestingu þess, að ára- tuga ljandskap þeirra á milli sé nú endanlega lokið. Gorbatsjov hafði frumkvæði um að binda endi á það ástand og heimsótti í þeim tilgangi Kína 1989. Kínverskir ráðamenn hafa ver- ið nokkuð beggja blands í garð Gorbatsjovs, þakklátir honum fyrir að vilja vingast við þá en hafa hinsvegar haft illan bifur á glasn- osti hans, sem átti drjúgan þátt í að hleypa af stað kínversku lýðræðis- hreyfingunni sem barin var niður tveimur vikum eftir heimsókn Gor- batsjovs. Mótmælafólkið á Him- insfriðartorgi í Peking hyllti hann sem hetju í tilefni heimsóknarinn- ar. Bæði ríkin munu nú hyggja á nánara samstarf, stöðu sinni á al- þjóðavettvangi til eflingar. Egypti aftur fyrir Arababandalagi Esmat Abdel-Maquid, utan- ríkisráðherra Egyptalands, var í gær kjörinn aðalritari Araba- bandalagsins, sem 21 ríki er í. Tekur hann við af Túnisingnum Chedii Klibi, sem sagði af sér stöðunni í sept. vegna ágreinings í bandalaginu um innrás íraks í Kúvæt. Litið er á kosningu Abdel- Maquids sem staðfestingu þess, að Egyptaland sé nú aftur tekið við hefðbundinni forustu sinni í banda- laginu. Henni lauk er Egyptaland komst í ónáð hjá öðrum arabaríkj- um fyrir að gera ffiðarsamning við ísrael 1979. , Júgóslavía er ekki til“ Stipe Mesic, frambjóðanda Króatíu til forsetaemb- ættis Júgóslavíu, mistókst í gær að ná kjöri til emb- ættisins og olli því mót- spyrna Serba. Eru líkurnar á því að saga Júgóslavíu sem ríkis verði senn öll sögð með mesta móti, í framhaldi af þessu. Með Mesic greiddu atkvæði, auk hans sjálfs, fulltrúar Slóveníu, Bosníu-Herzegóvínu og Makedón- íu í forsætisráði Júgóslavíu. A móti voru fulltrúar Serbíu og sjálf- stjóraarsvæðanna Vojvódínu og Kosovo, sem heyra undir Serbíu. Fulltrúi Svartíjallalands sat hjá. Atta fulltrúar sitja í forsætis- ráði, einn frá hvetju hinna sex lýð- velda og tveggja sjálfstjómar- svæða, sem Júgóslavía saman- stendur af. Til þess að forseti Júgó- slavíu teljist réttilega kjörinn verða fimm af fulltrúnum í ráðinu að greiða honum atkvæði. Stjómarskrá samkvæmt skipt- ast lýðveldin og sjálfstjómarsvæð- in á um að hafa forsetaembætti sambandslýðveldisins á hendi og kýs forsætisráðið í það til eins árs í senn. Mesic sagði þegar að kosningu lokinni að Króatía myndi ganga úr sambandsríkinu ef hann yrði ekki kosinn og myndi Júgóslavía þá leysast upp. Landið er nú án for- seta og varaforseta. „Eins og sakir standa er engin Júgóslavía til,“ sagði Milan Kucan, forseti Slóven- íu. Serbneska stjómin vill ekki fá Mesic á forsetastól sambandslýð- veldisins vegna þess að hún óttast að hann muni knýja fram þá kröfu króatísku stjómarinnar að Júgó- slavía verði ríkjabandalag ffemur en sambandsríki. Imelda - ef þjóðin vill og landið þarf. „Einvígi ekkna“ framundan? Imelda Marcos, ekkja Ferdin- ands Marcosar Filippseyja- forseta, sagði í gær að hún myndi bjóða sig fram til forseta- tignar yfir eyjunum ef „þjóðin vill mig og landið þarfnast mín.“ Næstu forsetakosningar þar fara fram á næsta ári. Er nú farið að spá því að stjómmálin á Filipps- eyjum kunni að snúast upp í „ein- vígi ekknanna“, þ.e.a.s. Imeldu og núverandi forseta, Corazon Aqu- ino. Hún er ekkja stjómmála- manns, sem talið er nánast víst að Ferdinand Marcos hafi látið myrða. Síða 5 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. maí 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.