Þjóðviljinn - 05.06.1991, Síða 5
FKETTIR
A Umsjón: Dagur Þorleifsson
Albanía: Stjóm
kommtinistaflokks
segir af sér
Ríkisstjórn Albaníu sagði af
sér í gær og boðaði nýjar
þingkosningar á miðju
næsta ári. Þangað til á að
vera við völd bráðabirgðastjórn
manna úr öllum stjórnmála-
flokkum.
Ríkisstjómin, sem Verka-
mannaflokkurinn, kommúnista-
flokkur landsins, stóð einn að, hef-
ur aðeins verið við völd í mánuð.
Aðalástæðan til afsagnar hennar
þetta fljótt var verkfall með þátt-
töku um 350.000 verkamanna, sem
staðið hefúr yfir í næstum þrjár
vikur. KreQast þeir mikillar launa-
hækkunar og ýmissa annarra kjara-
bóta. Hefúr verkfallið leikið efna-
hagslíf landsins hart og mátti það
þó ekki við miklu áður.
Þingkosningar fóm ífam í Al-
baníu í mars, þær fyrstu þarlendis
sem mun hafa verið hægt að kalla
fijálsar og almennar. Fékk komm-
únistaflokkurinn, sem ríkt hafði
einvaldur frá lokum heimsstyijald-
arinnar síðari, um tvö af hveijum
þremur þingsætum og myndaði
hann síðan stjóm undir fomstu Fat-
os Nano, hagffæðings um fertugt.
Hin nýtilkomna stjómarandstaða
undi úrslitunum stórilla og neitaði
allri samvinnu við kommúnista,
þótt boðin væri.
Verkföllin hófúst fljótlega effir
að stjóm Nanos var tekin við og
mun í þeim aðgerðum hafa verið
náið samráð með stjómarandstöðu-
flokkunum og óháðum verkalýðs-
samtökum, einnig nýtilkomnum.
I kosningunum reyndist fylgi
kommúnistaflokksins vera mest í
dreifbýli, en í stærstu borgum og á
iðnaðarsvæðum hafði Lýðræðis-
flokkurinn, sem er fremstur í fylk-
ingu stjómarandstæðinga, hinsveg-
ar betur. Og það em einmitt iðnað-
arverkamenn og annað þéttbýlis-
fólk sem mest hefúr kveðið að í
verkfallinu. Gert er ráð fyrir að
verkfallsmenn muni nú snúa aftur
til vinnu.
Fréttaskýrendur segja að þetta
þýði endalok valdatíðar kommún-
ista í Albaníu og víst er um það að
þeir stjóma því landi ekki einir á
næstunni. Kaldhæðni þykir efalítið
einhverjum að flokkur þessi, sem
stjómað'i einvaldur lengi með
ómjúkum handatiltektum við alla
andstöðu en vann samt að einræð-
istíma sínum loknum lýðræðislegar
kosningar með miklum yfirburð-
um, skuli nú eftir svo skamma hríð
verða þoka úr valdastólum fyrir
verkfollum.
Ramis Alia Albanluforseti — stétt iðnverkamanna, sem flokkur hans hafði I raun
búið til með iðnvæðingu landsins, varð fyrstu lýðræðislega kjörnu rlkisstjórn
þess sama flokks aö falli.
Litháen: Shevardnadze
fordæmir hemaðaríhlutun
Mikil spenna var í gær í
Vilnu, höfuðborg Lit-
háens, eftir að sak-
sóknaraembætti Sovét-
ríkjanna hafði lýst því yflr að
það teldi að sovéski herinn hefði
farið rétt að er hann tók á vald
sitt sjónvarpsturn borgarinnar
13. jan. Þá drápu sovéskir her-
menn 13 Litháa.
Sovéski herinn lét mikið á sér
bera í gær í Vilnu og umkringdi
ýmsar mikilvægar byggingar.
Sagðist Vytautas Landsbergis, for-
seti Litháens, óttast að sovéski her-
inn reyndi að taka þinghúsið á sitt
vald þá og þegar og skoraði á fólk
að slá hring um það því til vemdar.
Eduard Shevardnadze, fyrrver-
andi utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, fordæmdi í gær á frétta-
mannafundi í París hemaðaríhlutun
Sovétmanna í Eystrasaltslýðveld-
unum og kvaðst óttast að ýmsir
háttsettir menn í sovéska hemum
kynnu upp á eigið eindæmi að fyr-
irskipa athafnir af því tagi, sem
áttu sér stað í Vilnu í janúar.
Shevardnadze varar við herforingjum
Staðfest að Jiang Qing sé látin
Kínverska ríkisfréttastofan
Nýja Kína staðfesti í gær
frétt bandaríska tímarits-
ins Time um lát Jiang Qing,
ekkju Mao Zedongs, fyrrum
leiðtoga kínverska kommúnista.
„Jiang Qing, höfúðglæpamaður
í máli Lin Biao-Jiang Qing- gagn-
byltingarklíkunnar, framdi sjálfs-
víg og lést að aðsetri sínu í Peking
snemma dags 14. maí, 1991,“ segir
í tilkynningu fféttastofunnar um
fráfall ekkjufrúar þessarar, sem í
mörg ár var ein af valdamestu
manneskjum heimsins fjölmenn-
asta ríkis. Nýja Kína segir enn-
fremur að Jiang, sem varð 77 ára,
hafi ekki verið í fangelsi síðan vor-
ið 1984, er henni hafi verið sleppt
úr því af heilsufarsástæðum og
hefði hún verið undir læknishendi
síðan. Frést hafði að hún hefði ver-
ið með krabbamein í hálsi.
Svo er að sjá að kínversk
stjómvöld hafi hugsað sér að hafa
ekki hátt um fráfall Jiang, fyrst þau
tilkynntu það ekki fyrr en fréttin
um það var farin að síast út.
Frakkar minni drykkjumenn en talið var
Dregið hefur úr neyslu
Frakka á léttum vínum um
17% á s.l. tíu árum, en þó
drekka þeir ennþá meira af
þessu, að tiltölu við fólksfjölda,
en nokkur önnur þjóð, sam-
kvæmt tölum gefnum upp í gær.
Drekka Frakkar enn 74 lítra af
léttum vínum á mannsbarn
hvert á ári.
Aðrir í röðinni em ítalir með
72 lítra og þriðju Lúxembúrgarar
með 61.
Rannsóknir hafa leitt i ljós að
drykkja á léttum vínum er hvergi
nærri eins almenn í Frakklandi og
lengi hefur verið álitið. Samkvæmt
niðurstöðum þeirra rannsókna nú á
árinu drekka átta af hveijum tíu
Frökkum alls ekkert af veigum
íessum, þótt ótrúlegt kunni að
lykja. Margt ungt fólk þarlendis
neytir alls engra áfengra drykkja
og sumt af því sem það gerir tekur
bjór framyfir léttvín.
Svo að Frakkar þeir sem neyta
áfengis þessa torga miklu meira en
74 lítrum af því árlega.
Frá Austur-Berlln - íbúar austurþýska rlkisins fyrrverandi kenna peningavald-
inu um niöurníðslu atvinnulífsins.
A-'Þióðvcriar:
Bankamir stjóma landinu
Skoðanakönnun fór nýlega
fram í Þýskalandi og voru
menn spurðir hvaða aðilar
þeir teldu að hefðu mest völd
þar í landi. Eru svörin nokkuð á
dreif og er mikill munur á skoð-
unum Austur- og Vestur- Þjóð-
verja um þetta, samkvæmt nið-
urstöðunum.
33 af hundraði vestmanna sem
svöruðu telja að ríkisstjómin sé
valdamesti aðilinn, en 41 af hundr-
aði austmanna telur að það séu
bankamir. Hinsvegar vom þeir
sammála um að fyrirtæki í einka-
eign væm næstvaldamesti aðili
landsins. Aðeins 14 af hundraði
austmanna telja að ríkisstjómin
ráði meim en allir aðrir.
Svör íbúa austurþýska ríkisins
fyrrverandi þykja endurspegla von-
brigði þeirra eftir sameiningu
þýsku ríkjanna, en síðan hefur
efnahagslífi austurfylkjanna stöð-
ugt hrakað.
16 frambjóðendur myrtir
Talsvert hugrekki þarf vænt-
anlega til að bjóða sig fram til
þings í indverska fylkinu Punj-
ab, því að í yfirstandandi kosn-
ingabaráttu hafa 16 frambjóð-
endur verið myrtir þar, að sögn
indversku fréttastofunnar PTI.
Af þeim hafði einn boðið sig
fram til sambandsþingsins í Del-
hi, hinir til fylkisþingsins í Punj-
ab.
Öfgasinnaðir Sikar, sem vilja
að Punjab verði sjálfstætt ríki fyrir
þeirra þjóð/trúflokk, reyna að
koma í veg fyrir að kosningar fari
fram þar og segja að þær löghelgi
indversk yfirráð í fylkinu.
Finnar í gengissamflot
Rolf Kullberg, aðalbanka-
stjóri finnska seðlabankans, til-
kynnti í gær að finnska markið
yrði tengt gengissamfloti aðildar-
ríkja Evrópubandalagsins á
föstudag. Svíþjóð tengdi krónu
sína því gengissamfloti 17. maí.
Esko Aho, forsætisráðherra
Finnlands, sagði í gær að fínnska
stjómin hefði ákveðið að gera
þessar ráðstafanir í gjaldeyrismál-
um fyrr en áður hefði verið fyrir-
hugað vegna ókyrrðar á markaðn-
um og hækkandi vaxta.
PÓSTUR OG SÍMI
óskar að ráða
svæðisumsjónarmann/rafeindavirkja til afleys-
inga í rúmt ár hjá Pósti og síma á Húsavík.
Nánari upplýsingar hjá stöðvarstjóra á Húsavík
og umdæmistæknifræðingi á Akureyri.
Síða 5
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 5. júní 1991