Þjóðviljinn - 05.06.1991, Síða 8
Sumir lífeyrissjóðir munu hækka
vexti en aðrir doka við um sinn
Það er mjöe erfitt að segja til um hvort aðrir Iífeyrissjóðir
munu fylgja í kjölfar vaxtahækkunar Lífeyrissjóðs
Vesturlanas, sagði Hrafn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Sambands almennra lífeyrissjóða, í samtali við
Þjóðviljann í gær. Hann bióst við að einhverjir myndu
fylgja fordæmi þeirra á Vesturlantíi en að aðrir myndu doka við
fram eftir sumri og fylgjast með því hvort vaxtahækkunin að
undanfömu yrði viovarandi eður ei.
Stjóm Lífeyrissjóðs Vestur-
lands ákvað 27. maí síðastliðinn að
hækka vexti á lánum til sjóðsfé-
laga úr sjö prósentum í markaðs-
vexti bankanna frá og með 1. júlí.
Við gerð þjóðarsáttarsamninga í
ársbyijun 1990 var út frá því geng-
ið að vextir lífeyrissjóða til sjóðs-
félaga væru um sjö prósent.
Bergþór Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestur-
lands, sagði grunnástæðuna tyrir
vaxtahækkuninni vera þá að vaxta-
lækkunin í febrúar 1990 hefði átt
að ganga á undan vaxtalækkun í
þjóðfélaginu almennt. „Það skilaði
sér ekki,“ sagði Bergþór. Hann
benti á að lækkuðu vextir almennt
þá lækkuðu vextimir hjá þeim líka
þar sem ákvörðunin snerist um það
að láta vextina ráðast af markaðn-
um á hverjum tíma. „Hefði lækk-
unin 1990 skilað hlutverki sínu, til
vaxtalækkunar í þjóðfélaginu,
hefði hún verið til góðs. En for-
sendumar em ekki lengur fyrir
hendi, vextir em allsstaðar að
hækka,“ sagði Bergþór.
Hrafh sagðist skilja þessa af-
stöðu Lífeyrissjóðs Vesturlands
enda toguðust á í lífeyrissjóðum
tvenn sjónarmið, annarsvegar að
bjóða sjóðsfélögum hagstæð lán og
hinsvegar að ávaxta fé sjóðsins á
sem hagkvæmastan hátt. Hann
sagði að SAL hefði ekki tekið
neina heildarákvörðun um breyt-
ingu á vöxtum og að þess væri
ekki að vænta.Hrafn sagði lífeyris-
sjóði nú nýta 14 prósent af ráðstöf-
unarfé sínu i lán til sjóðsfélaganna
og að síðan 1987 hefði þetta hlut-
fall verið 10-14 prósent. Fyrir upp-
töku húsnæðiskerfisins sem kennt
er við 1986 var þetta hlutfall mun
hærra. Hrafn sagði það sína per-
sónulegu skoðun að lífeyrissjóðir
ættu ekki að lána til sjóðsfélaga
heldur ættu bankar að gera það og
lífeyrissjóðir að sjá um að ávaxta
fé sitt í arðbærari fjárfestingum.
-gpm
Fjölgun í
Húsdýra-
garðinum
Tveir kálfar bættust í hóp
hreindýranna í Húsdýragarðinum
fyrir helgina. Annar fæddist á
miðvikudag, en hinn er undanvill-
Ingur af öræfum sem hafði verið
flæmdur frá móður sinni og komið
var með í garðinn frá Breiðdals-
vik. Hann hefur h'klega fæðst á
mánudag.
Kálfunum heilsast vel en Hvíta-
Sunna, fyrsti hreindýrskálfur sum-
arsins, drapst sólarhrings gömul þar
sem hún komst aldrei á spena. „Það
er ekki óalgengt að kýimar hafni
fyrsta kálfi og við stóðum í þeirri trú
að Hvíta- Sunna hefði komist á spen-
ann, en svo var ekki,“ sagði Tómas
Guðjónsson forstöðumaður garðsins.
Kálfiirinn var krufinn að Keldum og
þegar næsta hreindýrskýr bar á mið-
vikudag var vel fylgst með gangi
mála. Sá komst ekki heldur á spen-
ann strax og fékk pela í fyrstu, eins
og undanvillingurinn, en er nú farinn
að nærast á móðurmjólkinni.
-vd.
Það fjölgaði um tvo í hreindýrafjöl-
skyldunni í Húsdýragarðinum í
síðustu viku. Ein kýr bar á
miðvikudag og á fimmtudag var
komið með Iftinn undanvilling
frá Breiödalsvík sem hafði
villst frá móður sinni uppi
á öræfum.
Mynd: Kristinn.
:v
hgf' :<T¥ .
£' £ m
Búvörusamningurinn kallar á nýja hugsun
r
Anýafstöðnum aðalfundi Landssambands sláturleyfishafa sagði
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra að nýgerður búvöru-
samningur yrði efndur og að sjömannanefndin mundi starfa
áfram. Jafnframt sagðist ráðherrann vilja beita sér fyrir því að draga
úr boðum að ofan um málefni afurðastöðva.
Hákon Sigurgrímsson, fram- bænda, sagði að framleiðendur og
kvæmdastjóri Stéttarsambands afurðasölufélög yrðu að tileinka
sér nýjan hugsunarhátt, samfara
þeim breytingum sem verða á
rekstrarumhverfi þeirra í kjölfar
hins nýja búvörusamnings.
Að mati framkvæmdastjórans
mun framtíð ffamleiðenda og slát-
ursleyfishafa byggjast á því hvem-
ig þeim tekst að nýta markaðinn
Sjúkrahúsdeildum lokað í sumar
Vegna fjárskorts og vöntunar á starfsfólki til afleysingastarfa
hafa sjúkrahúsin þurft að loka deildum yfir sumartímann og
verður svo einnig þetta sumar.
Vigdís Magnúsdóttir, hjúkran-
arforstjóri á Landspítalanum sagði
að á undanfomum áram hefði
Landspítalinn alltaf lokað ein-
hveijum deildum. Hún sagði þó að
minna yrði um lokanir í sumar en
áður.
Vigdís sagði að Landspítalinn
muni loka einni handlæknisdeild,
lyflæknisdeild, bæklunarlækninga-
deild og svo yrði hálfri deild lokað
á Vífilstöðum.
„Sumrin era mjög erfið því það
era svo margar stofnanir sem
skerðast af þessum sökum,“ sagði
Vígdís.
Borgarspítalinn mun einnig
loka nokkram deildum og verður
einni deild af skurðlækningadeild-
unum lokað, hluti af lyQadeildum,
öldrunadeildum og endurhæfínga-
deildum verður einnig lokað.
Sigríður Snæbjörnsdóttir,
hjúkranarforstjóri á Borgarspítal-
anum sagði ástæðuna fyrir þessum
lokunum vera tvíþætta. „Bæði þarf
starfsfólk spítalans að komast í
sumarfri og þá era þetta mörg
hundruð manns sem þarf að leysa
af og það er ekki til svo mikil!
varaforði af afleysingafólki. Svo er
ekki til neinn peningur heldur,"
sagði Sígríður.
Landakotsspítali mun aðeins
loka handlækninga og lyflækn-
ingadeildum og verður það í um
tíu vikur. Öldranadeildin í Hafnar-
búðum verður opin í allt sumar.
Röskun verður einnig á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri eins
og undanfarin sumur. Ljóst er að á
Fjórðungssjúkrahúsinu verður unnt
að halda uppi fullri þjónustu fyrir
slysa- og bráðatilfelli. Starfsemi á
Gjörgæsludeild, Fæðingadeild og
Slysadeild verður óskert og munu
deildimar starfa eftir þörfum.
Skurðstofur verða reknar með
helmingsafköstum. Innlögnum og
þar með aðgerðum verður haldið í
lágmarki á Handlækninga- Bækl-
unar- Háls-, nef- og eyma-, Augn-
og Kvensjúkdómadeild. Öllum
bráðatilfellum verður þó sinnt en
dregið verður úr innlögnum á öðr-
um legudeildum.
Með þessum samræmdu að-
gerðum er starfsemi spítalans í
heild dregin nokkuð saman tíma-
bilið 1. júní - 15. september án
þess að til þurfi að koma lokanir
deilda. Með þessum aðgerðum er
talið að ná megi markmiðum um
nauðsynlegt aðhald í rekstri, og
hægt sé að veita starfsfólki samn-
ingsbundin Ieyfi. -KMH
sem þeir munu ekki lengur sitjar
einir að.
Samkvæmt búvörusamningn-
um mun verðábyrgð ríkissjóðs á
kindakjöti falla niður frá og með 1.
september á næsta ári og sömuleið-
is verða útflutningsbætur aflagðar
á sama tíma. Viðskipti með fram-
leiðslurétt verða heimiluð og jafn-
framt verður leyfilegt að framleiða,
selja og flytja kindakjöt úr landi.
Þá verður vaxta- og geymslugjald
greitt upp að 500 tonna birgðum
þann 1. september ár hvert. Kinda-
kjötsframleiðslan verður tengd inn-
anlandsmarkaði með svonefndu
greiðslumarki sem verður ákveðið
árlega með hliðsjón af innanlands-
neyslu og lækkar ef neyslan dregst
saman. I greiðslumarki felast bein-
ar mánaðarlegar greiðslur til
bænda fyrir helming grandvallar-
verðs en hinn helminginn greiða
sláturleyfishafar samkvæmt bú-
vörulögum frá 1985.
Hreiðar Karlsson, formaður
Landssambands sláturleyfishafa,
sagði að sláturhafar stæðu nú
frammi fyrir miklum breytingum
með nýjum búvörasamningi og
fyrirsjáanlegri fækkun bænda. Af
þeim sökum þyrfti Landssamband-
ið að taka virkan þátt í og hafa
framkvæði að áframhaldandi hag-
ræðingu í greininni og sölu- og
markaðsstarfi.
-grh
Hádegis'
verður
fyrir
hungraða
Hjálparstofnun kirkjunnar
leitar nú eftir aðstoð lands-
manna vegna hungursneyðar-
innar sem hrjáir 25 miljónir
manna í fimm ríkjum Afríku:
Angóla, Eþíópíu, Mósambik,
Súdan og Sómalíu.
Hjálparstofnunin skorar á
landsmenn að fylgja fordæmi 33
starfsmanna steypustöðvarinnar
Óss, en þeir lögðu fram 17.000
krónur sem þeir söfnuðu með því
að sleppa hádegisverði einn föstu-
dag fyrir stuttu.
Framkvæmd þessa gæti verið
á þann veg að starfsmenn vinnu-
staða með mötuneyti gætu tekið
sig saman um að neyta minni hátt-
ar máltíðar eða sleppa henni alveg
og láta andvirðið renna til Hjálp-
arstofnunarinnar. Þetta mætti
einnig gera heima við, á ráðstefn-
um og fundum og annars staðar
þar sem menn koma saman.
„Þannig gæti margt smátt gert
eitt stórt átak í aðstoð við þá sem
líða skort,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Hjálparstofnuninni.
-vd.
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 5. júní 1991
Síða 8