Þjóðviljinn - 05.06.1991, Page 11
Lífið er saltfiskur
Útflutningsráð Félags
íslenskra stórkaupmanna
boðar til hádegisverðar-
fundar nk. föstudag kl. 12 í
Skálanum, Hótel Sögu.
Gestur fundarins verður
Toril Fiskestrand, formaður
samtaka saltfiskútflytjenda
í Noregi. Þátttöku skal til-
kynna í síma 678910 eigi
síðar en á fimmtudag.
Félag um barna-
málsrannsóknir
Félag um bamamáls-
rannsóknir var stofnað í
maí sl. og er það aðili að
Samtökum um bamamáls-
rannsóknir á Norðurlönd-
um. Markmið félagsins er
að efla rannsóknir á bama-
máli á (slandi, stuðla að
samstarfi þeirra sem rann-
saka mál barna á öllum
aldri og miöla þekkingu um
mál barna og máltöku.
Markmiðum sínum hyggst
félagið m.a. ná með því að
halda fundi og ráðstefnur,
dreifa upplýsingum um allt
sem lýtur að bamamáls-
rannsóknum og gefa út
fréttabréf og tímarit. Félag-
ar geta allir orðið, sem
áhuga hafa á málefnum fé-
lagsins, með því að snúa
sér til Baldurs Sigurðsson-
ar, Kennaraháskóla (s-
lands, Dagnýjar Bjömsdótt-
ur, Háskóla Islands, eöa
Sigurðar Konráðssonar,
Kennaraháskóla Islands.
Gúrkutíð og Fríða
frænka
Tvö handritsuppköst
voru valin I (slensku for-
keppninni um drög að sjón-
varpshandriti að leikinni
mynd, sem samtök evr-
ópskra sjónvarpsstöðva
stendur fyrir. Það voru
Gúrkutíð eftir Jón Steinar
Ragnarsson og Friða
frænka eftir Kristlaugu Mar-
(u Sigurðardóttur. Þetta er í
þriðja sinn sem efnt er til
þessarar keppni. Steinbarn
Vilborgar Einarsdóttur tók
þátt í keppninni í fyrsta
skipti sem hún var haldin
og lenti þá ( hópi þeirra tíu
sem valin voru.
Ægismenn gefa
Grensásdeiidinni
Félagar í Lionsklúbbn-
um Ægi afhentu Grensás-
deild Borgarspftalans Fis-
her myndsegulband og
þráðlausan síma af Danc-
allgerð í lok ma( sl.
Myndin var tekin þegar Ægis-
menn afhentu myndbandstækiö
og slmann.
Fréttabréf
Siðmenntar
Út er komið annað tölu-
blað fréttabréfs Siðmenntar
- félags áhugafólks um
borgaralegar athafnir. I rit-
inu er að finna margs konar
fróöleik um starfsemi Sið-
menntar, svo og upplýsing-
ar um norræn og alþjóðleg
samtök húmanista.
Viðmóti afgreiðslufólks ( verslunum er viða ábótavant hér á landi. Þessi unga stólka var þó mjög lipur i garð
viðskiptavina sinna. Mynd: Kristinn.
Námskeiö fyrir
ókurteist afgreiðslufólk
Oll könnumst við við þá
reynslu að lenda á leið-
inlegu starfsfólki þegar
við förum í verslanir
og hversu niðurdrepandi það
getur verið.
Auðvitað er það misjafn hvem-
ig viðmót við fáum frá afgreiðslu-
fólki og er sumt afgreiðslufólk al-
veg til fyrirmyndar og veitir okkur
góða þjónustu og hlýlegt viðmót.
En samt er það allt of oft hér á
landi sem afgreiðslufólk gleymir
því að það er í þjónustuhlutverki
og á að gera allt sem í þess valdi
stendur til að gleðja viðskiptavin-
inn. Það em mörg dasmi þess að
viðskiptavinur kemur inn í verslun
hér á landi og finnur sig beinlínis
óvelkominn. Starfsfólk gleymir
því að það er viðskiptavinurinn
sem heldur versluninni gangandi.
Nú er komin ný verslunarmið-
stöð, Borgarkringlan, og var allt til
þess gert að gera hana sem glæsi-
legasta. En það er ekki nóg að hafa
flottar og dýrar verslanir þegar af-
greiðslan er léleg. Því var tekið til
þess ráðs að senda afgreiðslufólkið
á námskeið til að bæta ffamkomu
þess og kenna því að umgangast
fólk á mannlegan hátt.Hvort þetta
námskeið hafi síðan skilað ein-
hveijum árangri er svo annað mál
og verða viðskiptavinir Borgar-
kringlunnar sjálfir að dæma um
það.
Neytendasíðan hafði samband
við Gísla Blöndal, markaðs- og
þjónusturáðgjafa hjá Borgarkringl-
unni, en hann hefur sjálfur haldið
svona námskeið fyrir afgreiðslu-
fólk. Gísli er vel kunnur verslunar-
störfum því hann vann í 25 ár í
verslun hér í Reykjavík.
Hann sagðist ekki í nokkmm
vafa um að svona námskeið geri
sitt gagn og stuðli að betri fram-
komu afgreiðslufólks.
„Afgreiðslu er almennt mjög
ábótavant í verslunum hér á landi,“
sagði Gísli. „Starfsfólki sem er í
þjónustustörfum veitir ekkert af
því að fara á svona námskeið af og
til, því það er svo auðvelt að
staðna og gleyma þessu öllu.“
Gisli sagði að vegna eðlisgerð-
ar Islendinga þyrftum við kannski
að minna okkur oftar á þessa hluti
en aðrar þjóðir.
I mörgum löndum tíðkast það
að afgreiðslufólk fái prósentur af
hverri sölu og segja margir að það
stuðli að bættri þjónustu, því þá
verður starfsfólk að sýna góða
kurteisi í þeirri von að selja.
Gisli sagðist ekki hafa mikla
trú á þessu kerfi því það gæti leitt
af sér að starfsfólk verði of ákaft
að selja vömna og verði beinlínis
uppáþrengjandi við kúnnann og
reyndi þar af leiðandi að troða vör-
unni á hann.
Margt starfsfólk er fljótt að sjá
hvaða viðskiptavinir em óákveðnir
og kúnninn gæti endað með að
kaupa vöm sem hann ætlaði sér
aldrei að kaupa og er óánægður
með hana þegar heim er komið.
Gísli sagði að yfirleitt kvörtuðu
neytendur ekki vegna lélegrar
þjónustu afgreiðslufólks. „Þeir
flytja aðeins viðskipti sín eitthvað
annað ef þeir em óánægðir. Og það
er það hættulegasta fyrir þjónustu-
fyrirtækin.“
Gunnbjöm Þór Ingvarsson,
viðskiptafræðingur, var leiðbein-
andinn á námskeiðinu sem haldið
var fyrir afgreiðslufólk Borgar-
kringlunnar. Hann sagði að á þessu
námskeiði hefði margt verið tekið
fyrir t.d. hversu nauðsynleg góð
framkoma væri fyrir viðskiptin,
framkoma og samskipti almennt,
áhrif streitu á ffamkomu, svömn í
síma, og svo var tekið fyrir hversu
nauðsynlegt það væri fyrir af-
greiðslufólk að vita hvað það væri
virkilega að selja.
Gunnbjöm sagðist ekki vilja
kalla þessi námskeið brosnámskeið
því þau gengju út á mikið meira en
það að kenna fólki að brosa. „Þó
Gamlar
rafhlöður
seldar
í búðum
Nokkur dæmi eru um það
að verslanir selji gamlar raf-
hlöður og verða kaupendur
að vera vel á verði og kanna
ávallt dagsetningarnar.
Dagsetningin, sem er á
botni rafhlaðanna, segir til um
endingu þeirra. Þar er nefndur
mánuður og ár og á rafhlaðan
að vera best fyrir tilgreindan
tíma.
Þessar upplýsingar koma
ffam í Neytendablaðinu og seg-
ir þar einnig að þó svo að
gamlar rafhlöður geti enn verið
í lagi þá hafi kaupandinn enga
tryggingu fyrir þvi.
Það er varhugavert að
geyma rafhlöður í tækjum sem
sjaldan em notuð því rafhlöð-
umar geta lekið, og dæmi em
um að þær hafi skemmt tæki
eins og vasaljós, myndavélar,
og fleira.
Kaupendur eiga því ekki að
taka neina áhættu og eiga því
aðeins að kaupa rafhlöður sem
em með réttri dagsetningu.
Neytendasamtökin vilja
einnig minna fólk á að rafhlöð-
ur em taldar með spilliefnum
og eiga því ekki að fara með
venjulegu soipi.
-KMH
svo að bros sé vissulega nauðsyn-
legt og ákaflega gott veganesti þá
er það alls ekki nægjanlegt. Það
þarf meira til. Brosið er aðeins og
einn þáttur í góðri framkomu,"
sagði Gunnbjöm.
Hann sagði að námskeið sem
þessi væm mjög vinsæl og það
væri mikil þörf á þeim.
En hvað á viðskiptavinurinn að
gera þegar hann hefixr fengið leið-
inlegt viðmót ffá afgreiðslufólki?
Á hann að labba útúr búðinni og
láta þetta leiðindaatvik eyðileggja
daginn fyrir sér eða á hann að gera
eitthvað róttækara? Gunnbjöm
sagði að vissulega ætti kúnninn að
kvarta við verslunareigandann og
mótmæla svona framkomu.
Næst þegar þú Iesandi góður
ferð í verslunarleiðangur ættirðu
að hafa í huga hvemig viðmót þú
færð fra afgreiðslufólki. Ef þú ert
ekki ánægður, ættirðu að segja af-
greiðslufólkinu frá námskeiðum
sem nú em í boði sem stuðla að
því að þú fáir betri þjónustu og að
þú gangir út úr versluninni með
bros á vör. - KMH
Hagkvæmast að
kaupa uppþvottalög
í stórum umbúðum
fslenski uppþvottalögurinn er aöeins ódýrastur sé hann keyptur I stónjm um-
búöum.
Sápumagn í uppþvotta-
legi er eini raunhæf
mælikvarðinn á það
hversu vel uppþvotta-
lögurinn nýtist, en engar vís-
bendingar eru gefnar á umbúð-
um uppþvottalaga um sápu-
innihaldið.
Þetta kemur fram í niðurstöð-
um könnunar sem Verðlagsstofnun
og Neytendasamtökin létu gera.
Sápuinnihald í uppþvottalegi er
misjafnlega mikið, eða allt frá 6 af
hundraði og upp í 39 af hundraði
rúmmáls. Einfaldur verðsaman-
burður á vömnni gefúr því enga
vísbendinu um raunvemlegt verð á
þeirri sápu sem er í honum.
Verðmismunur á uppþvottalegi
er vemlegur og það er ótvírætt
hagkvæmast að kaupa hann í stór-
um umbúðum.
Könnun þessi náði til 37 teg-
unda af uppþvottalegi í 53 mis-
munandi umbúðum af ýmsum
stærðum. Ef einfaldur vcrðsaman-
burður er gerður á þessum tegund-
um, án tillits til sápumagns, kemur
Crown Crest lemon best út með
52,4 krónur á hvem lítra. Bmgsen
mini risk opvask er hins vegar dýr-
astur, 471% dýrari en ódýrasti lög-
urinn.
Sé hins vegar miðað við sápu-
magn í leginum litur málið öðm-
vísi við. Today’s washing up liquid
er ódýrasti uppþvottalögurinn, sé
verðið miðað við hlutfall af sápu-
efni. Hreins sítrónu er hins vegar
dýrastur, 3,3 sinnum dýrari en sá
ódýrasti.
Það vekur athygli að innlendur
þvottalögur er ekki meðal ódýrustu
tegunda nema þegar hann er seldur
í stómm umbúðum. I þeim brúsum
sem taka einn lítra eða minna er
Vex með eplailmi ódýrasti íslenski
lögurinn. Hann kostar 9.3 krónur á
% af sápuefni og lendir i 14. sæti
af 39 tegundum.
Kannaðar vora 14 tegundir af
uppþvottalegi í tveggja til fjögurra
lítra brúsum. Þar af vom aðeins
tvær innfluttar. í þessum brúsa-
stærðum virðist íslenski lögurinn
vera samkeppnisfær í verði.
Þykkt uppþvottalagar er mjög
mismunandi. Rannsókn Iðntækni-
stofhunar leiddi hins vegar í ljós að
þykkur uppþvottalögur þarf ekki
að vera góður uppþvottalögur. Það
er sápumagnið sem gildir.
- KMH
Síða 11
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 5. júní 1991