Þjóðviljinn - 05.06.1991, Blaðsíða 16
Þjóðviuinn
Miövikudagur 5. júní 1991
ÞJÓÐVILJINN
Skrifstofa 681333
Auglýsingar 681310
Afgreiðsla 681333
Myndsendir 681935
Sívaxandi hluti útgjalda bifreiðaeigenda rennur til ríkisins.
Aukin skattheimta
á bifreiðaeigendur
Albjóðlegur
umnverfis-
vemdardagur
dag, 5. júní, er alþjóðlegur umhverfisverndardagur UNEP, Um-
hverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Þessi dagur hefur verið
tileinkaður umhverfismálum um nokkurra ára skeið en íslensk
stjórnvöld hafa ekki minnt á hann sérstaklega. í þetta sinn er
dagurinn helgaður baráttunni gegn gróðurhúsaáhrifunum svo-
nefndu og kallar UNEP á alþjóðlegt samstarf á þessu sviði.
í ávarpi dagsins segir M.K.
Tolba, framkvæmdastjóri UNEP,
að Persaflóastríðið hafi enn aukið
á hrikalega eyðileggingu mannsins
á umhverfi sínu og mengun í and-
rúmsloftinu. „Stríðsreksturinn
gleypti miljarða dollara sem annars
heíðu getað farið í hreinsun um-
hverfisins og alþjóðlega uppbygg-
ingu á því sviði,“ segir Tolba. I
annan stað sé alvarleg hætta á
breytingum á loftslaginu vegna ol-
íueldanna sem enn brenna í Kúveit
og heilsufari manna sé hætta búin
af þeim þar eð magn súlfúrdíoxíðs
hafi hækkað mjög á olíusvæðun-
um.
Gróðurhúsaáhrifin hafa verið
til umræðu áratugum saman og
enn aukast áhyggjur manna vegna
þeirra. Hiti á jörðinni er nú hálfu
celsíus-stigi hærri en fyrir iðnbylt-
ingu og því er spáð að meðalhiti
muni hækka um þijú stig fyrir lok
næstu aldar, verði ekkert að gert.
Slík hitaaukning mun valda gífur-
legum breytingum á loftslaginu og
á veðurfari, m.a. þannig að stormar
verða algengari og alvarlegri, og
munu einnig geisa á svæðum þar
sem stormar hafa ekki þekkst áður.
Um leið og hitastigið hækkar hlýn-
ar sjórinn og yfirborð hans hækkar
þannig að flæða mun yfir stór
landsvæði, m.a. í Bangladesh, Eg-
yptalandi, Indónesíu, Kína og á
Indlandi.
-vd.
Fj ármagnseigendur
hirða kjarabætumar
Verkalýðsfélagið Eining hélt aðalfund sl. fimmtudag. Fundur-
inn lagði áherslu á aukinn kaupmátt lægstu launa og mót-
mælti þeirri kjaraskerðingu sem orðið hefur vegna sífelldra
vaxtahækkanna. Fundurinn gagnrýndi það fordæmi sem
ríkisstjórnin hefur gefið í vaxtamálunum. A fundinum var og kjör-
inn ný stjórn fyrir næsta starfsár.
Svo virðist sem ríkissjóður
ætli sér auka tekjur sínar
allverulega með aukinni
skattheimtu á bifreiðaeig-
endur. Að óbreyttri skattastefnu
ríkissjóðs er búist við að kostn-
aður bifreiðaeigenda á næsta ári
aukist um 100 miljónir króna
vegna hreinsibúnaðar á útblást-
ur bíla og meiri bensíneyðslu,
sem er samfara notkun hans.
Þetta er alveg á skjön við það
sem gengur og gerist í nágranna-
löndunum þar sem aimenningur
nýtur þess í minni skattaálögum
að ganga vel um umhverfið.
Landsþing FÍB hvetur því ríkis-
stjórnina eindregið til þess að
lækka tolla á bílum með meng-
unarvarnarbúnað og telur frá-
leitt að ríkissjóður hagnist á að-
gerðum til megnunarvarna.
Um næstu áramót verða allir
nýir bílar að vera útbúnir hreinsi-
kútum sem talið er að muni hækka
útsöluverð bíla að meðaltali um
100 þúsund krónur. Þessi búnaður
á að draga verulega úr þeim eitur-
efnum sem berast út i andrúmsloft-
ið með útblæstri bifreiða. Með
þessum útbúnaði er áætlað að hver
bíll muni eyða nálægt tveimur lítr-
um meira af bensíni miðað við 100
kílómetra akstur, sökum þess orku-
taps sem verður við notkun hans.
Þessi hreinsibúnaður slær veru-
lega á útstreymi köfnunarefnisox-
íðs, koloxíðs og brennisteinsoxíðs í
útblæstri bifreiða. En einn galli er
þó á gjöf Njarðar. Aukin bens-
íneyðsla hefur í for með sér að
meira af koltvísýringi sleppur út í
andrúmsloftið. En eins og kunnugt
er eyðir koltvísýringurinn ósonlag-
inu í lofthjúp jarðar sem vemdar
lífríki hennar fyrir hættulegum sól-
argeislum. Að mati nýafstaðins
landsþings Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda er það kaldhæðnislegt
að við þessar ráðstafanir fær ríkis-
sjóður meira í kassann með aukn-
um tolla- og skatttekjum af nýjum
bifreiðum. Þessu til viðbótar auk-
ast tekjur ríkissjóðs all verulega
vegna aukinnar bensíneyðslu sem
fylgir notkun þessa hreinsibúnaðar.
A aðalfundi Bílgreinsambands-
ins fyrir skömmu kom það fram í
máli Friðriks Sophussonar íjár-
málaráðherra að litlar líkur séu á
því að tollar og skattar á bílum
verði lækkaðir. Jafhframt gaf fjár-
málaráðherra það sterklega í skyn
að lagður verði sérstakur mengun-
arskattur á þá eldri bíla sem ekki
verða með þennan hreinsunarbún-
að um næstu áramót.
Runólfur Ólafsson fram-
kvæmdastjóri FÍB segir að hlutur
bílaflota landsmanna í brennslu
eldsneytis sé ekki nema 35%-40%
af heildinni. Meirihlutinn, eða
60%-65% er hlutur fiskiskipa og
flugvéla.
Hinsvegar er afar fróðlegt að
fylgjast með þeim stakkaskiptum
sem hefur orðið í málflutningi for-
ystumanna sjálfstæðismanna tij
skattheimtu á bifreiðaeigendur. I
umræðum um hækkun bifreiða-
gjalds í mars í fyrra á Alþingi,
sagði Friðrik Sophusson: „Tilgang-
urinn er sá að svíkjast um að láta
þá fjármuni sem koma af umferð-
inni og af bifreiðum ganga til
framkvæmda í vegamálum, en að
ná í aukna skatta af bifreiðaeigend-
um og láta þá renna til ríkissjóðs“.
Við sama tækifæri sagði Þorsteinn
Pálsson: „Bílar eru almenningseign
í dag, þeir eru eign nánast hverrar
einustu fjölskyldu. Þessi skattur
kemur því með mestum þunga nið-
ur á þeim sem kröppust hafa kjörin
og sem þola síst viðbótarálögur."
-grh
Ályktun sem samþykkt var á
fundi Einingar ffá Ákureyri sl.
fimmtudag, fjallaði um vaxta-
hækkanir þær sem tröllriðið hafa
íslensku þjóðinni undanfarið og
þær kjaraskerðingar sem þær hafa í
for með sér.
Fundurinn vill meina að lítil
verðbólga sé grundvallarskilyrði
þess, að ekki séu allar kjarabætur
teknar af verkafólki jafnharðan og
um þær hafi verið samið.
I lok ályktununnar segir, „En
fyrst og síðast ber að leggja
áherslu á aukinn kaupmátt lægstu
launanna og að nýir samningar
verði tilbúnir og taki gildi um leið
og núgildandi samningar renna út.
Fundurinn bendir á, að nú þegar
verður að stöðva þá óheillaþróun,
sem er hafin með sífelldum víxil-
hækkunum vaxta og stórfelldri
kjaraskerðingu, sem fylgir fyrir all-
an þorra launafólks. Ríkisvaldið
hefur þar gengið á undan með illu
fordæmi i stað þess að beita áhrif-
um sínum til að halda stöðugleika
á vaxtamarkaðinum. Ef heldur
ffam sem horfir í vaxtamálum, er
ekki annað sjáanlegt, en fjár-
magnseigendur, innlendir og þó
einkum erlendir, hirði þær kjara-
bætur sem um kann að verða sam-
ið og gjaldþrot fjölda heimila og
fyrirtækja blasir þá við. En það má
aldrei gerast.“ -sþ
Irlandshaf
sorptunna
væntanleg
fyrir geislaúrgang
Allt bendir nú til þess að safnstöð fyrir geislavirkan úrgang
verði komið upp við kjarnorkuendurvinnslustöðina í Sel-
lafield á vesturströnd Englands við írlandshaf, í stað end-
urvinnslustöðvarinnar í Dounreay sem er á norðurodda
Skotlands. Bresk stjórnvöld hafa um nokkurn tima haft í hyggju að
koma geislavirkum úrgangi fyrir til geymslu undir sjávarbotni og
hefur einkum verið horft til Dounreay í því sambandi, þrátt fyrir há-
vær mótmæli stjórnvalda þeirra landa sem liggja að Norður- Atl-
antshafi.
I fréttaskeyti frá NENIG -
Northem European Nuclear Infor-
mation Group (Upplýsingahópi um
kjamorkumál í N-Evrópu) sem að-
setur hefur á Hjaltlandseyjum, seg-
ir að samkvæmt óopinbemm heim-
ildum hafi fyrirtækið NIREX, sem
er breskt ríkisfyrirtæki, þegar
ákveðið að koma sér upp safnstöð
og geymslum fyrir geislavirk úr-
gangsefni í námunda við endur-
vinnslustöðina í Sellafield. Bresk
stjómvöld hafa þó ekki látið neitt
frá sér fara opinberlega sem stað-
festir þetta, en búist er við yfirlýs-
ingu bresku stjómarinnar þar að
lútandi í ágúst nk., sem bendir til
að jarðvegskannanir á jarðlögum
undir sjávarbotni við Dounreay og
Sellafield séu mun lengra á veg
komnar en Iátið hefur verið í veðri
vaka af hálfu opinberra aðila.
NENIG bendir á að þrátt fyrir
það að Sellafield verði fyrir valinu
sem geymslustaður fyrir geilsa-
virkan úrgang, sé lífríki í og við
Norður-Atlantshaf ekki síður hætta
búin með þessu staðarvali en Do-
unreay. Geilsavirkni berist hæg-
lega með hafstraumum norður í
höf og lífsgrundvöllur fiskveiði-
þjóða við Norður-Atlantshaf sé
þannig í húfi. Rekja má að stærst-
um hluta þá geislamengun sem
mælst hefur í Norðursjó og norður-
höfum, þótt í litlum mæli sé, til
endurvinnslustöðvarinnar í Sellafi-
eld. Samkvæmt áætlunum stjóm-
valda og NIREX um safnstöð fyrir
geislavirkan úrgang, er gert ráð
fýrir því, að eiturefnin leki í ein-
hveiju magni út í haftð næstu tíu
þúsund árin eða svo.
NENIG skorar því á stjómvöld
þeirra þjóða við Norður- Atlants-
haf og sem hagsmuna hafa að gæta
að hvika ekki frá því á ráðstefnu
aðildarríkja Parísarsamkomulags-
ins um mengun sjávar sem haldin
verður síðar í þessum mánuði, að
reglur verði settar um geymslu og
losun geislavirkra úrgangsefna og
annars eiturúrgangs undir sjávar-
botni. Tillögu þessa efnis lögðu
fulltrúar íslands fram á ráðstefnu
aðildaríkjanna í fyrra, en þá hlaut
hún ekki hljómgrunn aðildarikj-
anna og hafa íslensk stjómvöld
ákveðið að bera tillöguna fram á
ný á ráðstefnu aðildarríkjanna sem
fram fer í HAAG í Hollandi 17,-
21. þessa mánaðar. _NENIG/rk