Þjóðviljinn - 07.06.1991, Síða 2

Þjóðviljinn - 07.06.1991, Síða 2
Olíutunnur á Kjarvalsstöðum Ameríski mynd- höggvarinn Christo opnar sýningu í Vestursal Kjar- valsstaða, laugardaginn 8. júní kl. 16.00. Aðstoðar- maður hans Josy Kraft setur verkin upp hér en sjálfur er Christo á þeyt- ingi milli Bandaríkjanna og Japans við uppsetn- ingu gríðarstórra sólhlífa. Eitt af því sem Christo er þekktastur fyrir er að pakka inn furðuleg- ustu hlutum. Upp úr 1980 pakkaði hann m.a. inn nokkrum eyjum á Biscayne-flóa í Florida. Hann fékk ekki að pakka inn eins mörgum eyjum og hann hafði ætlað sér í fyrstu vegna þess að sum- ar þeirra voru varplönd pelíkana. Tunnumar á Kjarvalsstöðum eru með- al fyrstu pökkunarverk- efna Christos. Þær eru frá því 1958- 1959. Christo hefur einnig pakkað inn opinberum byggingum og öðrum mannvirkjum, tjaldað þvert yfir dali til að loka fjallasýn og girt með tveggja mannhæða háu, ógagnsæju tjaldi yfir hæðir og hóla. Hann kost- ar allar sínar ffamkvæmd- ir sjálfur og neitar að taka við opinberum styrkjum. Það telur hann binda hendur sínar. Um eigin listaverk hefúr hann m.a. sagt að þau séu ekki hlutir heldur listaverk sem venjulega fái lánað tiltek- ið rými sem að öðru jöfnu tilheyrir ekki höggmynd eða málverki. Þau fá lán- að rými uppi í sveit, í borg eða úthverfúm - tré, brýr eða þjóðvegi. Þetta rými er samofið listaverk- inu. Olíutunnumar em í eigu sænsks miljónamær- ings sem heitir Torsten Lilja. Hann er sagður eiga um 150 verk eftir Christo. -kj HVE GLÖÐ ER VORVINNANDI ÆSKA Josy Kraft við olíuturmur meistara sins. Eins og sjá má er sumum þeirra pakkað inn. Ryðgaðar járnfötur, blúnduhanskar og tréker Á laugardag opna þær Nanna K. Skúladóttir og Þórdís Alda Sigurðardóttir skemmtilega skúlptúrsýningu í Nýlistasafhinu við Vatnsstíg. Nanna sýnir höggmyndir úr tré, en Þórdís verk unnin úr gömlum hlutum t.d. jámi, flaueli og svampi. Myndir: Kristinn Harður kommúnisti, nema hvað Hver kannast ekki við þá tilfinningu að með vorinu komi ný tið, ekki bara með blóm í haga heldur líka með nýju starfi - og breyttum heimi. I reynsluheimi vel- flestra íslendinga er að finna hrynjandi þar sem á skiptist skóladvöl og sumarvinna. Þess vegna býr í vorinu þessi tilfinn- ing að nú skuli tekist á við eitthvað nýtt og spennandi. Að auki er von til þess, að minnsta kosti fyrir sumarvinnu- fólk, að peningaveskið tútni aðeins meira út en venjulega. Að ekki sé nú talað um þá drauma sem fylgja vorinu um að eitt- hvað virkilega spennandi gerist nú um helgina. Jafnvel eitthvað rómant- ískt. Nýtt Helgarblað hitti á Jóhannes Bjama Sig- tryggsson sem í sumar vinnur malbikunarvinnu hjá Loftorku í Reykjavík. Flokkurinn hans var að undirbúa malbikun á Sogaveginum og var að taka sig upp þegar Nýtt Helgarblað mætti á stað- inn. - Þetta er fyrsta sum- arið mitt í malbikun, sagði Jóhannes en í fyrra vann hann hjá Hitaveit- unni. Jóhannes er 18 ára og er búinn að vera i mal- bikunarvinnunni í þijár vikur eða síðan skólanum lauk. Við starfið metur hann mest félagsskapinn en sami vinnuhópurinn stárfar saman allt sumar- ið. Jóhannes kvartaði ekki einu sinni undan kaupinu sem hann taldi ágætt. En þennan dag vom allir í góðu skapi enda hafði sólin þá skinið í marga daga í röð sem er nú frek- ar óvenjulegt hér sunnan heiða. - Hvað segiði, emð þið frá Þjóðviljanum? hváði Jóhannes. - Helgarblaðið er uppáhaldsblaðið mitt, sagði hann og brosti. Hann kvaðst fylgjast vel með i pólitíkinni og öðm slíku. - Enda er ég harður kommúnisti, sagði hann og hananú. Þótt hann fylgist vel með i þjóðmál- unum þá hélt hann ekki að það væri almennt með- al fólks á hans aldri. Hann sagðist að sjálf- sögðu fylgjast vel með öllu er varðaði umhverf- ismál, enda þyrfti að hugsa um þau mál í tíma. - Já, ég held að yngra fólk hugsi frekar um um- hverfismál en þeir sem em eldri, sagði Jóhannes. - Við emm með opnari huga og ómótaðri, bætti hann við. En þá var hann líka rokinn upp í traktorinn því félagar hans vom lagðir af stað til að undir- búa næsta bút fyrir mal- bikun. En Kristinn ljós- myndari náði þó að smella af honum mynd áður en hann bmnaði burt. -gpm Fyrstiapríl á Tveimur vinum Þótt komið sé fram í júní verður Fyrsti apr- íl á Tveimur vinum nú á sunnudag. Fyrsti apr- íl er ung rokkhljóm- sveit og em þessir tón- leikar fyrstu tónleikar sveitarinnar. Sveitin leikur eigin útsetning- ar á verkum eldri meistara einsog Led Zeppelin, Cream, Hendrix o.fl. Tónleik- amir heQast kl. 23 og er miðaverð kr. 350. ALLT VILL NÚ LIFA Kosið var í fastanefndir Al- þingis á föstudag... Alþýðu- flokksmennimir fimm sem ekki gegna ráðherraembættum eru formenn hver í sinni nefnd. Af»ýAuMaðjð SÆT ERU DAVÍÐS SVIPUHÖGG Það virðist vera hægt að nauðga Alþýðuflokknum enda- laust...Það em til í mannlegu lífi fyrirbæri sem em masókistar. Al- þýðuflokkurínn virðist vera hinn pólitíski masókisti á Islandi, sagði Ólafúr Ragnar Grimsson. Tíminn AF UPPLÝSINGA- ÞJÓDFÉLAGI Sérfræðingar í málefnum Mó- nakóaðalsins segja stuttklipping- una vera til marks um að Karólína (Mónakóprinsessa) syrgi bónda sinn enn ákaflega. Morgunblaóié KRISTUR ÞJÁÐIST OGBAUÐOSSAD GERA SLIKT H» SAMA Það hlýtur að vera raun fyrir prestana, sem jarðsyngja sumir dag eftir dag, að kirkjugestir taki þátt í því sem fram fer. MorgunMméié FORMIÐ GEGN INNI- HALDINU Það hlýtur að vera skýlaus krafa hlustenda að íþróttaffétta- menn reyni að gera lýsingar sínar eins líflegar og áhugaverðar og þeim er unnt - sama hve leikir em leiðinlegir. DV SVO KJÓSA ÞEIR KRATA Einn glöggur viðmælandi benti á að Keflvíkingar væm nokkurs konar negrar íslands. Þeir skömðu fram úr í poppi og íþróttum en létu öðrum eftir stjómmál, bisness og önnur áhugamál hvítra. Pressan (fylgirít Alþýöublaósins) NÚ ER RÓMAT- ÍKINNI KALT Það er til að mynda ekkert rómantískt að fá kynsjúkdóm af því að hún þorði ekki að biðja hann um að nota smokkinn af því að þá héldi hann að hún væri laus- lát gella... 2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 7. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.