Þjóðviljinn - 07.06.1991, Qupperneq 2
Olíutunnur á
Kjarvalsstöðum
Ameríski mynd-
höggvarinn Christo opnar
sýningu í Vestursal Kjar-
valsstaða, laugardaginn 8.
júní kl. 16.00. Aðstoðar-
maður hans Josy Kraft
setur verkin upp hér en
sjálfur er Christo á þeyt-
ingi milli Bandaríkjanna
og Japans við uppsetn-
ingu gríðarstórra sólhlífa.
Eitt af því sem
Christo er þekktastur fyrir
er að pakka inn furðuleg-
ustu hlutum. Upp úr 1980
pakkaði hann m.a. inn
nokkrum eyjum á
Biscayne-flóa í Florida.
Hann fékk ekki að pakka
inn eins mörgum eyjum
og hann hafði ætlað sér í
fyrstu vegna þess að sum-
ar þeirra voru varplönd
pelíkana. Tunnumar á
Kjarvalsstöðum eru með-
al fyrstu pökkunarverk-
efna Christos. Þær eru frá
því 1958- 1959.
Christo hefur einnig
pakkað inn opinberum
byggingum og öðrum
mannvirkjum, tjaldað
þvert yfir dali til að loka
fjallasýn og girt með
tveggja mannhæða háu,
ógagnsæju tjaldi yfir
hæðir og hóla. Hann kost-
ar allar sínar ffamkvæmd-
ir sjálfur og neitar að taka
við opinberum styrkjum.
Það telur hann binda
hendur sínar. Um eigin
listaverk hefúr hann m.a.
sagt að þau séu ekki hlutir
heldur listaverk sem
venjulega fái lánað tiltek-
ið rými sem að öðru jöfnu
tilheyrir ekki höggmynd
eða málverki. Þau fá lán-
að rými uppi í sveit, í
borg eða úthverfúm - tré,
brýr eða þjóðvegi. Þetta
rými er samofið listaverk-
inu. Olíutunnumar em í
eigu sænsks miljónamær-
ings sem heitir Torsten
Lilja. Hann er sagður eiga
um 150 verk eftir Christo.
-kj
HVE GLÖÐ ER VORVINNANDI ÆSKA
Josy Kraft við olíuturmur meistara sins. Eins og sjá má
er sumum þeirra pakkað inn.
Ryðgaðar
járnfötur,
blúnduhanskar
og tréker
Á laugardag opna þær
Nanna K. Skúladóttir og
Þórdís Alda Sigurðardóttir
skemmtilega
skúlptúrsýningu í
Nýlistasafhinu við
Vatnsstíg. Nanna sýnir
höggmyndir úr tré, en
Þórdís verk unnin úr
gömlum hlutum t.d. jámi,
flaueli og svampi.
Myndir: Kristinn
Harður kommúnisti,
nema hvað
Hver kannast ekki við
þá tilfinningu að með
vorinu komi ný tið, ekki
bara með blóm í haga
heldur líka með nýju
starfi - og breyttum
heimi. I reynsluheimi vel-
flestra íslendinga er að
finna hrynjandi þar sem á
skiptist skóladvöl og
sumarvinna. Þess vegna
býr í vorinu þessi tilfinn-
ing að nú skuli tekist á
við eitthvað nýtt og
spennandi. Að auki er
von til þess, að minnsta
kosti fyrir sumarvinnu-
fólk, að peningaveskið
tútni aðeins meira út en
venjulega. Að ekki sé nú
talað um þá drauma sem
fylgja vorinu um að eitt-
hvað virkilega spennandi
gerist nú um helgina.
Jafnvel eitthvað rómant-
ískt.
Nýtt Helgarblað hitti
á Jóhannes Bjama Sig-
tryggsson sem í sumar
vinnur malbikunarvinnu
hjá Loftorku í Reykjavík.
Flokkurinn hans var að
undirbúa malbikun á
Sogaveginum og var að
taka sig upp þegar Nýtt
Helgarblað mætti á stað-
inn.
- Þetta er fyrsta sum-
arið mitt í malbikun,
sagði Jóhannes en í fyrra
vann hann hjá Hitaveit-
unni. Jóhannes er 18 ára
og er búinn að vera i mal-
bikunarvinnunni í þijár
vikur eða síðan skólanum
lauk. Við starfið metur
hann mest félagsskapinn
en sami vinnuhópurinn
stárfar saman allt sumar-
ið. Jóhannes kvartaði ekki
einu sinni undan kaupinu
sem hann taldi ágætt. En
þennan dag vom allir í
góðu skapi enda hafði
sólin þá skinið í marga
daga í röð sem er nú frek-
ar óvenjulegt hér sunnan
heiða.
- Hvað segiði, emð
þið frá Þjóðviljanum?
hváði Jóhannes.
- Helgarblaðið er
uppáhaldsblaðið mitt,
sagði hann og brosti.
Hann kvaðst fylgjast vel
með i pólitíkinni og öðm
slíku. - Enda er ég harður
kommúnisti, sagði hann
og hananú. Þótt hann
fylgist vel með i þjóðmál-
unum þá hélt hann ekki
að það væri almennt með-
al fólks á hans aldri.
Hann sagðist að sjálf-
sögðu fylgjast vel með
öllu er varðaði umhverf-
ismál, enda þyrfti að
hugsa um þau mál í tíma.
- Já, ég held að yngra
fólk hugsi frekar um um-
hverfismál en þeir sem
em eldri, sagði Jóhannes.
- Við emm með opnari
huga og ómótaðri, bætti
hann við.
En þá var hann líka
rokinn upp í traktorinn
því félagar hans vom
lagðir af stað til að undir-
búa næsta bút fyrir mal-
bikun. En Kristinn ljós-
myndari náði þó að
smella af honum mynd
áður en hann bmnaði
burt.
-gpm
Fyrstiapríl
á Tveimur
vinum
Þótt komið sé fram
í júní verður Fyrsti apr-
íl á Tveimur vinum nú
á sunnudag. Fyrsti apr-
íl er ung rokkhljóm-
sveit og em þessir tón-
leikar fyrstu tónleikar
sveitarinnar. Sveitin
leikur eigin útsetning-
ar á verkum eldri
meistara einsog Led
Zeppelin, Cream,
Hendrix o.fl. Tónleik-
amir heQast kl. 23 og
er miðaverð kr. 350.
ALLT VILL NÚ
LIFA
Kosið var í fastanefndir Al-
þingis á föstudag... Alþýðu-
flokksmennimir fimm sem ekki
gegna ráðherraembættum eru
formenn hver í sinni nefnd.
Af»ýAuMaðjð
SÆT ERU DAVÍÐS
SVIPUHÖGG
Það virðist vera hægt að
nauðga Alþýðuflokknum enda-
laust...Það em til í mannlegu lífi
fyrirbæri sem em masókistar. Al-
þýðuflokkurínn virðist vera hinn
pólitíski masókisti á Islandi, sagði
Ólafúr Ragnar Grimsson.
Tíminn
AF UPPLÝSINGA-
ÞJÓDFÉLAGI
Sérfræðingar í málefnum Mó-
nakóaðalsins segja stuttklipping-
una vera til marks um að Karólína
(Mónakóprinsessa) syrgi bónda
sinn enn ákaflega.
Morgunblaóié
KRISTUR ÞJÁÐIST
OGBAUÐOSSAD
GERA SLIKT H»
SAMA
Það hlýtur að vera raun fyrir
prestana, sem jarðsyngja sumir
dag eftir dag, að kirkjugestir taki
þátt í því sem fram fer.
MorgunMméié
FORMIÐ GEGN INNI-
HALDINU
Það hlýtur að vera skýlaus
krafa hlustenda að íþróttaffétta-
menn reyni að gera lýsingar sínar
eins líflegar og áhugaverðar og
þeim er unnt - sama hve leikir em
leiðinlegir.
DV
SVO KJÓSA ÞEIR
KRATA
Einn glöggur viðmælandi
benti á að Keflvíkingar væm
nokkurs konar negrar íslands.
Þeir skömðu fram úr í poppi og
íþróttum en létu öðrum eftir
stjómmál, bisness og önnur
áhugamál hvítra.
Pressan
(fylgirít Alþýöublaósins)
NÚ ER RÓMAT-
ÍKINNI KALT
Það er til að mynda ekkert
rómantískt að fá kynsjúkdóm af
því að hún þorði ekki að biðja
hann um að nota smokkinn af því
að þá héldi hann að hún væri laus-
lát gella...
2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 7. júní 1991