Þjóðviljinn - 21.06.1991, Page 6

Þjóðviljinn - 21.06.1991, Page 6
Berlín skal hún heita Eftir ellefu tíma þindar- lausar umræður í neðri deild þýska þingsins - Bundestag - í gær samþykktí þingheimur að Berlín skyldi vera höfuð- borg sameinaðs Þýskalands. Alls greiddu 337 þingmenn atkvæði með þeirri tillögu að stjómaraðsetur Þýskalands skyldi flytjast frá Bonn til Berl- ínar. 320 þingmenn greiddu at- kvæði á móti flutningnum. Með þessari samþykkt þingsins verður Berlín að nýju höfuðborg sameinaðs Þýska- lands, el til 1945 er landinu var skipt upp í Austur og Vestur- Þýskaland í stríðslok. -Reuter Kongressflokkurinn kýs eftirmann Gandfs Þingmenn Kongressflokks- ins indverska hafa komið sér saman um eftírmann Raj- ivs Gandís í formennsku fyrir flokknum. Sá sem embættið hlaut heitír P. V. Narashima Rao og það fellur í hans verka- hring að leiða og mynda ríkis- stjórn, en flokkurinn hefur nauman meirihluta á þingi eft- ir þingkosningar á dögunum. í gær tilkynnti Rao að honum hefði formiega verið falin stjórnarmyndun og fcngi til verksins ijórar vikur. Rao var kosinn til embættis- ins á opnum fundi þingflokksins, eftir að helsti keppinautur hans til formannsembættisins dró sig í hlé. Rao, sem er 69 ára gamall og Tilkynning Vegna hitaveituframkvæmda verður Vífilsstaða- vegur í Garðabæ, milli Reykjanesbrautar og Karla- brautar, lokaður allri umferð frá kl. 8.00 laugardaginn 22. júní til kl. 23.00 sunnudaginn 23. júní 1991. Vegfarendum er vinsamlegast bent á að aka Hafn- arfjarðarveg og Bæjarbraut á meöan. Hitaveita Reykjavíkur ÞJOÐMINJASAFNISLANDS Laus er til umsóknar staða deildarstjóra húsverndunardeildar Þjóð- minjasafns íslands. Starfið felst einkum í umsjón og rannsóknum friðaðra húsa og húsa í vörslu safnsins. Umsækjendur skulu hafa háskólamenntun í safn- greinum eða byggingarlist. Laun samkvæmt launa- kerfi opinberra starfsmanna. Umsóknum skal komið til þjóðminjavarðar, Þjóð- minjasafni íslands, Pósthólf 1489, 121 Reykjavík fyrir 10. júlí n.k. íslenska járnblendifélagið hf. Efnafræðingur/efna- verkfræðingur íslenska járnblendifélagið hf. óskar eftir að ráða efnafræðing/efnaverkfræðing til starfa. Honum er ætl- að að vinna að rannsóknum á hráefnum til járnblendi- framleiðslu, sérstaklega kolum og koksi. Verkefnið er til þriggja ára og unnið undir stjórn starfsmanna járn- blendifélagsins en er fjármagnað af erlendum sam- starfsaðilum félagsins. Rannsóknirnar verða gerðar í samvinnu við erlendar rannsóknastofnanir og verður því hluti vinnunnar erlendis, einkum vestanhafs. Umsækjendur verða að hafa lokið framhaldsnámi í efnafræði og hafa reynslu af rannsóknastörfum. Gott vald til vinnu á ensku og kunnátta í norðurlandamáli er nauðsynlegt. Frekari upplýsingar veita dr. Þorsteinn Hannesson eða dr. Jón Hálfdanarson, íslenska járnblendifélag- inu, síma 93-20200. Umsóknir berist íslenska járn- blendifélaginu h.f., 301 Akranesi, fyrir 15. júlí 1991. sagður við slæma heilsu, er tal- inn varkár stjómmálamaður sem kunnur sé fyrir að vilja ávallt leita málamiðlana i viðkvæmum deilumálum, fremur en að láta skerast í odda milli stríðandi afla. Fréttaskýrendur segja hann ólíklegan til að víkja frá þeirri stefnu sem Kongrerssflokknum var í upphafi mörkuð af Nehru, íyrsta forsætisráðherra Indlands og síðar framhaldið af dóttur hans Indíru Gandí og dóttursyni Rajiv Gandí. Rao er kominn af bændafólki í báðar ættir. Hann nam lögfræði og er sagður tala reiprennandi nokkur þeirra fjölmörgu mála sem töluð eru á Indlandi. Bein afskipti hans af stjóm- málum hófust ekki að fullu fyrr en á fyrri hluta áttunda áratugar- ins. Þann tíma sem Indíra Gandí stjómaði landinu í skjóli neyðar- laga með tilheyrandi skerðingu mannréttinda árin 1975 til 1977, lét Rao lítt uppi skoðun sína á stjómarfarinu. Hann snéri þó ekki baki við Indíru og þegar Kongressflokkurinn beið mikið afhroð í kosningum 1977 og Ind- íra sjálf datt út af þingi, tók Rao að sér það erfiða hlutverk að vera í forsvari fyrir flokkinn og stefnu Indím i neðri deild þingsins. Er Indíra komst aftur til valda 1978 launaði hún Rao ríkulega trygglyndið við sig og gerði hann að ráðherra utanríkis- mála. Um það leyti sem Indíra fyrirskipaði hermönnum að ryðj- ast inn í Gullna hofið, helgasta stað Síkka 1984 var Rao gerður að innanríkisráðherra. Eflir morðið á Indíru, gekk Rao ekki eins vel að fóta sig í stjómmálum. Honnum féll ekki í geð nútímaleg hugsun Rajivs Gandís og var færður til í emb- ætti og gerður að vamarmálaráð- herra 1984, en þeirri stöðu gegndi hann fram á næsta ár er hann var enn færður til og fengið Narashima Rao, nýkjörinn leiö- togi Kongressflokksins (á innfelldu myndinni), þykir hag- sýnn og varkár stjórnmálamað- ur sem flanar ekki að neinu, en næsta vlst er að það verður ekki auðhlaupiö að þvi fýrir hann að fylla það skarð sem þau mæðgin Indlra og Rajiv Gandl skyldu eftir sig. ráðuneyti sem fer með mann- fjölgunarmál. Því embætti gegndi Rao til ársins 1989 er Kongressflokkurinn missti þing- meirihlutann í kosningum til ind- verska þingsins. Víst er að þau vandamál sem Rao, nýkjörinn formaður Kon- gressflokksins og væntanlegur forsætisráðherra þarf að kljást við em mörg og erfið úrlausnar. Þau vandamál sem brýnast er að lausn fáist á er sá gífúrlegi efna- hagsvandi sem Indland á við að glíma og að samkomulag náist við öflugar hreyfmgar aðskilnað- arsinna í Punjab, Kasmír og As- sam, sem ógna tilvist sambands- ríkisins Indlands. -Reuter/Newsweek Færeyingum meinað að leika heima Knattspyrnusamband Evr- ópu - UEFA - hefur afsagt með öllu að færeyska landslið- ið í knattspyrnu fái að leika leiki sína í Evrópumeistara- mótinu heima. Þess í stað er landsliði Færeyja gert að Ieika „heimaleiki“ sína í hlutlausu landi, en færeyska knatt- spyrnusambandið hafði sótt um að leika þá þrjá heimaleiki sem þeir eiga eftir á nýjum grasvelli að Tóftum á Austur- ey. Þessu hafnaði Evrópusam- bandið eins og fyrr segir á þeirri forsendu að þegar dregið var í riðla í mótinu hafi Færeyingar fallist á að leika leiki sína ytra þar sem þeir hafi þá aðeins haft leikvöll með velli með gervi- grasi til að spila á og reglur sam- Sandsins heimiluðu ekki breyt- ingar frá fyrri ákvörðunum. Færeyska landsliðið hefúr þegar leikið einn heimaleik ytra, þ.e. á móti Austurríki sem fram fór í Svíþjóð. Þeir leikir sem landslið Færeyinga í knattspymu á eftir að leika eru á móti Dön- um, Norður- Irum og Júgóslöv- um. Landslið Fæyreyja hefúr staðið sig ffamar öllum vonum í ýmsum leikjum við landslið þjóða sem hafa verið talin til stórvelda í kanttspymu og lagði meðal annars austurríska lands- liðið að velli í Svíþjóð sl. vetur. Landsliðsþjálfari Færeyinga er íslendingurinn Páll Gunnlaugs- son. -Reuter Cresson varar enn við Japönum - Við viljum eiga ágæt sam- skipti við Japani, en við sitjum ekki til sama borðs og þeir hvað viðskipti milli Evrópu og Japan varðar. I því er hættan fólgin, sagði Cresson og átti þar við þá tollamúra sem Japanir hafa sett gagnvart innflutningi erlendrar ffamleiðslu. -Reuter Franskl forsætisráðherr- ann, frú Edith Cresson, er enn við sama heygarðshornið og segir Japani hin verstu fól við að eiga í viðskiptum. A blaðamannafúndi sem ffú- in hélt í París í gær sagði hún að það væri aldrei of mikið gert að þvi að hamra á þeirri hættu sem Evrópu stafaði að viðskiptaveldi Japana. Má bjóða þér pitsu með hrossataði? Pitsa með hrossataði í ofaná- legg var á meðal þeirra fjöl- mörgu ókræsilegu rétta sem rak á fjörur hollenskra matvælaeft- irlitsmanna á ferðum þeirra á síðasta ári og reynt hafði verið að pranga inn á neytendur. En til þess að gera matseðilinn margrétta, má bæta við ís með jámvír, eplabúðing með glerbrot- um og sprautunál í bjórflösku, en þetta og ótalmargt fleira sérstæðra rétta fékk hollenska matvælaeftir- litið inn á borð til sín í fyrra. Ekki fer neinum sögum af matarlyst eft- irlitsmannanna eftir að hafa barið slíkar kræsingar augum. -Reuter 6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 21. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.