Þjóðviljinn - 21.06.1991, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 21.06.1991, Qupperneq 8
Útgefandí: Útgáfufélagið Bjarki h.f. Augiýslngadelld: * 68 13 10 - 68 13 31 Framkvæmdastjóri: Haliur PálUónsson Símfax: 68 19 35 Ritstjórar: Ámi Bergmann, Helgt Guðmurtdsson, Verð: 150 krónur f lausasölu Umsjónarmaður Helgarfolaðs: Bergdls Ellertsdóttir Setning og umbrot: Prentsmiöja Þjóðvlljans hf. Fréttastjóri: Siguröur Á. Friöþjófsson Prontun: Oddi hf. Auglýslngastjórl: Steinar Haröarson Aðsetur: Slðumúta 37,108 Reykjavlk Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Alafoss gjaldþrota Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar var Álafoss úrskurðaður gjaldþrota í gær. Hvað við tekur fyrir þau hundruð fjölskyldna sem nú lenda í óvissu með afkomu sína ligg- ur ekki fyrir, en samkvæmt fréttum frá Akur- eyri mun skiptaráðandi leita samkomulags við kröfuhafa um að rekstri verði haldið áfram með einhverjum hætti. Ríkisstjómin hefur valið þann kost að af- skrifa ullariðnaðinn. Hún ætlar sýnilega ekki að taka neina ábyrgð á að framhald verði á áratuga langri atvinnu- og framleiðsluhefð í þessari grein. Viðbrögð ríkisstjórnarinnar hafa vakið undrun enda eru hér á ferðinni ný vinnu- brögð sem vitna um áður óþekkta afstöðu af hálfu ríkisvaldsins. Mikilvæg atvinnugrein, sem ríkið á þar að auki mjög stóran hlut í er beinlínis afskrifuð í heilu lagi. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnendum Álafoss, sem birtust í Þjóðviljanum í gær, hefur rekstur fyrirtækisins farið batnandi. Vissulega var enn verulegt tap á fyrirtækinu, eða um 140 milljónir króna, en hafði lækkað úr rúmlega 600 milljónum. Ríkisstjórnin hef- ur ekkert svigrúm gefið til að kanna til hlítar hvort batnandi afkoma á sl. ári sé vísbend- ing sem dugar til að rétta reksturinn af. Með ákvörðun um gjaldþrot er mikilvægum við- skiptasamböndum stefnt í hættu og því óvíst að hugsanlegum nýjum rekstraraðila takist að halda þeim. Forsætisráðherra hefur sagt að til Álafoss hafi verið varið 2,4 miljörðum króna og tekur inn í þá tölu framlag Framkvæmdasjóðs til gamla Álafoss (Framkvæmdasjóður átti það fyrirtæki einn) sem aldrei hefur verið reiknað með að nýja fyrirtækið, sem er í eigu Fram- kvæmdasjóðs og SÍS, greiddi. Þannig virð- ast gamlar skuldir annars eignaraðilans vera notaðar sem rök fyrir því að gera fyrirtækið gjaldþrota. Fram hjá þeirri staðreynd verður auðvitað ekki gengið að ullariðnaðurinn hefur átt í verulegum erfiðleikum mikinn hluta nýliðins áratugs. Samkeppnin hefur harðnað á flest- um mörkuðum og breytingamar í Sovétríkj- unum, sem hafa verið afar þýðingarmikill kaupandi á íslenskum ullarvörum, hafa einn- ig haft sitt að segja. Fata- og ullariðnaður er einnig háður tískusveiflum. Fyrirtæki í grein- inni þrífast ekki til lengdar nema þau geti tek- ið fullan þátt í þeirri erfiðu samkeppni, með skapandi hönnun og þróun á eigin vegum. Gjaldþrot fyrirtækisins snertir ekki aðeins þær fjölskyldur sem missa tekjur ef starf- seminni yrði hætt með öllu. Það hefur líka gríðarleg áhrif á hag þeirra sveitarfélaga sem Álafoss h/f hefur starfað í. Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa nú forgöngu um athugun á því að halda rekstrinum áfram, en bæjar- stjórnir Mosfellsbæjar og Hveragerðis koma einnig að málinu. Hér kemur fram ein hliðin á þeim mikla aðstöðumun á milli höfuðborgarinnar og sveitarfélaganna úti á landi. Reykjavíkur- borg lætur sig yfirleitt litlu skipta hvernig fyr- irtækjum í borginni reiðir af. Innan hennar er svo stór hluti opinberrar- og einkaþjónustu að þrjú til fjögur hundruð störf tii eða frá skipta borgaryfirvöld litlu máli. Mikill meiri- hluti nýrra þjónustustarfa koma fram í Reykjavík án nokkurra sérstakra aðgerða af hálfu borgarstjórnar á meðan sveitarfélög vítt og breytt um landið verða að vera á varð- bergi til að tryggja stöðuga og örugga at- vinnu í byggðarlögunum. [ því tilfelli sem hér um ræðir neyðast sveitarstjórnir til að taka upp þráðinn sem ríkisstjórnin sleppti. Forsætisráðherra kvartaði yfir skorti á ábyrgð há hinum stóru í þjóðhátíðarræðu sinni. Það má e.t.v. hafa til marks um skilning hans á þessari ábyrgð að sömu einstaklingar, þá ráðherrar í ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar, tóku ákvörðun um stofnun Álafoss h/f og ráðstöfun þeirra fjármuna úr opinberum sjóðum sem til þurfti, og nú hafa komist að þeirri niðurstöðu að þetta sama fé sé tapað. hágé. Mynd: Þorfinnur 8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 21. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.