Þjóðviljinn - 21.06.1991, Síða 19

Þjóðviljinn - 21.06.1991, Síða 19
Adams ógnar veldi Nigel Short Um alllangt skeið hafa Nigel Short, Jonathan Speelman og John Nunn verið óumdeildir skákkóngar Breta. Bráðum kann að verða breytingi þar á. Hinn 19 ára gamli Mikhael Adams hefur með sigri á sterku móti i Groning- en um áramótin og nú síðast í Ter- rassa á Spáni auk þess sem að vera kominn vel yfír 2600 stiga markið ógnað veldi þeirra veru- lega og kannski líða ekki svo mörg þar til hann veltur Nigel Short úr sessi sem sterkasta skák- manni Breta. Mótinu í Terrasa lauk i júní- byijun og vakti athygli m.a. fyrir þá sök að Vasily Ivantsjúk var meðal þátttakenda. Hann nær vamtanlega 2. sæti á næsta Elo - lista og með hliðsjón af sigri hans á stórmótinu á Linares á dögun- um og í einvígnu við Judasin í ársbyrjun var honum spáð auð- veldum sigri í Terrasa. En Adams setti strik í reikninginn með því að vinna með svörtu i Marshall árásinni í uppgjöri þeirra í 6. um- ferð. Vegna þess hversu mótið var stutt náði Ivantsjúk sér ekki á strik eflir það. Lokastaðan varð þessi: 1. - 2. Adams (England) og Ehlvest (Eistland) 6 1/2 v. 3. Ivanstjúk (Sovétr.) 5 1/2 v. 4. - 5. Romanishin og Epsihin (Sovétríkin) 5 v. 6. lllescas (Spáni) 4 1/2 v. 7. - 8. Bönsch (Þýskaland) og Lautier (Frakkland) 4 v. 9. D. Garcia (Spáni) 2 1/2 v. 10. Pomes (Spáni) 1 1/2 v. Jaan Ehlvest deildi efsta sæt- inu með Adams. Hann hefur átt misjöfnu gengi að fagna undan- farið en eflir að hafa tapað fyrir Adams í fyrstu umferð hlaut hann 6 1/2 vinning úr næstu sjö skák- um og þurfti aðeins jafntefli til að tryggja sér efsta sætið óskipt. Ehlvest á tryggan hóp aðdá- enda hér á landi. Af Mikhael Tal kannski undanskildum var hann einn vinsælast stórmeistarinn á heimsbikammóti Stöðvar 2 haustið 1988. Grallaraleg ffam- koma hans og ýmis skemmtileg uppátæki, eins og óvænt þátttaka í tískusýningu á Holiday Inn, féll Helgi Ólafsson Húsnæðisnefnd Mosfellsbæjar auglýsir Skv. reglugerð nr. 46/1991 ber húsnæðisnefndum að hafa á sinni hendi samræmingu á öllu félagslegu hús- næði í sínu sveitarfélagi. Þ.e. kaupleiguíbúðum, leigu- íbúðum og eignaríbúðum. Þ.á m. íbúðir fyrir öryrkja og aldraða. í störfum sínum skal húsnæðisnefnd hafa samráð og samvinnu við félög og félagasamtök s.s. samtök aldraðra og fatlaða, húsnæðissamvinnufélög og aðra þá aðila sem vinna að húsnæðismálum í sveitarfélaginu. Skv. þessum skyldum sínum auglýsir nefndin eftir því hvort einhverjir slíkir aðilar í Mosfellsbæ hyggjast sækja um lán úr Byggingasjóði verkamanna til að byggja eða kaupa félagslegar íbíðir í sveitarfélaginu fyrir 1. október n.k. Húsnæðisnefndin býður þeim aðilum upp á samstarf og óskar eftir því að þeir gefi nefndinni upp, hverjar þessar fyrirætlanir eru fyrir 4. september 1991. Er þetta hér með auglýst skv. samþ. nefndarinnar 11.06. 1991. Mosfellsbæ 21. júní 1991 Húsnæðisnefnd Mosfellsbæjar, Hlégarði, 270 Mos. vel í kramið hjá forsvarsmönnum mótsins. Skák Ehlvest og Epishin úr síðustu umferð er tekin til með- ferðar hér. Epishin er annar dálít- ið sérstæður persónuleiki og eng- in smásmíði. Af ffamgöngu hans á New York - mótinu 1989 og ‘90 þótti sýnt að hann hefði ekki komist í tæri við algengustu hreinlætisvörur; hvað eftir gaus upp megn óþefjan ffá því borði þar sem hann sat að tafli. Hann virtist ekki eiga önnur fot en þennan stórglæsilega rússneska samfesting sem hann stóð í. Svo þungstígur var hann að marraði í gólflnu undan hveiju spori. Epis- hin hressti ærlega upp á ímyndina á New York - mótinu í ár er hann mætti til leiks í ítölskum jakkaföt- um og með sólgleraugu. Fannst sumum hann all skuggalegur ásýndum. En kannski er þetta hin viðkvæmasta sál með næma feg- urðartilfinningu, a.m.k. er sigur- skák hans yfir Ehlvest hreint augnayndi. Terrassa, 9. umferð: Vladimir Epishin - Jaan Ehlvest Drottningarindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3.RÍ3 b6 4. g3 Bb7 5. Bg2 Be7 6. 0-0 0-0 7. Rc3 Re4 8. Bd2 Bf6 9. Hcl Rxd2 10. Dxd2 d6 11. d5 e5 12. h4 Rd7 13. Bh3 g6 14. e4 Bg7 (Leikaðferð hvíts hefúr reynst svörtum erfið viðureignar í fjöl- mörgum skákum undanfarið þó Ehlvest hafi varið svipaða stöðu með árangri gegn eigi minni manni en Anatolij Karpov. Venju- lega byggir hvítur upp með peða- ffamrás á drottningarvæng en Ep- ishin hefúr aðrar meiningar, reyn- ir að opna stöðu svarts kóngs- megin. Aðgerðir hans virðast ekki ýkja hættulegar í fyrstu en Ehlvest uggir ekki að sér). 15. h5 Rf6 16. hxg6 hxg6 17. Kg2 De7 18. Hhl Hfe8 19. Hh2 Df8 20. Hchl Bh6 21. De2 De7 (Svartur gat hindrað 22. Bd7 með 21. .. Bg7 en efiir 22. Rg5 á hann við ýmsa erfiðleika að etja. Stuggi hann við riddaranum, 22. .. Bh6, kemur 23. Rxf7! Dxf7 24. Be6 o.s.ffv.). 22. Bd7! Dxd7 23. Hxh6 Kg7 24. Dd2 (Nú eru yfirráð hvíts eftir h - línunni skyndilega orðin stór- hættuleg). 24... Hg8 25. Dg5 De7? (25... Dd8 var betra). 26. Rb5! Dd8 (26. .. a6 má svara með 27. Hh7t Kf8 28. Rxc7 Rxh7 29. Dxe7t Kxe7 30. Rxa8 og hvítur vinnur peð. Önnur leið er 27. Rh4 Kf8 28. Rxc7 en með 28. .. Hc8 getur svartur barist áffam 27. Rh4 Kf8 28. Rxc7 o.s.ffv). 27. Rh4 Rxe4 a b c d e f g h (Engu betra er 27. .. Kf8 vegna 28. Rxg6t! fxg6 29. Hxg6 með myljandi sókn). 28. Hh7t! Kf8 (Auðvitað ekki 28. .. Kxh7 29. Rf5 mát). 29. Rxg6t! Ke8 (Þvingað. 29. .. fxg6 30. Dh6+ Ke8 31. Rxc7+ o.s.ffv). 30. Df5! Dd7 31. Dxe4 32. Rxc7t! Hxg6 (Lokahnykkurinn. Ehlvest hefði getað gefist upp en þráast við um stund). 32... Dxc7 33. Dxg6 De7 34. Hxf7 Dxf7 35. Hh8t Ke7 36. Hh7 Hf8 37. De6t Kd8 38. Hxf7 Hxf7 39. Dxf7 40. Dxb7 b5 - og nú loks gafst Ehlvest upp. MINNING Emil Björnsson Atvikin höguðu því svo að ég hóf prestsskap í Óháða söfnuðin- um. Var því leiddur fyrstu sporin af leiðtoga safnaðarins og presti séra Emil Bjömssyni. Það var mikið lán. Séra Emil var mér þá ekki ókunnugur. Fyrsti kynni mín af sunnudagaskólum vom úr sal Austurbæjarbamaskólans. Það var alltaf húsfyllir og alltaf fjör hjá séra Emil líka þegar komið var upp í kirkju Óháða safnaðar- ins síðar. Alltaf fjör og alltaf fullt. Seinna man ég eftir honum úr prédikunarstólnum. Hann talaði blaðalaust, hélt í mesta lagi á punktum, andagiftin óþrjótandi, orðfærið stórbrotið. Ég man eflir síðasta aðfangadagskvöldinu sem hann var þjónandi, 1984, líklega. Ræðan var ljóð, stuðluð og sett r höfúðstafi og minn maður enn í stólnum þegar þeir hringdu út úr kirkjunum í kring. Þannig var séra Emil. Honum lá mikið á hjarta og hann bjó yfir náðargáfu og anda- gift hins mikla prédikara. Séra Emil var maður þess kristindóms sem vildi bæta mann- félagið. Hann bar fyrir brjósti hag hins venjulega, vinnandi manns. Fyrirleit misskiptingu auðæfa, kúgun og ranglæti. Hans kristin- dómur gerði menn virka í um- hverfi sínu, dró þá ekki til hlés, og sjálfúr var hann holdi klædd fýrir- mynd boðunar sinnar. Á kafi í hringiðu tímans sem fféttastjóri og jafhffamt guðffæðingur og sem slíkur afburða prédikari. Ég þakka áhrifin, leiðbeininguna og ljúf persónuleg kynni og bið fyrir samúðarkveðjur til ffú Álfheiðar. Baldur Kristjánsson Varahlutir í hemla Hemlaviðgerðir r'-", Hjólastillingar 1 Vélastillingar Ljósastillingar Almennar viðgerðir Bordinn hf SMmJUVIGI 24 SÍMI 72540 Við höfum vélarnar og tœkin! VÍBRATORAR MÚRHAMRAR VATNSSUGUR VATNSDÆLUR JARÐVEGSÞJÖPPUR NAGARAR BOÉVELAR RAFSTÖÐVAR STINGSAGIR SLIPIR0KKAR LOFTHEFTIBYSSUR BELTASLÍPIVÉLAR HIJABLASARAR LOFTNAGLABYSSUR VIKURFRÆSARAR FLISASKERAR RYKSUGUR 0.FL. Véla- og tœkjaleigan Kleppsmýrarvegi 8 - Sími 812915 RAFRUN H.F. Smiðjuvegi 11 E Alhliða rafVerktakaþjónusta Allt efni til raflagna Sími641012 BÍI.SICÚRS Lekur hjá þér þakið? OO tONAOARNWOIR Haíðu þá samband við mig og ég stöðva lekann! GLÓFAXIHF. Upplýsingar í síma 91-670269 ÁRMÚLA42 108 REYKJAVlK SlMI: 3 42 36

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.