Þjóðviljinn - 21.06.1991, Side 22
/ Z V— 5~ z— r T~ V % wrr A T V )i V
1Z /3 V )0 T~ s n f ;3 IS )S s? )á> JZ
)7- 18 )o W y /r )Z )Z )* r & It 8 /0
/9 ¥ W~ )S~ y i/ IV i) 22 1 VI Zv /é 8
v> n *r K> íV 2s 23 )l 2o )5 IS R? )s
)K IO V •> V r~ IO y )(, /K Zb T~ Tr 8
1 (p 43 vr~ V i i4 io $ 22 </ 8
w~~ V*> r~ u JT~ RP w~ 5 r )/ )¥ )2 ¥
l0! r * ié r 30 £T )o n ) %> 23 )¥
IZ is )Q z £T >5 12 n )<7 21 /¥ v
8 )0 Rp 2) Vo 8 22 §2 )5 )2 T~ IV
V zr~ xí K /9- 10 IS' ¥ )¥ 3Í m
32 v~ 22 )</ >2 R? 2é 9 T~ )X S2 n T~
Krossgáta nr. 152
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karlmanns-
nafn. Sendiö þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans,
Síðumúla 37, 108 Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 152". Skilafrestur
er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
Lausnarorð á krossgátu nr. 148 var Starhólmi. Dregið var úr réttum
lausnum og upp kom nafn Jóns Einars Jónssonar, sem nú dvelur á
Vífilsstaðaspítala í Garðabæ. Hann fær senda bókina Flugleiðin til
Bagdad eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur. Almenna bókafélagið hf. gaf út
1991.
)? 22 2 )Lf 23 30 22
Verölaun fyrir krossgátu nr. 152
eru Þaö þarf tvo til, hjónbandsslit -
ný sambúö. Hjalti Jón Sveinsso
skráði. Almenna bókafélagiö hf. gaf
út 1991.
Nú er illt í efni. Ég sagði frá
veiðiferð Egils málara fyrir hálfúm
mánuði. Þetta var ffægðarför í
Kálfá. Hann haföi veitt 7 laxa og
misst fjóra. Allt saman á Edison
Light Tiger. Ég mun ekki hafa tek-
ið rétt eftir hjá Agli því fiskamir
voru reyndar 8 sem hann veiddi en
rétt var að hann missti ijóra. Helm-
ingurinn tók áðumefnda flugu en
hinir tóku Garry númer 6, tví-
krækju. Hugsanlega heföi ég látið
ógert að leiðrétta þetta ef ég heföi
fjölgað fiskunum um 2 - 3. Að
fækka fiskum í frásögn er öllu al-
varlegra mál og því bið ég bæði
Egil og lesendur afsökunar. Það er
svo sem ekki endilega vegna þess
að ég fór rangt með, heldur ffekar
vegna þess í hvaða átt missögnin
var. Slíkt má bara ekki. Ég vil svo
endilega fá að birta fleira frá Agli
þvi hann hefúr margt séð og reynt á
löngum veiðiferli.
Þá er rétt að snúa sér að flugu
vikunnar. Sú er nú ekki slorleg. Sá
sem veiðir á hana getur afturámóti
búist við að verða slorugur öðm
hvom. Hún varð fiskum skeinu-
hætt hér um árið austur á Vopna-
firði. Uppskriftin er svona:
Blue Marabou
1. Öngull CS2 SH BL. (Þessi
fluga er mjög fin á allskonar öngl-
um. Einkr. Tvíkr. Þrikr. Líka allar
stærðir).
2. Skott: Fanir af hanafjöður.
Litinn kalla þeir Red Orange. Þetta
á að vera af sömu lengd og gapið á
önglinum er vítt.
3. Búkur: Grátt flos.
4. Vöf: Gulllitað flatt tinsel
(Mylar).
5. Langskegg: Grasgrænt
íkomahár, jafnlangt önglinum.
Ekki of mikið.
6. Vængur: Fyrst kemur svolít-
ill dúskur af hvítu íkomahári. Þetta
skal ná jafnlangt skottinu. Svo
kemur ljósblátt marabou. Best er
að klippa tvo stubba úr stórri fjöð-
ur og mynda samloku. Setja þetta
svo kjölrétt ofaná. Þetta á að ná að-
eins lengra en skottið. Utaná þetta
koma 2 fjaðrir badger, sín hvom
megin. Þær eiga að ná aðeins
styttra en marabou fjaðrimar.
7. Fjaðrir af fmmskógahana.
Sjá mynd.
8. Haus er svartur.
Höfúndur þessarar flugu er Po-
ul Kukonen, ffægur garpur fyrir
fluguhnýtingar og köst.
Flugan er úr straumflugubók-
inni hjá Bates og fær betri einkunn
fyrir veiðni en flestar aðrar sem þar
em nefndar. Kukonen hefúr veitt
hundmð af laxi og silungi á þessa
flugu.
Góða skemmtun
Góö byrjun á Evrópumótinu
Er þessar línur em ritaðar, er
lokið 8 umferðum af 27 á Evrópu-
mótinu í Irlandi. Island er í 6. sæti,
eftir ágæta byrjun. Raunar vom
okkar menn viðloðandi efsta sætið
ffaman af, en slæmt gengi á móti
Pólverjum í 8. umferð, setti okkur í
6. sætið.
Urslit Jeikja hafa verið þessi:
1. umf. Ísland-Bretland: 3-25
2. umf. Ísland-Júgóslavía: 23-7
3. umf. Ísland-Frakkland: 25-3
4. umf. Ísland-Búlgaría: 25-4
5. umf. Island-Lichenstein: 25-1
6. umf. Island með yfirsetu,
18 stig
7. umf. Ísland-Tyrkland: 21-9
8. umf. Ísland-Pólland: 6-24
Samtals 146 stig, en efstir vom
Bretar um 162 stig. Þar á eftir
komu lið Svía, Pólverja, Sovét-
manna og ítala.
Byrjunin lofar góðu hjá liðinu,
en varasamt er að ætla að liðið
hafni ofar en í 10. sæti, þrátt fyrir
þessa byijun. Slæm töp á móti
Bretum og Pólverjum undirstrika
þann mun sem er á okkur og þeim
allra bestu í heiminum. Þjóðir eins
og okkar menn hafa sigrað, Búlg-
aría, Tyrkir og Lichenstein, enda
allar við botninn í mótinu. En það
verður samt að sigra þessar þjóðir
og það hafa okkar menn greinilega
sett sér. Haldi þeir því áffam, nái
að viðhalda kröftum og úthaldi, er
ekki fjarlægt að áætla að 10. sæti
sé í húsi. Ailt umffam það verður
hreinn ágóði fyrir íslenskan
bridge.
Liðið skipa þeir: Jón Baldurs-
son, Aðalsteinn Jörgensen, Öm
Amþórsson, Guðlaugur R. Jó-
hannsson, Guðmundur Páll Amar-
son og Þorlákur Jónsson. Fyrirliði
án spilamennsku er Bjöm Ey-
steinsson.
Stjóm Evrópusambandsins
kemur saman til fundar á meðan á
móti stendur. Helgi Jóhannsson
forseti BSÍ og Magnús Ólafsson
stjómarmaður í BSI, munu sitja
fundinn. Tilgangur þeirra er að fá
því framgengt að heimsmeistara-
mótið (Bermuda Bowl) verði spil-
að hér á landi 1995. Ég efast ekki
um að þeir félagar, Helgi og
Magnús, munu spila vel úr þeim
spilum sem þeir hafa á höndunum
og tryggja að mótið verði haldið
hér á landi.
Þættinum er aðeins kunnugt
um úrslit í einum leik í Bikar-
keppni BSÍ. Sveit Eiríks Hjalta-
sonar Kópavogi sigraði sveit Neon
Reykjavík, með um 60 stiga mun.
Epson-alheimstvímenningur-
inn (sömu spil um heim allan,
tölvuútreiknað) var spilaður í byrj-
un júní í Reykjavík. 18 pör tóku
þátt í keppninni. Efstu skorir tóku:
Gylfi Baldursson og Sigurður B.
Þorsteinsson í N/S með 65,79 pró-
sent skor og Eyjólfur Magnússon
og Hólmsteinn Arason í A/V með
52,88 prósent skor. Áætlað er að
stórfjölga í þessari keppni að ári og
m.a. spila einhverja riðla utan
Reykjavíkur.
Svokallað B-landslið (þau pör
sem stóðu sig best í æfmgamótun-
um í fjöllunum, að frátöldum
landsliðspörum) tók þátt í Alþjóð-
lega stórmótinu á Schipool- flug-
velli í byrjun júní. Yfir 80 sveitir
mættu til leiks, en okkar menn
höfnuðu neðarlega, eða um 60.
sætið.
Ágæt þátttaka hefur verið í
Sumarbridge á þriðjudögum og
fimmtudögum, en lakari á mánu-
dögum og miðvikudögum (byij-
endur). Um og yfir 30 pör hafa
mætt til leiks fyrrtöldu dagana,
sem er dágóð þátttaka í blíðveðr-
inu að undanfömu. Á Akureyri er
spilaður Sumarbridge á þriðjudög-
um, í golfskálanum að Jaðri. Um-
sjónarmaður nyrðra er Jakob
Kristinsson. Ferðalangar norður í
land í sumar eru minntir á að skrifa
(geyma) þessar upplýsingar á bak
við „góða“ eyrað
Steingrímur Hermannsson fv.
forsætisráðherra gerir það ekki
endasleppt í bridgeheiminum.
Spilið sem hann spilaði á móti
Omar Sharif þeim góðkunna
bridgespilara og leikara á Bridge-
hátíðinni í Reykjavík í febrúar,
hefur farið hringinn í kringum
hnöttinn. Umsjónarmaður hefúr
fengið staðfest að spilið hafi birst i
USÁ, Svíþjóð, Danmörku, Noregi,
Finnlandi, Bretlandi, Frakklandi,
Ástralíu, Kanada, Hollandi og í
Evrópufréttablaðinu, sem Evrópu-
sambandið gefúr út reglulega. Þar
með er þetta einstaka spil orðið
ffægasta bridgespil sem íslending-
ur hefúr spilað til þessa. Óvænt
ánægja, að heiðurinn skuli vera
Steingríms Hermannssonar...
I tilefni Evrópumótsins á ír-
landi, er ekki úr vegi að rifja upp
þátttöku okkar í síðasta Evrópu-
móti. Þá hafnaði liðið okkar i 16.
sæti af 25 þjóðum. Tveir liðsmenn
úr því liði eru að störfum á írlandi,
þeir Guðmundur Páll Amarson og
Þorlákur Jónsson. Lítum á eitt spil
frá viðureign okkar við Sovét-
menn, sem þama vom að taka þátt
í sínu fyrsta Evrópumóti í bridge.
S: 876543
H: 93
T: KD102
L: 8
S: G10 S: KD92
H: K6 H: G74
T: G97654 T: 3
L: DG5 L: Á10632
S: Á
H: ÁD10852
T:Á8
L: K974
Guðmundur og Þorlákur fet-
uðu sig í 4 hjörtu, án truflunar frá
A/V. Og gefum Guðmundi Páli
orðið: Þrátt fyrir nokkuð sjálf-
sagða útkomu í laufi valdi skratta-
kollurinn (Kobin) að spila út
hjartasexunni frá kóngnum öðr-
um... Þegar Austur lét gosann,
reiknaði ég með að útspilið væri
ffá kóng þriðja. Miðað við þá for-
sendu kom til greina að leggja nið-
ur hjartaás og spila meira hjarta.
Spilið ynnist þá ef Austur ætti
laufaásinn. Sú leið gefúr 11 slagi,
eins og spilið Iiggur. 9 slaga leiðin,
og sú sem ég valdi, var að spila
þrisvar tígli. Ef tígullinn er 4- 3, er
síðan hægt að spila laufi á kóng og
þá er sama hvor á ásinn, því Vestur
getur ekki trompað út án þess að
gefa slag. Austur batt auðvitað
enda á þessar fyrirætlanir með því
að stinga tígulkónginn og trompa
út.
Á hinu borðinu kom út laufa-
drottning og sagnhafi fékk 11
slagi; 10 imp-stig til Sovétmanna.
Leikinn unnu þó okkar menn með
17.5 gegn 12 (0.5 stig í refsingu
fyrir að telja ekki úr bökkum..,),
Vonandi tekst Guðmundi Páli
og félögum hans í íslenska lands-
liðinu í Killemey á írlandi betur
upp, en lýst hefur verið í ofan-
greindu (em raunar í 2. sæti er
þessi orð em rituð...).
Olafur
Lárusson
22 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 21. júní 1991