Þjóðviljinn - 22.06.1991, Side 1

Þjóðviljinn - 22.06.1991, Side 1
115. tölublað Laugardagur 22. júní 1991 56.árgangur Hér var friðað mannvirki. Mynd: Kristinn. Hættulegir dugnaðar- forkar í vinnu hjá borginni Verkamenn borgarinnar lentu í því fyrir stuttu að rífa friðað mannvirki, en eins og flestir vita þá er það alveg bannað. Til- drög málsins voru þau að við tjörnina í Reykjavík, í horninu hjá Iðnó, var eins konar flái sem gekk undir heitinu ísbryggja. Eftir honum hafa vafalaust margir tekið þegar þeir hafa staðið í þessu horni með börnin sín og stuðlað að endalausu brauðáti andanna. Isbryggja þessi var frá því snemma á þessari öld. Þetta gamla mannvirki var friðað vegna þess að það var heimild um atvinnuhætti. Á þeim árum þegar ísnám var stundað i tjöminni var ísinn dreg- inn þama upp. Verkamönnum, sem starfa við byggingarframkvæmdir á vegum borgarinnar, var falið að hlaða kant meðfram Tjöminni, en þeir fengu engar upplýsingar um að ísbryggj- an væri friðuð. Þegar að henni kom var hún fyrir þeim og þeir rifii hana að sjálfsögðu og héldu áfram að hlaða sinn kant. Verkstjóri þeirra mun hafa tekið á sig alla ábyrgð af málinu þegar vart varð við áhuga fjölmiðla og því hefur verið lýst yfir að bryggjan verði endurbyggð. Það er líklega ráð fyrir Reyk- víkinga að fylgjast vel með Iðnó þessa dagana. Hver veit nema ein- hver hafi teiknað steinkant eða blómabeð sem teygist þar inn á húsgmnninn. Það verður svo dýrt að endurbyggja það hús ef það verður rifið meðan verkstjórinn bregður sér frá. -kj Vandinn leystur með til" færslu Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra náði samkomulagi í gærmorg- un við landlækni, stjórn Læknafélagsins og yfirlækna Náttúrulækningahælisins í Hveragerði um að hefja innrit- anir á ný. Sighvatur segir að lögð verði áhersla á að innrita þá sjúklinga sem verið er að út- skrifa af sjúkrahúsunum vegna sumarlokana, og þá sérstaklega af öldrunardeildum og aðra sem geta ekki séð um sig sjálfír heima. Ráðnir verða afleysinga- læknar á meðan yfírlæknarnir tveir eru í leyfi. Sighvatur segir Náttúrulækn- ingafélagið geta með góðu móti tekið á móti 50 sjúklingum. „Ég mun koma því á ffamfæri við heimahjúkrunina hér í Reykjavík og við spítalana að það sé mögu- leiki að leysa þessi tímabundnu vandamál vegna sumarlokana, sem ómögulegt er að leysa í heimahús- um, með vistun á Náttúrulækn- ingahælinu sem mun hefja innrit- anir af fullum krafti. Ég vona því, að með þessu séu mál gamla mannsins, sem Þjóð- viljinn ræddi við í gær, leyst,“ sagði Sighvatur. Mikill skortur er á hjúkrunar- rýmum fyrir aldraða eins og ffam kom í Þjóðviljanum í gær. Sig- hvatur tók undir að þetta væri stórt vandamál. „Það er nú meðal annars vegna þess að svo virðist sem það sé meiri áhugi hjá mörgum aðilum, a.m.k. sjúkrahúsunum, fyrir að- gerðaaðstöðu hvers konar fremur en hjúkrunarrýmum. Þróunin hefúr verið sú að gamla fólkið hefúr fremur viljað vera á sérbýlum svo lengi sem það getur en á sumum af þessum þjónustustofnunum, sem sérstaklega úti á landi hafa verið að breytast í hjúkrunarheimili. Það er alveg ljóst að það vantar tilfmn- anlega hjúkrunarheimili fyrir gam- alt fólk. Til þess að bæta hér úr þarf stuðning, og því miður er það svo að gamla fólkið er ekki sterkur þrýstihópur í okkar þjóðfélagi. Og svo virðist sem margir þeirra sem um fjalla hafi meiri áhuga á öðru.“ Þegar ráðherra var inntur eftir ábyrgð rikisins á þessum málum svaraði hann: „Sveitarfélögin stóðu sig nú ekki mjög vel í þess- um málum, það verður nú að við- urkenna það. Kannski stendur rík- ið sig betur.“ Heilbrigðishópur BSRB sendi í gær frá sér harðorð mótmæli vegna þess að enn skuli koma til sumarlokana á sjúkrahúsum sem stafa annars vegar af of lágum fjárveitingum og hins vegar af manneklu. Þar segir m.a. að sýnt hafi verið ffam á að spamaður inn- aii sjúkrahúsanna komi fram sem kostnaður annars staðar í heil- brigðiskerfmu og þegar upp sé staðið verði aðeins um tilfærslu á íjármagni að ræða, en spamaður- inn verði enginn. Þjáningar og óþægindi sjúklinga og aðstand- enda þeirra séu hins vegar ómæld- ar og ófyrirsjáanlegar. Heilbrigðis- hópurinn álitur að ástæður fyrir manneklu séu fyrst og fremst léleg launakjör, erfið vinnuaðstaða og mikið vinnuálag, sérstaklega á meðan á sumarlokunum stendur. Brýnt sé að taka á þessum málum í samningunum í haust. Komið hafi fram að til að hægt sé að opna deildir aftur þurfi aukafjárveitingu, og skorar heilbrigðishópur BSRB á stjómvöld að tryggja heilbrigðis- stofnunum það fjármagn sem þær þurfa til eðlilegs reksturs út árið. -vd.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.