Þjóðviljinn - 22.06.1991, Qupperneq 6
<9
Hvernig finnst þér
þáttur stjórnvalda í
málefnum Álafoss
hafa verið?
(Spurt á Akureyri)
Ásta Þorláksdóttir
húsmóðir:
Ég hef nú lítið fylgst með
þessu máli, en það sem ég
hef tekið eftir er harla lélegt.
Pálmi Valdimarsson
bóndi:
Hann hefur ekki verið nógu
góður. Það yrði slæmt mál fyr-
ir landbúnaðinn ef fyrirtæki
eins og Áiafoss ieggöist niður.
Sigríður M. Bragadóttir
verslunareigandi:
Hann sýnir hreint ábyrgðar-
leysi af hálfu stjórnvalda. Það
verður að horfa á þessi mál út
frá sjónarmiði starfsfólksins
lika.
Ambjöm Randversson
starfsmaður hjá Pósti og síma:
Ekkert sérstakur, það heföi
mátt reyna að rétta fyrirtækið
við.
Hannes Hartmannsson
atvinnulaus:
Hvað hafa þeir gert? Rikis-
stjómin ætti að styðja betur
við bakið á fyrirtækinu. Þaö
yrði hræðilegt ef allt þetta fólk
missti vinnuna, nógu er nú
ástandið slæmt fyrir.
Einangrunar- og innflutnings-
stöð fyrir alifugla markar
tímamót í sögu eggja- og
kjúklingaframleiðslu hér á landi.
Þetta er fyrsta sameiginlega mið-
stöð framleiðenda fyrir markviss-
ar kynbætur á íslensku holda- og
varpstofnunum og ein helsta for-
senda fyrir bættar framleiðsluað-
stæður í greinunum.
Eitt af helstu markmiðum auk-
inna kynbóta á innlendu varp- og
holdastofnunum er að lækka fram-
leiðslukostnað, án þess að slakað
verði á gæðakröfum.
Sem dæmi má nefna að erlendir
úrvalsstofnar þurfa minna fóður og
em afurðameiri en þeir innlendu.
„Við erum mjög bjartsýnir og
vongóðir með þetta dæmi,“ sagði
Eiríkur Einarsson, framkvæmda-
stjóri. ,jVleð þessu átaki hefur verið
brotið blað í sögu alifúglaræktar hér
á landi.“
Stöðin verður miðstöð kynbóta á
alifúglum hér á landi. Þama verður
frjóeggjum ungað út og ungamir
hafðir í einangrun í tilskihnn tíma.
Þegar hafa 36.000 fijóegg verið
flutt til landsins, ætluð kynbótum á
holda- og varpstofnum landsins. Um
þessar mundir em 7.000 ungar í ein-
angrun. Þeir verða í fyllingu tímans
notaðir til kynbóta á varpstofhinum,
en þegar hefúr nokkrum þúsundum
unga verið dreift til kynbóta á holda-
stofninum.
Um þessar mundir em um 7.000 ungar f einangmn I stöðinni á Hvanneyri. Mynd: Kristrún.
Innflutnings og einangrunar-
stöð fyrir alifugla á Hvanneyri
Um rekstur stövarinnar sér
Stofnungi, sameignarfélag Félags
eggjaframleiðenda og Félags kjúk-
lingabænda.
Með aðstoð Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins tókst fyrirtækinu að
leysa til sín þrotabú Isunga, en
byggingar búsins höfðu þá staðið
ónotaðar á Hvanneyri um þriggja
ára skeið. Um áramótin 1990/91 var
hafist handa við að koma upp að-
stöðu til fijóeggjainnflutnings sem
stenst ítrustu heilbrigðis- og öryggis-
kröfúr og í mars 1991 komu fyrstu
fijóeggin til landsins.
Búist er við að flytja þurfi til
landsins fijóegg fyrir varpstofninn
um einu sinni á ári, en fynr holda-
stofninn um þrisvar á ári til að fúll-
nægja eftirspum framleiðenda.
Með irmflutningi á fijóeggjum
er ekki verið að bæta innlendu stofn-
ana, heldur verða þeir látnir víkja
fyrir einstaklingum af svipuðum
stofnum sem náð hafa hærra rækt-
unarstigi og þjóna betur þeim kröf-
um sem gerðar em til eggja- og
kjúklingaframleiðslu um verð og
gasði.
Þar sem óhagkveemt er fyrir
greinamar að ffamrækta stofnana
verður stöðugt að flytja inn fijóegg
fyrir nýja eldisfúgla til að hindra úr-
kynjun. Stöðin á Hvanneyri er þvi
meginforsenda hagkvæmrar fram-
leiðslu hér á landi.
Búist er við að með nýju stofn-
unum aukist afúrðir á hveija varp-
hænu úr 13 til 14 kg af eggjum á ári
í 17 til 18 kg, að eldistími holdakj-
úklinga styttist og að fóðurþörfin
minnki hjá báðum stofhum.
Þá er vaxtarhraði kjúklinganna
jafhari sem tryggir neytendum aukin
gaeði. Að öllu samanlögðu má gera
ráð fyrir 15 til 18% kostnaðarlækk-
un í náinni framtíð.
Stjóm Stofnunga sf. hafði sam-
ráð við embætti yfirdýralæknis um
hvaða land yrði fyrir valinu þegar að
innflutningi nýrra stofna kæmi. Að
vandlega athuguðu máli urðu norsk-
ir stofnar fyrir valinu. í kjúklinga-
framleiðslu er notaður stofh sem
nefhist Hvítur plymouth rock. Sam-
tök alifúglabeenda í Noregi hefúr
tekist að bæta afúrð stofnsins vem-
lega. Dregið hefúr úr fóðurþörfinni
án þessa að það komi niður á vaxtar-
hraða eða stærð fuglanna.
Þá hefúr vaxtarhraði aukist sem
hefúr það í för með sér að eldistími
fúglanna styttist til muna. Ennfrem-
ur er vöxtur þeirra mun jafnari en
innlenda stofnsins sem auðveldar
uppeldi fúglanna, eykur hagkvæmni
og gæði afiírðanna. Rétt er að benda
á að beinn samanburður á milli ís-
lands og Noregs er varasamur þar
sem íslenskir neytendur kjósa
þyngri og stæiri kjúklinga en norskir
neytendur.
Að lokinni ýtarlegri athugun í
samvinnu við yfirdýralækni þóttu
norsku stofnamir sameina kosti af-
urðasemi og heilbrigðis.
Innflutnings- og einangrunar-
stöðin á Hvanneyri er beinlínis
hönnuð með það í huga að draga
sem mest úr hættunni á útbreiðslu
nýna sjúkdóma. Dýralæknar hafa
stöðugt eftirlit með starfseminni, og
tekin eni sýni reglulega til að fylgj-
ast með heilbrigði fúglanna. Þá er
ferillinn frá innflutningi til bónda
sem er um 18 til 24 mánaða langur, í
fjórum aðskildum þrepum.
Kjúklingabændur em að undir-
búa hert eftirlit með salmonellu í
kjúklingaköti. Gert er ráð fyrir að
tekin verði í þessum tilgangi sérstök
sýni þrisvar sinnum. Fyrst þegar
fúglinn er 7 til 10 daga gamall, aftur
skömmu fyrir slátiun og að síðustu
við slátrunina. Samkvæmt núver-
andi fyrirkomulagi annast dýralækn-
ar í samvinnu við sláturhúsin eftirlit
aðeins þegar slátrað er. Með þessum
nýja hætti munu kjúklingabændur
taka virkan þátt í salmonellueftirlit-
inu, ásamt sláturhúsunum og dýra-
læknum. Vonir standa til að með
hertu eftirliti geti sala á fersku kjúk-
lingakjöti hafist að nýju hér á landi.
-KMH
Fyllsta hreinlætis þarf aö gæta ef vel á að takast til meö útkomu alifuglastöövarinnar. Allir sem fara inn I stöðina þurfa að
klæðast sérstökum sloppum og hlíföarskóm. Mynd: Kristrún.
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. júní 1991
Síða 6