Þjóðviljinn - 22.06.1991, Page 7
Iðnaðar-
ráðunevtið
fór 69 %
framúr
áædun
Ríkisendurskoðun hefur
sent frá sér fréttatilkynn-
ingu þar sem áréttað er að
Iðnaðarráðuneytið hafi farið
69 prósent fram úr greiðslu-
áaetlun. Tilkynningin frá
Ríkisendurskoðun fer orð-
rétt hér á eftir:
„í umfjöllun Þjóðviljans
hinn 19. júní sl. um skýrslu
Ríkisendurskoðunar, um fram-
kvæmd íjárlaga fýrsta árs-
þriðjung 1991 er m.a. bent á
að í skýrslunni komi fram að
greiðslur iðnaðarráðuneytisins
á tímabilinu hafi farið 69 pró-
sent fram úr áætlun. Af þessu
tilefhi þykir Rikisendurskoð-
un rétt að taka eftirfarandi
fram:
I nefhdri skýrslu stofnun-
arinnar voru umfiramgreiðslur
iðnaðarráðuneytisins á fýrsta
ársþriðjungi 1991 skýrðar á
þann hátt að þær hafi numið
257,3 milljónum króna og að
þær megi einkum rekja til ým-
issa verkefna á sviði orku-
mála, en þær hafi farið 127,7
milljónir króna firam úr áætl-
un. Þá hafi framlag verið veitt
vegna yfirtöku ríkissjóðs á
lánum Hita- og Rafveitu
Siglufjarðar að fjárhæð 97,7
milljónir króna sem ekki var
áætlað fyrir á fjárlögum.
Ríkisendurskoðun telur
nauðsynlegt að undirstrika að
í skýrslunni eru útgjöld og
greiðslur A-hluta rikissjóðs á
fyrsta ársþriðjungi borin sam-
an við greiðsluáætlun fjár-
málaráðuneytisins fyrir sama
tímabil. Þó greiðslur fari um-
fram áætlanir á tilteknu tíma-
bili geta þær grundvallast á
fullgildum heimildum. Sú var
raunin í þeim tilvikum sem að
ofan greinir. Þannig er í 6. gr.
íjárlaga veitt heimild til að
semja um yfirtöku nefndra
lána Hita- og Rafveitu Siglu-
fjarðar og í lánsfjárlögum fýr-
ir árið 1991 er að fínna heim-
ild til greiðslu tjónabóta til
rikisfýrirtækja vegna óveðurs
í janúar sl. Hins vegar hafði
fjármálaráðuneytið ekki tekið
tillit til þessara útgjalda í
greiðsluáætlun ráðuneytisins
fýrir fýrsta ársþriðjung ársins.
Þau frávik frá greiðslu-
áætlun fjárlaga, sem tilgreind
eru í skýrslunni, eru byggð á
reikningsniðurstöðu rikisbók-
halds um fjármál ríkissjóðs
fýrstu fjóra mánuði ársins, þ.e.
til aprilloka sl. og greiðslu-
áætlun fjármálaráðuneytis
sama tímabil."
Fkéttir
Asættanleg lausn
fyrir sjávarútveginn
Samtök atvinnurekenda í sjávarútvegi telja að þó ekki liggi fyrir
skrifleg ályktun eftir ráðherrafund EFTA og EB í vikunni og ekki
sé hægt að segja til um endanlega niðurstöðu samninganna hvað
sjávarútveginn varðar, þá sé það ásættanleg lausn, ef samkomulag
næst innan þess ramma sem nú liggur fyrir, eftir ráðherrafund EFTA og
EB í Luxemborg og íslensk stjórnvöld hafa kynnt.
Magnús Gunnarsson formaður bjóða Evrópubandalaginu veiði-
samtakanna segir að margir innan heimildir innan íslenskrar fískveiði-
sjávarútvegsins séu engu að síður lögsögu uppá 2.600 þorskígildistonn.
óhressir með það að verið sé að Magnús segir að í þessu atriði verði
menn að horfa raunsætt á málið og
bendir á að bæði Belgar og Færey-
ingar hafi veiðiheimildir innan ís-
lenskrar landhelgi og því sé þetta
ekkert nýtt.
Að mati Samtaka atvinnurek-
enda í sjávarútvegi verður að líta svo
á að með yfirlýsingu ráðherrafundar
EFTA og EB i síðasta mánuði hafi
verið viðurkennt að á efnahagssvæð-
inu skuli tekið tillit til yfirgnæfandi
sjávarútvegshagsmuna íslendinga og
frásagnir ráðamanna benda til þess
að það hafi verið staðfest á ráðherra-
fundinum i byijun vikunnar.
í ályktun samtakanna er það þó
enn ítrekað að án afnáms innflutn-
ingstolla EB á sjávarafurðir íslend-
inga, sé þátttaka landsins í EES ekki
veijandi og ávinningur íslendinga af
samstarfinu ekki hinn sami og ann-
arra rikja sem þátt taka í þvi. -grh
Aðstandendur Perlunnar eru mjög ánægðir með útkomuna og segja bygg-
inguna eftir að verða borginni til sóma. Mynd: Kristinn.
Venjulegt fólk getur
einnig leyft sér
að snæða í Perlunni
Perlan var opnuð við hátíð-
lega athöfn í gær og var
Davíð Oddsson, forsætísráð-
herra, á meðal boðsgesta á hátíð-
ar opnunarkvöldinu.
Aðstandendur Perlunnar eru
ánægðir með útkomuna og segja
bygginguna eftir að verða Reykja-
víkurborg til mikils sóma.
Byggingarkostnaður, sem fór
ffarn úr upphaflegri áætlun um
24%, er 1.290 miljónir króna á nú-
verandi verðlagi.
Margir hafa velt því fýrir sér
hvort Perlan sé aðeins staður þar
sem „aðall Reykjavikurbúa" geti
leyft sér að snæða. Samkvæmt
Bjama Amasyni, en hann sér um
veitingarekstur Perlunnar, er Perlan
einnig fýrir „venjulegt fólk“.
„Verð á mat hér verður svipað
og á öðrum veitingahúsum. Á efstu
hæðinni, sem er fyreta flokks veit-
ingahús, verður samt dýrast að
borða,“ sagði Bjami.
I tilefiii af opnun Perlunnar
verður ýmislegt til skemmtunar
fýrir alla fjölskylduna innan húss
sem utan laugardaginn 22. júní og
sunnudaginn 23. juní. Fjölskyldu-
hátíðin stendur ffá klukkan 14 til
17 báða dagana. Tilgangurinn er
ekki sist sá að kynna fjölbreytta
útivistarmöguleika Öskjuhlíðarinn-
ar og það hlutverk sem Perlan
gegnir sem kjörinn áningarstaður á
þessu svæði.
Félagar úr Skógræktarfélagi
Reykjavíkur munu kynna göngu-
leiðir og sjá um skipulagðar göngu-
ferðir. Meðal dagskráratriða verða:
Lúðrasveit Reykjavíkur, Hljóm-
skálakvintettinn, Brúðubíllinn,
karlakórinn Fóstbræður, bamakór
Bústaðakirkju o.m. fl.
Samtals er rými Perlunnar 24
þúsimd rúmmetrar og gólfflötur
3.700 fermetrar. Á jarðhæð er Vetr-
argarðtuinn svonefhdi, 1.000 fer-
metrar að flatarmáli og minnsta
lofthæð þar er 10 metrar. Vetrar-
garðurinn hefur ótæmandi notkun-
armöguleika. Þar er jafhan hægt að
halda listsýningar og dansleiki,
kaupstefhur og kynningar, brúð-
kaupsveislur og tónleika.
Hvolfþak Perlunnar er byggt úr
stálgrind og gleri. Stálgrindin er hol
að innan og þar rennur ýmist heitt
eða kalt vatn eftir því hvort þarf að
hita húsið eða kæla það.
Þijár lyftur sjá um að flytja
gesti og starfsmenn milli hæða í
Perlunni, en einnig er stigi fýrir
miðju húsinu.
Veitingasala fer _ fram undir
hvolfþaki Perlunnar. Á fjórðu hæð
hússins er veitingabúð með sjálfs-
afgreiðslu og þar er jafhframt ís-
gerð að itölskum hætti. Á fjórðu
hæðinni er gengið út á útsýnispalla
ofan á hitaveitugeimunum. Á
fimmtu hæðinni er þjónað til borðs
á snúningspalli sem fer einn hring á
klukkutíma. Þar geta 200-300
manns setið til borðs í einu. Vín-
stúka hússins er á palli þar fýrir of7
an og tekur hún 40 til 50 manns. í
kjallara er fundarsalur sem rúmar
60 manns.
Eigandi Perlunnar er Hitaveita
Reykjavíkur, sem er sjálfstætt fýrir-
tæki í eigu Reykjavíkurborgar.
Perlan verður opin almenningi
alla daga frá klukkan 10 til 18 og er
aðgangur ókeypis. Veitingabúð og
ísgerð eru opnar á sömu tímum, en
aðalveitingasalur er opinn öll kvöld
og í hádegi.
-KMH
Hugmyndasamkeppni um skipulag Bessastaðahrepps
Bessastaðahreppur, Bessa-
staðanefnd og skipulags-
stjórn ríkisins hafa ákveðið
að efna til samkeppni um land-
notkun á norðanverðu Álftanesi.
Einnig um deiliskipulag forsetaset-
ursins og miðsvæðis í Bessastaða-
hreppi.
Tilgangur samkeppninnar er þri-
þættur: að koma fram með hug-
myndir um landnotkun á öllu sam-
keppnissvæðinu, aðkomu að byggð-
inni, umferðarkerfi og gönguleiðir.
Þá skal höfð í huga varðveisla nátt-
úru- og sögulegra minja og gerð úti-
vistarsvæða.
I öðru lagi að koma ffam með
hugmyndir að skipulagi lands Bessa-
staða, aðkomu að forsetasetrinu og
tengingu þess við miðsvæðið. I
þriðja lagi að koma ffarn með hug-
myndir að byggingu miðsvæðis i
Bessastaðahreppi sem þjóni fýrst og
ffemst íbúum sveitarfélagsins, en
einnig stærra svæði eftir því sem að-
stæður leyfa.
Heimild til þátttöku hafa allir ís-
lenskir ríkisborgarar og erlendir rík-
isborgarar með fasta búsetu á Is-
landi.
Heildarupphæð verðlauna verður
þijár miljónir og verða fýrstu verð-
laun eigi lægri en ein miljón og sex
hundruð þúsund.
Þar sem tilkynning um sam-
keppnina kom seinna en áætlað var
hefur verið ákveðið að ffamlengja
frest til að senda inn fýrirspumir til
12. júlí.
Frestur til að skila tillögum hefur
einnig verið ffamlengdur frá 17.
septembertil 15. október 1991.
Bessastaðanes og hólmar i tjöm-
unum em mjög mikilvægir sem
fæðu- og viðkomustaður ýmissa
fuglategunda, þar á meðal margæsa,
en þetta er eini viðkomustaður þeirra
á höfuðborgarsvæðinu. Þá er einnig
talin rik ástæða til að friðlýsa fjömr
á Álftanesi, þar sem þær em við-
komustaður margra fiiglategunda,
t.d. vaðfugla, og er fjaran neðan við
óbyggt svæði sunnan Kasthúsatjam-
ar talin mikilvægust.
Allt skipulag þessa svæðis verð-
ur því að mati Náttúruvemdarráðs að
taka tillit til þessarar sérstöðu þess,
þ.e. að þar er mjög auðugt fuglalíf
og af þeim sökum verða áreiðanlega,
samkvæmt Náttúravemdarráði, gerð-
ar tillögur um ffiðlýsingu þess áður
en mörg ár líða.
í friðlýsingunni fælist þó ekki að
svæðinu yrði lokað fýrir allri um-
ferð, en hana yrði að takmarka við
gangandi fólk og ákveðnar leiðir.
-KMH
Hér er Sigurður Valur Ásbjarnarson, en hann er formaður dómnefndar í
samkeppninni um skipulag Bessastaðahrepps. Mynd: Kristinn.
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. júní 1991