Þjóðviljinn - 27.06.1991, Side 6

Þjóðviljinn - 27.06.1991, Side 6
Þráir þú rigningu? Dagný Kristjánsdóttir lektor: Nei. Hlífar Amar Ingólfsson sendill hjá Veröld: Nei, helst ekki. Veðrið er fínt eins og það er. Freyja Siguröardóttir húsmóðir: Nei. Helgi Jón Haröarson fasteignasali: Nei, það er búið að vera svo mikið af henni. Alda Magnúsdóttir skrifstofudama: Nei, mér finnst svo ágætt að hafa sólskinið. FKÉ'iTM Hér sýnir leikhópurinn Loftkastalar leikþáttinn Veggi. Mynd: Kristinn. Sumarhátíð á Kópavogshæli Nú stendur yfír sumarhátíð á Kópavogshæli þar sem heimil- isfólkl er gerður dagamunur með hinum ýmsu uppákom- um. Hátíðin, sem hófst á sunnudaginn, mun standa fram á laugardag og eru allir velkomnir að koma og taka þátt í skemmtuninni. Það var mikil gieði sem ríkti á túnina fyrir framan Kópavogshælið en þar hafði verið komið fyrir sviði fyrir uppákomur og skemmtiatriði. Sigrún Kristjánsdóttir, þroska- þjálfi og tómstundafúlltrúi, sagði að hátíðin hefði tekist framar von- um og væri það góða veðrið sem spilaði þar inn í. „Tilgangurinn með þessari há- tíð, sem er árlegur viðburður, er sá að við skemmtum okkur saman,“ sagði Sigrún. „Við höfúm fengið fullt af gestum þá aðallega aðstandendur og fólki úr hverfinu. Einnig höíúm við haft gesti ffá öðrum stofnunum og sambýlum þar sem þroskaheftir dvelja.“ Sigrún sagði að það væri aðal- lega starfsfólk sem sæji um skemmtiatriðin en einnig væru það vistmenn sem skemmtu. Starffækt er sérstakt leikfélag Kópavogshælis sem neffiist Loki og sýna þau eitt verk á hátiðinni sem nefnist Búkolla. Einnig er kór sem nefnist Heimakórinn og er það kór starfs- manna og vistmanna. Sigrún sagði að alltaf væri nóg um að vera á Kópavogshæli og væri þessi hátíð stærsta uppákom- an í ár. „Við erum með skipulagt tóm- stundastarf hér og þeir sem eru getumestir hafa yfrið nóg að gera. Við reynum að sinna öllum hópum hér á Kópavogshæli eftir þeirra getustigi,“ sagði Sigrún. Hátiðin mun, sem áður segir standa ffam á laugardag og í dag, fimmtudag, verður Fossvogssigl- ing með siglingaklúbbnum Ými. Þá verður farið í gönguferð fyrir fólk í hjólastólum. Kvöldinu lýkur síðan með skátastemmningu við varðeld þar sem skátar sjá um kvölvöku. Á fostudaginn verður plankas- lagur og reiptog í sundlauginni. Á laugardaginn flytur Birgir Guðmundsson, formaður Foreldra og vinafélags Kópavogshælis ávarp. Þá mun leikfélagið Loki sýna Búkollu, Heimakórinn syngja létt lög, Valgeir Guðjónsson syngja, harmonikkuleikur og grill- veisla. Hátíðinni lýkur svo með lokadansleik í Þinghólsskóla v/Vallargerði, þar sem hljómsveitin Uppkast leikur fyrir dansi til kl. 22:30. -KMH ÞJÓÐVILJINN Fimmtuclagur 27, júm'1991 Síöa 6

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.