Þjóðviljinn - 27.06.1991, Side 8
Einar Bjöm Ingvarsson
Fanga
leitað
Lögreglan í Reykjavík
hefur leitað eins af sex
strokuföngum frá því
hann strauk að kvöldi 15.
júní sl. úr Hegningarhús-
inu við Skólavörðustíg.
Fanginn heitir Einar
Bjöm Ingvarsson, 18 ára,
rúmlega 170 sentimetrar á
hæð, snöggklipptur í vöng-
um með svokallaðan kamb.
Ovíst er um háralit og
klæðaburð.
Vísbendingar hafa bor-
ist um að fanginn sé utan
marka stórhöfuðborgar-
svæðisins, en þær hafa ekki
verið þess eðlis að til hans
næðist. Þeir sem geta veitt
lögreglu upplýsingar um
ferðir og eða dvalarstað
fangans, em beðnir um að
hafa samband við næstu
lögreglustöð.
-grh
Enginn viröist vita hver lét
gera þennan grjótgarö f
Nauthólsvík né í hvaöa til-
gangi, en hann hylur aö
hluta jarösögulegar minjar
frá fsöld. Mynd: Kristinn.
Óréttlæti í
garð lífeyrisþega
Hjónafólk og einstæðar mæður sem eru t.d. öryrkjar, fá ekki
fullan tekjutryggingarauka vegna viðskiptakjarabatans eins
og annað launafólk. Samkvæmt ákvörðun Tryggingastofnunar
ríkisins fá einungis þeir sem hafa fulla tekjutryggingu, hús-
næðisbætur og sérstakar húsnæðisbætur alla tekjuuppbótina.
Þegar bætur almenningstrygg-
inga verða greiddar út fyrir júlímán-
uð fá lífeyrisþegar með tekjutrygg-
ingu greidda uppbót vegna viðskipt-
akjarabatans svokallaða. Uppbót
þessi kemur í ffamhaldi samninga á
vinnumarkaðinum um eingreiðslur
til allra launþega. Sá galli verður á
gjöf Njarðar, að ekki fá allir lífeyris-
þegar fúlla uppbót, hana fá einungis
þeir einstaklingar sem fá auk fúllrar
tekjutryggingar bæði heimilisuppbót
og sérstaka heimilisuppbót.
Tekjuuppbótin sem verður
greidd út í júlí verður 6.318 krónur í
það heila. Lífeyrisuppbótin skerðist
svo í sama hlutfalli og áðumefndir
bótaflokkar gera að jafhaði. Þetta
þýðir að einungis brot af lífeyrisþeg-
um á kost á uppbótinni. Hjón sem
byggja ffamfærslu stna á lífeyri ífá
Tryggingastofnun, fá ekki fúllan
tekjutryggingarauka eins og annað
launafólk. Astæðan fyrir þessari
skerðingu til hjónafólksins, er til
kominn vegna þess að þau eiga ekki
möguleika á heimilisuppbót og sér-
stakri heimilisuppbót eins og ein-
staklingar fá. Einstæð móðir sem er
öryrki og hefúr eingöngu tekjur frá
Tryggingastofnun er undir sama
hattinum. Móðir sem þannig er ástatt
fýrir fær meðlög og mæðrastyrk, auk
bamabóta og af þeim sökum fær hún
ekki fúlla tekjutryggingu, og á þess
ekki kost að njóta viðskiptakjarabat-
ans til jafns við aðra.
Asta R. Jóhannesdóttir deildar-
stjóri, Tryggingastofnunar ríkisins,
segir að þeir sem hafa fúlla tekju-
tryggingu og eiga rétt á heimilisupp-
bótum fái fulla greiðslu vegna við-
skiptakjarabatans. - Jú það er rétt að
hjónafólk, eða einstæð móðir með
bam fá ekki fulla uppbót ffá Trygg-
ingastofnun. Þetta fólk fær einhveija
uppbót, en ekki í sama mæli og ein-
staklingar, sagði Asta.
Auk tekjutryggingarauka mun
frítekjumark almenningstrygginga
hækka 1. júlí. Hækkunin nemur 10
prósentum. Frítekjumark er sú upp-
hæð, sem lífeyrisþegar mega hafa í
tekjur án þess að bætur þeirra ffá al-
mannatryggingum skerðist. 45 pró-
sent tekna umfram frítekjumark
skerða tekjutengdar bætur eins og
tekjutryggingu og heimilisuppbót.
Fritekjumark einstaklings verður eft-
ir mánaðamótin, 16.280 krónur á
mánuði, en hjóna 22.792 krónur. Séu
tekjur lífeyrisþega eingöngu eða að
hluta úr lífeyrissjóði, þá er ffítekju-
markið 23.650 krónur á mánuði hjá
einstaklmgi og 33.110 krónur fyrir
hjón eða 16.555 krónur á hvort.
-sþ
Enginn kannast við grjótgarðinn
Afundi umhverfismála-
ráðs í gær lagði Guðrún
Ágústsdóttir fram tillögu
um að framkvæmdir við
grjótgarð við Kýrhamar í Naut-
hólsvík verði þegar stöðvaðar og
kannað hvaða skemmdir þegar
hafa veríð unnar þar á merkum
jarðlögum sem sagt var frá í Þjóð-
vUjanum í gær.
Undirtektir við tillöguna voru
jákvæðar þar sem Nauthólsvíkin er
undir borgarvemd og fjalla þarf um
ffamkvæmdir þar af umhverflsmála-
ráði. En þar sem fúlltrúar í ráðinu
komu af fjöllum varðandi þetta mál
var afgreiðslu tillögunnar frestað og
garðyrkjustjóra falið að athuga þetta
mál og hafa samband við íþrótta- og
tómstundaráð sem hefúr umsjón
með Nauthólsvík.
Þjóðviljinn náði ekki í Júlíus
Hafstein formann íþrótta- og tóm-
stundaráðs þar sem hann er erlendis.
Ómar Einarsson forstöðumaður
íþrótta- og tómstundaráðs sagði við
Þjóðviljann í gær að hann kannaðist
ekkert við þennan gijótgarð né að
ráðið hefði neitt með hann að gera,
en sagðist ætla að kanna málið, sér
og öðrum til ffóðleiks. -vd.
Leigubílar í ferð með aldraða
Það var mikið um að vera á elliheimilinu Grund í gær, en þá bauð
leigubílastöðin BSR öldruðum í bfltúr til Þingvalla. Sólin skein
sínu bjartasta og ekki fór það framhjá neinum að mikil tilhlökk-
un var í fólkinu sem skartaði sínu finasta pússi í tilefni dagsins.
Leigubflastöðin BSR hefur gert þetta árlega og er tilgangurinn með
þessu að gleðja aldraða eins og Eiríkur Carlsen, leigubflstjóri sagði.
„Það verður að gera eitthvað fyrir fólkið sem er búið að byggja upp
landið fyrir okkur,“ sagði hann.
Eiríkur sagði aldraða oft á tíð-
um skemmtilegri farþega en aðra
og þá sérstaklega á svona lengri
ferðum eins og til Þingvalla.
.JEldra fólkið fer þá stundum með
visur á leiðinni og segir manni
margt ffóðlegt um föðurlandið sem
maður heyrir ekki daglega.“
Blaðamaður hitti að máli Þór-
unni Jónu Þórðardóttur, en hún sat
á stéttinni og beið brottfarar. Þór-
unn, sem er 80 ára gömul, var í
góðu skapi, þvi ekki er það nú á
hveijum degi sem hún fær að fara
til Þingvalla. „Það er alveg sérstak-
lega gaman að fara í svona ferðir.“
Þórunn sagði að það væri gott
að vera á Gnmd því það byði upp á
svo mikinn fjölbreytileika fýrir
gamla fólkið. „Hér á ég mínar vin-
konur og við erum alltaf uppteknar
við eitthvað. Við getum föndrað,
farið í simd og margt margt fleira.“
Þorgrímur Bjamason er 72 ára
og hefur verið á Gmnd í um 5 ár.
„Mér finnst alltaf gaman að fara til
Þingvalla því það er svo vinalegur
staður." Þorgrimur haföi ekki mik-
inn tíma fyrir spjall því komið var
að brottför og hann ætlaði sér al-
deilis ekki að missa af þessari
skemmtiferð. Hann var því rokinn
í leigubílinn áður en blaðamaður
vissj af.
I Valhöll beið síðan fólksins
heitt kaffi á könnunni og kökur, en
það var einnig í boði BSR.
-KMH
Vistmenn Grundar á leiö til Þingvalla, I leigubll sem flutti þá þangað I skemmtiferð I góðviörinu. Mynd: Þorfinnur
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. júní 1991
Síða 8