Þjóðviljinn - 17.07.1991, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 17.07.1991, Qupperneq 1
Pólitíkm bitnar á fötluðum í Kópavogi / stand gatna og stíga í kringum Kópavogshæl- ið er svo bagborið að vistmönnum hælisins er hætta búin af að ferðast í ná- grenni hælisins. Að sögn Péturs Jónassonar, framkvæmdastjóra hælisins, hafa vistmenn oft á tíð- um dottið illilega á stígunum og jafnvel hlotið beinbrot af. Einnig segir Pétur að þegar vart verði við rigningu verði nánasta um- hverfi hælisins ein forarvilpa sem sé ófær flestu fólki hvað þá þeim iotluðu einstaklingum sem þarna eigi heima. - Þessir malarstígar allt í kring hafa áhrif á þá starfssemi er héma fer fram. Auk þess sem fólk hrein- lega dettur um mishæðimar, hafa orðið skemmdir á dýrum tækjum eins og hjólastólum, og álag á starfsfóikið er margfalt miðað við það sefn það þyrfli að vera. Einnig er það að þegar fólk er að ýta hjóla- stólum upp þessa malarvegi og yfir holumar eykst hættan af að það fái atvinnusjúkdóma fyrir vikið, eins og bakverki o.fl., sagði Pétur. Aðspurður sagði Pétur að ríkis- spítalar hafi ekki staðið í þessum framkvæmdum fyrr vegna þess fjár- skorts sem að jafnaði sé hjá spítöl- unum. - Það er ríkari tilhneiging til að veita fé til almennari læknaþjónustu og nýjunga, ffekar en að eyða pen- ingum í gatnagerð fýrir þroskahefta. Við litum því á þennan samning við Kópavogsbæ sem kærkomið tæki- færi til að laga til héma í kringum hælið, en því miður virðist áhugi bæjarins ekki vera fyrir hendi að uppfylla sinn hluta samningsins, sagði Pétur. Davíð Davíðsson, forstjóri rík- isspítala, segir að þegar beiðnin um lóð undir hús Sunnuhlíðarsamtak- anna hafi komið á sínum tíma hafi stjórnendum spítalans fundist að þetta væri gullið tækifæri til að laga og snyrta umhverfi Kópavogshæl- isins. - Þess vegna freistuðumst við til að láta landið sem að áliti sumra hefði átt að geyma til framtíðarinn- ar. Það er því sérstakt að sá sem fær afnot af þessu landi neitar síðan að greiða fyrir það. Eg held að þetta séu ný vinnubrögð í íslenskri stjóm- sýslu, ^agði Davíð. - Ég held að þetta sé ekki óhag- stæður samningur fyrir Kópavog, siður en svo, sagði Davíð og telur að hér sé á ferðinni pólitíkst rifrildi milli fyrrverandi og núverandi meirihluta. Þeir sem eru í meirihluta núna virðast nota þennan samning til að skammast út í forvera sína. - Þegar menn telja sjálfum sér trú um að þessi samntngur sé óhagstæður eingöngu til að skammast út í pólit- ískan andstæðing, er það að mínu viti vinnubrögð sem ég hélt að væm liðin undir Tok á vesturlöndum, sagði Ðavíð. Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi segir að bærinn hafi verið að greiða fyrir því að Sunnuhlíðarsamtökin fengju land á lóð rikisspítala með samningi á þeim nótum er um ræðir. - Við höfum nú þegar unnið í gatnagerðarframkvæmdum við hæl- ið fyrir um tíu miljónir króna. Sam- komulag um fleiri stíga var ósköp losaralegt og álitu ríkisspítalar að kostnaður við framkvæmdirnar rðu á bilinu 6-7 miljónir. Þegar ærinn lét síðan verkfræðinga at- huga kostnaðinn við þessa göngu- stíga kemur í ljós að hann er 18,9 miíjónir. Við óskuðum þá að þessi liður yrði tekinn til endurskoðunar og höfum haldið um þetta tvo fundi, en rikisspítalar virðast ekki vera til viðræðu um neinar breytingar. Mér finnst það ekki réttlætanlegt að Kópavogur borgi einhliða svona framkvæmdir hjá ríkisstofnun sem ætti í raun að vera mál allra lands- manna. Verðið sem þessi smáskiki myndi kosta með þeim fram- kvæmdum sem þeir vilja láta okkur vinna er komið upp í miklu hærri upphæð en við hér í Kópavoginum viljum viðurkenna að hafi verið grunnur upprunalegs samkomulags, sagði Sigurður. -sþ Vistmenn og starfsfólk á Kópavogshælinu á göngu. Eins og sést á myndinni hefur þessi stígur verið malbikað- ur á sínum tíma, en holurnar í honum núna eru æði torfærar fyrir hjólastóla og fólk sem ekki á auövelt með gang. Mynd: Jim Smart. Frjómæíingar í gagnabanka í Vín Isumar verða niðurstöður úr frjókornamælingum á íslandi sendar í gagnabanka í Vín sem taka á við slíkum upplýsingum frá allri Evrópu. Gagnabankinn mun prenta út kort af Evrópu þar sem fram k",''''r hvert magn frjó- koma er í lofti. Kortin verða send læknum og heilsugæslustöðvum og frá og með næstu áramótum verða þau send út á sjónvarpsrás þar sem allar fréttastofúr geta náð í upplýs- ingar um hvar frjókom em mest í lofti og við hvaða aðstæður. Talið er að sjö af hverjum hundrað Islendingum þjáist af frjó- næmi en erlendis, þar sem tegundir frjókorna sem valda ofnæmi eru fleiri, þjást um 15% manníjöldans af þessu. Frjónæmi lýsir sér þannig að frjókom í lofti valda því að slím- húð í öndunarfærum bólgnar upp, vökvi rennur úr augum og nefi og í versta falli koma fram astmaein- kenni. Frjónæmi er meðhöndlað ýmist með lyfjagjöf eða sprautum. Margrét HaTlsdóttir, jarðfræð- ingur hjá Raunvísindasto' n Há- skólans, hefur undanfarin þijú sum- ur talið fijókom í lofti sem safnað er á límstrimil í sérstöku mælitæki á Veðurstofunni. Mælingamar i ár em í fyrsta sinn styrktar af Reykja- víkurborg og auk þess kostar SIBS fé til þeirr''''',''rjókorn sem mest angra fólk hérlendis koma aðallega úr grasi, birki, hundasúru og tún- súm. Margrét á eftir að telja frjó- kom í sýnum sem tekin hafa verið síðustu þrjár vikur en segist búast við því að vegna þurrkanna að und- anförnu m'"''''magn frjókorna úr grasi vera mjög mikið. „Undanfarin ár hef ég ekki fengið mikið magn af birki og ástæðan er trúlega bleytutíð og kuldar en í maí i vor kom mikið af því,“ segir Margrét. „Það var alltaf gras í lofitinu i júní og var hægt ” andi en áður hefúr það ekki verið stöðugt fyrr en í júlí. Ég geri því ráð fyrir pví að það hafi verið tiltölulega mikið af grasi í loftinu núna.“ -vd Maður og umhverfi Blaðauki með Þjóðviljanum Þingflokkur Alþýðubandalag sins mótmælir sjúklingasköttum og segir ríkisstjórnina stefna inn á braut ójafnaðar ------ og misréttis I /

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.