Þjóðviljinn - 17.07.1991, Síða 8
Fkétter
Einokun ríkisins á áfengis-
sölu gæti lagst af með EES
Gerist ísland aðiii að evr-
ópska efnahagssvæðinu
er hugsanlegt að leggja
verði Áfengis- og tób-
aksverslun ríkisins niður.
Sænska Dagblaðið skýrði frá því
fyrir helgina að hugsanlega yrði
sænska ríkið að afnema einokun
sina á sölu áfengis strax árið
1993 ef samningurinn um EES
tæki gildi. Blaðið hefur það eftir
sérfræðingi um samkeppni inn-
an EES, Ingfrid Hochbaum, að
standist ríkiseinokunin ekki
strangar kröfur Efnahagsbanda-
Iagsins um að fyrirtækjum og
aðilum sé ekki mismunað verði
ríkin í Svíþjóð að hætta starf-
semi.
Það sama myndi eiga við hér á
landi. Opinberir aðilar bæði hér á
landi og í Svíþjóð telja þó ekki
hættu á að leggja þurfi ríkiseinka-
sölumar af.
í Svíþjóð sjá opinberir aðilar
um að flytja inn áfengi auk þess að
selja allt áfengi líkt og hér á landi.
Áfengi er í einhveijum mæli flutt
inn í stómm stíl og tappað á flösk-
ur í Svíþjóð. Ljóst er að sá hluti
ríkiseinokunarinnar í Svíþjóð sem
snýr að innflutningi leggst af í árs-
byrjun 1993.
Gunnar Smári Gunnarsson
skrifstofustjóri viðskiptadeildar ut-
anríkisráðuneytisins taldi menn
ekki þurfa að hafa af þessu áhyggj-
ur hér á landi. Ríkiseinkasalan á
áfengi er nánast eingöngu smásala
og ætti því ekki að rekast á reglur
um að ekki megi mismuna. Svo
framarlega sem tegundum er ekki
mismunað í áfengisversluninni er
allt í lagi.
Auk þess má nú flytja hingað
til lands hvaða áfengistegund sem
er, svo framarlega sem það er gert
í gegnum ÁTVR, tegundum er
þannig ekki mismunað. Vilji til
dæmis heildsali frá EB-ríki selja
sína víntegund hingað til Iands og
hefúr kaupanda að vömnni, getur
ÁTVR ekki hamlað viðskiptunum
þó þau verði að fara í gegnum
stofnunina.
Gunnar sagði að mál ríkis-
einkasölu hefði komið á borðið í
EES-samningagerðinni og ljóst
væri að „ríkin“ á Islandi, í Noregi,
Svíþjóð og Finnlandi yrðu starf-
rækt þrátt fyrir EES.
Hochbaum telur hinsvegar að
það verði mjög erfitt fyrir ríkis-
einkasöluna að standast kröfúr
bandalagsins um að ríkiseinokun-
arfyrirtæki megi ekki mismuna.
Hann bendir á að um 10.000 vín-
framleiðendur innan EB muni
strax láta reyna á rikiseinokunina
og ekki sætta sig við hana. Falli
smásöluþáttur ríkiseinokunarinnar
í Svíþjóð ætti hann einnig að gera
það hér á landi.
Gunnar taldi þó ekki líkur á
því. Hann sagði að hugsanlega
gætu menn talið að álagning
ÁTVR á eigin ffamleiðslu væri
ekki rétt. Þannig væri ÁTVR að
mismuna sinni framleiðslu og ann-
ara ef til dæmis verð á Tindavod-
kva væri miklu lægra en verð á
einhveijum EB- vodka. Hann taldi
þó ekki hættu á að það yrði látið á
þetta reyna þar sem eðlilegt væri
Nú er talið hugsanlegt að ÁTVR
yrði að hætta starfsemi sinni og
verslun með áfengi gerð frjáls ef
Island yrði aðili að samningi um
evrópskt efnahagssvæði. Mynd:
Jim Smart.
að framleiðsla ÁTVR væri lítillega
ódýrari en samkeppnisvaran. Ef
yrði látið á þetta reyna eftir að
EES-samkomulag hefur verið gert
yrði málið fyrst rætt í sameiginlegu
nefndinni og reynt að komast að
samkomulagi þar. Ef það gengi
ekki yrði EES-dómstóllinn fyrir-
hugaði að dæma í málinu. -gpm
Ríkisstjómin stefnir inn
á braut ójafnaðar og misréttis
Vírus
kominn í
símakerfið?
Vegna tíðra bilana hjá mið-
bæjarstöð Pósts og síma hefur
sænskur sérfræðingur frá fyrir-
tækinu L.M. Ericsson í Svíþjóð
verið fenginn hingað til lands en
allt án árangurs.
Á mánudaginn var stöðin
tvisvar sinnum sambandslaus og
fjöldi síma í miðbænum einnig.
„Við stöndum í rauninni ráð-
þrota gagnvart þessu vandamáli
því við vitum ekkert hvað veld-
ur þessum bilunum,“ sagði Thor
Eggertsson, yfirdeildarstjóri hjá
símstöðinni í Reykjavík.
Thor sagði að samskonar
bilanir hefðu komið upp í fyrra
sem ekki hefðu fundist svör við.
„Það er ómögulegt að segja
til um hvað þetta getur verið en
þetta er eins og einhver tölvu-
vírus hafí komist í vélamar.“
Eins og komið hefur fram í
fréttum hafa bilanimar orsakað
sambandsleysi við lögreglu og
slökkvilið í Reykjavík. Til þess
að tryggja samband við lög-
reglu, slökkvi- og sjúkralið var
tekið til þess ráðs að tengja nýtt
neyðamúmer, 000, við stjóm-
stöð lögreglunnar í Reykjavík
um stundarsakir.
Sérfræðingar munu halda
áfram að reyna að finna orsök
bilananna í símstöðinni. -KMH
Afundi þingflokks
Alþýðubandalagsins í
gær var samþykkt
eftirfarandi ályktun.
Um lyfjakostnað og sjúkra-
gjöld
Á síðustu vikum hefur ríkis-
stjóm Sjálfstæðisflokks og AI-
þýðuflokks verið að skerða sér-
staklega ljárhag þeirra sem erfiðast
eiga og minni fjármuni hafa til ráð-
stöfunar. Nýjar upplýsingar benda
til að yfir 50% af viðbótargreiðsl-
um vegna lytjakaupa Ienda á öldr-
uðum og öryrkjum og um 20% til
viðbótar á bamafjölskyldum. Hin-
ar nýju álögur geta numið tugum
þúsunda króna hjá fólki í lægstu
tekjuhópunum.
Þingflokkur Alþýðubandalags-
ins mótmælir eindregið að undir
yfirskini erfiðleika í ríkisljármál-
um sé verið að stórauka skattbyrð-
ina á öldruðum, öryrkjum og
bamafjölskyldum með sérstökum
lyíjagjöldum og áformum um
gjaldtöku vegna sjúkrahúsvistar.
Þessi nýja gjaldtaka er auðvitað
ekkert annað en aukin skattheimta.
Alþýðubandalagið hefur boðað
aðrar leiðir. Alþýðubandalagið hef-
ur lagt áherslu á jöfnunaraðgerðir í
skattamálum og skipulagsbreyting-
ar í rekstri sjúkrahúsa og lyfsölu.
Tillögur Alþýðubandalagsins fela í
sér hátekjutap í tekjuskatti, skatt á
fjármagnstekjur, sem nú eru skatt-
fijálsar, sameiningu og nýja verka-
skiptingu stórsjúkrahúsanna á höf-
uðborgarsvæðinu og afnám einok-
unarkerfisins í lyfjaverslun, sem
veitir fáeinum fjölskyldum árlega
gróða sem talinn er i hundruðum
milljóna.
Ríkisstjómin hafnar slíkum
leiðum jafnaðar og kerfisuppstokk-
unar. Hún leggur hins vegar gífur-
legar nýjar álögur á þá sem sér-
staklega ber að hlífa. Það er sér-
Iðnnemasamband íslands og
Leigumiðlun húseigenda hafa
gert með sér samkomulag um
að Leigumiðlun húseigenda ann-
ist leigumiðlun fyrir félagsmenn
Iðnnemasambands íslands.
Þessi samningur markar tíma-
mót þar sem þetta er í fyrsta skipti
sem boðið er upp á sérþjónustu
kennilegt að flokkur sem kennt
hefur sig við alþýðu og jafnaðar-
stefnu skuli standa að slíkum að-
gerðum. Munurinn á jafnaðarstefn-
unni og hægrihyggjunni er sá að
jafnaðarstefnan vill að velferðar-
þjónustan sé veitt eftir þörfum, en
þeir greiði skattana sem mestar
tekjumar hafa. Hægrihyggjan vill
hins vegar hlífa þeim tekjuhæstu
og láta þá sem þurfa á velferðar-
þjónustunni að halda greiða fyrir
hana beint.
Ríkisstjómin hefur ótvírætt
valið leið hægrihyggjunnar og
stefnir inn á braut ójafnaðar og
misréttis. Alþýðubandalagið mun
fyrir iðnnema við öflun húsnæðis,
auk þess sem þetta er í fyrsta sinn
sem félagasamtök og sérhæflt þjón-
ustufyrirtæki á þessu sviði gera
með sér samstarfssamning. Fram
til þessa hafa félagasamtök stofhað
eigin rekstur innan sinna vébanda
um þjónustu sem þessa.
I samningnum felst m.a. að fé-
lagsmenn INSÍ hafa forgang að
hins vegar halda á lofti merki jaf’i-
aðarstefnunnar. Vanda ríkissjóðs
verður að leysa með auknu fram-
lagi hátekjufólks og fjármagnseig-
enda og með róttækum skipulags-
breytingum - ekki með auknum
álögum á aldraða, sjúka, skólafólk
og bamafjölskyldur.
Ef þessi stefna ríkisstjómarinn-
ar festist í sessi em það mikil tíma-
mót í áratuga sögu uppbyggingar
velferðarþjónustu hér á landi. Um
það hefur verið samstaða þar til þá
nú, að allir ættu að vera jafnir
gagnvart undirstöðuþáttum vel-
ferðarþjónustunnar án tillits til
efnahags.
herbergjum og einstaklingsíbúðum
sem koma til útleigu hjá LMH,
sem og öðm húsnæði sem húseig-
endur vilja sérstaklega leigja
námsfólki. Jafnframt er gert ráð
fyrir að hægt verði að taka til út-
leigu húsnæði, sem þarfnast breyt-
inga eða lagfæringa, sem iðnnemar
tækju að sér.
-Sáf
Leigumiðlun iðnnema opnuð
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. júlí 1991
Síða 8