Þjóðviljinn - 17.07.1991, Page 15
Skarplega
ályktað
Á þingi um Einar Ben. sem
haldið var í Norræna hús-
inu fyrir stuttu, tók Hannes
Hólmsteinn athafnaskáldið
til athugunar. Hannes lét
gamminn geisa og flutti
meðal annars þessa tilvitn-
un úr Skriflabúðinni:
„Okrarans höfuð,
hrokkið og grátt,
hvimaði, um syllur
og snaga.
Melrakkaaugað var
flóttaflátt,
flærðin rist í hvern
andlitsdrátt
og glottið ein glæpasaga. “
Þegar Hannes hafði lokið
við að flytja þetta renndi
hann snörum augum yfir
salinn, beið þess að listræn
þögnin byggði upp hæfilega
eftirvæntingu og svo kom
ályktunin: „Þetta er ekki ort
af neinni sérstakri ást á
kaupsýslumönnum!“
Skráargatið telur að þetta
sé rétt ályktað hjá Hannesi.
Frið í fríinu
Hrakspár miklar vegna til-
lagna Hafró um þorskveiði
næsta árs hafa dunið á
þjóðinni síðustu daga og
ráðamenn keppast viö að
finna „ráð“ til að redda mál-
unum almenningi til mikillar
skelfingar, svo og forkólfum
í stéttarfélögunum sem
hyggjast sækja betri kjör
fyrir sitt fólk.í haust. Einn
slíkur, þ.e. Ögmundur Jón-
asson, var (tjaldútilegu í
faðmi fjölskyldu og náttúru
þegar fréttir af aflasam-
drætti bárust um miðja síð-
ustu viku. Þegar eftir var
leitað hvar til hans næðist
til að „kommentera“ á at-
burði líðandi stundar svar-
aði trygglynd símastúlkan
að bragði og kvað fast að:
„Ég vona bara fastlega að
hann sjái hvorki blöð né
heyri fréttir!" Stúlkunni varð
að ósk sinni, því Ögmundur
sást ekki nálægt frétta-
mönnum fyrr en á mánu-
dag...
Hver
hlýtur hnossið?
Starfsmenn útvarps kvöddu
Markús Örn útvarpsstjóra
með viðhöfn og glasalyft-
ingum í fyrradag. Enn hefur
menntamálaráðherra ekkert
gefið upp um eftirmann
Markúsar, og að vonum er
mikið spáð og spekúlerað.
Samkvæmt heimildum
Skráargatsins óttast starfs-
menn RÚV, og þá sérstak-
lega á Rás 2, mest að Inga
Jóna Þórðardóttir, núver-
andi formaður útvarpsráðs,
verði næsti útvarpsstjóri.
Stefán Jón kemur að líkind-
um ekki til greina, enda
skortir hann flokksskírtein-
ið...
Norska húsið
Byggðasafn verður opnað í
Norska húsinu í Stykkis-
hólmi í dag. Allir Hólmarar
fá boðskort og þeim er boðið að
mæta kl. 15.00. Segja má að hús-
ið verði opnað með viðhafnar-
sýningu því þar hanga nú mynd-
ir eftir Steinþór Sigurðsson list-
málara.
A sýningunni eru stór og smá
olíumálverk og teikningar. Allar
myndimar eiga það sammerkt að
vera gerðar um miðbik aldarinnar,
eða í kringum 1950. Myndimar
em sannferðug lýsing af Hólmin-
um eins og hann leit út þá og sýna
jaíhframt vel hvað bjó í hinum
unga listamanni en flestar þeirra
em gerðar á námsárum hans.
Steinþór Sigurðsson er fæddur
í Norska húsinu og átti þar
bemskuár og má geta nærri að
þetta merka hús á sinn áberandi
sess í Stykkishólmsmyndum Stein-
þórs. Um tilurð myndanna segir
listamaðurinn m.a. i sýningarskrá:
„Elsta olíumyndin á sýningunni er
frá 1948. Hún sýnir kaþólska
prestinn á leið til messu hjá St.
Fransiskussystmm. Þetta er með
fyrstu tilraunum mínum til að mála
með olíulitum og ber myndin það
með sér. Eg man aðeins eftir einni
eldri, sem átti að sýna landslagið
og stemmninguna við Baulárvalla-
vatn. Sú „ómynd“ var mikið hnoð
og er týnd.
Meðal málara sem komu vestur
í Hólm að mála var Gunnlaugur
Scheving. Uppi á Þinghúshöfða
fékk ég að kikja yfir öxlina á hon-
um, fullur lotningar. Greinileg
áhrif em frá Scheving í að minnsta
kosti einni mynda minna, sem er
útsýn niður Skólastíg.“
Steinþór Sigurðsson fæddist í
Stykkishólmi 1933. Eftir nám, í
Handíða- og myndlistarskóla Is-
lands stundaði hann myndlistar-
nám í Svíþjóð og á Spáni. Hann
opnað
Niður I fjöru 52.
Svona leit
norska húsið út
áður en ráðist
var i endurgerð
þess.
sneri aftur til Íslands 1957 og
kenndi við Handíðaskólann fram
til.1960. Frá þeim tíma hefúr hann
verið leikmyndateiknari hjá Leik-
félagi Reykjavíkur og fleiri leik-
húsum. Steinþór Sigurðsson á sæti
í stjóm og leikhúsráði LR. Hann er
í sýningamefhd Félags íslenskra
myndlistarmanna og er fulltnii
listamanna í Safnráði Listasafns ís-
lands. Hann hefur einnig setið, í
byggingamefhdum Listasafns ís-
lands og Borgarleikhússins.
Steinþór hefur sýnt myndir sín-
ar bæði utan lands og innan.
-kj
Þú skalt fá að kenna
á því í fimmta tíma,
hálfvi*1.
Frábært, ég er búinn
að vera.
Síða 15
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. júlí 1991