Þjóðviljinn - 26.07.1991, Side 5
„Aumlegt yfirklór" á Heiðarfjalli
Samkvæmt mati nefndar sem
skipuð var af fráfarandi
umhverfisráðherra til að gera
úttekt á mengun frá ratsjár-
stöðvum Bandaríkjahers á
Straumnesfjalli og Heiðarfjalli
er lagst gegn áformum um að
hreinsa jarðveg á og undir
Heiðarfjalli, jafnvel þótt það
komi á daginn eftir frekari at-
huganir að sorphaugar stöðv-
arinnar innihalda mengandi
efni, s.s. eins og þrávirka efnið
PCB, sem landeigendur Eiðis
hafa rökstuddan grun að sé þar,
en efnið mun hafa verið notað í
spenna stöðvarinnar. Sam-
kvæmt greinargerð sem iand-
eigendur Eiðis hafa fengið frá
ráðgjafarfyrirtækinu Skíð-
blaðni eru tillögurnar nefndar
„aumasta yfirklór“.
í minnispunktum frá nefnd-
inni, sendir umhverfisráðherra
27. nóvember 1990 er ekki talið
ráðlegt að grafa sorpið upp og
setja á þétt undirlag, sökum mik-
ils kostnaðar, enda hafi ekki verið
sýnt fram á að grunnvatn á svæð-
inu hafi spillst. Hins vegar er talið
ráðlegt að draga sem mest úr lík-
um á því að vatn komist í snert-
ingu við sorpið til að draga úr
hugsanlegri mengun.
Mælist nefndin til að haug-
stæðið verði afmarkað með
jarðgasleitartæki og haugurinn
varinn fyrir vatni og vindum með
því að draga yfir hann þolplast,
eða öllu heldur byggingarplast af
ódýrustu gerð, sem lagt yrði á
jarðvegsdúk og haugstæðið síðan
þakið með hálfs metra þykku
jarðvegslagi.
Sérfræðingar á vegum um-
hverfisráðuneytis og Hollustu-
vemdar rikisins munu næstu daga
halda á HeiðarQall á Langanesi til
athugana á meintri efnamengun
frá sorphaugum hersins á fjallinu.
Að sögn Eiðs Guðnasonar, um-
hverfisráðherra, er ætlunin að
haugstæðið verði afmarkað og
mælt verði með jarðgasleitartæki
hvort þar kunni að finnast einhver
eiturefhi.
- Það er allt og sumt sem ég
hef að segja um þetta mál að svo
stöddu, sagði Eiður.
Aðspurður um þær ásakanir
Jóns Oddssonar, hæstaréttarlög-
manns og lögfræðings landeig-
enda Eiðis, um að umhverfisráðu-
neyti og stjómvöld hefðu lagt
stein í götu skjólstæðinga hans
við að leita réttar síns gagnvart
bandariskum stjómvöldum, sagð-
ist Eiður ekki ætla að ræða við
Jón í fjölmiðlum.
I álitsgerð sem ráðgjafarfyrir-
tækið Skíðblaðnir hefúr gefið
landeigendum um tillögur nefnd-
ar umhverfisráðuneytisins, segir
m.a. að tillögumar virðist taka
meira mið af hagsmunum þess
opinbera, en ekki skaðabótakrafa
landeigenda á hendur bandarísk-
um stjómvöldum.
Efast er um að yfirborðsvatn
komist ekki framhjá þolplastinu.
Leggur fyrirtækið til að land-
eigendur freisti þess að fá um-
hverfisráðuneyti til þess að
kostna töku jarðvegssýna úr sorp-
haugnum á fjallinu, en aðeins
með slíkri sýnatöku sé unnt að
greina innihald haugsins og hvort
þar kunni að leynast efni sem em
skaðleg lífríkinu losni þau úr læð-
ingi, s.s. PCB og ýmsir þung-
málmar.
Jafnframt segir í álitsgerðinni
að niðurstöður umhverfisnefndar-
innar séu studdar það veikum
frumgögnum og „niðurstaðan
byggð á sandi“ að fúrðu sæti að
umhverfisráðuneytið sætti sig við
slíka niðurstöðu. -rk
Sorpbrennslan
í Hnífsdal
í gagnið á ný
Eiður Guðnason, umhverf-
isráðherra, segir að að vel at-
huguðu máli hafi ekki þótt ann-
að gerlegt en að heimila starf-
rækslu sorpbrennsluofnsins á
Skarfaskeri í Hnífsdal á ný að
uppfylltum ákveðnum skilyrð-
um.
Líkt og lesendur muna lokaði
Hollustueftirlitið sorpbrennsl-
unni á dögunum þar sem meng-
unarbúnaður og starfsemi stöðv-
arinnar samræmdist ekki þeim
kröfum sem gerðar em til sorp-
brennslu.
Eiður sagði að þau skilyrði
sem sett hefðu verið fyrir því að
heimilað væri að starfrækja stöð-
ina að nýju, væm m.a. að ekki
væri brent garðaúrgangi í stöð-
inni og spilliefni. Þá hefúr reyk-
háfur stöðvarinnar verið hækkað-
ur í því skyni að draga úr reyk-
mengun frá ofnum stöðvarinnar
yfir byggðina í Hnífsdal og
starfshópur skipaður til að gera
tillögur til úrbóta á sorpbrennslu-
málum þeirra sveitarfélaga sem
að Skarfaskersstöðinni standa,
ísafirði, Bolungarvík og Súðavík.
- Það var illskásti kosturinn í
stöðunni að heimila starfrækslu
stöðvarinnar að nýju með þessum
skilyrðum. Landshættir á þessum
slóðum em ekki með þeim hætti
að hægt sé að taka við sorpi til
lengri tíma til urðunar, en á með-
an er verið að vinna að úrbótum á
málefnum sorpbrennslunnar,
sagði Eiður.
Hann sagðist vonast til þess
að starfshópurinn skilaði íljót-
lega frá sér tillögum um úrbætur
og þess yrði ekki alltof langt að
bíða að viðunandi lausn væri
fengin á sorpbrennslumálum þar
vestra.
-rk
Uffe Ellemann-Jensen utanrlkisráðherra Danmerkur átti hér vinnufund f gær með Jóni Baldvin kollega sfnum. Þeir ræddu málefni Evrópu og lýsti
Daninn yfir stuöningi við kröfur Islendinga varðandi EES. Mynd: Jim Smart.
Danir styðja kröfur Islendinga
Uffe Ellemann-Jensen utan-
ríkisráðherra Dana lýsti því
yfir í gær að Danir styddu full-
komlega kröfur Islendinga og
annara EFTA-ríkja um frjálsan
aðgang fyrir sjavarafurðir á
markað í Evrópubandalaginu.
Þetta kom fram á blaðamann-
fundi sem ráðherrann hélt með
Jóni Baldvin Hannibalssyni ut-
anríkisráðherra í gær.
Fyrir vinnufúnd ráðherranna í
gærmorgun var jafnvel talið að
Danmörk ásamt öðrum þjóðum
EB við Norðusjó stæðu gegn toll-
frelsi fyrir sjávarafurðir. Elle-
mann- Jenssen sagði í gær að
Danir teldu að fella ætti niður
tolla á öllum fiskafúrðum einnig
fullunnum fiski. Ráðherrann
sagði að það hefði aldrei verið
stefna í Danmörku að kreljast að-
gangs að auðlindum í staða toll-
fríðinda. Hann sagði að Spánn
væri eina landið innan Efí sem
krefðist þessa varðandi Island.
Hann talai þó að íslendingar gætu
gert ýmsislegt áður en algert toll-
frelst tæki gildi, til dæmis að
leyfa erlendum skipum að koma
hér til hafnar til að landa fiski eða
til viðgerða. Slíkt er nú bannað
samkvæmt lögum.
Utanríkisráðherrann danski
hafði annars það að segja um
samkomulagið um evrópskt ef-
anahagssvæði að enn væri von til
samninga og að hann hefði meiri
áhyggjur ef ekki væri nein vanda-
mal á ferðinni á síðustu stundu.
Hann sagðist bjartsýnn á að sam-
komulag tækist þó stuttur tfmi
væri til stefnu til 1. ágúst.
Hann telur Danmörku ekki
hafa mikinn hag af EES, plúsam-
ir væm miklu færri en mínusamir.
Til dæmis sagði hann að Danir
þyrftu eftir samkomulagið að
keppa við EFTA-þjóðimar jafn-
fætis á EB- markaði án þess að
hafa fengið aðgang að nokkurri
auðlind t staðinn. En Uffe Elle-
mann-Jensen sér fyrir sér framtíð
þar sem Norðurlöndin öll verða
gengin í Evrópubandalagið. Þá
gætu þau lönd myndað blokk inn-
an bandalagsins sem hefði ein-
hver áhrif.
Utanríkisráðherramir ræddu
einnig á morgunfundi sínum
vamarsamstarfið innan Nató, við-
skiptatakmarkanir við Suður-
Afríku og hugsanlegt afnám
þeirra. Þeir ræddu Vestur- Evr-
ópubandalagið og málefhi Aust-
ur-Evrópu og Eystrasaltsríkjanna.
Fram kom á blaðamannafúnd-
inum að báðir ráðherramir vilja
halda fast í sambandið við Banda-
ríkin og Kanada í gegnum Atl-
antshafsbandalagið en sumir inn-
an EB vilja styrkja Vestur- Evr-
ópubandalagið sem vamarbanda-
lag.
-gpm
Brestir í Vinnuveitendasambandinu
Islenskir aðalverktakar sendu
seint í fyrrakvöld skeyti til
Vinnuveitendasambandsins
(VSI) þar sem farið var fram á
endurskoðun aðildar fyrirtæk-
isins í VSÍ. Eftir því sem Þjóð-
viljinn kemst næst eru íslenskir
aðalverktakar á leið inn í Verk-
takasambandið og ætla sér að
hasla sér völl á almennum
markaðir. Þórarinn V. Þórar-
insson, formaður VSI, segir að
hann hafi enga trú á að Aðal-
verktakar segir sig úr samtök-
um vinnuveitenda.
Vinnuveitendasambandið
fékk skeyti frá stjómarformanni
íslenskra aðalverktaka, Thor O.
Thors, þar sem óskað er eftir við-
ræðum við samtökin varðandi að-
ild fyrirtækisins í því. Þórarinn
segist halda að fréttir um þetta
mal séu einhver sumarsmellur
fjölmiðlanna, pg hann eigi ekki
von á öðm en íslenskir aðalverk-
takar verði jifram aðilar að sam-
tökunum. „Eg hef ekki orðið var
við neitt vandamál í saipskiptum
þessa fyrirtækis og VSl, en hafi
pau verið mun greiðast úr þeim,“
segir Þórarinn.
Eftir því sem heimildir herma
hafa íslenskir aðalverktakar hug á
að teygja sig inn á hinn almenna
markað hér innanlands og telja
sig hafa frjálsari hendur á þeiip
iparkaði an aðildar að VSl.
Astæða fyrir stefnubreytingu fýr-
irtækisins, þ.e. að ganga inn á al-
mennan markað er að sögn
minnkandi starfssemi á Keflavík-
urflugvelli, og ekki er fyrirsjáan-
legt að mikið verði um fram-
kvæmdir þar á næstu árum. Þórar-
inn V. Þórarinsson, segir að ef Is-
lenskir Aðalverktakar hafa hug á
því að breyta sinum starfsvett-
vangi og færa sig inn á almennan
verktakamarkað væri ekki óeðli-
legt að þeir þættu að vera beinir
aðilar að VSI og breyttu sinni að-
ild þannig að þeir yrðu aðilar að
Verktakasambandinu. Þær um-
ræður hafa verið uppi þannig að
sú niðurstaða kæmi manni ekki á
óvart, segir Þórarinn.
Aðspurður hvort úrsögn ísT
lenskra aðalverktaka úr VSÍ
myndi þýða að samtökin væru að
gliðna I sundur, segir Þórarinn að
hann hafi ekki trú á því. „það eru
yfir þrjú þúsund fyrirtæki í sam-
tökunum og ef eitt fyrirtæki
hverfúr úr þeim, þó það sé stórt,
er engin hætta á að þau séu að
gliðna í sundur. Og þar fýrir utan
a ég ekki von á þvi að þetta fýrir-
tæki sé á leið út úr VSI.“ -sþ
Flugslys við Mývatn
Lítil einkaflugvél brotlenti
skammt frá flugvellinum við
Mývatn um þrjúleytið í gærdag.
Flugmaður og tveir farþegar
sluppu lifandi, en mismikið slas-
aðir úr slysinu.
Flugvélin, sem hefúr einkenn-
isstafina TF-TOM, brotlenti um
hálfa sjómílu ftá flugvellinum,
skammt firá vatninu. Lögreglan ftá
Húsavík kom á slysstaðinn ásamt
læknum og hjúkrunarfólki og voru
hinir slösuðu fluttir á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri —Sáf
Föstudagur 26. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5