Þjóðviljinn - 26.07.1991, Page 9

Þjóðviljinn - 26.07.1991, Page 9
„Við þurfum að endurmeta hvað borgar sig frá hörðu eiginhagsmunasjónarmiði. Oft mun koma í Ijós að það sem hreinlega borgar sig að gera öðru- vísi en venja er til dregur úryfirgangi við náttúruna og auðlindir hennar. Það þarfekki hugsjónaeld til.“ Við höfum fengið skýr boð um það að framundan séu erfiðir tímar. Margir eru áreiðanlega að velta fyrir sér hvern- ig skynsamlegast sé að bregðast við. Með eigin úrræðum, ekki síður en þeim sem vaidhafar hafa í hendi sér. Við höfum heyrt það rækilega útskýrt að framundan séu fimm mögur ár, fimm lé- legir þorskárgangar - og nú verði ekki lengur undan því vikist að draga úr botn- fiskveiðum um allt að því fimmtung. Ann- ars muni afleiðingamar af ofveiði undan- farinna ára verða enn hrikalegri en fram til þessa. Að visu höfúm við nú sem fyrr heyrt nokkra skipstjóra efast um gildi þeirra mælinga sem fiskifræðingamir byggja ráð sín á. En ætli það sé ekki meiri ástæða til að hlusta á þá sem eiga að gæta almannahags- muna í fiskveiðum en þá sem geta fallið í grylju sérhagsmuna, horfa of skammt. Við höfum fengið nóg af skammsýnum ákvörð- unum í atvinnurekstri þjóðarinnar og tími er kominn til að reyna að glöggva sig á stöðunni með víðari sýn. hagssamfélag Evrópu. Og ríkin sem hafa keyrt úr sér gengna framleiðslumaskínu af fullkomnu ábyrgðarleysi frá vistfræðilegu sjónarmiði i Austur-Evrópu og Sovétríkj- unum. Spádómar i úttektinni ffægu sem gerð var fyrir um það bil 20 árum - og birt- ust í bókinni „Endimörk vaxtar" eru hrein- lega komnir fram. Virtasta stofnunin, sem athugar ástand náttúrugæða og mannvistar- skilyrða erlendis, Worldwatch Institute í Washington, hefur kortiagt árlega í seinni tíð hvemig lífsskilyrðin rýma jafnt og þétt um allan heim. Astæðumar má sem kunn- ugt er rekja til ofbeitar, ofbrennslu á meng- andi orkugjöfúm og ofnotkunar á varasöm- um efnum í landbúnaði og ýmsum iðn- greinum. Tii hagvaxtarkapphlaupsins ef að er gáð. Samt leyfa valdamestu álitsgjafar þjóðarinnar sér að hamra á þvi að framfara- brautin sé háð hagvexti og hann á að efla með álsamningi. Hann myndi vissulega gefa uppgripavinnu í tvö ár, en enn er allt á huldu um það hvort hægt verður að fá nægilega hátt verð fyrir raforkuna til að Nóg um það. Mig langar að ræða hér spuminguna um hvemig við getum brugð- ist við. Eigum við að bregðast við með því að hella okkur út í meiri atvinnurekstrartil- raunir, einblína á meiri vinnu á vinnumark- aði, leggja allt kapp á að halda uppi hag- vextinum margumtalaða? Eða em aðrar leiðir til að lifa sæmilega? Lifa „mann- sæmandi lífí“ sem svo er nefnt? Er hugsan- lega hægt að lifa betra lífi með því að hafa minna umleikis? Getur hugsast að minna sé með einhveijum hætti betra? Það getur reynst erfitt að taka þann pól í hæðina. Við höfum nefnilega vanist því að setja samasemmerki milli meira og betra: Með því að eignast meira neyta meira og afla okkur sem mestra þæginda getum við vænst meiri hamingju. Langt ferðalag telst því skemmtilegra en stutt. Stórt hús betra en lítið. Margar útvarps- stöðvar vænlegri kostur en fáar. Bíldreki á breiðum dekkjum eftirsóknarverðari en smábíll. Löng skólaganga vænlegri en stutt. Valdamenn, efnahagsfræðingar og aðr- ir helstu álitsgjafar þjóðarinnar, þeir sem fjölmiðlamir láta upplýsa okkur um stöð- una í efnahagsmálum og hvað við eigum að gera til að bæta hana, þeir em enn við sama heygarðshomið. „Við megum ekki dragast aftur úr.“ „Það verður að auka hagvöxt." Svokallaður hagvöxtur er tekinn sem alls- heijar mælikvarði á hag og farsæld þjóða, gerður að aðalmarkmiði jafnt stjómmála og atvinnustarfsemi. Gagnrýnilaust. Og ætti þó það sem við blasir hjá okkur - og öðrum ríkum þjóðum - að tala sínu máli um nauðsyn þess að losna úr þeim hugsa- naklafa. Bakhliö hagvaxtar Við höfum haldið hagvexti uppi með ofveiði. Þrengt möguleika okkar i framtíð- inni með skammsýnni hagvaxtardýrkun. Og það sama gildir um öll þau ríki sem hafa hagvöxt og stundarhag að leiðarljósi. Náttúmspjöllin, sem ofkeyrsla framleiðsl- umaskínunnar veldur, mælast með sífellt ískyggilegri tölum hvort sem mælt er á hafsbotni eða uppi í ózonlaginu. I þeim ríkjum, sem keyra framleiðslumaskínuna og reynsluna hraðast, eiga menn sífellt erf- iðara með að ná sér í hreint vatn - og hreint loft til að anda að sér. Hér gildir það sama um Bandaríki Norður-Ameriku og Efna- Hagvöxtur birtist einkum í svonefnd- um þjónustugreinum. Það er hæpið ffam- faratákn og má allt eins skoða sem aukinn kostnað, eins konar umbúðakostnað við mannlíf og rekstur eins og ég hef leyft mér að nefna fyrirbærið. Hlutur landbúnaðar, fiskveiða ög fiskvinnslu fer síminnkandi í þjóðarframleiðslunni í umbúðaþjóðfélagi eins og því íslenska og er nú kominn niður fyrir 20% af svonefndu „þáttavirði“ í upp- gjöri þjóðhagsreikninga. Það er ekki verið að mæla framleiðslu eða raunverulega verðmætasköpun í þessum útreikningum eins og margir halda. Nær lagi er að líta svo á að nú orðið mæli þeir einkum aukið stúss þjóðarinnar kringum sjálfa sig úti á vinnu- markaði. Þar sem fleiri og fleiri eru bundn- ir við störf eins og að færa til peninga, af- greiða í verslun, byggja bílageymslur, flytja fólk og vörur milli landshluta, reyna að kenna unglingum í skólum, ala upp böm á dagvistarheimiium, lækna með nýjustu tækni. Betri hagur þjóða, hvað þá farsæld, byggist ekki á hagvexti. Tengslin milli virkjanakostnaðurinn fáist endurgreiddur og verði ekki til að þyngja byrðar á þjóð- inni. Og þrifalegasta leiðin inn í framtíðina er ekki áli lögð - svo mikið er víst. Meira umbúðafargan - aukin þjóðar- framleiðsla! Nóg um bakhlið hagvaxtarins. En hvað um takmarkanir mælinga á þjóðarfram- leiðslu, en það er á vexti hennar milli ára sem hagvaxtarútreikningamir hvíla. Þéir útreikningar byggjast á því sem gerist inn- an hins fonnlega hagkerfis, því sem auð- velt er að mæla. Þess vegna er eingöngu launavinna með í dæminu, því fleira fólk á vinnumarkaði og þeim mun lengur sem það er bundið þar, því meiri reiknast þjóð- arframleiðslan og hagvöxturinn. Öll sú hagkvæma ólaunaða vinna sem unnin er á heimilum við matargerð, uppeldi, sauma- skap, viðgerðir, vinnan við kartöflu- og grænmetisrækt í eigin garði, öll vinnuskipti hjá fólki, vinargreiðar, sjálfsnám og sjálfs- hjálparviðleitni yfirleitt verður ekki til að auka hagvöxt í fína þjóðhagsdæminu. Aft- ur á móti reiknast hvers konar launavinna sem ávinningur hvort sem hún felst í því að byggja upp eða rífa niður. Byggja hús eða rífa hús. Byggja upp fyrirtæki eða setja það á hausinn. Störf unnin vegna hæpinna lífs- hátta okkar - og eiga frekar heima í frá- dráttarlið en tekjulið í upplýsandi þjóð- hagsreikningum, þau auka hinn marglof- aða hagvöxt, s.s. sivaxandi kostnaður við sorphirðu, kostnaður vegna fjölgunar um- ferðarslysa, fjárfestingarkostnaðar við að koma bílum í margra hæða bílageymslur, kostnaður vegna ýmissa sjúkdóma sem tengjast hæpnum lifnaðarháttum. Hagvaxt- arkapphlaup leiðir þjóðir inn í vítahring þannig að hvert kostnaðarlagið af öðru leggst yfir líf þeirra og atvinnurekstur, allt verður markaðsvara, er sinnt á vinnumark- aði: uppeldi, fræðsla, matargerð, heilsu- rækt, skemmtun, viðgerðir. Mörgum þess- ara starfa er þó afar erfitt að sinna vel á stofnunum eða í fyrirtækjum. Þessi þróun hefur líka leitt til alls konar óþarfa misskilnings og minnimáttarkennd- ar, s.s. þegar áhyggjur vakna vegna þess að konur til sveita skortir atvinnu - og farið er að gera sérstakar ráðstafanir á vegum hins opinbera til að bæta úr því! „meira“ og „belra“ eru rofin á þessu sviði eins og víðar. Vöxtur, sem birtist í síauk- inni misgóðri „þjónustu“, bætir ekki hag þjóða ef að er gáð; skilar fólki ekki meiri tíma til eigin nota. Hverjir hafa nóg? Krafan um aukinn jöfnuö Hagvöxtur hefur einkum gagnast hin- um ríka minnihluta mannkyns; gjáin milli ríkra og fátækra þjóða hefur dýpkað bilið milli vel stæðra og fátækra innan umbúða- þjóðfélaganna sömuleiðis. Þess vegna held ég að það sé alveg hárrétt sem Asmundur og Ögmundur hafa verið að scgja í fjöl- miðlum undanfama daga. Nú er komið að því að skipta tekjunum jafnar. Meiri launa- jöfnuður er kominn á dagskrá með meiri þunga en nokkru sinni fýrr. Þegar úr minna er að spila en fyrr á það að bitna á þeim sem hafa mest, ekki þeim sem minnst hafa til að kljúfa kostnaðinn sem fylgirmannlíf- inu í umbúðaþjóðfélagi vorra daga. Þess vegna verður ekki undan því vik- ist að spyrja í alvöru spuminga eins og: Hverjir hafa nóg? Hver á launamunur að vera í réttlátu þjóðfélagi á tímum víst- kreppu? Það tekur tíma að komast af villugötum á færar leiðir við ný ytri skilyrði. Þess vegna held ég að byrja verði á því að stefna að þreföldum launum á vinnumarkaði þótt ég telji réttlátara að hann sé svona tvöfald- ur. Þannig að þeir sem hafa mest hefðu miðað við verðlag í dag hafi svona 140 þúsund á rnánuði, en þeir lægstlaunuðu 70 þúsund. Þó að von sé á færri fiskum á land er hægt að lyfta þeim lægstlaunuðu með því að taka af þeim sem era ofan við vel- sæmismörkin á tímum lífshátta sem fá ekki staðist til lengdar. Þetta verður auðvitað ekki gert með samningum við þá sem verða að láta sér nægja minna í framtíðinni. Það verður að færa til með lögum, hækka skatt á hátekjum og fjármagnstekjum og færa til þeirra sem þrengstan kost hafa. Auk þess verður að leggja til atlögu við lög, kerfi og úrelta samninga sem veita sérstökum ffíð- indum til þeirra sem hafa mest. Nefna má forréttindalífeyri á kostnað ríkissjóðs, því hærri bílastyrki og yfirvinnugreiðslur sem launin era hærri, tryggingakerfi sem skilar því hærri slysabótum til fóks sem það hef- ur meiri tekjur, dagpeningagreiðslur sem drýgja tekjur þeirra sem ferðast mest á kostnað ríkisins, biðlaun til valdamanna sem fara beint úr vellaunuðu starfi í betur launað, kvótakerfi sem færir þeim sem áttu skip 1983 sameign þjóðarinnar á silfúrfati, gjaldþrotaleikinn og skattafsláttinn til þeirra sem kaupa hlutabréf. En við vitum mæta vel að það verða ekki tekin stór skref í þessa átt fyrr en fólk lætur í sér heyra, og gleymum því ekki að verkalýðsleiðtogar sem ætla að auka jöfhuð þurfa sterkan stuðning. Horfum í eigin barm Hver og einn getur horft á eigin mögu- leika á að komast betur af. Auðveldar. Fá meiri tima til eigin nota og eyða minni tíma á vinnumarkaði. Tækifæri okkar til að lifa auðugu lífi er að vissu leyti háð því að neysla okkar sé sem minnst. Við þurfum að endurmeta hvað borgar sig frá hörðu eigin- hagsmunasjónarmiði. Oft mun koma í ljós að það sem hreinlega borgar sig að gera öðravísi en venja er til dregur úr yfirgangi við náttúruna og auðlindir hennar. Það þarf ekki hugsjónaeld til: Við getum t.d. athug- að kosti almenningsfarartækja í saman- burði við einkarektur á bíl. Það tekur ótrú- legan tíma að vinna fyrir reksturskostnaði bílsins því hann slagar hátt upp í matar- kostnað hjá vísitölufjölskyldunni! Þð léttir lífið að nota strætó eða reiðhjól - og versla við kaupmanninn á hominu i stað þess að keyra langa leið í stórmarkað. Hvað með að venja sig á að kaupa aldrei vöra eða þjónustu sem maður hefur gaman af að bjástra við sjálfur? Það gæti dregið úr sölu á alls konar tilbúinni matrvöra sem búið er að meðhöndla þannig að hún getur ekki rotnað og þolir innihitastig áram saman á hillum stórmarkaðanna. Og bætt þar með heilsufarið. Athugandi er að gera sér það að reglu að kaupa helst ekki það sem aug- lýst er með brambolti og miklum umbúða- kostnaði, s.s. það sem einkum er auglýst í sjónvarpi: gosdrykki, sælgæti, snyrtivörur og bíla. Það er erfitt að hafa það fýrir reglu að kaupa einungis endingargóðar vörar sem hægt er að gera við og endumýta. En það má reyna. Það er kominn tími til að menn átti sig á því að vöxtur ffamleiðslu og ffamleiðni getur ekki haldið endalaust áfram í heimi tæmanlegra orku- og hráefnislinda. Það eyðist sem af er tekið. Það er óréttlætanlegt að byggja hagvöxt á því að taka út af reikn- ingi komandi kynslóða með því að stunda ofveiði og rányrkju. Eða með því að hækka kostnaðarliði við rekstur samfélagsins. Við þurfum að átta okkur á því að tími til eigin nota, tími til samskipta við þá sem við kær- um okkur um; hávaðalaust og umbúðalaust mannlíf er getur reynst auðugra en það mannlíf sem birtist í auglýsingamyndun- um. Þroskavænleg samskipti og meiri jöfn- uður er mikilvægara keppikefli en hag- vöxtur. Meginefni þessarar greinar var flutt i þœttinum „ Um daginn og veginn " i Rikis- útvarpinu 22. þ.m. Hörður Bergmann frœðslufulltrúi skrifar Föstudagur 26. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.