Þjóðviljinn - 26.07.1991, Síða 15

Þjóðviljinn - 26.07.1991, Síða 15
HELGARMENNINGIN Atsuhito Sekiguchi er höfundur þessa verks frá árinu 1986, Draumur ( blundi er undirtitill þess. A Kjarvalsstöðum hangir nú uþpi viðamikil myndlistarsýning tólf japanskra myndlistarmanna. Gunnar Kvaran, forstöðumaður safnsins, var að því spurður hvort þaö hefði eitthvað uppá sig að sýna íslendingum japanska myndlist. - í fyTsta lagi þá eru þetta menningarsamskipti, sagði Gunn- ar. Árið 1987 var haldin í Japan gííurlega mikil kynning á nor- rænni menningu. Það voru mynd- listarsýningar, tónleikar og margt fleira og þetta er svar Japananna. Þessi sýning fer um öll Norðurlönd og er algjörlega fjármögnuð af Sezon-safninu í Tokyo. Þetta menningarsamband við Japan er auðvitað tvíþætt. Hefðbundin japönsk list hefur sinn aldagamla sess í Japan. í lok 19. aldar þegar Japan opnaðist þá jukust menningartengslin milli Evrópubúa og Japana. Frá þeim tíma er hægt að tala um gagnkvæm áhrif i myndlist þessara heims- hluta. Evrópumenn sóttu þó meira til Japana þama í lok nítjándu ald: ar. Það var tvennt sem gerðist. I fyrsta lagi þá gerir borgaralegt samfélag Evrópu sér grein fyrir því að það er ekki handhafi hins eina sannleika í menningarmálum. Þá átta menn sig á því að hægt er að nota margar aðferðir til þess að búa til myndlist. Sjá þeir meðal annars að til er eitthvað sem heitir japönsk list og lýtur allt öðrum lögmálum en evrópsk list, hefúr allt aðrar við- miðanir, byggir á allt öðmm stærð- fræðilegum forsendum en evrópsk list. Það rennur í stuttu máli sagt upp fyrir mönnum á þessu tímabili að myndlistin hefur í raun og vem sín eigin innri lögmál sem eru al- gerlega óháð vemleikanum. Ahrif- in má til dæmis sjá í verkum Gauguin og van Gogh. Og það er ekki bara hjá þeim, heldur hafði þetta víðtæk áhrif á myndmál á þessum tíma, bæði á impressjón- ista og expressjónista. Síðan gerist það að Japanir em að koma til Par- ísar og taka upp þar myndmál, en umbreyta því eftir sínum menning- arlegu forsendum og mála myndir sem em kannski hvorki evrópskar né japanskar og má segja að séu ný vídd í listasögunni. Stærsta skrefíð er samt eftir seinni heimstyrjöldina, og sýning- in sem hangir uppi á Kjarvalsstöð- um er eiginlega afrakstur af því sem hefúr verið að gerast eftir 1945. Það leynir sér ekki að tvenns konar listhefð lifir samhliða í Jap- an. í fyrsta lagi heldur gamla jap- anska myndlistarhefðin sínu striki. Hún breytist lítið, en þróast jafnt og þétt og innan hennar má greina Ein dætra listasögunnar, Prinsessa B. kallast þetta verk Yasumasa Morimura frá sfðasta ári. Hann setur andlit sitt inn í fræg verk listasögunnar. Töfrar efnis og tíma Uppsetning verks Kazumis Nakamuras, sem hann færði Kjarvalsstööum að gjöf i tilefni sýningarinnar. Myndir: Jim Smart. bæði einstaka myndlistarmenn og stefnur. í öðm lagi þá mynda áhrifrn frá Evrópu sérstaka hefð eftir síð- ari heimstyrjöld. Stórhluti afþess- um ffamsæknu ungu listamönnum tileinkar sér myndmál frá Vestur- löndum og það er meðvitað. Þeir tileinka sér fyrst og fremst abst- raktmálverkið sem verður fyrir- ferðarmikið í Japan á sjötta ára- tugnum. Það er svolítið skemmti- legt að þeir skuli vera svona áfjáð- ir í að tileinka sér abslraktmálverk- ið í Evrópu sem á reyndar uppmna sinn að miklu leyti í Japan. Abst- raktmálaramir sem vom að „finna upp“ abstraktmálverkið sóttu að sjálfsögðu áhrif til Affíku og Ind- lands, en þó sérstaklega til jap- önsku kalígrafíunnar. Þeir urðu innblásnir af henni og tengdu hana inn í sitt myndmál, og svo þegar Japanimir koma til Evrópu er það sín taka. Þess vegna virkar þessi sýning „evrópsk“ við fyrstu sýn, þetta er myndmál sem við þekkj- um frá Evrópu, en þegar betur er að gáð þá búa allar þessar myndir yfir einhverri nýrri vídd. Nú er rétt að undirstrika að þessir tólf listamenn eiga að gefa breiða mynd af því sem er að ger- ast í japanskri samtímalist. Þeireru mismunandi gamlir og þeir vinna með ýmis konar myndmál. Þó má segja að tvennt tengi þá flesta. Ohlutlægt myndmál er fyrirferðar- mest hér og inni í þessu óhlutlæga myndmáli hefúr efnisvirknin gíf- urlega mikla þýðingu. Efnið og umbreyting þess í eitthvað annað, fá ákveðna merkingu. - Er þessi áhersla á efnið sprottin af þrá eftir óspilltri nátt- úru? - Slíkra spuminga hlýtur mað- ur að spytja. Þetta snýst að minnsta kosti greinilega um tengsl við nátt- úmna. Eitt af stærstu fyrirbærum náttúmnnar er tíminn og öll þessi verk tengjast tímanum meira eða minna. Við getum tekið til dæmis tijábolina sem velt er upp úr tjöm og síðan kveikt í, það er ákveðinn tími í verkinu, umbreyting úr einu ástandi yfir í annað. A endaveggn- um í vestursalnum em verk sem hafa gengið gegnum eldingarmeð- ferð svo að þau líta út fyrir að vera forgömul. Frammi á gangi er verk sem heitir Dýraslóðir, þar sem verkið fjallar eiginlega frekar um ástand en að það sé mynd af ein- hverju sérstöku. í það em rist um- merki um ferðir sem dýrin hafa farið og það em ummerki um tíma sem er liðinn. Þetta fmnst mér ganga eins og rauður þráður í gegnum þessa sýningu. Sjálfsmyndimar tvær sem hanga frammi em ljósmyndir til að byrja með. Þetta er andlit mynd- listarmannsins sem setur sjálfan sig inn í ákveðið listasögudæmi. Hann er með þessu að vitna í spænska málarann Velásquez. Tæknin við gerð þessara mynda er griðarlega flókin. Jafnffamt er þama sjálfsmynd með tilvísun í mismunandi tímabil listasögunnar. -kj gefandi fyrir þá að sjá hvemig þar er farið með þeirra menningararf. Frá og með þessum tima hafa Jap- anir verið í stöðugu sambandi við Evrópu og Bandaríkin m.a. og til- einkað sér ólíkar myndgerðir sem þeir síðan vinna úr heimavið. Þetta er mjög svipað því sem gerist hér heima á Islandi. Við getum ekki talað um að þeir séu með tiltekna japanska list. Við getum heldur ekki sagt að Islendingar eigi ein- hveija alveg sérstaka íslenska myndlist. Það er hvorki hægt að segja að Islendingar né Japanir hafi fundið upp eitthvert tiltekið myndmál. Við fundum ekki upp „abstraktið", við fúndum ekki upp „conseptið“, við fúndum ekki upp „minimalismann“, við fúndum ekki upp „poppið", en íslenskir myndlistarmenn hafa tileinkað sér allt þetta eins og Japanimir. Það sem gerist er tvennt: Annars vegar er persónulegt mat listamannsins og úrvinnsla hans á því sem til hans berst, cn hins vegar er nokkuð sem listamaðurinn ræður lítið við en liggur djúpt í okkur öllum og það er menningararfleifðin. Þegar við horfum á þessi verk þá getum við sagt sem svo að þau minni á eitthvað sem við höfum séð áður, eins og til dæmis abstraktlist, en að baki glittir alls staðar í japanska hefð og menningu sem á einhveiju augnabliki hefur gripið ffarn fyrir hendur listamannsins og látið til Kaoru Hirabayashi heitir japanska listakonan sem sýnir þetta verk og fleiri ásamt ellefu löndum sínum að Kjarvals- stöðum. Föstudagur 26. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.