Þjóðviljinn - 26.07.1991, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 26.07.1991, Qupperneq 16
Hver er ekki hræddur við Virgíníu Woolf? Mér datt í hug aö bera sam- an tvö mál þar sem einstakling- ar sýna hugrekki. En slíkt er orðið svo sjaldgæft að þegar það gerist er það oftar en ekki túlk- að sem eitthvað annað en hug- rekki. Fyrirtæki sem eiga í rekstrar- erfiðleikum þurfa stundum að taka þá ákvörðun að fækka starfs- fóiki. Nýr yfirmaður á vinnustað segir jafnvel upp starfsfólki og ræður nýjan mannskap ef henni eða honum líst þannig á að það verði til að efla starfið. Eg geng út frá því sem vísu að engum þyki það skemmtun að segja upp og uppsagnir eru vitaskuld enn erfið- ari fyrir þá sem fyrir þeim verða. En ekkert okkar veit ævina fyrr en öll er og það hlýtur að eiga við starfsævina líka. Nú, ef forstjóri frystihúss seg- ir nokkrum starfsmönnum sínum upp þá kemst fréttin tæplega i blöðin, og þaðan af síður er hún í blöðum, útvarpi, sjónvarpi og á hvers (menningarvitaígildis) manns vörum, svo vikum og mán- uðum skiptir eins og raunin varð á með uppsagnimar í Þjóðleikhús- inu. Nýráðinn Þjóðleikhússtjóra hefur að ég held grunað að upp- sögnum hans yrði ekki tekið þegj- andi, en hann hélt samt sínu striki, því striki sem hann hefur eflaust sett sér þá þegar er hann ákvað að sækja um þessa stöðu. Er það ekki hugrekki sem hann sýnir að hrófla við í einu af mörgum ljónabúrum ríkisbáknsins? Eg ætla ekki að þykjast hafa vit á því hvort hann fór rétt að, cf hægt er að fara rétt að við uppsagnir, aðrir skera úr um það. Mánuðina á undan átti sér hins vegar stað nokkurs konar nautaat suður í Hafnarfirði þar sem bæjarstjóri í broddi fýlkingar vildi bola forstöðumanni leik- skóla burt. Eg veit að í nautaati reynir nautabaninn að Iaða að sér nautið, og ef það er rétt að naut séu sólgin í rautt þá vita menn í Hafnarfirði ekki alveg upp á hár hver er rauður og hver ekki, með hliðsjón af því hver reyndi að bola hverjum. Eg held að engan á þess- um bæ hafi grunað að aðrir starfs- menn lcikskólans myndu um leið segja upp stöðum sinum til stuðn- ings yfirmanni, og að foreldra- hópurinn sýndi forstöðumanni þann stuðning sem raun ber vitni. Hins vegar er mér ekki kunn- ugt um að neinn úr starfsliði Þjóð- leikhúss hafi sagt upp stöðu sinni til stuðning þeim uppsögðu, sem ég túlka sem stuðning við nýja yf- irmanninn. Fjölmiðlar réðu sér ekki fýrir kæti og fjölluðu talsvert um upp- sagnimar í húsinu við Hverfis- götu, en sama var ekki uppi á ten- ingnum varðandi atburðina við Hjallabraut. Hver skyldi vera ástæðan fyrir því? Svo eru tveir hópar sem mér hefði fundist að ættu að telja mál- ið sér skylt, en það eru stéttarfélög viðkomandi. Fóstrustéttin sá mér vitanlega ekki ástæðu til að lýsa stuðningi sínum við forstöðumann né heldur við bæjarstjóm. Félagið sér ekki ástæðu til að standa vörð við vinnustað þar sem á sér stað merkilegt uppeldisstarf svo ekki sé meira sagt, því það hafa a.m.k. aðrar þjóðir gert sér ljóst. Eg sé ekki ástæðu til að fara inn á aug- Ijósar siðferðislegar skyldur stétt- arfélags. Leikarastéttin lét lítið frá sér heyra. Seint og um síðir birtist þó yfirlýsing frá leikurum til stuðnings leikhússtjóranum. Hún var þó ekki frá Leikarafélaginu sem slíku, heldur hópi leikara. Fé- lag leikstjóra vildi ef ég man rétt frá fréttum ekki blanda sér inn í málið, valdi að taka ekki afstöðu. Félagslegu hugrekki er al- mennt ekki fyrir að fara í kringum okkur. Það gerist svo ótal margt sem við vitum að er ekki réttlátt, en við látum sem það sé a.m.k. réttlætanlegt svona rétt á meðan það gengur yfir og síðan flýtum við okkur að gleyma því. Við þor- um ekki að taka afstöðu, enda hugrekki ekki fyrir okkur haft. Sýna stjómvöld hugrekki og kaupa þyrlu, hlúa að krabba- meinsveikum bömum eða efla al- næmisvamir svo eitthvað sé nefnt? Nei, þau láta okkur eftir að fara í eigin mistóma vasa og leggja fram nokkrar af þeim milj- ónum sem til þarf. Auðvitað er ekki að vanþakka gjafir til sjúkra- húsa eða annarra, en eitthvað finnst mér öfúgsnúið við þetta. Hverjir fjármagna t.d. stóran hluta starfsemi Rauða Krossins? Það gera þeir sem standa við spilakas- ana úti um allan bæ, oftast böm og eldri borgarar. Eg hef ekki rekist á að starfsfólk sölutuma meini bömum innan þess aldurstak- marks sem upp er sett að spila á kassana, enda ætti það að vera hlutverk R.K.I. að sjá um slíkt eft- irlit, þó svo að hætta verði á að tekjur rými. Starf hans víðsvegar um heim er ómetanlegt, en það á að gæta siðgæðis við öflun pen- inga. En hugrekki þarf til og sið- gæðisvitund að auki. Það er ekki ætlun mín að reyta til reiði, heldur vekja okkur sjálf til umhugsunar og helst umfjöll- unar um hugrekki okkar eða skort á því. Við sjáum svo hvað setur er starfslið Þjóðleikhússins kemur úr verðskulduðu sumarleyfi I. sept- ember næstkomandi og óskum starfsliði Leikskólans við Hjalla- braut til hamingju með verðskuld- aðan sigur. Þegar gremjan blindar í Þjóóviljanum þann 24/7 ritar Kristján Jóhann Jónsson grein vegna viðtals við Þórarin Eldjárn í TMM og Pressuviðtals við undirritaða. Mér finnst ástæða til að koma að nokkrum athugasemdum vegna þessara einkennilegu skrifa Kristjáns Jóhanns. í grein sinni ónotast Kristján Jóhann við persónu mína og gætir þar einskis hófs. Orð mín em tek- in úr samhengi, snúið út úr þeim, setningum skeytt saman héðan og þaðan úr viðtalinu, allt á þann hátt að sköpuð er önnur persóna en ég er, með aðrar skoðanir og allt önn- ur viðhorf en ég fýlgi. Það virðist sem flestar yfirlýsingar mínar fýlli Kristján Jóhann þvílíkri ólund að honum sé íýrirmunað að hafa þær rétt eftir. Vissulega finnst ýmislegt í viðtalinu sem hefði mátt létta lund Kristjáns Jóhanns. Þar kemur fram að ég telji mig engan afburða gagnrýnanda, ég segist gera mis- tök og ég tel mig eiga margt ólært. Einnig viðurkenni ég að ég hafi enga burði til að rita góða skáld- sögu. Að vísu er nokkuð dregið úr þeirri fúllyrðingu í næstu setn- ingu, en þar get ég þess (í hughrif- um) að mér sé að fara fram. En sé á heildina litið gefúr þetta þó fýrir- heit um að hlutur minn á ritvellin- um muni ekki verða fýrirferðar- mikill. Ætti Kristján Jóhann að geta fundið einhverja huggun í því. I Pressuviðtalinu gat ég þess að fólk stöðvaði mig á götu til að ræða bókmenntaþátt Aðalstöðvar- innar. Þetta tekur Kristján Jóhann sem dæmi um gortungshátt minn, en úr honum gerir hann sér mikinn mat. Nú kemur ekki fram í viðtal- inu hversu margir það voru sem stöðvuðu mig á götu og ekki er þess getið hvað nákvæmlega var rætt. Mér finnst einkennilegt að Kristján Jóhann skuli gefa sér það að umræðan hafi aðallega verið byggð á lofsöng vegfarenda til mín. Kristján Jóhann gerir sér sér- stakt far um að gera mig að grát- konu, enda kannski fátt hlægilegra en grátandi kona. Hann segir: „A einum stað segir hún meðal annars frá því hvemig hún grætur ein yfir sárum örlögum bókmenntaper- sóna...“ Þetta er fullmikil drama- tísering hjá Kristjáni Jóhanni. Það sem ég segi er: „Ég er ákaflega hrifnæm og ef bókmenntaverk snertir mig djúpt græt ég. Ég veit ekki hvort þetta er kostur eða löst- ur á gagnrýnanda “ Kristján Jó- hann álítur af þessum orðum að ég telji mig vera að vinna bókmennt- unum gagn með því að tárfella við lestur þeirra. Það er alrangt. Hér er um ósjálfráð viðbrögð að ræða, en þau á ég sameiginleg með fjöl- mörgum lesendum og einhveijum bókmenntaffæðingum. Mig langar til að benda Kristjáni Jóhanni á grein sem Silja Aðalsteinsdóttir skrifaði um Sölku Völku (TMM. 2. hefti. 1982), en þar lýsir hún því á afar fallegan hátt þegar komið var að henni, ungri stúlku, þar sem hún grét við lesturinn. Við þurfúm ekki að vaxa ffá slíkri upplifún og mér finnst að við ættum ekki að gera það. Bókmenntafræðingar eru ekki yfir það hafnir að hrífast af skáldverkum. Skáldverk eru sköpuð til að hrífa. Þau breyta við- horfum lesenda, færa þeim áður óþekktan skilning. Þau skemmta. Þau göfga. Þau heilla. Kristjáni Jóhanni kann að þykja þetta mærðarlegt tal og afturhaldssamt, en hafi hann aldrei orðið orðið fýr- ir sterkum hughrifum af lestri skáldverka þá hefur hann farið af- ar mikils á mis og á samúð mína alla. Hin faglega bókmenntatúlkun er að ákveðnu marki óháð þessum hughrifúm. Bókmenntafræðingur á að vera fagmaður og hann verð- ur að geta skilið á milli hughrifa sinna og ffæðilegrar umfjöllunar. Hann situr ekki skælandi og párar lýsingarorð. Og vilji Kristján Jó- hann saka mig um slík vinnubrögð þá er honum það heimilt, en ég vinn ekki á þann hátt. Gagnrýn- andinn hlýtur að rannsaka verkið af forvitni og spyrja sig hvað verk- ið hafi að segja honum, ekki hvað hann hafi að segja verkinu. í löngu máli segir Kristján Jó- hann að ég hafni allri bókmennta- umræðu síðustu þijátíu ára. Þetta er rangt. Mér finnst bókmennta- umræða síðustu þrjátíu ára ekki hafa verið gjörsneydd allri skyn- semi. Það er hins vegar skoðun mín að skynseminni hafi of off verið ýtt til hliðar. Hluti bók- menntaffæðinga mætir skáldverki með fýrirffamgefinni hugmynda- ffæði sem þeir síðan þröngva upp á verkið. Affakstur þessa eru margar afar sérkennilegar greinar og nokkrar sem verða ekki kallað- ar annað en bull, svo mjög mis- bjóða þær skynsemi lesenda. Og þá að talinu um bók- menntafræðinga sem þjónustu- stétt. Það tal gremst Kristjáni Jó- hanni ógurlega. Honum þykir Þór- arinn Eldjám lítilsvirða bók- menntaffæðinga með því að ætla þeim að elta bókmenntimar. Ekki fæ ég séð hvemig annað er mögu- legt. Er það virkilega skoðun Kristjáns Jóhanns að bókmennt- imar eigi að tölta á eftir ffæði- mönnum? Það yrði einkennileg spássering og em lögmálin þá far- in að snúast við líkt og í Undra- landi Lewis Carroll. Sú uppskrift að bókmennta- fræðingi sem Kristján Jóhann býr til úr skoðunum sem hann gerir okkur Þórami upp er slíkt hnoð að ég kýs að eyða sem fæstum orðum um hana. En vitanlega er hún enn eitt dapurlegt dæmi um málefna- þrot höfúndar síns. Umræða um bókmenntatúlk- anir íslenskra ffæðimanna er löngu orðin tímabær og það ætti að veita henni svigním, ekki reyna að kæfa hana með rangfærslum, mislestri og háðsglósum. Blind gremjuskrif, eins og skrif Krist- jáns Jóhanns, gera bókmenntunum ekken gagn og um leið em bók- menntafræðingar famir að vinna gegn hagsmunum sínum, því hag- munir bókmenntanna em hag- munir þeirra. Kolbrún Bergþórdóttir Örstutt athugasemd Athygli mín hefur verið vak- in á greinarkorni í Þjóðviljanum sl. miðvikudag þar sem Kristján Jóhann Jónsson gerir sér nokk- urn leik að því að snúa út úr og misskilja orð sem ég lét falla í viðtali við Arna Sigurjónsson í síðasta tbl. Tímarits Máls og menningar. I tilefni af því langar mig að hnykkja á fáeinum atriðum. Ég held fast við þá skoðun mína að bókmenntafræðingar „eigi að koma eftir á“, þeas. að bókmenntimar kalli á umfjöllun frekar en að umfjöllunin eigi að geta af sér bókmenntir eins og Kristján virðist telja heppilegast. Umkvörtun mín um skort á „virðingu fyrir verkinu" í ritgerð Helgu Kress um Timaþjófinn táknar ekki kröfu um sífellt lof og skjall, þó Kristján kjósi að skilja það svo, enda vita allir sem lesið hafa ritgerð Helgu, að hún cr í orði kveðnu amk. mikið lof um bók Steinunnar. Og reyndar tel ég hveijum rithöfundi miklu meiri virðing sýnd með vel unninni og heiðarlegri „andúð“ heldur en flausturslegri og heimskulegri „samúð“. Það sem ég hins vegar var að finna að í þessari ritgerð Helgu var, að mér fannst hún hrammsa til sín Tímaþjófinn sem eins konar skýringardæmi við erlendu teór- íumar sem hún var að kynna og endursegja. Umfjöllunin kallaði á bókina en ekki bókin á umfjöllun- ina. Mér fannst ritgerð Helgu ekki segja neitt um Tímaþjófinn, jafn- vel þótt kynningin gæti verð hið besta mál í sjálfú sér. Að öðru leyti voru þessi orð mín ekki hugsuð sem nein árás á Helgu Kress, sem margt hefúr vel gert og hefur að minnsta kosti þann meginkost sem bókmennta- fræðingur að hún er vel ritfær og yfirleitt er gaman að lesa það sem hún skrifar og tiltölulega auðvelt að skilja hvað hún er að fara, þó mann langi kannski ekki með henni. Svo er nefnilega komið fýrir íslenskri bókmenntafræði að fúll ástæða er til að þakka það þegar meðalgrcindir áhugamenn skilja hvað fræðimenn eru að fara. Það eru margir fleiri en ég búnir að fá sig fullsadda af þessum stóru svefnlyfjaskömmtum sem sífellt er haldið að okkur í hinum lærðu tímaritum. Oftar en ekki eru þar einmitt á ferðinni undir fölsku flaggi þessar þvoglulegu og ósjálf- stæðu endursagnir á tætingslegum lærdómi crlendum og innlendum, meðan bókmenntaverkin skipta ekki máli, þó þau kunni að vera kölluð til vitnis til að sýna hin og þessi einkenni. Æ oftar þegar ég er að reyna að lesa þessar ritsmíðar detta mér í hug svofelld orð Húsa- víkur-Jóns úr kvæði Kiplings og Magnúsar Asgeirssonar: „...og mér skildist á grein, sem var skrifuð um grein, sem var skrifuð í útlent blað...“ Að sjálfsögðu hef ég ekkert á móti erlendum lærdómi, en hann á að vera runninn fræðimönnunum í merg og bein, samgróinn smekk þeirTa, reynslu og sýn en ekki hanga utan á þeim eins og jóla- skraut. Með þökk fyrir birtinguna Þórarinn Eldjárn 16.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.