Þjóðviljinn - 26.07.1991, Qupperneq 21

Þjóðviljinn - 26.07.1991, Qupperneq 21
Er lífríki Mývatns hruniö? Þorgrímur Starri Björgvins- son bóndi Garði í Mývatnssveit er einn af sjálfmenntuðum náttúrufræðingum þjóðarinnar. Hann er í hópi þeirra manna sem gjalda viljað hafa varhuga við innrás stóriðjupostula inn í viðkvæmt Iífríki Mývatns. Þrátt fyrir varnaðarorð hinna árvökuiu umhverfis- verndarsinna sjötta áratugarins var ruðst af stað með kísiliðjuna við Mývatn. Töluverðar umhverfisrann- sóknir hafa verið gerðar síðan starfsemin hófst og er nú beðið með mikilli eftirvæntingu eftir mikilli úttekt sérfræðinga. Niðurstöður rannsókna síðustu fimm ára eru taldar munu skipta sköpum, þegar ákvörðun verður tekin um starfsleyfi handa verksmiðjunni næstu tíu ár. Mikil leynd hvílir yfir niðurstöðunum enda málið heitt, ef svo má segja. Starri veit sínu viti og sendi mér nýlega sína eigin skýrslu um hlunnindi fugls og fiskjar í Mývatni fyrr og nú. Efni þetta tel ég eiga erindi til allra sem láta sig umhverfismál varða og birti því hér á síðunni, lítillega stytt, niðurstöður hans. „Mývatn og Laxá í Þingeyjar- sýslu er talið eitt fágætasta nátt- úruundur hér á norðlægum slóð- um. Það er þekkt og viðurkennt langt út fynr okkar landsteina. Mývatn og nágrenni þess er skóla- bókardæmi við ýmsa erlenda há- skóla við kennslu í líffræði og náttúrufræði í víðri merkingu. Enda er Laxár- og Mývatnssvæð- ið undir sérstakri vemd samkvæmt lögum frá Alþingi um vemdun Laxár og Mývatns. Auk þess er það vemdað með alþjóðasattmála, sem, kenndur er við borgina Rams- ar í Iran, en sáttmáli þessi snýst um vemdun votlendis. í þeirri samantekt sem hér fer á eftir verður ekki frekar ljallað um þessa hlið mála er varðar þetta svæði. Hins vegar er henni ætlað að bregða Ijósi á þá þýðingu er hlunnindi fúgls og fískjar hafa fyr- ir þá er byggja þetta svæði, og nærliggjandi svæði, fyrr og nú. Verður hér einkum fjallað um Mý- vatn, enda er mér það nærtækara, hef ætíð átt heima hér á vatnsbakk- anum og átt mína afkomu beint undir þeim gnægtarbrunni. Þeir sem bua við Laxá em betur færir að Qalla um Laxá á svipaðan hátt, og væri vonandi að einhver úr eirra hópi léti verða af því. Það efur lengi verið á orði haft, að Mývatn sé gjöfulasta veiðivatn á Islandi. Þá er hitt ekki síður ljóst, að Mývatn og Laxá er og hefúr verið einstök paradís andfugla og Qölsetnasta varpstöðþeirra. Fyrr á öldum og allt fram eltir þeirri síð- ustu var oft þröngt í búi hjá öllum almenningi, og þurfti öllu til að kosta að mannfólkið hefði að éta, dugði iðulega ekki til. I harðæmm fór dijúgur hluti þjóðarinnar á ver- gang og sótti þá þangað sem mat- björg var helst að fá. Það heyrði ég gamalt fólk tala um í æsku minni, að í þeim harðæmm hefðu verið tveir staðir á landinu þar sem mat- björg ekki þraut. Það var við Breiðafjörð og við Mývatn. Skyldi ekki þessi sögn hafa haft við rök að styðjast? Þá heyrði ég og þá sögn, að í einu harðæd hafi fjöldi fömmanna um sumarið sest að á Geiteyjarströnd, sofið undir bemm himm í skjóli í hraunkömbunum þar við túnjaðar. Geiteyjarströnd var ein gjöfulasta veiðistöð við Mývatn (fyrirdráttur). Silungurinn var þá tekinn beint úr dráttametinu og soðinn í stómm potti eða pott- um á hlóðum undir bemm himni, og bjargaði á þann hátt lífi fjölda fömfólks. Ekki þótti mér sagan ósennileg. En Mývatn gaf fleira af sér til matbjargar en silunginn, ekki má gleyma eggjunum. Grímsstaðir vom ein allra mesta varpstöð við Mývatn, ef ekki sú mesta. En fleiri jarðir stóðu ekki langt að baki, svo sem Kálfa- strönd, Reykjahlíð, Skútustaðir, svo og bújarðir á Nesiandatanga, en hlunnindi af eggjatöku var á öllum jörðum umnverfis vatnið, svo og ýmsum þeim er fjær lágu vatninu í sveitinni. Aldrei vom skilin færri en 4 egg eftir í hreiðri, 5 hjá húsönd, og þaðan af fleiri ef í hreiðrinu vom á annan tug eggja eða meir. Nú fyrir skemmstu átti ég tal við Ragnar Sigfmnsson bónda á Grimsstöðum, en hann hefur áttþar heima allan sinn ald- ur, nú á attræðisaldri. Hann sagð- ist hafa skrá yfir eggjatöku á Grimsstöðum allt frá síðustu alda- mótum fyrir hvert ár. Lægsta tala sem þar er að finna var sex þúsund egg, sú hæsta sextán þúsund, al- gen^ast 9, 10-12 þúsund. Það er dágoð búbót á þeim tímum þegar spurpingin stóð um það að hafa að éta. Eg vil þá næst reyna að draga upp mynd af því hversu Mývatn var fiskiauðugt og nytjadijúgt eins langt aflur og ég hef gögn og sagn- ir um, eða fra upphafi nitjándu ald- ar. Stefán Steíansson hét maður, bóndi í Ytri-Neslöndum til dauða- dags, fæddur í Haganesi 1854, dá- inn 1929. Hann var maður gagn- merkur og vel gefinn, og vel ritfær. Hann haföi brennandi áhuga fyrir veiðiskap í Mývatni, og einn af frumkvöðlum að ræktun þess. Hann var einn af stofnendum Veiðifélags Mývatns, 1905, og lengi formaður þess, en félagið hafði að markmiði að hamla gegn ofveiði, smásilungsdrápi og skeíjalausri veiði riðasilungs. Og svo það sem er merkilegast, til- raumr með klak. Úr bréfi til vinar síns í Vesturheimi, sennilega skömmu fyrir 1920, getur Stefán þess, að þá sé búið að klekja út og sleppa í vatnið yfir 1.000.000 seiða. Þá var ekki nema einn mað- ur lærður í landi hér í þessum fræðum, Bjarni Sæmundsson. Stefán var í bréfasambandi við Bjama um mörg ár, og sótti Bjami heimildir til Stefáns í sínu vísinda- starfi. Eftir Stefán liggur í handriti löng og mikil ritgerð um Mývatn og verður ekki á einum stað fund- inn jafn margvíslegur fróðleikur um þau mál. Það kemur fram í þessari ritgerð, að mjög hefur veiði í Mývatni verið misjöfn á 19du öldinni, og margir velt fyrir sér orsökum þess. Hann rökstyður þá skoðun sma, að veðurfar hafi ráðið hér mestu um, sveiflumar stafað af því að klaki hafi vegnað misvel, og þar ráði veðurfar mestu. Þannig telur hann að í hörðustu vetmm vegni klaki best, mikil ísalög veiti hrygningarstöðv- um hlífð gegn veðmm og veiði- sókn. Þannig telur hann að sú óhemju silungsmergð sem var í vatninu á sjöunda tug nítjándu ald- ar hafi verið að þakka hinum al- ræmda snjóþyngsla vetri 1858- 1859. Mér finnst þessi kenning hans skynsamleg, sem um leið dregur úr líkum á því að átuskort- ur, þ.e. hmn í lífríkinu sé orsökin á þessum tíma. Stefán segir að það hafi verið mál manna að þessar sveiflur í silungsmagni hafi kom- ið á sjö ára fresti, eða svo. Hann telur að fyrstu 30 ár nítjándu aldar hafi yfirleitt verið mögur ár. Síðan góð veiðiár allt til 1880. Þá var lægð sem ekki stóð þó lengi, og svo önnur 18^3, en glæddist svo um aldamót. A sjöunda tug þeirr- ar aldar er svo í Mývatni su mesta mergð silungs sem heimildir em til unt. Bæði getur Stefán þess í sinni ritgerð, og þar á ofan hef ég í fór- um mínum skráða heimild sem lýsir þessu nánar. Tek ég hana hér orðrétta upp, en hún hljóðar svo: „Skrifað af Jakobi Hálfdánar- syni upp af blöðum frá Pétri Jóns- syni í Reykjahlíð. Vorið 1867 kom hér sú mesta dorgartekja er menn mundu eftir, byrjaði úr sumannál- um og hélst til fardaga. Kunnugur maður er var við tekjuna, sagði mér, að dorgvciðimönnum hefði talist til, að veiðst heföu á dorgina 150 þúsund, og sögðu í það minnsta talið. Það heföi daglega setið á dorg 50-60 manns, og sá þótti ekki veiðimaður er veiddi ekki 100 á dag. Heppnari menn veiddu 200. Ytri-Neslanda bræður 3 veiddu 700 einn dag. Það hefði byijað að veiðast á Gýgjarpolli og svo öllum Fremriflóa, mest utantil, og Neslandavík seinast. Allt góð- ur flóasilungur. Vorið 1869 var og góður veiðiskapur, og kallaður jafnasti og besti veiðiskapur, bæði á dorg og sérilagi á dráttum, og var látið burt úi^sveitinni mikið af honum, gefið og selt, austur á Fjöll og inn í Fnjóskardal, og hvað mest í hinar nærliggjandi sveitir, því hungur var miktð. Ekkert hafskip komst hér í höfn fyrr en 18 vikur af sumri. Ekki man ég fyrir víst, hvort hitasilungur kom þessi ár, er þó nær að halda að svo hafi verið 1864-1866.“ En hverfum nú aftur til heim- ilda sem sækja má til Stefáns í Ytri-Neslöndum. 1 tímaritinu And- vara ritar Bjami Sæmundsson ýt- arlega um fiskirannsóknir 1921- 1922. Þar birtir hann langt og ýtar- legt bréf frá Stefáni um veiði í Mý- vatni á 19. öld. Til viðbótar því sem fyrr er hér skráð úr blöðum Péturs i Reykjahlíð tek ég hér upp efiirfarandi úr bréfi Stefáns sem skýrir enn frekar það óhemju sil- ungsmagn sem verið hefur í Mý- vatni á 7. og 8. áratug 19. aldar. Hinn tilvitnaði kafli hljóðar svo: „...Þessi veiði, sem þama byrjar (1864, innskot mitt) mátti heita að stæði óslitið fram að 1874. Mest var hún 1868 og 1869. Þá var ógnin öll, sem drepið var, og talan víst gífurleg, því engu var þyrmt, smáu né stóru. Engar skýrslur em yfir ársveiði á þessum ámm, en ég man, að við töldum ofl saman það sem hópurinn veiddi á dorginni yf- ir dagmn, (hann var oft 60-70 manns) og það skipti þúsundum, víst frá einu upp í 4-5 þúsund, og svo fyrirdráttar aflinn ársins hring. A þessum árum man ég veiddist á sumrin í Haganesi og mörgum flciri bæjum 1-2 þúsund á solar- hring, langan tíma fyrri part sum- arsins og lagnetaveiði mikil seinni part sumars og vetrartímann fram- an af. Mér er ómögulegt að álíta, að á þessum ámm sumum hafi veiði verið innan við 100-200 þús- und, máske meira, ögn mismun- andi að vísu, en alltaf góður afli áratuginn út, eða frá 1867-1874. Þá fer veiðinni að hnigna, en þó nokkur veiði til 1880. Þá kemur hitasumar svo mikið, að bæði drepst víst töluvert af silungi og líka mikið drcpið við uppsprett- umar, svo að 30 hestburðir af hon- um var farið með í einni lest frá Geiteyjarströnd og Kálfaströnd, eftir því sem Þ. Thoroddsen segir í Ferðabók (1. bd.). Hér kemur því næstu árin mikill bláþráður í veið- ina. Nokkur afli fer þó að verða í vatninu 1886, og til 1893. Þá minnkar veiðin enn um nokkur ár; en rétt fyrir aldamótin var mikilí nýgræðingur í vatninu, en sá ný- græðingur fékk ekki að veita mikla framtíðarveiði,því hann var drepinn umvörpum, bæði á dorg og dráttum, svo sagt var að á ein- um bæ hafi verið drepin 30 þús. af þessum smáka, sem þurfti 50-70 til árð gera krónuvirði, og sjá allir, hve mikil skammsýni það var að Einar Valur Ingimundarson AF AÐSKILJANLEGUM NATTURUM drepa hann svona ungan, því eflir eitt ár hefði hann verið orðinn helmingi verðmeiri. Engar öfgar tel ég þó áætlað væri, að þá hafi verið arepið af þessum smaka, og auðvitað eitthvað af stærri silung - á þessu ári - rétt fyrir aldamótin (hef ekki ártalið) yfir 100 þús. úr vatninu. Um aldamótin 1900 taka við hinar lögboðnu skýrslur og taka þær af manni ómakið að þurfa að segja meira um veiðina í þau 20 ár sem liðin eru af 20. öldinni.“ Svo mörg eru þau orð, og næsta ótrúleg í eyrum þeirra er ekki muna né þekkja auðlegð Mý- vatns lengra aftur en til 1970, en þá verða hin skörpu skil og um- skipti sem að verður vikið í lok þessarar samantektar. Eins og ffarn hefúr komið í bréfi Stefáns, sem hér var vitnað til, þá taka við lögboðnar veiði- skýrslurum aldamótin 1900. Sam- kvæmt þeim hefur meðalársafli frá 1900 til 1972 verið 36 þúsund. Mun hér síst oflalið, því ef ein- hveiju skeikar með skýrslur hvers bónda, mun það lfemur vera í þá áttina að vantalið sé. Svo virðist, að veiðin hafi ekki farið niður fyr- ir 14 þús. ársafla, eða þar um bil. Langmestu veiðiárin voru upp úr 1920, og var þá ársafli í kringum 100 þúsund 2 eða 3 ár í röð. Svo langt sem ég man og var orðinn þátttakandi í veiðiskap, eða ffá 1930, man ég ekki eflir nokkru ári sem kalla mætti sérlega lélegt veiðiár, þar til eftir 1970, sem nán- ar verður að vikið. En auðvitað var veiðin mismikil eins og ætíð hlýt- ur að verða, enda getur margt komið til fleira en mismikið sií- ungsmagn í vatninu, svo sem veiðisókn sem mjög er háð veður- fari, svo og mannafla á hverri veiðijörð. Þegar ég lít yfir liðna tíð á minni veiðimannsævi, þá full- yrði ég að mergð silungs hafi ver- íð margföld í Mývatni allt ffam til 1970, á við það $em verið hefur síðastliðin 20 ár. Eg fullyrði einn- ig, að síðan 1970 hefur nrygning- arstofninn ekki verið yfir 10% af því sem áður var, ef það nær þvi einu sinni. Hrygningarstofnmn segir mjög til um silungsmagniþ í vatninu, sýnist mér augljóst. Eg fylgdist mjög náið með þessu yfir hrygningartímann, því fyrir landi Garðs eru eitt af premur mestu hrygningarsvæðunum, hin heyra til Kálfaströnd og Geiteyjarströnd. Riðsilungsveiði var hér besta bú- bótin meðan hún var stunduð nærri óheft fram undir 1950. Auk þess hirti ég um klakhúsið í Garði um árabil. Af gögnum Stefáns í Ytri-Neslöndum varðandi 19. öld- ina, verður hvergi ráðið að honum hafí komið það til hugar varðandi sveiflumar í afla, að þar hafi mis- mikil áta í vatninu verið orsökin, eða honum og samtíðarmönnum dytti í hug átuskortur, hvað þá hrun í lífríkinu svo sem við höfúm orðið vitni að fjórum sinnum ffá 1970. Ekki virðist þetta heldur hafa komið í hug Bjama Sæ- mundssonar. Ekki fæ ég skilið að það heföi farið fram hjá svo glögg- um mönnum sem Bjama, Stefáni og fleiri bændum við Mývatn, ef hrun i lífríkinu heföi átt sér stað á borð við það sem við höfúm upp- lifað hin síðari ár. T. d. heföi fúgla- lífið sagt fljótt til ef um fæðuskort var að ræða, en hlunnindi af anda- varpi vom snar þáttur í afkomu fólksins á þeirri öld. Aldrei nefnir Stefán að silungur hafi verið hor- aður svo orð væri á gert. Það er skemmst frá að segja, að alla þá tíð sem ég man eftir haföi enginn það á orði að silung skorti fæðu í Mý- vatni, fyrr en 1970 er fyrsta hmn- ið varð í líffikinu og svo hvert af öðm. Þessu til sönnunar er það, að fram að þeim tíma beindist öll við- leitni Veiðifélagsins til að jafna sveiflumar með því að klekja út, friða riðasvæði og hamla gegn of mikilli veiðisókn. (Framhald að viku liðinni) Föstudagur 26. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.