Þjóðviljinn - 31.08.1991, Qupperneq 7
ElIÆNDAJR
AUmsión:
G. Pétur
Matthíasson
Ekkert lát
á átökum
í Júgóslavíu
Pravda
kemur
aftur
út í dag
Pravda kemur aftur út í
dag sem sjálfstætt dagblað,
en útgáfa þessa fyrrverandi
málgagns Kommúnista-
flokks Sovétríkjanna var
stöðvuð eftir misheppnaða
valdaránið í síðustu viku.
Hinn nýi ritstjóri blaðsins,
Gennadíj Selesnev, sagði á
fimmtudag að blaðið myndi
ekki taka afstöðu í pólitísk-
um málum, en neitaði þeim
orðrómi að Pravda kæmi út
undir nýju nafni.
Pravda þýðir sannleikur og
það eru blaðamennimir sem
koma til með að reka blaðið,
ekki flokkurinn, enda hefur
starfsemi hans verið stöðvuð.
Pravda var eitt nokkurra
dagblaða sem Boris Jeltsin
stöðvaði útgáfu á fyrir viku
síðan. Hann rak einnig yfir-
menn sovéska sjónvarpsins og
fféttastofunnar TASS og hafa
báðar þessar stofnanir þegar
tekið miklum stakkaskiptum. I
rétta viku hefur Pravda ekki
komið út og er það í fyrsta
skipti sem slíkt gerist síðan í
byltingunni 1917. Jeltsín ásak-
aði blaðið um að hafa tekið
undir með harðlinumönnum
og áttmenningum neyðar-
nefndarinnar með því að birta
umyrðalaust yfirlýsingar
nefndarinnar. Gorbatsjov sá
ekki ástæðu til að breyta til-
skipunum Jeltsíns um stöðvun
útgáfunnar. Nokkrir þingmenn
Æðsta ráðsins hafa kvartað
undan ofsóknum á hendur
blaðamanna sem tengdir em
Kommúnistaflokknum.
Reuter
Skar eyra af
konu sínni
Dómstólar í Kenýa dæmdu
mann á dögunum í sjö mánaða
fangelsi fyrir að hafa skorið
eyra af konu sinni. Atburður-
inn átti sér stað klukkan 11 um
morgun þegar maðurinn kom
heim til konunnar sem upplýsti
hann um að hún hefði ekki
tekið til mat handa honum.
Rétturinn i hafnarborginni
Mombasa dæmdi manninn
einnig til að þola tvö högg
með reyrpriki sökum grimmd-
ar hans.
rátt fyrir hvatningu frá al-
þjóðlegum stofnunum og
erlendum ríkjum hefur
ekki tekist að halda vopnahlé í
Júgóslavíu. Bardagar héldu
áfram i gær og serbneskir her-
menn tilkynntu að þeir hefðu
drepið 25 króatíska þjóðvarðliða
í Tupuskó sem er rétt innan við
landamæri Serbíu í Króatíu.
Sjónvarpið í síðarnefnda lýð-
veidinu tilkynnti að gagnárás
hafi þegar verið gerð.
Bardagar þessir brutust út eftir
stutt hlé á bardögum en Francois
Mitterrand Frakklandsforseti hafði
þá átt fundi með forsetum Króatíu
og Serbíu. George Bush Banda-
ríkjaforseti hafði hvatt til þess að
skilyrðislausu vopnahléi yrði kom-
ið á. Þá mótmæltu mæður í öllum
helstu borgum Júgóslavíu í gær -
þær kröfðust þess að fá syni sína
heim.
Áfram var barist af hörku um
bæinn Vukovar í Króatíu sem sam-
bandsherinn júgóslavneski og
Serbar hafa reynt að ná á sitt vald
Mið-Asíu lýðveldið Az-
erbajdzhan varð í gær
sjötta lýðveldi Sovétríkj-
anna til að lýsa yfír sjálfstæði
eftir valdaránið. Ályktun um
sjálfstæði var samþykkt ein-
róma. Minnt var á í ályktuninni
að á árunum 1918 til 1920 hafí
Azerbajdzhan verið fullvalda,
sjálfstætt ríki og að með ályktun-
inni sé þessi staða áréttuð.
En þingftilltrúamir lýstu einnig
áhuga sínum á að styrkja tengslin
hvortveggja við önnur lýðveldi
Sovétríkjanna sem og erlend riki.
Þá afnam þingið herlög sem sovét-
stjómin setti á í höfuðborginn
Baku í janúar í fyrra.
Lýðveldið er talið eitt af þeim
afturhaldsömustu í Sovétríkjunum
og hefur að jafnaði stutt Kremlar-
stefnuna.
Nú hafa auk Eistlands og Lett-
nú í sex daga. í gær var tilkynnt
um þó nokkurt mannfall í viðbót
við þjóðvarðliðana en engar áreið-
anlegar upplýsinagar era til um
tölu fallinna. En að minnsta kosti
300 manns hafa nú látið lífið í
borgarastyijöldinni siðan Króatía
og Slóvenía lýstu yfir sjálfstæði
sínu 25. júní.
Evrópubandalagið, Ráðstefhan
um öryggi og samvinnu í Evrópu
og hið valdalitla forsætisráð Júgó-
slavíu hafa öll boðað til fundar á
þriðjudag en þá á að reyna til
þrautar að fá Króata og Serba að
samningaborðinu. EB hefur og lagt
fram nýja ffiðarlausn í málinu sem
Króatía, Slóvenía, Makedónía og
Bosnía-Hersegóvína fögnuðu
strax. Enn hefur ekki heyrst frá
Serbíu eða Svartfjallalandi.
Rróatinn Stipe Mesic sem stýr-
ir forsætisráðinu var ekki bjartsýnn
á útkomu neyðarfundanna og sagði
að sambandsherinn væri stjómlaus
og því væri næsti fnndur ráðsins sá
síðasti þar sem möguleiki væri á
að gripa í taumana. Reuter
lands, Úkraina, Hvíta- Rússland og
Moldavía lýst yfir sjálfstæði. Það
höfðu Litháen, Armenía og Georg-
ía gert fyrir valdaránstilraunina.
Þannig hafa níu lýðveldi af 15 lýst
yfir sjálfstæði og íjögur vilja algert
sjálfstæði, þ.e. Eystrasaltsríkin og
Moldóvía sem heftir áhuga á að
tengjast Rúmeníu.
Sovétstjómin heftir ekki viður-
kennt eina einustu sjálfstæðisyfir-
lýsingu en Rússland hefur viður-
kennt sjálfstæði Eystrasaltsríkj-
anna. Æðsta ráð Sovétríkjanna
samþykkti í vikunni að sjálfstæði
Eystrasaltsríkjanna yrði rætt á
aukafundi Fulltrúaþingsins í næstu
viku. Fulltrúaþingið samanstendur
af rúmlega 2.000 fulltrúum, það
velur Æðsta ráðið og getur breytt
stjómarskrá Sovétríkjanna.
Reuter
Azerbajdzhan
lýsir yfir sjálfstæði
Fáni og skjaldarmerki Rússlands
Iþeim miklu hræringum sem
verða nú í Sovétríkjunum eru
tákn og fánar tekin niður,
myndastyttur brotnar - og í stað-
inn eru uppi höfð tákn og merki
sem venjulega eiga ætt að rekja
aftur fyrir byltinguna 1917.
Rússneski fáninn sem Jeltsín
hefur tekið upp er sami fáninn og
rússneska keisaradæmið notaði:
hvítur, rauður og blár; í honum era
reyndar sömu litir og í næstum því
helmingi allra þjóðfána sem ein-
hveija sögu eiga. (Sömu litir era í
fánum Bretlands, Frakklands,
Bandarikjanna, Kúbu, Tékkóslóv-
akiu, Chile, íslands, Noregs, Fær-
eyja, Hollands, Júgóslavíu, Pan-
ama, Costa Rica, Thailands og all-
margra ríkja í viðbót).
Ekki vitum við hve gamall fán-
inn er, en söguleg málverk benda
til þess að hann sé að minnsta kosti
jafngamall Pétri mikla (upphaf 18.
aldar). Það er ekki svo undarlegt
þótt gamli rússneski fáninn sé upp
aftur tekinn, eins þótt hann hafi
ekki beinlínis verið frelsistákn
(eins og sá franski til dæmis). Hitt
er þó skrýtnara þegar menn gátu
séð það í sjónvarpi að verið var að
draga hið gamla skjaldarmerki
Rússlands upp á vegg rússneska
þingsins.
Skjaldarmerkið er nefnilega al-
farið skjaldarmerki keisarans.
Uppistaða þess er tvíhöfða öm,
sem kominn er frá Býsans; hann
táknar það að Rússakeisarar töldu
sig arftaka hins austurrómverska
keisaradæmis og einu sönnu
vemdara réttrúnaðarkristindóms.
Hér og þar á þessum stóra emi
vora svo minni skjaldarmerki sem
táknuðu einstök lönd eða lendur
keisarans. Og allnokkur þeirra hafa
nú um skeið verið sjálfstæð riki.
Rússakeisari var ekki aðeins „af
guðs náð keisari allra Rússa, Litlu-
Rússa (Úkraínumanna - og eitt lítið
skjaldarmerki þar), Hvítrússa
(skjaldarmerki þar). Hann var líka
konungur Póllands (einn skjöldur
enn) og stórhertogi Finnlands
(merki um það).
Það er svo arfur frá bolsévikum
þegar menn Jeltsins steypa nú
styttum af stalli. Bolsévikar felldu
og bræddu upp eftir byltingu allar
styttur af keisurum og generálum
þeirra, nema þær væra sérstök ger-
semi að smíði. Þeir létu þó Pétur
mikla alltaf standa á sínum stað.
Á sovéttímanum heftir líka ver-
ið mikið um að teknar væru niður
styttur af byltingarmönnum og
öðram höfðingjum sem fallið
höfðu í ónáð - fyrst urðu andstæð-
ingar Stalíns fyrir barðinu á þessu
og svo Stalín sjálfur. Enda er til
rússnesk skrýtla sem segir, að nú
hafi verið ftmdnir upp minnisvarð-
ar sem spari mikið fé - það sé
nefnilega hægt að taka af þeim
hausinn og skrúfa nýja á í staðinn.
Einn slíkur sést með Klippi á bls. 2
í blaðinu í dag.
ÁB tók saman.
jL SIS _*
Visv*
Öskast f eftirtaldar bifreiðar og tæki sema verða til sýnis þriðju-
daginn 3. september 1991 kl. 13 - 16 f porti bak við skrifstofu
vora að Borgartúni 7, Reykjavík og vfðar.
2 stk. Toyota Land Cruiser Stw
2 stk. Mitsubishi Pajero
1 stk. Dodge Ramcharger
1 stk. Toyota Hi Lux double cab
1 stk. Toyota Hi Lux
1 stk. Nissan Patrol
2 stk. Chevrolet Suburban
1 stk. Nissan Double Cab
1 stk. Chevrolet pick up
1 stk. G.M.C. Rally Van
1 stk. Volvo Lapplander
4 stk. Lada Sport
2 stk. Subaru 1800 station
6 stk. Toyota Tercel station
1 stk. Mitsubishi L-300 Mini bus
2 stk. Mitsubishi L-300 sendibifr.
1 stk. Volkswagen Double cab
1 stk. Mazda 929 GLXI
1 stk. Saab 900 I
1 stk. Hanomac Matador sendibifr.
1 stk. Fiat 127 Gl bensín
1 stk. Kawasaki KZ mótorhjól
4x4 diesel
4x4 diesel
4x4 bensin
4x4 diesel
4x4 bensín
4x4 diesel
4x4 bensfn
4x4 diesel
4x4 bensfn
4x4 bensín
4x4 bensfn
4x4 bensín
4x4 bensfn
4x4 bensin
4x4 diesel
4x4 bensln
bensín
bensfn
bensín
bensfn
Til sýnis hjá Vegagerð rfkisins Akureyri
1 stk. Subaru 1800 Dl station 4x4 bensfn
1 stk. Mazda E 2200 Double cab diesel
1 stk. Ford Econoline E-150 sendibifreið bensín
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins Reyðarfiröi
1 stk. Ford Econoline E-150 sendibifreið bensín
Til sýnis hjá Vegagerð rfkisins Grafarvogi
1 stk. Zetor 10145 dráttarvél 4x4 diesel
1985-88
1985- 86
1984
1986
1986
1985
1982-83
1985
1980
1978
1980
1986- 88
1985-86
1985-88
1988
1985
1984
1988
1987
1970
1985
1982
1988
1987
1981
1981
1986
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16:30 að viðstöddum bjóð-
endum.
Réttur er áskilinn til aö hafna tilboðum sem ekki teljast viöunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. ROSTHOLF 1450. 125 REYKJAVIK
Frá Grunnskólum
Reykjavíkur
Grunnskólar Reykjavíkur hefja starf í byrjun septem-
ber. Kennarafundir heljast í skólunum mánudaginn 2.
september kl. 9 árdegis.
Nemendur komi í skólana fimmtudaginn 5. septem-
ber sem hér segir:
10. bekkur komi ki. 9
9. bekkur komi kl. 10
8. bekkur komi kl. 11
7. bekkur komi kl. 13
6. bekkur komi kl. 13:30
5. bekkur komi kl. 14
4. bekkur komi kl. 14:30
3. bekkur komi ki. 15
2. bekkur komi kl. 15:30
Nemendur 1. bekkjar (börn fædd 1985) hefja skóla-
starf mánudaginn 9. september en verða boðaðir til
viðtals með foreldrum, hver í sinn skóla.
Nemendur Fossvogsskóla komi í skólann mánudag-
inn 2. september skv. ofangr. tímatöflu.
Styrkir tii
kvikmyndagerðar
Kvikmyndasjóður íslands auglýsir eftir umsóknum um
styrki til kvikmyndagerðar.
Umsóknir skulu sendar Kvikmyndasjóði fyrir 1. nóv-
ember 1991, á umsóknareyðublöðum sjóðsins ásamt
handriti, kostnaðar- og fjármögnunaráæt'un.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu Kvikmyndasjóðs, Laugavegi 24, 101 Reykjavík.
Kvikmyndasjóður íslands
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur31. ágúst 1991