Þjóðviljinn - 06.09.1991, Side 5

Þjóðviljinn - 06.09.1991, Side 5
Helgarvagg Skid Row félagarnir eftir sessjón á hárgreiðslustofu. og þá varð rokk í höllinni S k id Row - Slave to the grind (Arista 1991/Stcinar) Það er auðvelt að skilja hvers vegna Skid Row höfða til ungmenna heims- ins. Þar er á ferð sama lögmálið sem gerir kókakóla að vinsælasta drykk heimsbyggðarinnar. Skid Row hafa það þó framyfir kók að vera ekki dí- sætir og skemma ekki tennurnar. Það sem gerir Skid Row vinsæla er kraftur- inn og vanabindandi melódíurnar sem grassera í lögunum. Eg þekki Nonna Ben sem vinnur á bens- ínstöð. Þegar hann er búinn að dæla fer hann heim og setur Skid Row á fóninn. Þegar gít- aramir væla og Sebastian Bach rekur upp gól fær Nonni gæsahúð og lemur veggina af gleði. Það er sjálfsagt að Rokk hf fái jákvæðan stuðning fjölmiðla við fyrirmyndar rokkinn- flutning sinn, og þar sem ég hef hvorki mik- ið vit né áhuga á því „Sleaze“-rokki sem Skid Row flytur, þótti mér við hæfi að fá Nonna Ben til að segja nokkur orð um plöt- una. Yfir til þín, Nonni! Fyrsta plata Skid Row var dúndur, en þessi, þeirra önnur, er jafnvel enn betri. Hér er krafturinn meiri, spilamennskan þéttari, lagasmíðamar betri og textamir falla eins og flís við rass. Vinsældir Skid Row hafa byggst upp hægt og bítandi síðan þeir fóm að djamma saman í hljóðfærabúð í New Yersey. Fyrst var það Jon Bon Jovi sem kom sveitinni í gang með sífelldum yfirlýsingum um ágæti þeirra, en upphitunardjobbið með Guns N'Roses, líklegast vinsælustu rokk- sveitinni i dag, hefur fest þá endanlega í sessi. Rachel Bolan bassaleikari og gítarleik- arinn Dave „the Snake“ Sabo eiga heiðurinn af öllum lögum plötunnar. Af tólf lögum em aðeins þijár ballöður, afgangurinn er keyrsla á háu stigi. Sebastian er með betri söngvur- um í þungarokkinu í dag og gítarsólóar „Snáksins" nálgast fullkomnun. Það er erfitt að gera upp á milli laganna, en af tólf frá- bæmm era þrumamir Monkey business og The Threat, og ballaðan Quicksand Jesus best. Nú em Skid Row komnir til landsins og spila í Laugardalshöll í kvöld og annað kvöld. Mér tókst að lauma mér inn á æfingu hjá þeim og get fullyrt að enginn verður svikinn. Sviðsframkoma sveitarinnar er orð- in hrikalega góð og tilkomumikil, enda bandið búið að búa í rútu síðustu árin og spila á næstum því hveiju kvöldi. Þeir segj- ast ætla að leggja sig fram 500% hér, og því trúi ég, enda hefur hljómsveitin hingað til staðið við gefin loforð. v a g g - t í ð i n d i Það er ekkert lát á erlendum stór- heimsóknum á popp- og rokksviðinu. Skid row rokka stíft I Höllinni um helg- ina. Amina skemmtir á Hótel Islandi á fimmtudaginn, og sama kvöld treður upp í fyrsta skipti hérlendis breska fönk/rokk-sveitin Govemment á Púlsin- um. Govemment mun troða upp á Púls- inum fimmtudags-, föstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöld og leika eigin tónlist auk nokkurra David Bowie laga. Government segjast vera að kanna „dekkri hlið fönksins” og þeim hefur ver- ið líkt við Defunkt, Red hot chili peppers og djassaða útgáfu af P.I.L. Meira um Govemment í næsta vaggi... Vinir Dóra blúsa á Púlsinum í kvöld og annað kvöld, og á sunnudagskvöldið gangast þeir fyrir „Ljóða- og blúskvöldi" ásamt Hrafni Jökulssyni. Þar verður leitast við að láta „Ijóðin svífa á þöndum blúsvængjum inn í vitund Ijóðelskandi blúsunnenda". Hrafn mun kynna nýj- ustu Ijóðabók slna, „Húsinu fylgdu tveir kettir", og nota tækifærið og kveðja vini slna, því hann er á leið til Frakklands til að skrifa nýja bók. Vinir Hrafns þetta kvöld: Einar Kárason, Einar Már Guð- mundsson, Guðmundur Andri Thors- son, Kristján Þórður Hrafnsson og Jón Stefánsson lesa upp auk Hrafns, en vinir Dóra þetta kvöld verða: Andrea Gylfadóttir, Guðmundur Pétursson, Ás- geir Óskarsson og Haraldur Þorsteins- son... My Bloody Valentine er ein besta hljómsveit sem hefur komið frá Eng- landi I mjög langan tima. Nú er loksins von á þeirra þriðju plötu og hefur hún þegar kostað 250.000 pund I fram- leiðslu... Vegna samninga sem tekist hafa milli Borgarleikhússins og trúbadorsins góðkunna HarðarTorfa mun Hörður halda sinn árlega konsert fyrsta föstu- daginn I septem- ber I stóra sal Borgarleikhússins. (kvöld em fyrstu árlegu tónleikar Harðar. Fyrir hlé kemur hann einn fram og flytur göm- ul og ný lög, en eftir hlé fær hann til liðs við sig tvo gítarleikara, Guð- mund Pétursson og Harald Reynis- son sem einnig raddar með Herði. Þau nýju lög sem Hörður flytur koma flest út á nýjum geisladiski og snældu sem er væntan- leg með haustinu. Nú er hægt að kaupa Ijósrit af erfðaskrá Elvis Presley. Betty Johnson sem býr I Florida varð sér úti um eintak af erfðaskránni og selur nú hvert Ijósrit á 22 dollara. Áhugasömum er bent á auglýsingar frá Betty I dagblaðinu USA Today... U2 eru um þessar mundir að leggja slðustu hönd á sína áttundu plötu. Eftir- vænting aðdáenda hefur verið mikil, en nú er staðfest að platan komi út í októ- ber. Liklegt er að hún muni heita ,Ac- tung baby“. U2 eiga lag í nýjustu kvik- mynd Wim Wenders, titillag myndarinn- ar „Until the end of the world". Það lag verður einnig á nýju plötunni... Næsta plata gulldrengsins Michael Jackson mun heita „Dangerous" og fyrsta smáskífan af plötunni verður „Black and White“. Michael gerði mynd- band við lagið nýlega, og í því kemur einnig fram nýjasti vinur hans, Macaul- ey Culkin, barnastjaman úr Home Al- one... Það er mikið um að vera hjá sjúsk- uðustu rokkabíllísveit samtímans, The Cramps. Fyrirtæki þeirra Enigma fór á hausinn, svo þeir hafa skrifað undir hjá fyrirtækinu Big Beat. Mannabreytingar hafa orðið: trommarinn Nick Knox, sem hefur verið með frá upphafi, er hættur, svo og bassaleikarinn Candy Del- mar. Kynnt verður nýtt riþm^par innan tíðar. Nýjasta plata The Cramps kemur út 30. september og mun heita „Look mom, no head“, en 16. september kemur út smásklfan „Eyeball martini“... Amina kemur Franska gyðjan og söng- konan Amina leikur á Hótel íslandi nk. fimmtudags- kvöld, þann tólfta. Þetta eru fyrstu tónleikarnir sem koma úpp úr miklu fransk/íslensku rokk/popp samstarfi sem lagður var grunnur að í fyrra eftir heimsókn franska menningarmálaráðherrans Jack Lang til íslands. í októ- ber fáum við aðra franska sendingu, en Frakkarnirfá íslenskt rokk í æð um eða eftir aldamótin. Foreldrar Aminu eru inn- flytjendur frá Túnis, en Amina hefúr alla tíð búið í Paris. Tón- listin, sem hún semur að megn- inu til, er undir sterkum þjóðleg- um áhrifum. Þar blandast alda- gömul strengjanotkun N-Afríku þjóðanna saman við vestræna danstónlist með mjög sérstökum og skemmtilegum árangri. Tón- list Aminu má setja í samband við RAI-tónlistarbyltinguna. í henni tóku n-afrískir tónlistar- menn það besta úr sinni æva- fomu tónlistarhefð og blönduðu við ýmis vestræn áhrif. Textam- ir breyttust líka, í stað þess að syngja um hjarðir á beit urðu textamir róttækir og fjölluðu um ýmsar breytingar á Araba-heim- inum, að konur tækju af sér blæjuna o.s.frv. Amina hóf feril sinn í kring- um 1982, en fór fyrst að vekja verulega athygli fyrir um 4 ár- um. Stórfyrirtækið Phonogram gaf út með henni plötuna YAL- IL 1989 sem er eina breiðskífa hennar til þessa. YALIL fékk ífábæra dóma, og eitt lag á plöt- unni, Bellydance, sem notast við búta úr James Brown-laginu Cold sweat, náði langt, varð t.d. mjög vinsælt í danshúsum í Bandaríkjunum. Eftir að athyglin í kringum YALIL hafði fjarað út varð hljótt um Aminu í nokkum tíma, þar til hún birtist á hvíta tjaldinu í fyrra í mynd Bertolucci (Síð- asti keisarinn) „Te í Sahara“. í fyrri myndinni leikur Amina á móti John Malcovitch og vöktu ýmis djörf atriði mikinn úlfaþyt. Skömmu eftir að myndin hafði verið frumsýnd var leitað til Aminu og hún beðin um að syngja lag Frakklands i Euro- vision-keppninni 1991. Lag Aminu var að mínu mati það eina fmmlega í keppninni í ár. Amina lenti i öðm sæti, varð að láta í minni pokann fyrir glans- rottulagi frá Svíþjóð. Eftir vel- gengni Aminu í keppninni var YALIL endurútgefin og hefur platan selst jafn vel nú í annað skiptið. Titillag plötunnar var gefið út á smáskífu og hefur gert það gott í sumar. Tónleikar Aminu hér eru einsdæmi. Þetta em fyrstu tón- leikar hennar síðan hún söng í Eurovision og einu tónleikar hennar í langan tíma, því þegar hún snýr heim til Parísar hcfjast upptökur á nýrri breiðskífu. Hingað kemur Amina ásamt sjö manna hljómsveit. Eins og áður segir verða tónleikar Aminu á Hin fagra Amina söng lag Frakklands i Júróvisjón árið 1991. Hótel íslandi nk. fimmtudag og er miðasalan þegar farin í gang í búðum Japis í Brautarholti og Kringlunni og í búðum Steina á Laugavegi og í Austurstræti. Á fimmtudaginn opnar húsið kl. 21 og upphitunarhljómsveit kvölds- ins, hinir máttugu Júpiters gleði- menn, stíga á stokk kl. 22. Amina er kærkominn sólar- geisli í íslenska haustdoðanum. Sem flestir, þ.á m. þeir sem sáu Salif Keita og Les Negres Vert- es í fyrra, ættu að gera sér glað- an dag og fjölmenna á Hótel ís- land á fimmtudaginn. Gunnar L. Hjálmarsson skrifar NYTT HELGARBLAÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1991 Hörður Torfason

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.