Þjóðviljinn - 06.09.1991, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 06.09.1991, Qupperneq 15
F R É T T I R Frá rektoraskiptum við Háskóla íslands i gcer. Mynd: Kristinn Vdxandi misskipting þjóbartekna „Við lifum nú á örlagatímum þegar þjóðin er uggandi um fram- tíðina, um stjórnmálalegt, efnahagslegt og menningarlegt sjálf- stæði sitt og um innri gerð þjóðfélagsins. Við upplifum nú örar breytingar í íslensku samfélagi, vaxandi misskiptingu þjóðar- tekna og þar við bætist ótti við þverrandi þjónustu velferðarkerf- isins sem auka mun enn á aðstöðumun ríkra og fátækra," sagði Sigmundur Guðbjarnason háskólarektor m.a. í kveðju- ræðu sinni við rektoraskipti I Háskóla íslands. Sigmundur sagði að þótt ýmsir hagffæðingar sjái allt efnahagslíf þjóðarinnar í klakaböndum þá fari því fjarri að ástæða sé til þess að óttast framtíðina. „Við eigum enn auðlindir okk- ar, fiskimiðin, orkulindir, óspillta náttúru og góða almenna menntun. Við þurfum sem þjóð vissulega að vinna markvissar og skilgreina okkar markmið og leiðir betur en áður og taka þá smærri skref ef þurfa þykir til að hrasa síður á grýttri leið atvinnuþróunar." Sigmundur ræddi um ár sín sem rektor og sagði að mikilvæg- asti árangur umbótaviðleitni há- skólans á þeim árum fælist í aukn- um innri styrk háskólans og auk- inni tiltrú almennings á skólanum. „Það reyndi á þennan innri styrk háskólasamfélagsins í endur- teknum stormasömum átökum við stjómvöld og einnig í kjarabaráttu háskólakennara þegar hagsmunir nemenda, skjólstæðinga Háskól- ans, voru hafðir í fyrirrúmi." Sveinbjöm Bjömsson, nýr rekt- or Háskólans sagði í upphafi ávarps síns að enda þótt auðlindir náttúm hafi veitt mörgum þjóðum dijúga búbót sé mönnum nú orðið ljóst að helsta auðlind hvers nú- tímasamfélags sé fólgin í mann- auði þess og þjálfun hans til ný- sköpunar. „Þær þjóðir sem búa við mesta hagsæld leggja því kapp á að hvetja ungt fólk til háskólanáms og rannsóknastarfa.“ Sveinbjöm ræddi vítt og breitt um hlutverk Háskólans m.a. það hlutverk hans að gegna forystu um varðveislu íslenskrar tungu og ný- sköpunar hennar. Síðan snéri hann sér að því að ræða um þá stefnu sem Háskólinn ætti að setja sér til næstu ára. „Reyndar er erfitt að festa hug- ann við þessa framtíðarsýn, þegar upp hrannast þau óveðursský sem móta almenna umræðu þessa dag- ana. Háskólinn skilur mætavel þá erfiðleika sem við er að glíma í rík- isfjármálum. Hann væntir einnig skilnings stjómvalda, að þörf þjóð- arinnar fyrir háskólamenntun fer ört vaxandi og Háskólinn er því í hröðum vexti og mótun. Háskólinn hefur reyndar gengið á undan með góðu fordæmi og getað með hag- ræðingu og spamaði í rekstri bætt við sig 600 nemendum eða sem nemur heilum framhaldsskóla, án þess að raungildi fjárveitinga til Háskólans hafi vaxið undanfarin Qögur ár. Lengra verður tæplega komist i almennri hagræðingu og frekari skurður íjárveitinga hlýtur því að leiða til takmörkunar á þeirri kennslu sem boðin er eða takmörk- unar á fjölda nemenda sem teknir em til náms. Hvort tveggja mundi beina nemendum til annarra landa til náms og auka byrði Lánasjóðs námsmanna. í umræðu þingflokka um væntanleg fjárlög hefur komið fram tillaga um skólagjöld sem lögð yrðu á nemendur til að mæta skertum rekstrarfjárveitingum til Háskólans. Háskólinn telur ekki ráðlegt að fara inn á þessa braut til að ná endum saman í rekstri skól- ans. Reynsla af slíkum gjöldum er að þau fara hækkandi með tíma og geta orðið veruleg hindmn fyrir efnaminni stúdenta og bammargar fjölskyldur," sagði Sveinbjöm. Af framtíðarverkefnum sem Sveinbjöm lagði áherslu á i ræðu sinni má nefna bætt launakjör há- skólamanna. „Að óbreyttum kjör- um getur Háskólinn ekki keppt við erlenda háskóla, eða fyrirtækr í at- vinnulífi hér, um hæfa menn til kennslu- og rannsóknastarfa.“ Hann nefndi mikilvægi þess að Þjóðarbókhlaðan yrði tilbúin hið fyrsta, því bókasafnsmál Háskól- ans væm í slæmu standi. Eitt stærsta verkefni komandi ára að hans mati er að endurbæta skipulag og stjómsýslu rannsóknastarfsemi Háskólans. Einnig þarf að bæta kennslu og aðbúnað nemenda og auka miðlun þekkingar til almenn- ings, en í því sambandi segir hann að Þjóðarbókhlaðan geti orðið eins konar menningarhús þar sem stöð- ug almenningsfræðsla fer fram. Að lokum sagðist Sveinbjöm vona að sá einhugur og bjartsýni sem eldmóður Sigmundar rektors hefur kveikt með háskólamönnum brenni enn um stund. -Sáf Eystrasaltsríkin á leið í EB? Utanríkisráðherrar Eystra- saltsríkjanna Eistlands, Lett- lands og Litháens sögðu í gær að ríki þeirra myndu leita eftir nán- ara samstarfl við Evrópubanda- lagið til að leysa hinn mikla efna- hagsvanda sem ríkin eru í. Ráðherramir þrír, Meri, Saud- argas og Jurkans funda með utan- ríkisráðhemim Evrópubandalags- ins í Bmssel í dag. Þeir vonast til að ná svipuðum samningum við Evrópubandalagið og það hefur þegar gert við Tékkóslóvakíu, Ungverjaland og Pólland. Meri sagði á fréttamannafundi í gær að samstarfssamningur á sviði efna- hagsmála myndi án efa hjálpa Eystrasaltsríkjunum að leysa efna- hagsvanda sinn. Búast má við að ef af sam- starfssamningi verður sé það að- eins íyrsta skrefið í átt að aðild að Evrópubandalaginu. Reuter/áþs. Lennart Meri utanrikisráðherra Eistlands í Reykjavík á dögunum. Mynd: Kristinn. Blaðberasr óskast Vantar blaðbera í nokkur hverfi í Hafnarfirði og Garðabæ. Vinsamlegast hafið samband í síma 681333 (Sveinþór), eða eftir kl. 17.00 í síma 653383. ÞJÓÐVIJJINN Söngfólk - kór Við Laugarneskirkju starfar 35 til 40 manna kór (stjórnandi Ronald V. Turner) sem getur bætt við sig söngfólki nú í vetur. Við leitum að 3 til 4 tenórum, 3 til 4 bössum og 2 til 3 altröddum. Æskilegt er að umsækjendur hafi grunnþekk- ingu í nótnalestri. Meðal verkefna vetrarins verða: Requiem, eftir Gabriel Faureé, módettur eftir Palestrina, Byrd og fleiri verk. Boðið verður upp á söngkennslu að kostnaðar- lausu í einkatímum eða smáhópum. Æfingar eru á miðvikudagskvöldum. Upplýsingar gefa Ron, sími 32518 (eða 679422) og Sigríður (36842). | B | FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR VII Síðumúla 39 — 108 Reykajvík — Sími 678500 Þroskaþjálfi - meðferðarfulltrúi Fjölskylduheimili fatlaðra barna, Akurgerði 20, ósk- ar eftir að ráða þroskaþjálfa og meðferðarfulltrúa. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi með fötluöum börnum. Um er að ræða 90% starf dag-, kvöld- og helgarvaktir og 35% starf við seinni- partsvaktir. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 681311 og 21682. Umsóknarfrestur er til 20. sept- ember n.k. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu- blöðum sem þar fást. SVTR Utboð Akstur í austurbæ Reykjavíkur með litium almenningsvögnum Á næstunni er fyrirhugað að hefja akstur í tilrauna- skyni með litlum vagni í gamla austurbænum. Skv. ákvörðun borgarráðs verður aksturinn boðinn út. Áskilinn verður réttur til að gera breytingar á akst- ursleið og tímaáætlun eftir því sem reynsla segir til um. Nánari upplýsingar og útboðslýsingu er að fá á skrifstofu SVR Borgartúni 35 Reykjavík gegn skila- tryggingu að upphæð kr. 2.000,-. Tilboðum óskast skilað á sama stað eigi síðar en 16. sept. n.k. Reykjavík4. sept. 1991 Strætisvagnar Reykjavíkur NÝTT HELGARBLAÐ 1 5 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.