Þjóðviljinn - 04.10.1991, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 04.10.1991, Blaðsíða 18
Krumminn á skjánum Kvikmynda- kvölin enn á ný Bíómynd Sjónvarpsins á fostu- dagskvöldið heitir Sex í svartholi. Myndin ijallar um fangauppreisn í hinu alræmda fangelsi á eynni Alc- atras. Eyja þessi er spölkom úti fyrir strönd San Francisco og geymdi lengi vel hættulegustu glæpamenn Bandaríkjanna. Því var heitið af borgaryfirvöldum að ef einhver slyppi úr prísundinni yrði fangelsinu lokað. Fangelsinu var ekki lokað vegna uppreisnarinnar sem sagt er frá í myndinni. Hún var kveðin niður af hörku. Þess má samt geta að fangelsið er ekki starfrækt í dag, en það er nú önnur saga. A Stöð 2 verða samkvæmt venju þrjár myndir á dagskrá. Fyrsta myndin heitir Xanadu. Kvikmyndahandbók Maltins gefur myndinni Tfr'/2 og segir hana ekk- ert sérstaka. Titillag myndarinnar gefur henni þó vissan sjarma, en það er lagið Magic með ELO. Ónnur myndin er I skjóli nætur, og fjallar um sálarstríð manns sem grunar að hann hafi framið morð. Málið er að hann missti minnið í mikilli sprengingu, þar sem morð hafði verið framið. En við skulum spyrja að leikslokum. Síðasta myndin er endursýning, hvað ann- að. Það er myndin Peter Gunn sem er enn aftur á dagskrá. Þar er íjallað um ævintýri einkaspæjara, en með hlutverk hans fer sjarmur- inn Peter Strauss. Drengurinn sá ætti kannski að geta hrist upp í ein- hveijum útvöldum, hver veit? Hver kannast ekki við gömlu konuna sem alltaf klæðist eins og barbiedúkka í hræðilega bleikum litum. Myndin Astin sigrar sem byggð er á sögu Barböru Cartlands verður fyrri mynd Sjónvarpsins á laugardagskvöldið. Og hver er efn- isþráðurinn? Auðvitað, ung kona mitt í hringiðu ástar og afbrýði, valdatafls og sviksemi. Það er hægt að slökkva á sjónvarpinu ef lesin hefur verið ein bók eftir gömlu konuna. Önnur mynd Sjón- varpsins er hins vegar lofuð af Maltin. Kvikmyndagagnrýnandinn sá gefur myndinni Hörkutól ifrtV V2, sem er ansi gott á þeim bæ. Hún fjallar um sjómann nokk- um sem lent hefur í útistöðum við stéttarfélagið sitt og misst vinnuna. Á rangli um hverfið sitt þar sem óaldarfiokkar ráða ríkjum er sjóar- inn frekar afskiptur. En þegar nokkrir vinir hans verða fyrir barð- inu á ribböidunum, tekur minn maður til sinna ráða og fer einn á móti óþjóðalýðnum. Það er ekki spurt að áræðninni, sjóarinn hlýtur að vera íslenskur. Og þá er það Stöð 2. Fyrst er það Réttur dagsins, en það er nafnið á fýrstu myndinni. Nú ættu unglingamir að geyma partíferðina og kíkja á uppáhaldið sitt Juliu Ro- berts, en hún fer með eitt af aðal- hlutverkunum. Annars er ekkert nýtt undir sólinni þegar horft er á efhisþráðinn, en myndin fjallar um 1)ijár stúlkur í sjávarþorpi sem enda í einhverjum ástarævintýr- um. Önnur myndin er frekar fyrir kvenfólkið, en þar er „kyntröllið“ Burt Reynolds i aðalhlutverki. Myndin heitir því frumlega nafni Bágt á Buder. Annað er ekki fhimlegt við myndina, en hún íjall- ar um einkaspæjara í einhveijum vandamálum. Þriðja myndin er Nátthrafnar. Ef upplýsingar Maltins em réttar er þama ágætis mynd á ferðinni og fær -&1ÍVV2. Þetta er bresk mynd frá árinu 1960 og er Robert Mitc- hum í einu aðalhlutverkanna. Fjórða og loksins síðasta myndin hjá Stöð 2 byijar laust fyrir ldukk- an þrjú aðfaranótt sunnudags. Tit- illinn er nógu spennandi, Kyn- þokki, en hvort efnið er á sama veg kemur í ljós. Þama á tvítugur stráklingur víst að vera alls ófróður um allt er snýr að kynlífi. Vegna þess kaupir hann sér bók um efnið, og viti menn: allt í einu er ungi maðurinn búinn að koma sér upp sannkölluðu ástarhreiðri. Fyrir suma gæti þama verið ágætis upp- hitun á ferðinni áður en skriðið er í bólið. Þrjú-bíó Stöð 2 hefur tekið upp þá nýbreytni að hafa sýningar klukkan þrjú á sunnudögum þar sem sýndar verða barna- og fjölskyldumyndir. Fyrsta myndin er alvöru æv- intýri frá meistara Spielberg. Þetta er hugljúft ævintýri sem greinir ffá ferðum músastráksins Vífils til Ameríku með íjölskyldu sinni. Ameríka á að vera fýrir- heitna landið, ..llt fullt af osti og það sem er mikilvægast: engir kettir. Á leiðinni týnir Vífill fjöl- skyldunni og lendir í ýmsum æv- intýrum. Spielberg dregur þó upp dökka mynd af Ameriku þar sem fégræðgin og báknið er yfirþyrm- andi. En skammt undan er samt einhver sem réttir hjálparhönd svo Vífill litli sleppur alltaf, þó stundum sé naumt á því. En hvort Vífill finni fjölskyldu sína er spuming sem áhorfendur fá svar- að með því að fylgjast með. Hvemig væri að fá sér popp og malt með myndinni? S j ó n v a r p Fösfudagur 18.00 Litli víkingurinn Leik- raddir Aðalsteinn Bergdal. 18.30 Beykigróf (3) 18.55 Táknmálsfréttir 19.00 Hundalíf (3) 19.30 Shelley. 20.00 Fréttir, veður og kastljós 20.50 Fjársjóöur hefur tapast, finnandi vinsamlegast hafi samband (2) Hjálparsveit skáta í Vestmannaeyjum og Björgunarsveitin Fiskaklettur í Hafnarfirði bregða á leik. Umsjón Jón Björgvinsson. Kynnir ásamt honum Jón Gústafsson. Dagskrárgerð Hákon Már Oddsson. 22.00 Samherjar (5) 22.50 Sex í svartholi Banda- rísk sjónvarpsmynd um æv- intýralega flóttatilraun sex fanga úr hinu rammgerða fangelsi á Alcatrazeyju á San Franciscoflóa í maí 1946. Myndin er ekki við hæfi barna. Leikstjóri Paul Wendkos. 00.25 Útvarpsfréttir. Laugardagur 13.55 Enska knattspyrnan Bein útsending frá leik Ever- ton og Tottenham á Goodi- son Park í Liverpool. 15.45 Iþróttaþátturinn I þættin- um verður m.a. bein útsend- ing frá leik Njarðvíkinga og júgóslavneska liðsins Ci- bona I Evrópukeppni meist- araliða I körfuknattleik. Þá veröur sýnt frá Evrópumót- unum í knattspyrnu og keppni i fyrstu deild karla í handknattleik. 18.00 Alfreð önd (51) 18.25 Kasper og vinir hans 18.55 Táknmálsfréttir 19.00 Poppkorn. 19.30 Úr riki náttúrunnar. Um- skiptingar Bresk fræöslu- mynd um myndbreytingu lægri lífvera, en það fyrir- bæri er þekktast i skordýra- heiminum. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. 20.00 Fréttir og veður 20.35 Lottó 20.40 Kvikmyndahátiöin Kynn- ingarþáttur um Kvikmynda- hátíð í Reykjavík, sem stendur yfir 5,- 15. október. Umsión Hilmar Oddsson. 20.50 Okuþór (6) Lokaþáttur 21.15 Fólkiö í landinu Það eru ekki nema úrvalskrakkar sem endast i þessu. Gestur Einar Jónasson heilsar upp á Blásarasveit Tónskólans á Akureyri. Dagskrárgerð Samver. 21.40 Ástin sigrar Bresk sjón- varpsmynd frá 1987, byggð á sögu eftir Barböru Cart- land. Leikstjóri John Hough. 23.20 Hörkutól Bandarísk bió- mynd frá 1980. Bófaflokkur heldur íbúum í hverfi einu í helgreipum þangað til hug- djarfur sjómaður sest þar að og skakkar leikinn. Leikstjóri John Flynn. 01.00 Útvarpsfréttir. Sunnudagur 13.15 Þrjátíu ára söngferill Upptaka frá tónleikum stór- söngvarans Lucianos Pava- rottis í Reggio Emilia á Norður-ltalíu í tilefni af 30 ára starfsafmæli hans. Áður á dagskrá 29. apríl sl. 15.50 „Af síldinni öll við erum orðin rík" Islensk heimilda- mynd um ævintýriö á Djúpu- vík eftir Finnboga Her- mannsson og Hjálmtý Heið- dal. 16.40 Ritun Fyrsti þáttur: Eöli ólíkra texta Fjallað um ýmis grundvallaratriði ritunar, ólik- ar aöferðir, málsnið og iýs- ingar. Umsjón Ólína Þor- varðardóttir. 16.50 Nippon - Japan síöan 1945 (1) Fyrsti þáttur. Eftir eldhríðina Breskur heimilda- myndaflokkur I átta þáttum um sögu Japans frá seinna stríöi. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. 17.50 Sunnudagshugvekja . 18.00 Sólargeislar (24) 18.30 Babar . Leikraddir Aöal- steinn Bergdal. 18.55 Táknmálsfréttir 19.00 Vistaskipti (5) 19.30 Fákar (8). 20.00 Fréttir, veður og skák- skýring 20.45 Kvikmyndahátiðin Kynn- ingarþáttur um Kvikmynda- hátíð í Reykjavík, sem stendur yfir til 15. október. Umsión Hilmar Oddsson. 20.55 I fjarlægð Ný heimilda- mynd um Islendinga í Kaup- mannahöfn á tímum her- námsins 1940-1945. I mynd- inni er rætt við fjölmargt fólk, þ.á m. Friðrik Einarsson skurðlækni, dr. Jakob Bene- diktsson, Guðmundu Elías- dóttur söngkonu, Björn Sv. Björnsson, og Guömund Arnlaugsson fyrrverandi rektor. Þá er sagt frá söng- ferli Stefáns Islandi og Jóni Helgasyni skáldi og prófess- or, sem hafði forystu um menningarstarf Islendinga í hernuminni Kaupmanna- höfn. Umsjón Einar Heimis- son. Dagskrárgerð Tage Ammendrup. 21.55 Ástir og alþjóöamál (5) 22.50 Gresjan Kanadísk sjón- varpsmynd byggð á smá- sögu eftir Ray Bradbury. 23.15 Ljóðið mitt Ljóðið mitt .Að þessu sini velur sér Ijóð Einar Kárason rithöfundur. Umsjón Pétur Gunnarsson. Dagskrárgerö Þór Elís Páls- son. 23.25 Útvarpsfrettir. Mánudagur 18.00 Töfraglugginn (22). Um- sjón Sigrún Halldórsdóttir. 18.25 Drengurinn frá Andró- medu Fjórði þáttur af sex. 18.55 Táknmálsfréttir 19.00 Á mörkunum (38) 19.30 Roseanne (8) 20.00 Fréttir og veöur 20.35 Kvikmyndahátíðin 20.40 Fólkið í Forsælu (4). 21.10 Iþróttahornið . 21.35 Nöfnin okkar. I þessum þætti fjallar Gísli Jónsson um nafnið Stefán. 21.45 Hundur, hundur Verð- launastuttmynd eftir Sigur- björn Aöalsteinsson. 22.00 Við kjötkatlana Lokpþátt- ur. 23.00 Ellefufréttir 23.20 Þingsjá 23.40 Dagskrárlok Föstudagur 16.45 Nágrannar 17.30 Gosi 17.55 Umhverfis jörðina . 18.20 Herra Maggú. 18.25 Á dagskrá 18.40 Bylmingur. 19.19 19.19 20.10 Kænar konur Nýr bráð- skemmtilegur gamanmynda- flokkur um fjórar konur sem reka saman fyrirtæki sem sérhæfir sig í innanhúsarki tektúr. Það gengur á ýmsu i rekstrinum og þurfa þær oft að beita vafasömum aöferö- um til að fá sitt fram. 20.35 Feröast um tímann. 21.25 Xanadu Ævintýraleg dans- og söngvamynd meö gammla brýninu Gene Kelly. 23.00 I skjóli nætur Hörku- spennandi mynd um mann sem óvænt veröur vitni aö moröi, en vegna minnisleys- is man hann ekki hver morð- inginn er. Þess má geta að aðalhlutverkið er leikið af Robert Urich, sem lék einka- spæjarann Spenser í sam- nefndum þáttum sem sýndir voru á Stöð 2. Stranglega bönnuð börnum. 00.30 Peter Gunn Ævintýri leynitögreglumannsins Peter Gunn hófust í samnefndum sjónvarpsþáttum vestanhafs á sjötta áratugnum, en þetta er sjónvarpsmynd sem gerð var áriö 1989 um þennan vinsæla einkaspæjara. Aðal- hlutverk: Peter Strauss. (1989) Bönnuð börnum. 02.00 Dagskrárlok Laugardagur 09.00 Með afa 10.30 Á skotskónum. 10.55 Af hveiju er himinninn blár? 11.00 Fimm og furðudýrið. 11.25 Á ferð með New Kids on the Block. 12.00 Á framandi slóðum. 12.50 Á grænni grund. 12.55 Makalaus sambúð Jack Lemmon og Walther Matt- hau fara með aðalhlutverkin i þessari sígildu gaman- mynd sem segir frá sambúð tveggja manna. Annar þeirra er hiö mesta snyrtimenni en hinn ersóði. (1968) 15.00 Alvöru ævintýri Hugljúft ævintýri sem segir frá músa- fjölskyldu I Rússlandi sem er að flytjast búferlum til Bandaríkjanna. 16.30 Sjónaukinn Endurtekinn þáttur þar sem Helga Guð- rún heimsækir „grænar fjöl- skyldur" og fornsölur. 17.00 Falcon Crest Bandarísk- ur framhaldsþáttur. 18.00 Popp og kók Hress tón- listarþáttur i umsjón Ólafar Marínar Úlfarsdóttur og Sig- urðar Ragnarssonar. (1991) 18.30 Bilasport (Endurt.) 19.19 19.19 20.00 Morðgáta Jessica Fletc- her leysir flókin sakamál. 20.50 Heimsbikarmót Flug- leiða 91 22.00 Réttur dagsins Gaman- söm mynd um þrjár ungar konur, ástir þeirra og af- brýði, í litlu sjávarþorpi I Connecticut-fylki. Julia Ro- berts fer með eitt aðalhlut- verkanna, en hún sló eftir- minnilega í gegn skömmu eftir gerð þessarar myndar. (1988) 23.40 Bágt á Buder Létt og spennandi sakamálamynd með kyntröllinu Burt Reyn- olds. (1989) Bönnuð börn- um. 01.10 Náttfarar Dóttur banda- rísks öldungadeildarþing- manns er rænt og vinir hennar láta ekki sitt eftir liggja við að bjarga henni úr klóm hryöjuverkamanna. Myndin er bönnuð börnum. 02.40 Kynþokki Tony Cannell- oni er tvítugur og honum hrýs hugur við tilhugsuninni um kynlíf. Til að bæta úr því kaupir hann bók sem ber tit- ilinn „Kynþokki". Tony fylgir reglum bókarinnar, flytur að heiman og leigir íbúð sem hann breytir í sannkallað ástarhreiður. Stranglega bönnuö börnum. 04.00 Dagskrárlok Sunnudagur 09.00 Litla hafmeyjan Falleg teiknimynd byggð á sam- nefndu ævintýri. 09.45 Hvutti og kisi Teikni- mynd. 09.30 Túlli Fjörug teiknimynd. 09.35 Fúsi fjörkálfur. 09.40 Steim og Olli. 09.45 Pétur Pan Teiknimynd. 10.10 Ævintýraheimur Nin- tendo Skemmtileg teikni- mynd. 10.35 Ævintýrin i Eikarstræti Framhaldsþáttur fyrir börn á öllum aldri. 10.50 Blaðasnáparnir Vönduð og skemmtileg teiknimynd. 11.20 Trausti hrausti Teikni- mynd. 11.45 Trýni og Gosi Teikni- mynd. 12.00 Popp og kók Endurt. 12.30 Furðusögur VIII Hér eru sagðar þrjár sögur eins og f fyrri myndum sem hafa notið gífurlegra vinsælda um allan heim. Sú fyrsta segir frá eldri konu sem býr yfir leyndarmáli varðandi hvern- ig eigi að rækta verðlauna- grasker. Önnur sagan segir frá ungri stúlku sem sekkur í sandbleytu en kemur sfðan fram ári síðar. Þriðja og síð- asta sagan segir frá nokkr- um strákum sem hanna loft- net sem getur náð útsend- ingum annarra pláneta. 13.35 Italski boltinn. Bein út- sending frá (tölsku fyrstu deildinni (fótbolta. 15.45 Leyniskjöl og persónu- njósnir Alríkislögregluforing- inn J. Edgar Hoover bjó svo um hnútana að ekki reyndist unnt að koma honum frá völdum. Hann hafði marga af framámönnum Bandaríkj- anna í greipum sínum, þeirra á meðal Eisenhower, John F. Kennedy, Johnson og Nixon. Þá lét Hoover einnig fylgjast með kvik- mynda- og rokkstjörnum og má þar nefna Humphrey Bogart, Frank Sinatra, Shirl- ey McLaine, Elvis Presley og John Lennon svo fáeinir seu nefndir. Hoover sveifst einskis, hvorki varðandi það aö útvega upplýsingar né nota þær i sína eigin þágu eða alríkislögreglunnar. 16.50 Þrælastríðið I þessum þætti fylgjumst við með þvi hvernig norðanmönnum tókst að breyta tilgangi stríðsins I frelsun þrælanna. 18.00 60 mínútur, margverð- launaður fréttaskýringaþátt- ur. 18.40 Maja býfiuga Teikni- mynd. 19.19 19.19 20.00 Elvis rokkari Leikinn framhaldsþáttur um Elvis Presley. 20.20 Hercule Poirot Breskur sakamálaþáttur. 21.15 Heimsbikarmót Flug- leiða '91 21.25 Laufin falla Rómantlsk mynd sem gerist um alda- mótin síöustu. Aðalhlutverk Faye Dunaway. (1989) 23.00 Heimsbikarmót Flug- leiða '91 23.15 Flóttinn úr fangabúðun- um (3) 00.10 Saklaus bráð Þetta er spennandi mynd sem segir frá ungum strák sem snýr heim eftir sumarfrí, en þá er fjölskylda hans horfin, og ekki nóg með það, heldur eru morðingjar á hælunum á honum og eru nú góð ráð dýr. (1988) Lokasýning. 01.40 Dagskrárlok Mánudagur 16.45 Nágrannar 17.30 Geimálfarnir. 18.00 Hetjur himingeimsins. 18.30 Kjallarinn Tónlistarþátt- ur. 20.10 Dallas 21.05 Heimsbikarmót Flug- leiða '91 21.15 Ættarsetrið Sjötti þáttur af átta um Michael Anstey sem óvænt erfði ættarsetur. 22.05 Heimsbikarmót Flug- leiöa '91 22.20 Booker Frábær banda- rlskur spennuþáttur um einkaspæjarann Booker. 23.10 Italski boltinn. Mörk vik- unnar. Iþróttamenn stöðvar- innar sýna okkur það helsta sem gerðist I ítölsku fyrstu deildinni I fótbolta nú um helgina. 23.30 Zooccoli-tréð Þessi ein- stæöa mynd hlaut Gullpál- mann I Cannes árið 1978. Myndin segir sögu fimm fjöl- skyldna á Italiu og þykir hún lýsa á raunsæjan hátt hvern- ig lífið var um aldamótin síð- ustu. Leikstjórinn Ermanno Olmi eycidi mörgum vikum I sveitahéruðum ltallu til að komast inn I hugarfar bænda og leikaramir eru bændur og búalið. Texti myndarinnar er að mestu saminn af leikurunum sjálf- um. Olmi fékk hugmyndina að gerð myndarinnar 20 ár- um áður en hann loks gerði hana. Aðalhlutverk: Luigi Or- nagli, Francesca Moriggi, Omar Brignoli og Antonio Ferrari. Leikstjóri: Ermanno Olmi. (1975) 01.00 Dagskrarlok NÝTT HELGARBLAÐ 1 8 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER I99l

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.