Þjóðviljinn - 22.10.1991, Side 4
STJ ORNMAL
Velferð fjármagnsins
— vandi fólksins
Ríkisstjórn Sjáifstæðisflokks og Alþýðuflokks, Viðreisn II, er
nú tæpra sex mánaða gömul. Hún hefur þegar haflst handa
við að koma stefnumálum sínum í framkvæmd, en þegar
grannt er skoðað reynast þau allt önnur en kosningaloforðin
í vor hljóðuðu upp á. Flestum ríkisstjórnum er gefinn sanngjarn
tími til að eyða hveitibrauðsdögunum, en þjóðin hefur þegar gefið
núverandi ríkisstjórn langt nef og hefur engin ríkisstjórn átt jafn
litlu fylgi að fagna, frá því þess konar mælingar hófust, svo skömmu
eftir valdatöku sína eins og þessi.
Ber þar margt til. Fyrst og
fremst er þó að nefna misræmi til
orðs og æðis sem víða má sjá í
svokallaðri „hvítbók“ - eða stefnu-
yfirlýsingu ríkisstjómarinnar. Og
hér ber að leggja áherslu á „ríkis-
stjómarinnar“, því ef marka má yf-
irlýsingar einstakra þingmanna er
hér ekki um að ræða stefnuskra
ríkisstjómarflokkanna, því hún
hefur aldrei verið borin undir aðra
en formenn flokkanna, ef til vill að
einstakir ráðherrar hafi fengið að
sjá skrifin um eigin málaflokka.
I upphafi hvítbókarinnar er tal-
að um að mál sé að „stjómvöld
einbeiti sér að því að skapa ein-
staklingum og fyrirtækjum örvandi
starfsskilyrði með sanngjömum
leikreglum og stöðugleika í efna-
hagslífinu. Nýjar leiðir í stjóm
efnahags- og atvinnumála eru
nauðsynlegar til að íslendingar
dragist ekki aftur úr nágrannaþjóð-
unum í lífskjömm." Þetta em fog-
ur orð, en í reynd hefur ríkisstjóm-
in innleitt það sem kallað hefur
verið „kemur-mér-ekki-við-stefn-
an“ í atvinnumálum. Ríkisstjóm-
inni virðist ekki koma við hvað er
að gerast hjá atvinnufyrirtækjunum
í landinu. Afskiptaleysi rikisstjóm-
arinnar af atvinnumálunum mun
fyrr en seinna skapa hér svipað
ástand og var á haustdögum 1988
þegar atvinnustefna ríkisstjómar
Þorsteins Pálssonar beið skipbrot
og stjómin hrökklaðist frá völdum.
Ríkisstjómin hyggst, skv. hvít-
bókinni, „beita sér fyrir aðgerðum
í skatta- og félagsmálum, sem
koma hinum tekjulægstu til góða.“
Ekki lofa fyrstu aðgerðir stjómar-
innar góðu fyrir þetta loforð, því
hingað til hefur hún höggvið sem
næst hinum tekjulægstu á meðan
fjármagnsbraskarar prísa sig sæla
fyrir að ekki eigi að standa við
kosningaloforðin frá því í vor um
skattamálin. Sérstakir skattar og
þjónustugjöld á heilsugæslu og
skólagöngu munu fyrst og síðast
koma hart niður á hinum tekju-
lægstu. Hvað meinar ríkisstjómin
með þessu loforði sínu?
Ekki eru spöruð orðin um
nauðsyn ráðdeildar og aðhalds í
opinberum rekstri. Þetta er háleitt
markmið og eðlilegt, en treyslir
þjóðin þeim manni sem nýlega er
kominn frá því að byggja ráðhús
og perlu sem farið hafa miljarði
króna fram úr áætlun til að ráðsk-
ast með fjármuni allra skattgreið-
enda? Er liklegt að hann muni
standa fyrir fjárhagsáætlunum með
öðmm hætti en að reka putta út í
loftið nú þegar hann er sestur í
stjómarráðið við Lækjargötu?
í þeim tilgangi meðal annars
að bæta afkomu ríkissjóðs hyggst
stjómin selja ríkisfyrirtæki. Sér-
stakt kapp verður lagt á að selja
þau ríkisfyrirtæki sem notið hafa
„óeðlilegrar samkeppnisaðstöðu í
samanburði við annað atvinnulíf í
landinu“ segir í hvítbókinni. Enn-
ffemur að þess verði gætt „að
einkafyrirtækjum verði ekki afhent
einokunaraðstaða á markaði.“ Afar
athyglisverðar yfirlýsingar. í fyrsta
lagi vegna þess að ríkissjóður bæt-
ir í raun ekkert afkomu sína með
því að selja ríkisfyrirtæki, því eng-
inn mun kaupa þau fyrirtæki sem
engan ágóða veita og ef selja á
gróðavænleg ríkisfyrirtæki er ein-
ungis verið að selja ávöxtun fram-
tíðarinnar fyrir stundarhagnað.
Ásetningurinn hlýtur því að vera
annar. I öðru Iagi vewgna
þess að nú er stefnt að því
að afhenda Eimskipafé-
laginu einokunaraðstöðu
á sjóflutningamarkaðnum
með því að leggja niður
Skipaútgerðina.
Ríkisstjómin segist í
hvílbókinni ætla að sam-
ræma skattlagningu eigna
og eignatekna. Það virðist
hins vegar ekkert for-
gangsverkefni hjá núver-
andi ríkisstjóm að koma
slíkri skattlagningu á,
meira liggur greinilega á
að skattlcggja þá sem þurfa á
læknis- eða hjúkrunaraðstoð að
halda og þá sem kjósa skólagöngu.
Forsætisráðherrann hefur og lýst
því yfir að ekki standi til að setja
þrep í tekjuskattinn vegna þess að
það sé svo flókið mál að stað-
greiðslan myndi eyðileggjast með
slíkri aðgerð. Nú kann það vissu-
lega að vera svo að það sé flóknara
að hafa tvö eða þijú stig í tekju-
skatti en eitt. Hitt á sér auðvitað
enga stoð i raunveruleikanum að
staðgreiðslukerfinu væri ógnað ef
þrepaskattlagning yrði tekin upp.
Þannig kerfi em nú við lýði í
mörgum nágrannalöndum og
ganga býsna vel, a.m.k. er ekki vit-
að til þess að heilu skattkerfin hafi
hmnið vegna þess að hátekjumenn
séu látnir greiða hærra hlutfall af
launum sínum í sameiginlegan
sjóð en miðlungs- og lágtekjufólk.
Davíð Oddsson telur hins vegar
hin miklu sannindi felast í því, að
hér verði að vera eitt þrep í tekju-
skatti, en ríkisstjómin er nú eins og
hún er, svo notuð séu fleyg orð for-
sætisráðherrans sjálfs, sannleikan-
um verður hver sárreiðastur.
I menntamálakafla hvítbókar-
innar ber það hæst að auka eigi
vægi rannsókna og þróunarstarfs í
skólakerfinu, og endurskoða eigi
ný lög um leikskóla, lög um grunn-
skóla og lög um Lánasjóð íslenskra
námsmanna. Ekki ber þó fjárlaga-
fmmvarp Friðriks Sophussonar
þess merki að vægi rannsókna og
þróunarstarfs verði ofarlega á for-
gangslista stjómarinnar, nema síð-
ur sé.
Síðan kemur þessi setning í
heilbrigðismálakaflanum: „Leitað
verður leiða til að gefa almenningi
kost á að velja um mismikla sjálfs-
áhættu í þessum efnum (þ.e. heil-
brigðisþjónustu - innsk. áþs.) gegn
breytilegu tryggingarið-
gjaldi í einhverri mynd.“
Er nema von að BSRB
hafi farið i auglýsinga-
herferð gegn kaskótrygg-
ingum fólks? Það er
greinilega ætlunin að láta
fólk borga mismunandi
tryggingariðgjald eftir
því sem efni þess leyfa.
Þeir sem eiga litla pen-
inga borga lágt iðgjald,
en þeir sem eiga mikla
peninga hátt iðgjald. Af-
leiðingin verður þá sú að
þeir sem eiga litla pen-
inga taka mikla sjálfsáhættu, en
þeir sem eiga mikla peninga taka
litla sjálfsáhættu svo notað sé þetta
smekklega orðalag ríkisstjómar-
innar um fólkið í landinu! Hún
heldur það - ríkisstjómin - að hún
sé að boða einhveija framtíðarsýn,
nýja veröld og fagra, en það er
öðm nær. Hér er fortíðarhyggjan
lifandi komin, tímamir áður en al-
mannatryggingamar komust á, áð-
ur en velferðarkerfi fólksins var
komið á. Nú ætla Sjálfstæðisflokk-
urinn og Alþýðuflokkurinn að
sameinast um atlögu gegn því vel-
ferðarkerfi, en hampað er velferð-
arkerfi forréttindastéttanna, fjöl-
skyldnanna fjórtán, kolkrabbans.
Það er þeirra velferð sem á að
komast á varanlegan grunn, ekki
velferð heimilanna.
Margt fleira væri hægt að tína
til úr hvitbók ríkisstjómarinnar.
Hér verður einungis bætt við kafla
um byggðamál.
Forsætisráðherrann hefúr með
yfirlýsingu á flokksráðsfúndi Sjálf-
stæðisflokksins á dögunum afhjúp-
að hvers konar afturhald það er
sem stendur að ríkisstjóminni. Þar
er hann að tala um að flytja fólk
milli byggða. Nú skal ekki fyrir-
fram útiloka, að það kunni að fara
svo að einhveijar byggðir leggist
af. Hitt er öllu alvarlegra að for-
sætisráðherrann virðist ekki hafa
nokkum áhuga á að stuðla að því
að blómleg byggð geti þrifist sem
víðast, og eins er það áhyggjuefni
að leiðtogi rikisstjómarinnar skuli
vekja máls á því að fólk verði flutt
- nauðugt viljugt eða hvað? Nauð-
ungarflutningar fólks vom að vísu
stundaðir í Rúmeníu Ceaucescus
og i Sovétríkjum Stalíns, en vænt-
anlega áttu engir von á þvílikum
yfirlýsingum frá forsætisráðherra
Islands.
Hér þarf fyrst og fremst að efla
samgöngubætur, eins og mikilvæg-
ur gmnnur var lagður að í tíð síð-
ustu ríkisstjómar, til að byggðarlög
sem em í raun ekki langt hvert frá
öðm einangrist ekki veturlangt,
heldur geti orðið ein heild, eitt at-
vinnu- og þjónustusvæði. Það
verður ekki gert með skipulögðum
flutningum fólk milli byggða. En
forsætisráðherrann og borgarstjór-
inn fyrrverandi hefúr væntanlega
litinn skilning á þörfúm lands-
byggðarinnar, þó hann sé ættaður
frá Fáskrúðsfirði.
Öll stefnumál ríkisstjómarinnar
hingað til bera þess merki að hún
er stjóm fjármagnins en ekki fólks-
ins. Alls staðar í orði og á borði
kveður við þann tón að vegur fjár-
magnsins, peninganna, sé for-
gangsverkefni en fóikið sé aukaat-
riði. Ríkisstjóm sem byggir á vel-
ferð fjármagnsins getur aldrei orð-
ið langlíf. Hún er vandi sem fólkið
í landinu verður að kljást við og
hún mun fyrr en síðar þurfa að
hrökklast frá völdum með skömm.
Þá verður athyglisvert að fylgjast
með gengi Alþýðuflokksins - Jafn-
aðarmannaflokks íslands! ÁÞS
BC
=3
25 I
J
(/> í
i|k
Svo leggjum við niður byggðina á
Súganda og Bíldudal. Já, réttast
væri að loka Vestfirði af og friða
þá gegn ágangi manna.
Breyta þeim í þjóð
garð. Fólkið getur
svo flutt I bæinn.
Hér er nóg af
óseldum íbúðum.
Ríkisstjórnin segist í hvítbókinni
ætla að samræma skattlagningu
eigna og eignatekna. Það virðist
hins vegar ekkert forgangsverkefni
hjá núverandi ríkisstjórn að koma
sfíkri skattlagningu a. meira liggur
freinilega á að SKattleggja þá sem
urfa a læknis- eða htukrunarað-
stoð að halda og þá sem kjósa skóla-
göngu.
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. október 1991
Síða 4