Þjóðviljinn - 23.10.1991, Blaðsíða 6
FlÉTTIR
Sjálfsbjörg segir lyfjakostnað
örorkulífeyrisþega hafa hækkað
Sambandsstjórnarfundur Sjálfsbjargar, Landssambands fatl-
aðra, sem haldinn var dagana 27.-28. september síðastliðinn,
sendi frá sér ályktun þar sem sagt er að lyfjakostnaður ör-
orkulífeyrisþega hafi stórhækkað og skorað er á stjórnvöld að
endurskoða reglugerð um greiðslu almannatrygginga á lyfjakostn-
aði.
í svarbréfi heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins við
þessari ályktun er því mótmælt að
lyfjakostnaður örorkulífeyrisþega
hafi stóraukist og jafnframt sagt að
miðað við þær athuganir sem ráðu-
neytið hafi gert hafi lyfjakostnaður
þvert á móti lækkað í sumum til-
vikum. Heilbrigðisráðuneytið ósk-
ar eftir fullum aðgangi að þeim
upplýsingum um stóraukinn lyfja-
kostnað sem Sjálfsbjörg byggir
ályktun sína á og segir í bréfi sínu
að komi í ljós að þær séu réttmætar
muni ráðuneytið beita sér fyrir við-
hlítandi aðgerðum.
Að sögn Ólafar Ríkarðsdóttur,
forstöðumanns félagsmáladeildar
Sjálfsbjargar, er nú verið að vinna
að greinargerð fyrir heilbrigðis-
ráðuneytið og byggir hún á sömu
gögnum og ályktunin. Ólöf sagði
að Sjálfsbjörg hefði unnið kannanir
á Iyfjakostnaði meðal sinna félaga
og þau dæmi sem þar kæmu fram
bentu ekki til lækkunar. Hún bætti
við að lítið væri hægt að segja imi
málið á þessu stigi þar sem grein-
argerðin væri ekki fúllfrágengin.
-ag
Sddarvertíð fer hægt af stað
Af um 50 bátum sem nýta sér
leyfi til sfldveiða hafa um 20
byrjað veiðar. Veiðin er ennþá
Þessa auglýsingu skaltu lesa vandlega
Allan solarhringinn, 365 daga arsinsrfeta born og
unglingar hringt í símaþjónustu Rauðakrosshússins
til að leita aðstoðar eða ráðlegginga... n r: - '
Áttu í erfiðleíkum ?
Hefurðu áhyggjur vegna einhvers ?
Vantar þig einhvem á að tala við ?
Er þér strítt ?
Skilja félagar þínir þig útundan ?
Líður þér ia vegna feímní ?
Viltu ræða víðkvæm mál ?
Vantar þíg upplýsingar um getnaðar-
vamir, kynsjúkdóma, blæðingar,
þungun eða fóstureyðingu ?
Nærðu engu sambandi viö foreldra þína ?
Hefurðu orðið að þola ofbeldi ?
Hefurðu orðið fyrír kynferðislegri áreitni
eða kynferðislegu ofbeldi ?
Ertu að gefast upp á drykkjuskap eða
annarrí óreglu heima hjá þér ?
Hefurðu ékki iengur stjórn á áfengisneyslu
eða notkun annarra vímuefna ?
SÍMAÞJÓNUSTA RAUÐAKROSSHÚSSINS hefur veríð starfrækt
frá 14. desember 1985 og á þeím tíma hafa yfir 8.000 símtöl átt sér staö
á mtílí barna eða unglínga og starfsmanna hússíns.
Símhríngíngarnar koma allsstaðar að á landínu og er SÍMAÞJÓNUSTA /
RAUÐAKROSSHÚSSINS fyrst og fremst ætluð ungmennum að 20 ára aldrí. J|
Nú hefur svokallað grænt númer verið tekíð í notkun. Það er fyrtr þá sem hringja |
frá öðru svæðísnúmerí en 91 og kostar nú jafn míktð að hríngja í það og tinj-f
ínnanbæjarsímtal væri að ræða og það skráíst ekkí á sundurlíðaða símreíkníng^
og athugíð að ekkí þarf að gefa upp nafn eða aðrar upplýsíngar þegar hríngt er. "
Grænt númer
Kíwanísklúbburínn KATLA
styrkir þessa auglýsíngu
Alþjóðamarkmíð
KiwanishreYflngarinnar
árin 1990 - 1993:
,3ömín fyrst
og fremst“
RAUÐAKROSSHUSIÐ
TJARNARGÖTU 35,101 REYKJAVÍK
Þeir sem búa á höfuöborgarsvæöinu
hringi í síma: 62 22 66
Þeir sem hringja utan af landi hringi í
síma: 99-66 22 (Ekki svæöisnúmer 91)
frekar treg og hráefnisverð hafa
ekki verið ákveðin. „Hafi oft ver-
ið óvissa í sfldinni þá hefur hún
aldrei verið eins mikil og núna,“
segir Hallgrímur Bergsson hjá
Pólarsfld á Fáskrúðsfirði. Bátur-
inn sem hefur landað þar hefur
aflað þokkalega, fengið um 500
tonn samtals.
Búið er að : alta upp í rairana-
samning við Pólveija. „Það veit
hreinlega enginn neitt um mark-
aðsmálin. Einhveijir rammasamn-
ingar eru kornnir við Finnland og
Svíþjóð, en menn vita ekki enn
hvað magnið er mikið,“ segir Hall-
grimur. Síld á Finnland er á sama
verði í fmnskum mörkum og í
fyrra. Það þýðir lækkun í krónu-
tölu vegna gengisþróunarinnar.
„Við vitum ekki nákvæmlega
hvaða verð við fáum fyrir síldina á
Pólland," segir Hallgrímur. Hann
býst við að flökun hefjist á Fá-
skrúðsfirði í vikunni.
Vinnsla er hafin á Seyðisfirði,
Eskifirði og á Neskaupsstað, en
magnið er lítið ennþá. „Þeir finna
töluvert af síld, en hún stendur
djúpt vegna þess að nætumar eru
svo bjartar,“ sagði Jóhann K. Sig-
urðsson útgerðarstjóri hjá Síldar-
vinnslunni á Neskaupsstað. Búið er
að salta í um 500 tunnur þar.
-vd.
Taxtalaun 65%
póstmanna eru
undir 70 þúsund
á mánuði
„Um kaupmáttinn þarf ekki
að fjölyrða við fólk sem gerir
það efnahagslega kraftaverk að
teygja á launum sínum til mán-
aðamóta. Taxtalaun 65% póst-
manna er undir 70 þúsund
krónum á mánuði og verður að
hækka þau laun verulega,“
skrifar Lea Þórarinsdóttir for-
maður Póstmannafélagsins í
fyrsta tölublað nýs Póstmanna-
blaðs.
Að mati formannsins er nú
komið að því að launafólk upp-
skeri ávexti þeirrar tilraunar sem
gerð var í ársbyijun í fyrra þegar
aðilar vinnumarkaðarins sömdu
um hina svokölluðu þjóðarsátt.
Lea minnir á að þá hafi því verið
lofað að samningatiminn yrði not-
aður til að búa í haginn fyrir auk-
inn kaupmátt launafólks og því
ekki að undra að það sé krafa
dagsins. Jafnffamt sé markmiðið
nú sem endranær að dagvinnan
nægi til framfærslu.
Þá gagnrýnir formaður Póst-
mannafélagsins umræðuna um
launamál þar sem því er haldið
fram, að meira vit sé í því að tala
um heildarlaun en taxtalaun. ,JEn
hvað sem öllum meðaltölum um
heildarlaun líður er það staðreynd
að fjöldi fólks hefúr ekki annað en
dagvinnulaunin. Og ffamhjá því
verður ekki Iitið að með löngum
vinnutíma er frítíma, tómstundum
og samvistum við fjölskylduna
fómað á altari „heildarlauna".
Að endingu skorar formaður
Póstmannafélagríns á allt launa-
fólk að það standi saman í þeirri
kjarabaráttu sem framundan er og
ítrekar jaíúffamt mótmæli félags-
ins gegn niðursku rðartillögum
rikisstjómarinnar. -grh