Þjóðviljinn - 01.11.1991, Qupperneq 3
Tónlistin græóir lanaió
Landið fýkur burt, heitir nýj-
asta hljómplata Ríó Tríósins sem
nú er komin út Heiti plötunnar er
dregið af tilgangi hennar en þeir
Rió-félagar hafa gefið Land-
græðslunni útgáfurétt á plötunni
og allan ágóða af sölu hennar í
söluátaid sem nú er nýhafið í sam-
vinnu við Lionshreyfmguna.
í tengslum við þetta söfnunar-
átak mun Rikisútvarpið verða með
sérstaka þætti á dagskrá næstu tvær
vikur. Hápunkturinn verður þann 16.
nóvember en þá mun Rás 2 sinna
átakinu í útsendingu og að kvöldi
sama dags verður bein útsending úr
Perlunni í Sjónvarpi og á Rás 2. Þar
mun Ríó leika lög af plötunni, sem er
fjórtánda LP plata þeirra félaga og
með þeim leikur tólf manna strengja-
sveit, auk fleiri tónlistarmanna. Lög-
in em að venju eftir Gunnar Þórðars-
son og textar eftir Jónas Friðrik.
„Við vinnum venjulega þannig
að við heyrum lögin ótextuð hjá
Gunnari og veltum þá fyrir okkur um
hvað við eigum að syngja, hvað
passi við lagið. Þegar við vorum að
ræða um titillagið, Landið fykur burt,
þá kom sú hugmynd að gera eitthvað
öðmvisi og láta gott af okkur leiða
fyrir landið,“ sagði Ólafiir Þórðars-
son Riómaður þegar fyrsta platan var
afhent Sveini Runólfssyni land-
græðslustjóra á blaðamannafundi í
gær.
Yfir hundrað Lionsklúbbar um
allt land munu annast söluna og plat-
an kemur ekki i verslanir fyrr en
söluátakinu lýkur þann 23. nóvem-
ber.
Lionsfélögum til aðstoðar í
Reykjavik verða 11 og 12 ára skóla-
böm sem fá að launum ferð í Gunn-
arsholt þar sem þau geta af eigin
raun kynnt sér starf Landgræðslimn-
ar.
Kaupþing hf hefur tekið að sér
að fjármagna verkefnið og veita ráð-
gjöf. Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, styður framtakið einnig
og ritar hvatningarorð á plötuum-
slagið sem er hannað af auglýsinga-
stofuxmi Nýr dagur. -vd.
Ríó hefur gefið út plðtuna Landið jykur burt og fær Landgrœðslan allan
ágóða af sölu hennar. Mynd Kristinn
blasa við gangsíéttarhellur, timburstafli og
málningardósir. ívar Valgarðsson hefur komið
þar fvrir verkum sinum sern hann sýnir frá og
með morgundeginum.
Innstallasjónir, eða mnsetóingar, er það sem
ívar býður áhorfendum að sjá í salnum. Þær eru
settar saman úr hversdagslegu byggingarefhi, sem
hefur á engan hátt verið umbreytt. Því er aðeins
raðað upp samkvæmt ákvörðun listamannsins.
Listamaðurinn er ekki að skapa eða hanna hluti eða
form, heldur velur hann hluti sem þegar eru til, rýf-
ur heföbundið samhengi, raðar upp og gefur nýja
merkingu. ,
Sýning Ivars stendur til 8. desember og eru
Kjarvalsstaðir opnir daglega kl. 10-18.
-BE
ivar Valgarðsson á Kjarvalsstöðum. Mynd: Jim Smart.
Þorbergur Halldórsson á efri hœð G 15 þar sem hann sýnir og selur skartgripi þá sem hann smíðar og hannar. Mynd:
Kristinn.
Jón Axel Bjömsson listamaður er þekktastur fyrir stór málverk. í galleríinu
við Skólavörðustig 15 sýnir hann á sér nýja hlið. Þar eru nú til sýnis nokkrar
smámyndir og var myndin tekin þegar listamaðurinn kom þeim fyrir á dögun-
um.
Perlufestar,
silfurkatlar
og smámyndir
í kjallara
Á Skólavörðustígnum, þar sem
áður var verslað með föndurefni
og pensla, hefur verið opnuð gull-
smiðja og gallerí, G 15.
Þar eru nú til sölu perlufestar og
silfurhringar skreyttir demöntum, og
silfuketill, allt hannað og smíðað af
Þorbergi Halldórssyni sem ræður
ríkjum í G 15.
Úr gullsmiðjunni liggur stigi nið-
ur á götuhæðina og þar er galleriið.
Þar sýnir nú Jón Axel Bjömsson
nokkrar smámyndir. Þorbergur segir
hugmyndina vera þá að reyna að fá
gullsmiði, hönnuði, ljósmyndara og
fleira gott fólk til að sýna í galleríinu
og skapa þannig vettvang fyrir sýn-
ingar á listmunum sem oftast er ekki
að finna í galleríum og söfnum hér-
lendis.
Þorbergur lærði hér heima hjá
Óskari Kjartanssyni gullsmiði. Þar
segist hann mestmegnis hafa fengist
við það að smíða lögreglumerki og
orður, en hann hafi nýtt kvöldin í
það að smíða og hanna eigin muni.
Eftir að handbragðið var ftilllært hélt
Þorbergur til kóngsins Kaupmanna-
hafnar og útskrifaðist úr gullsmíða-
háskólanum þar síðastliðið vor. Árið
áður hlaut hann „Kunsthaandværk-
prisen" sem Danadrottning veitir.
Italir em allra þjóða mestir hönnuðir
nú og brá Þorbergur sér til menning-
arborgarinnar Flórens og nam
nokkra mánuði við Schuola Lorenzo
di Medici.
Þorbergur segir að enginn einn
stíll höfði til hans fremur en annar.
Þeim formum sem hann fæst við hef-
ur hann safnað í sarpinn gegnum tíð-
ina, án þess að leita meðvitað fanga
á einum stað. í skartgripasmíði er
næstum allt leyfilegt nú á dögum, og
því til sönnunar sýnir Þorbergur
blaðamanni nokkur tímarit þar sem
er að finna það nýjasta frá ffægum
hönnuðum.
Mikil eftirspum virðist vera eftir
sérhönnuðum hlutum, handsmíðuð-
um og saumuðum, og gerviefhi hafa
vikið fyrir náttúruefnum. Þorbergur
segir það hafa komið sér skemmti-
lega á óvart eftir að hann kom heim
að fólk vill handsmiðaða muni, og
kýs þá ffamyfir þær innfluttu vörur
sem hann hefiir einnig á boðstólum.
Enn hefur gullsmíði ekki fengið
fulla viðurkenningu sem list. Þor-
bergur segir æskilegt að námið hér
heima sé ekki einskorðað við hand-
verkið, heldur sé nauðsynlegt að
kenna listasögu og leggja áherslu á
hönnun.
Stundum jaðrar við að skartgripir
séu skúlptúrar, og gullsmiðir smiða
ekki bara hálsfestar og giftingar-
hringa. Þorbergur hefur numið silfur-
smíði og hefur hannað og smíðað
stóra hluti, eins og ketil einn sem er
til sýnis i G 15.
BE
68 55
mmn