Þjóðviljinn - 01.11.1991, Blaðsíða 9
Helgarvagg
Rokk á Grænlandi
Nágrannar okkar á Græn-
landi eiga þó nokkuð langa rokk-
sögu þó við íslendingar, í fáfræði
okkar, höfum ekki fyigst mikið
með því sem er að gerast.
Segja má að fyrir 1973 hafi
rokk ekki verið til á Grænlandi. I
þorpunum voru til einstaka harm-
óníkur og fiðlur og því var það Pol-
kinn sem dunaði þegar menn vildu
dansa. Allir áttu hins vegar sel-
skinnstrommur og trommudansinn
var notaður þegar menn læknuðu
sig af kvillum eða útkljáðu deilu-
mál. Islenska útvarpið náði til
Grænlands þar til langbylgjusendir-
inn féll í fyiTa. Þeir sem muna eftir
íslensku útvarpi fyrir „frelsið“ sjá í
hendi sér að ekki hafa Grasnlend-
ingar fengið mikið rokk ffá Islandi.
MA-kvartettinn var það sem bleif.
Árið 1973 komu nokkrir græn-
lenskir strákar heim frá námi í Dan-
mörku. Þeir voru með rafmagns-
hljóðfæri með sér i farteskinu og
settu saman hljómsveitina Sume.
Fyrsta plata Sume, sem einnig var
fyrsta grænlpnska breiðskífan, kom
út 1973 og hljómsveitin varð strax
geysivinsæl og hafði áhrif í þoipun-
um - allir vildu spila.
Það er grænlensk hefð að deila
með sér hlutunum (og konunum!)
og því var fátækleg hljóðfæraeign
ekki til mikilla trafala - hljóðfærin
gengu einfaldlega á milli manna.
Sume starfaði til 1976 og skildi eft-
ir sig 3 breiðskífur. Af því litla sem
ég hef heyrt með sveitinni er ljóst
að þeir voru mjög í takt við tímann.
1 tónlist Sume má finna þungt rokk,
bítlapopp og hippískar pælingar og
allt er þetta gegnumsýrt af framandi
Inuita-andrúmslofli. Ég mæli með
nýlegum safndiski frá sveitinni.
Þegar Sume hættu sem hljóm-
sveit beið þeirra göfugt verkefni;
þeir stofhsettu fyrsta grænlenska
hljóðverið og hljómplötuútgáfuna
ULO. ULO hóf starfsemi sína í
kringum 1980 og hefur gefið út
mikið magn af góðri grænlenskri
tónlist á síðasta áratug. Gróskan
hefur verið mikil. Nokkrir tugir
hljómsveita eru starfandi í dag og
spila af miklum krafli. Vinsælustu
sveitimar eru Zikaza og Ole Kristi-
ansen Band. Plötusalan í Grænlandi
er ótrúleg. Zikaza eiga metið. Tíu
þúsund eintök seldust af síðustu
plötu þeirra. Ole Kristiansen Band
seldu átta þúsund eintök af fyrstu
plötunni og þegar eru sex þúsund
eintök seld af plötu númer tvö sem
nýlega er komin út. Þessar tölur em
sambærilegar við 40-50 þúsund
eintaka sölu á íslandi svo það er
Ole Christiansen,
rokkkóngur Grænlands.
ljóst að grænlensk plötusala er
heimsmet.
Grænlenskar hljómsveitir ferð-
ast mikið um landið og spila og ár-
lega er haldin rokkhátíð í Ásevik,
sem stendur í tvær vikur samfleytt.
Allar grænlenskar hljómsveitir
syngja á grænlensku og metnaður-
inn er mikill. Það er því einstakt, og
löngu tímabært, tækifæri sem við
Islendingar fáum um helgina - að
beija Ole Kristiansen Band augum
á tónleikum.
Ole Christiansen Band
Ole er 26 ára, fæddur í Aasiaat í
Norður-Grænlandi. Tónlistin hefur
átt hug hans allan frá bamæsku.
Ole hefur séð um upptökur á báð-
„Zoo Inuilla“ (Dýragarður fyrir
fólk) hefúr átt sinn þátt í vinsæld-
um Ole. Lagið hefúr verið sýnt í
MTV- sjónvarpsstöðinni í Banda-
rikjunum og víðsvegar um Evrópu.
Síðasta sumar var Ole í tónleika-
ferðalagi um Grænland og í fyrra
kom hann ffarn á Hróarskelduhátíð-
inni. Það sem ég hef heyrt með Ole
lofar mjög góðu. Samlíkingin
„grænlenskur Bubbi Morthens“ er
ekki svo vitlaus - báðir syngja þeir
um þjóðfélagsleg mál og innri liðan
og tónlist Ole svipar nokkuð til
Bubba á „Frelsi til sölu“ - skeiðinu,
þ.e.a.s. vandað, gott og grípandi
popp. Sem söngvarar eiga þeir þó
ekkert sameiginlegt, Ole hefur
miklu poppaðri rödd.
Ole Christiansen leikur einnig á
hljómborð og með honum hingað
koma Eigil Petersen og Nuka Áb-
salonsen, sem spila báðir á gítar.
Hans Damgaard sem spilar á bassa
og trommarinn Martin Chemnitz.
Það er Norræna húsið sem sér um
innflutning hljómsveilarinnar en
spilað verður á þrennum tónleikum;
í Háskólabíói annað kvöld, á 1929
á Akureyri á sunnudagdskvöldið og
á Púlsinum mánudagskvöldið 4.
um plötum sínum og semur öll lög
og texta. í textunum er vikið að
ýmsum grænlenskum samtíma-
vandamálum og þeir eiga ekki síst
þátt í vinsældum Ole. Fyrsta plata
hans Isimiit likkamut (Frá auga til
veggs) kom út 1989 og nýlega
diskur, sem þegar þaut í fyrsta sæti
grænlenska vinsældalistans. Lagið
nóvember. Þeir scm vettlingi geta
valdið eru hvattir til að fjölmenna.
Þeir sem vilja kynna sér enn betur
grænlenskt rokk
er bent á að Japis býður upp á
gott úrval af grænlensku rokki á
geisladiskum.
Forskot á JÓLApIötuflóáiá
Páll Öskar Hjálmtýsson; einn af mörgum góðum á Forskoti á sæluna.
Ýmsir flytjendur - Forskot á
sæluna, Steinar/P.S. Músík 1991.
„Forskot á æluna“ göntuðust
ungir pönkarar í plötubúð nýlega
og veltu fyrir sér nýjustu safnplöt-
unni frá Steinum og P.S. Músik.
Eins og nafnið segir til um, er út-
gáfunni ætlað að veita fólki smjör-
þefinn af þeim útgáfúm sem fyrir-
tækin senda ffá sér fyrir þessi jól.
Á diskinum eru 15 lög og ljóst að
margt gimilegt verður á boðstól-
um. Það gimilegasta eflir nokkrar
hlustanir er þetta; Poppungviði
Steina: Sálin, Todmobile og Ný
Dönsk eru greinilega á heimaslóð-
um á yfirvofandi plötum sé miðað
við lög þeirra á Forskoti. Sálin í
popprokkinu, Todmobile í dans-
tölvurokkinu og Ný Dönsk í bítla-
rokkinu.
Ekkert nema gott um það að
segja. Tónleikadiskur Bubba ætti
að verða magnaður miðað við út-
gáfu hans á „Stál og hnífúr“. K.K.
kemur til með að gleðja blúshunda
landsins og Valdimar Flygenring
og Hendes Verden munu efalaust
koma mörgum í notalega rauðvíns-
stemmningu. Geirmundur mun
halda uppi stuði í þúsund sam-
kvæmum og platan „Minningar“
mun henta mjög vel við sherrí-
drykkju. Af Minningum er eitt lag
á Forskoti; Páll Oskar Hjálmtýsson
syngur „What a Wonderful Life „ í
íslenskri þýðingu Kristjáns Hreins-
sonar, „Yndislegt lif‘. Þó Palli sé
frábær söngvari kemur túlkun hans
ekki tárum í augun á manni, eins
og túlkun Louie Annstrong gerir
iðulega, sérstaklega ef maður heyr-
ir lagið í leigubíl eftir misheppnað
ástarævintýri.
Gimilegasti bitinn á Forskoti er
þó „Snati og Óli“ í flutningi Sig-
ríðar Beinteinsdóttur. Lagið er af
bamaplötunni „Stóru bömin leika
sér“ sem Þorvaldur B. Þorvaldsson
hefur unnið að allt þetta ár. Ef allar
útgáfur Þorvaldar á þekktum
bamalögum verða í líkingu við út-
gáfu hans á Snata og Óla er ég ekki
í neinum vafa um hvað ég gef litlu
frænkum mínum og frændum í
jólagjöf.
Fyrir utan að fá brot af því
besta af útgáfulista Steina og P.S.
Músik fá væntanlegir kaupendur í
kaupbæti tvö eldri lög af eldri plöt-
um, „Þitt síðasta skjól“ með GCD
og „hamingjurnyndir" með stjóm-
inni.
Þegar ég var að
Kolaportið á dögunum í
mér nokkrir strákar og
hafa snældu með ' "'
Tennumar hans afa, T.H.A. Það
hefúr ekki farið mikið fyrir þess-
ari spólu, sem er eðlilegt því hún
er ekki fáanleg nema í póstkröfu
firá hljómsvcitinni. Drengimir
sögðust þó ætla að reýna að
coma L—: f
T
mym
Jónsson og Þorsteinn
smjasvo 11
stuttu spjalli
T.H.A. spilaði alls
og alltaf væri
gerðu grin,
umi
ekki f
lag sitt „La Bama“ 1989 og það
fór rækilega fyrir brjóstið á sjón-
varpsstöðvunum sem neituðu að
sýna myndbandið.
bandið var ekkert
ast á, en texti lagsins
La Bama var þó sýnt
stöðum við nokkrar
/ju spólunni eru
klúra heystarí
;íf, sukk,
og Hallbjöm Hjartarson.
lögin em
allaðan „Sívert
Pervertscn" og hið Devo- lega
lag „Lenni Leiðinlega". U’
þeinra á Lou Reec
on the wild side“,
„Gwarligg“, er einni;
maður sakni hinna
NÝTT HELGARBLAÐ
9 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991