Þjóðviljinn - 01.11.1991, Page 14
S k á k
Kínverska stulkan Xie Jun er nýr heimsmeistari
Þau tíðindi berast frá Manilu,
höfuðborg Filippseyja, að einveldi
sovéskra kvenna á skáksviðinu
hafi verið brotíð á bak aftur. Maja
Tsjiburdanidze er sem sagt búin
að tapa títlinum, en hún hefur ver-
ið heimsmeistari kvenna alit frá 17
ára aldrí er hún sigraði stöllu sína
Nonu Gapríndhasvili sumarið
1978. Þrátt fyrir margar atlögur
að heimsmeistaratign þessarar
stúlku hafa þær allar strandað á
frábærlega öruggri taflmennsku
Maju. Það var einmitt árið 1978
sem Kínverjar opnuðu sig og tóku
þátt í ólympíumótínu í Buenos
Aires 1978, bæði í karla- og
kvennaflokki. Þetta muna íslend-
ingar því strax í 1. umferð mætt-
um við hinum háttprúðu, síbros-
andi og tedrekkandi Kínverjum
sem, eins og frægt er orðið, gáfu
þá skýringu á framhleypni sinni að
þeir væru komnir tíl að læra. Svo
tóku bjöllur að klingja og kin-
verskar drottningarfórnir sáu
dagsins ljós í fyrsta sinn á alþjóð-
legum vettvangi.
I karlaflokki hafa Kínveijar enn
ekki eignast skákmann sem kveðið
hefúr að, þótt frammistaða þeirra á
ólympíumótum séu yfirleitt framúr-
skarandi góð. En Xie Jun, sem er á
að giska 25 ára, braut sér leið gegn-
um svæðamót og millisvæðamót,
sem haldið var á heimaslóðum sov-
ésku skákvalkyrjanna í Borschomi í
Georgíu, og áskorendaeinvígi við
júgóslavnesku skákkonuna Alisu
Maric.
Fréttir af 16 skáka einvígi Maju
Tsjiburdaindse og Xie Jun á Filipps-
eyjum voru stopular. Eftir jafntefli í
tveim íyrstu skákunum komst sú kín-
verska yfir en Maja svaraði með
tveim sigrum í röð. Xie Jun jafnaði
með sigri í áttundu skákinni, komst
svo yfir með sigri í 11. skák og er
hún vann 13. skákina náði hún
tveggja vinninga forskoti, 7 1/2:5
1/2. Einmitt á þeim punkti þrýtur
þekkingu undirritaðs á atburðarás-
inni en Xie Jun hefúr varla orðið
skotaskuld úr því að ná 8 1/2 vinn-
ingi tilskildum.
Polgar-systur tefla
ekki á kvenna-mótum
Á það hefúr verið bent að Polg-
ar- systur, Susza, Sofia og Judit, hafa
ekki tekið þátt í heimsmeistara-
keppni kvenna. Hinsvegar er það
staðreynd að fram á þennan dag hafa
aðeins tvær konur, Maja Tsjiburdan-
idze og Nona Gaprindhasvili, öðlast
stórmeistaratign karla, sem sýnir að
yfirburðir ungversku stúlknanna eru
umdeilanlegir. Óstaðfestar fregnir
herma að hin 15 ára gamla Judit hafi
nú uppfyllt öll skilyrði til að hljóta
útnefningu stórmeistara karla eftir
skákmót í Vín sem lauk fyrir nokkr-
um dögum. Verður hún þá yngsti
stórmeistari skáksögunnar og hefúr
þar tveggja mánaða forskot á Robert
James Fischer sem hlaut titilinn 15
ára eftir millisvæðamótið í Portoroz
1958.
En einvigið á Filippseyjum er
viðfangsefnið hér. Fall Maju Tsji-
burdanidze er stórfrétt og Kínverjar
vitaskuld í sjöundu himni yflr því að
hafa rænt krúnunni frá erkifjendun-
um hinum megin við landamærin. Á
tímum mikilla hræringa dró Maja
Tsjiburdanidze niður sovéska flaggið
sem hún hefúr teflt undir alla tíð; á
einvígisborðinu í Manila blakti fáni
Georgíu. Kostaði þetta tiltæki hennar
titilinn? spurði maður sem ég hitti á
fomum vegi. Það veit maður aldrei
en trúlega hefur Stalín gamli landi
hennar snúið sér við í Kremlarmúr
og varla í fyrsta sinn á þessum síð-
ustu og „verstu" tímum. Hinn „sól-
kynjaði sonur Grúsíu“ þótti á einu
skeiði mannkynssögunnar ekki nógu
góður félagsskapur smyrðlingsins
Leníns, þar sem þeir lágu hlið við
hlið í grafhýsinu á Rauða torginu, og
var varpað á dyr og komið fyrir í
Kremlarmúr eins og ýmsum hetjum
byltingarinnar.
Kína næsta stórveldi
skóklistarinnar?
Því heyrðist fleygt ekki alls fyrir
löngu að Kínverjar væru næstu stór-
veldi skáklistarinnar og nú geta þeir
ekki látið staðar numið fyrr en
heimsmeistaratitill karla hefúr náðst.
Þess vegna tapar skáklistin í engu á
þessum úrslitum þótt aðdáendur
Maju Tsjiburdanidze sitji eilitið
hnuggnir eftir.
Við skulum líta á bestu skák hins
nýbakaða heimsmeistara í einvíginu:
3. einvígisskák:
Xie Jun - Maja Tsjiburdanidze
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. RO Rcó 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7.
bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Ra5 10. Bc2
c5 11. d4 Bb7 12. Rbd2 cxd4 13.
cxd4 exd4 14. Rxd4 He8 15. b4
Rc6 16. Rxc6 Bxc6 17. Bb2 Bf8 18.
Df3 Hc6 19. Bb3 De7 20. Hadl
Bb7 21. Df5
(Hvítur hefur náð að byggju upp
vænlega sóknarstöðu en Tsjiburdan-
idze á að geta varist með 21. .. Rd7.
Hún velur annan leik sem gerir Xie
Jun kleift að blása til leiftursóknar.)
21.. . d5? 22. e5 Rd7 23. Re4!!
(Glæsilegur leikur sem byggir
vitaskuld á hugmyndinni 23. .. dxe4
24. Hxd7 o.s.frv.)
23.. . g6
(Það er erfitt að finna betri leik.
Hvítur hótaði ekki aðeins 24. Bxd6
heldur einnig í mörgum tilvikum -
Rg5 eða jafnvel 24. Rf6+!)
24. Dxd7! dxe4
(Þessu hafði Maja reiknað með
en næstu leikir kínversku stúlkunnar
eru feiknalega öflugir.)
25. e6! dxe6 26. Dd4 Kf7
(Ekki 26. .. Bg7 vegna 27.
Dxg7+ Dxg7 27. Bxg7 Kxg7 28.
Hd7+ og vinnur mann.)
27. Dh8! Dh4 28. g3!
- Lítill leikur sem gerir út um
taflið í einni svipan. Framhaldið gæti
orðið 28. .. Dxh3 29. Df6+ Kg8 30.
Hd7 og vinnur.
Jöfn keppni
ó Haustmoti TR
Fyrir biðskákir sem tefldar voru í
gærkvöldi var Helgi Áss Grétarsson
efstur í A-riðli haustmóts TR að
loknum sjö umferðum. Helgi var
með 5 vinninga en fast á hæla hans í
2.-3. sæti komu Héðinn Steingríms-
son og Lárus Jóhannesson með 4
vinninga og biðskák. Héðinn, sem er
stigahæsti keppandi mótsins, átti
vinningsstöðu í biðskák gegn Róbert
Harðarsyni. Róbert var í 4. sæti með
3 1/2 vinning og tvær biðskákir en í
5.-6. sæti voru Þröstur Ámason og
Þráinn Vigfússon með 3 1/2 vinning
og biðskák. Þorvaldur Logason var í
7. sæti með 3 vinninga. Magnús P.
Ömólfsson og Dan Hansson með 2
1/2 vinning og biðskák vom í
8.-9. sæti. Sigurður Daði Sigfús-
son var í 10. sæti með 2 1/2 vinning
og í 11.-12. sæti vom Bjöm F.
Bjömsson og Arinbjöm Gunnarsson
með,2 vinninga.
I B-riðli var Sigurbjöm Ámason
efstur með 4 1/2 vinning og á hæla
hans í 2.-4. sæti komu Oðinn Gunn-
arsson, Ægir Páll Friðbertsson og
Ragnar Fjalar Sævarsson með 4
vinninga.
I C-riðli vom efstir Hlíðar Þór
Hreinsson og Bragi Þorfinnsson með
5 vinnmga og biðskák. Snorri Krist-
jánsson var í 3. sæti með 4 vinninga.
í D-riðli var Láms Knútsson
efstur með 5 1/2 vinning, Leó Þórar-
insson var í 2. sæti með 5 vinninga
og þriðji Bergsteinn Einarsson með 4
1/2 vinning og biðskák.
Kasparov langefstur
í Tilburg
- furðuleg endatöfl
spretta fram
Garrij Kasparov heldur upptekn:
um hætti á stórmótinu í Tilburg. í
gær fór ellefta umferð mótsins ffarn
og þá lagði hann Baarev að velli,
Karpov sigraði Kortsnoj en skákir
Kamsky og Anand og Timmans og
Short fóm í bið.
Staðan:
1. Kasparov 8 1/2 vinning 2. An-
and 6 1/2 v. og biðskák. 3. Karpov 6
1/2 v. 4. Short 6 v. og biðskák.
5. Kamsky 5 v. og biðskák. 6.
Timman 4 v. og biðskák. 7. Kortsnoj
3 1/2 v. 8. Baarev 2 v.
Viðureign Karpovs og Ka-
sparovs nr. 158 var tefld í sjöundu
umferð og lengsta skák þeirra fyrr og
síðar sá dagsins ljós, 114 leikir.
Gamla metið var 93 leikir, 16. ein-
vígisskák 1984/85. Geysilega athygl-
isverð staða kom upp; Karpov átti
kóng og þijá létta, tvo riddara og
biskup en Kasparov hrók og kóng.
Kasparov dugði að gefa hrók fyrir
biskup Karpovs en það var að vísu
ekki alveg einfalt mál því menn hvíts
réðu yfir stóm svæði. En lok skákar-
innar, þar sem 50 leikja reglan kom
Kasparov til hjálpar þótt hann væri
að vísu búinn að fá ffarn pattstöðu,
hafa gefið tilefni til umræðna um
þessa lífseigu 50 leikja reglu. Fyrir
það fyrsta er alls ekki ósennilegt að
öflug tölva geti sannað að staðan sé
ffæðilega unnin og er slíkra rann-
sókna beðið með mikilli eftirvænt-
ingu. Þetta leiðir hugann að endatafli
Ljubojevic og Jóhanns Hjartarsonar
á heimsbikarmóti Flugleiða en þar
taldi Ljubojevic sig þurfa mun meira
en 50 leiki til að vinna stöðu með
kóng, drottningu og riddara gegn
drottingu og kóngi.
Jón L. Ámason stórmeistari
skýrði undirrituðum nýlega frá afar
athyglisverðu endatafli:
Hv.: Kóngur, biskup og hrókur.
Sv.: Kóngur og tveir riddarar.
Venjuleg staða. Tölva hefur sannað
að þessi staða sé unnin á hvítt en það
taki 223 leiki að vinna annan riddar-
ann!
50 leikja reglan verður endur-
skoðuð og enn bætist við þekkingu
manna á skáklistinni.
B r i d g e
Mjög gób þátttaka
Esther Jakobsdóttir og Val-
gerður Kristjónsdóttir urðu Is-
landsmeistarar kvenna í tví-
menningskeppni 1991, eftir
hörkukeppni við þær Hjördísi
Eyþórsdóttur og Ljósbrá Bald-
ursdóttur.
Þær síðamefridu leiddu mótið
eftir fyrri daginn (sl. laugardag), en
úrslit réðust ekki fyrr en t lokaum-
ferðinni. í þriðja sæti urðu svo
Unnur Sveinsdóttir og Inga Lára
Guðmundsdóttir, og Gunnþórunn
Erlingsdóttir og Ingunn Bemburg
höfnuðu í fjórða sæti.
22 pör tóku þátt í mótinu, sem
er fjölgun um 3 pör ffá síðasta ári.
Spiluð vom 4 spil milli para, alls
84 spil.
Kjartan Ásmundsson og Karl
Olgeir Garðarsson, fyrmrn nem-
endur í M.L. (nú háskólanum) urðu
Islandsmeistarar í yngri flokki í
tvímenning 1991. Sama baráttan
var á þeim vígstöðvunum. Urslit
réðust ekki fyrr en í lokaumferð-
inni. Margfaldir Islandsmeistarar í
þessum flokki, þeir Matthías Þor-
valdsson og Hrannar Erlingsson
urðu að láta sér lynda annað sætið
og aðrir reyndir meistarar, þeir
Sveinn R. Eiríksson og Steingrím-
ur Gautur Péturson urðu í þriðja
sæti. í fjórða sæti urðu svo ungir
Akureyringar, þeir Skúli Skúlason
og Stefán Stefánsson og í fimmta
sæti aðrir , bráðefhilegir spilarar,
bræðumir Ólafur og Steinar Jóns-
synir ffá Siglufirði. Yngri bræður
þeirra, Birkir og Ingvar, aðeins 10
ára og 12 ára, tóku einnig þátt í
mótinu og stóðu sig með mestum
ágætum. Sannarlega björt framtíð á
Sigluftrði, en foreldrar þeirra em
spilahjónin kunnu, Björk Jónsdóttir
og Jón Sigurbjömsson.
Metþátttaka var í mótinu og
mættu 30 pör til leiks. Spiluð vom
3 spil milli para, alls 87 spil.
Keppnisstjóri var Agnar Jörgensen,
en útreikning annaðist Ásgeir Ás-
bjömsson. I mótslok afhenti Helgi
Jóhannsson, forseti BSI, efstu pör-
um viðurkenningu fyrir árangur.
Reykjavíkurmótið í tvímenn-
ing, undanrásir, verður spilað á
morgun (tvær umferðir) og á
sunnudag (ein umferð). Nái þátt-
taka ekki 40 pörum, verður undan-
rás sleppt. Skráning er á skrifstofu
BSÍ.
Pctur Guðjónsson og Reynir
Helgason frá Akureyri urðu á dög-
unum Norðurlandsmeistarar í tví-
menning 1991. Spilað var á Siglu-
firði og tóku 28 pör þátt í mótinu.
Reynir sigraði reyndar í þessu móti
einnig á síðasta ári.
Næstu viðburðir í bridge, til
áramóta, eru: Reykjavíkurmótið
um þessa hclgi. Aðaltvímennings-
keppni Austurlands á laugardag.
Guðmundarmót í tvímenning á
Hvammstanga um þessa helgi
(laugardag og sunnudag). Opið tví-
menningsmót í Sandgerði,, laugar-
daginn 9. nóvember. Úrslit í
Reykjavíkurtvímenning helgina
16.-17. nóvember. Philip Morris
Evróputvímenningur og landství-
menningur (sameinað) föstudaginn
22. nóvember. Þá helgi verða svo
einnig Norðurlandsmót vestra og
eystra og Reykjanesmót í sveita-
keppni. Og síðustu helgina í nóv-
ember er svo hið geysivinsæla
Kauphallarmót. Búast má við
fjölda umsókna um þátttökurétt í
því móti, með hliðsjón af atburðum
síðustu daga. Jólamót Hafnfirðinga
verður svo á sínum stað, laugar-
daginn 28. desember.
Ofangreind mót eru öll stað-
fest, en eflaust verða einhverjir
snjallir menn til að bæta við þessa
dagskrá, áður en árið er úti.
Mönnum hefur orðið nokkuð
tíðrætt um þau verðlaun sem eru í
boði í einstökum opnum mótum,
sem boðist hafa að undanfömu. Og
sumt sýnist hverjum. Flestir eru
nokkuð sáttir, en benda þó á, að
flest þessi mót eru borin uppi af
viðkomandi félögum sem standa
að þeim. Fæst hafa lagt vinnu í það
að útvega styrktaraðila að mótinu,
sem þá gjaman bæri nafn viðkom-
andi. Aðeins Bridgesambandið
virðist vera í þeirri aðstöðunni
þessa dagana (flest öll mót þeirra
bera eitthvert nafn, sem þá aftur á
móti er kennt við viðkomandi
styrktaraðila). Að mínu mati ættu
félögin í framtíðinni að einbeita sér
að útvegun á stuðningsaðilum að
mótum. Slíkt myndi leiða af sér:
hækkun verðlauna (sem þá hugsan-
lcga dregur að sér bestu spilara
landsins), lækkun keppnisgjalda í
mótum (í versta falli myndu þau
standa í stað og hætta að standa
undir þeim verðlaunum sem í boði
eru) og að síðustu veita viðkom-
andi félagi tækifæri á að fram-
kvæma mótið af glæsimennsku og
myndarskap. Þó ekki væri nema að
ljósrita tölvugjöf og afhenda kepp-
endum í mótslok, svo eitthvað sé
nefnt.
Og á þriðjudaginn kemur hefst
aðalsveitakeppni Skagfirðinga í
Reykjavík. Veitt verður aðstoð við
myndun sveita. Skráning er hjá 01-
afi Lárussyni í s: 16538 eða á
keppnisstað, Drangey v/ Síðumúla
35. Spilamennska hefst kl. 19.30.
Allir velkomnir.
Dýptin í bridgeíþróttinni er sú
stærðfræði sem liggur til grund-
vallar sérhverju smáatriði í leikn-
um. Til eru afar mörg hugtök, sem
flest eiga það sammerkt að vera
ættuð úr heimi talna. Og tölur eiga
það til að heilla. Lítum á 2 dæmi
um þvingað val (restricted choice):
♦ D10976
V 42
O 53
4- K654
♦ ÁKG8
VÁK3
\> K42
4* 1097
Suður er sagnhafi í 4 spöðum.
Útspilið er tíguldama, sem Austur
tekur á ás og skilar tígli til baka.
Tekið á kóng, tigullinn hreinsaður
og hjartað á sömu Ieið. Og spaðinn
tekinn og í ljós kemur, að laufið
skiptist 3-3 í vöminni. Hvað nú?
Laufaníu (athugið, laufaníu) er
spilað. Drottning lögð á milli og
kóngur. Austur tekur á ás og skilar
laufi um hæl. Hvað nú? Hittingur?
O, nei. Ef þú kannt regluna um
þvingað val, læturðu tíuna. í upp-
hafi, er Vestur setti dömuna, gat
hann átt: ÁDx-DGx-Dxx. Eflir að
NÝTT HELGARBLAÐ 1 4 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991
I <
Austur tekur á ásinn, ertu sam-
kvæmur sjálfum þér út spilið og
heldur þér við regluna, enda
kanntu hana.
Lítum á annað dæmi:
♦ D10976
V 42
O 53
4* K654
é KDG1098
O 65
O KD
4* ÁDIO
Suður er sagnhafi í sex spöð-
um. Út kemur tígulsjö, sem Austur
tekur á ás og skiptir í lauf. Hvað
nú? Er betra að treysta á 50% íferð
í laufinu heldur em 36 möguleika á
að hjartað „falli“ 3-3?
Reglan um þvingað val kemur
okkur til hjálpar i þessu spili, þó
það hljómi ótrúlega. Málið er, að
Vestur spilaði út tígli í upphafi, en
ekki laufi. Ef Vestur heftir hafið
leikinn með safn af smáspilum í
laufi og tígli, em 50% líkur á
laufaútspili í upphafi. I ljósi þessa
em Iíkur á þvinguðu vali hjá hon-
um. Allt þetta gefur okkur því að-
eins 33% möguleika með laufaí-
ferð. Við veljum því hjartað.
>+-
Cö
c
o
w
Cri
o
O _i
1 IOJ /J J • J 'l .
I)JYJJl
\ {((/■./ .1