Þjóðviljinn - 31.01.1992, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 31.01.1992, Blaðsíða 5
ÞjÓÐ¥HJ3NN Magnús Kjartansson lagði ákaflega hart að mér að taka við ritstjórastarfinu og ég held að ég hefði ekki gert það lyrir nokkurn annan mann. þetta á tveimur árum en létu okkur hafa skuldabréf. Þetta var ósköp skemmtilegt og mest af þessu greiddist nú. Það reyndist enn vera býsna fjölmennur hópur sem var reiðubúinn að leggja talsverðar upphæðir af mörkum, ekki bara til að koma í veg fyrir að blaðið hætti að koma út, heldur til að skapa því sóknarfæri, og það var skemmtilegt að eiga kost á því að taka þátt í þessu á sínum tíma. Nú hefur þú á þessum tíma kynnst mörgum og átt samskipti við marga, eru einhverjir einstaklingar sem eru þér minnisstœðari og hafa haft meiri áhrif á þig en aðrir? Ég held að ég halli á engan þó að ég segi það að þeir menn í þess- ari pólitísloi hreyfingu sem voru eldri en ég, og ég taldi lengi vel ástæðu til að hlusta meira á en aðra, það voru annars vegar Magnús Kjartansson og hins vegar Guð- mundur Hjartarson, sem oft og tíð- um vann ákaflega mikið að málum Þjóðviljans, ekki síst við að tryggja honum íjármagn, en var auk þess mjög glöggur pólitískur ráðgjafi hvað hin daglegu viðfangsefni snerti. Samstarf þeirra Magnúsar hafði lengi verið ákaflega náið og það er mitt mat, að þegar vanda bar að höndum hafl Magnús ekki ráð- gast frekar við nokkum annan mann sín síðustuár á Þjóðviljanum, og í raun var það eins með mig fyrstu árin í ritstjórasæti. En ég get sagt það þegar svona langt er um liðið að í raun og vem fann ég til þess að þegar ég tók viðritstjórastarfinu átti ég ekki lengur kost á því að halda mig í annarri eða þriðju víglínu, hafa alltaf einhveija eldri menn sem í rauninni hlytu að hafa þyngri orð fram að færa þegar mikið reyndi á. Ég fann ansi mikið til þess að ég væri kominn úr því skjóli þegar ég hlaut að skrifa sjálfur og taka af- stöðu daglega til þeirra mála sem á döfinni vom, og eftir á að hyggja held ég að ég hafi í raun ekki orðið pólitískt fullorðinn fyrr en ég tók við þessari ritstjóm. Þá varð maður mjög oft að taka veigamiklar ákvarðanir í einrúmi en áður hafði ég lifað og hrærst í þessu félagslega samstarfi. Ef ég á að minnast á yngri menn í þeim hópi sem að Þjóðvilj- anum stóð þá var það svo að við vomm þama í ríkisstjóm langan tíma af mínum ritstjóraámm, alveg ffá 1978 til 83 og ég minnist með ánægju pólitískrar samvinnu bæði á þeim tíma og einnig Qöldamörg ár þar á undan við þá þijá menn sem við áttum í ríkisstjóm þá, þ.e. Svav- ar Gestsson, Hjörleif Guttormsson, sem var félagi minn frá æskuámm, og Ragnar Amalds sem ég hafði unnið mikið með alveg frá 1960, og auðvitað vom það þessir menn sem vom í nánastri samvinnu við mig á þessum tíma. Ef ég lít svo inn á blaðið þá var þar ágætur hópur af blaðamönnum sem mér þótti prýði- legt að hafa mér við hlið, það er erf- itt að velja úr einstök nöfh í þeim efnum en nákomnastur mér var Ámi Bergmann sem enn er við Þjóðviljann og hann var að mínu viti alveg ómetanlegur starfskraftur fyrir blaðið á þeim tíma og síðan held ég að ég geti ekki látið hjá líða ef ég er beðinn um nöfn að nefna Guðjón Sveinbjömsson sem var umbrotsmaður hjá okkur öll þessi ár. Sjálfur er ég lélegur handverks- maðurog ónýtur teiknari en ég þurfti aldrei að hafa áhyggjur af uppsetningu blaðsins þvi Guðjón sá um þetta allt. Ég þurfti varla að tala, því hann var alveg eins og hugur manns og að ég tel listamaður í um- broti á blaði og öðru því sem að prentverki lýtur og ég minnist sam- starfs við hann með þakklæti. Hann var reyndar kominn að blaðinu þeg- ar ég kom þar fyrst 1954 og var þar enn þegar ég fór, en hætti stuttu síð- ar. Hvaða augum litur þú tengsl dagblaða við pólitíska flokka? Nú er þetta orðið þannig að það er talað mikið um að blöð eigi að vera fijáls og óháð og að sumu leyti er vissulega ekkert nema gott um það að segja ef þau em það í raun og vem. Hins vegar var það svo með Þjóðviljann að ég held að mjög fáum hafi dottið í hug að blaðið ætti eitthvert erindi ef klippt væri á þann þráð sem tengdi það við þá pólit- ísku hreyfingu sem að blaðinu stóð. í rauninni vom þetta bara tvær greinar á sama meiði og það al- menna viðhorf ríkjandi að hvomgur aðilinn gæti án hins verið. Ég tamdi mér þá reglu sem ritstjóri að enda þótt blaðið væri pólitískt málgagn fyrir þau stjómmálaviðhorf sem blaðið og flokkurinn byggðu á, þá gætu menn skrifað hvað sem var, einnig pólitískt, ef þeir skrifuðu undir nafni, allt nema grófar æm- meiðingar. Þú nefndir áðan greinar af sama meiði, finnst þér að það hljóti að gilda enn þann dag i dag? Ja, ég vil nú ósköp lítið segja um nútímann og enn minna um framtíðina. Ég hef haldið mig frá þessu öllu um langan tíma og tel mig ekkert sérstaklega dómbæran á það, en auðvitað er fjöldamargt breytt í þessum efhum og ég neita því ekki að það væri vissulega hægt að sjá fyrir sér dagblað í nútíman- um sem rækti af alvöru skyldur við mikilvægistu málefni þjóðarinnar og væri í þeim skilningi baráttumál- gagn, án þess að það væri endilega tengt pólitískum flokki, það er út af fyrir sig hugsanlegt. Hins vegar gef ég lítið fyrir blað sem ekki byggir á neinum meginhugmyndum, lífs- skoðunum eða pólitískum viðhorf- um og hefur þann tilgang einan að hægt sé að selja það. Slík blöð henta mér ekki, en þau geta átt sinn rétt engu að síður. Maður heyrir stundum og sér kröfur um að Þjóðviljinn biðjist af- sökunar á tilveru sinni. Hvað finnst þér um þetta? Já, það er rétt að í ýmsum fjöl- miðlum hefur það verið haft á orði nú hin allra síðustu ár að Þjóðvilj- inn ætti að biðjast afsökunar á allri sinni tilveru og því haldið fram að hann hafi í rauninni frá því fyrsta og til hins síðasta ekki hafl annan megin tilgang en þann að reka er- indi fyrir Sovétstjómina. Ekki er því að neita að á hinum fyrstu árum Þjóðviljans og alllengi þar á eftir voru margir þeirra sem að blaðinu stóðu ákaflega trúaðir á að fyrir- myndarriki væri að verða til austur á Volgubökkum. Sú var tíð. En þetta var hins vegar liðin tíð þegar ég kom að Þjóðviíjanum fyrir 20 ár- um sem ritstjóri, og mér er óhætt að fullyrða að hver sem er getur leitað með logandi ljósi í öllum mínum skrifum sem ritstjóra Þjóðviljans í 10 ár frá 1972 og menn finna þar ekki eina einustu setningu Sovét- stjóminni til lofs, en hinsvegar mik- ið af skömmum enda var því haldið fram í sovéska sendiráðinu á þeim ámm að ég liti á Kremlverja sem óvin númer eitt. Þetta ættu menn nú að hafa í huga, sumir hverjir sem hæst tala um þessi mál. Nei, hvað varðar síðustu 20 ár þarf Þjóðviljinn ekki að biðjast afsökunar á skrifum um þessi efni og hið sama á reyndar við þótt farið sé nokkru lengra aftur í tímann. Trúin á fyrirmyndarríkið var hins vegar ákaflega sterk á fyrstu árunum eftir stríðið en þó er ég ekki viss um að okkar gömlu bolsévikkar hafi hneigt sig neitt dýpra fyrir Moskvu en almennt var hjá leiðtogum núverandi ríkisstjóm- arflokka er þeir snem sér til Wash- ington. -áþs litli RISINN VERSLUNIN m / 1: F Hverfisgötu 103 - sími 25999 SHARP VC A105, eitt tæki úr mognsendingu sem nú er í boði með 20% afslættii Með afar haastæðum samningum við framleiðanda, tókst okkur að tryggja viðskiptavinum okkar, möguleika ó að eignast þetta rróbæra myndbandstæki á ótrúlega góðu tilboðsverði. Pú sparar ríflega átta þúsund og áttahundruð kronur! Hágæöa myndhaus. Greiðslukjör: VISA, EURO, SAMKORT OG MUNALÁN. Ársábyrgð og 10 daga skilaréttur. Verð var kr. 43.590.- • Nú kr. 34.782. Hljóðláta tímamótatækið. Stafræn leitarforritun. HlióSlaus vinnsla. Alsjólfvirkt. Sýnir aSgerS ó skjó 365 daga minni ó 8 mism. tímum HQ Kapalsjónvarpsmóttakari. Barnalæsing. Teljari SKART tengi. Margir tengimöguleikar. (Pökfyrn (pjóðviljanum 55 ára stuöning við baráttu launa- mannafyrirjafnrétti og öítttum lífskiörum. Félag matreiðslumanna Félag framreiðslumanna Félag íslenskra kjötiðnaðarmanna Bakarasveinafélag (slands Félag starfsfólks í veitingahúsum Félag hárgreiðslu- og hárskerasveina Verkamannafélagið Fram, Seyðisfirði Verkalýðsfélag Stykkishólms Verkalýðsfélagið Baldur, ísafirði ÞJONUSTUSAMBAND , ÍSLANDS Síða 5 ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. janúar 1992

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.