Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1995, Qupperneq 21
ÞRIÐJUDAGUR 28. NOVEMBER 1995
Tónlistarfjölskyldan kunna úr Keflavík, Rúnar Júlíusson, María Baldursdóttir og synirnir Baldur og Júlíus.
Aldrei sá dagur
sem mínar tíu tær
snúi upp í loft
- segir Rúnar Júlíusson
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
„Þaö er enginn sá dagur sem ég
sé með allar tíu tær í loftinu. Það
hefur verið nóg að gera hjá mér. Ég
stefni á að ná lengra og stækka
markaðinn sem ég vinn á og gefa út
nokkrar plötur í viðbót," segir popp-
arinn og Keflvíkingurinn
landskunni, Rúnar Júlíusson, sem
hefur haft nóg að gera að undan-
fömu og vinsældir hans era miklar
um þessar mundir sem endranær.
Rúnar, sem varð 50 ára í sumar,
stefnir á að vera í tónlistinni í 20-30
ár í viðbót en hann hefur verið í 30
ár í bransanum eins og hann segir
sjálfur. Hann spilar 150-200 sinnum
á ári, aðallega um helgar. Á virkum
dögum er hann að sýsla í útgáfumál-
um, semja lög og texta. Rúnar segir
að mjög líklegt að hann ætli að
slappa af á gamlárskvöld með fjöl-
skyldunni nema komi eitthvað
spennandi verkefni á borðið.
Fimm plötur á árinu
Rúnar stjómar einnig upptökuút-
gáfufyrirtæki Geimsteins sem er
fjölskyldufyrirtæki og staðsett á
neðri hæðinni á heimili Rúnars.
Fyrirtækið var stofnað 1976 og hefur
gefið út 70 plötur. Á þessu ári gaf
Geimsteinn út 5 plötur með þeim
Tryggva Hubner, Deep Jimi, jólaball
með hinum skemmtilega og góða
söngvara Einari Júlíussyni, Tríó
Jóns Leifssonar og G-hliðina, plötu
Rúnars sem hann gat út að tilefni
stórafmælis sins.
Fjölskylda Rúnars er mikið i tón-
listinni og hefur hún einu sinni spil-
að öll saman og segir Rúnar að gam-
an væri að endurtaka það síðar. AU-
ir kannast við konu hans, söngkon-
una Maríu Baldursdóttir, og synina
tvo, Baldur spilar á píanó og Júlíus
er í hljómsveitinni Deep Jimi
Tveggja ára nemandi:
Mætir með fiðluna og
snuðið sitt í tónlistartíma
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
Viðamiklar breytingar tóku gildi í
september í Tónlistarskólanum í
Njarðvík sem er í dag aldursskiptur
og eingöngu ætlaður nemendum í
grunnskóla. Hugmyndirnar koma
frá skólastjórunum, Kjartani Má
Kjartanssyni i Keflavík og Haraldi
Á. Haraldssyni í Njarðvík, og er ætl-
unin að ná hagræðingu og spamaði
með þessu fyrirkomulagi. Skólinn i
Keflavík er opinn fyrir alla aldurs-
hópa.
„Eftir þessar breytingar hefur orðið
20 nemenda fækkun. 100 nemendur
stunda nám við skólann. Það er
mikið uppbyggingarstarf framund-
an næstu 2-3 árin. Skólinn er mjög
ungur eða 19 ára og uppbygging
hsms hefur verið hröð. Það var mik-
ill metnaður hjá gömlu Njarðvík
fyrir skólanum og vonandi er áfram-
hald á því,“ sagði Haraldur Á. Har-
aldsson, skólastjóri Tónlistarskóla
Njarðvíkur. Skólinn er einnig með
Suzuki deild fyrir yngstu nemendur
í fiðlunámi og sá yngsti er 2 ára.
Haraldur segir að sá mæti með sína
fiðlu og sitt snuð í skólann og hefur
gaman af. .
Hlakkar til að mæta í vinnu
Tónlistarskólinn í Keflavík er
fullsetinn og era tæplega 80 manns á
Skólastjórarnir Kjartan Már Kjartansson, skólastjóri tónlistarskólans í Kefla-
vík, og Haraldur Á. Haraldsson, skólastjóri tónlistarskólans í Njarðvík, hafa
unnið mikið og gott uppbyggingarstarf í tónlistarmálum á Suðurnesjum
undanfarin ár.
biðlista. Hann nýtur mikilla vin-
sælda. í dag eru 250 nemendur við
skólann.
„Allir vita hvaö tónlistin gefur
mikla gleði og ánægju. Þá er hún
mjög þroskandi og hefur mikið upp-
eldislegt gildi og foreldrar eru sér
þess mjög meðvitandi,“ segir Kjart-
an Már Kjartansson, skólastjóri
Tónlistarskóla Keflavíkur. Hann
hefm- verið skólastjóri í tíu ár og
segir að þessi tími hafi verið mjög
skemmtilegur. Hann segist vera svo
heppinn að hann hlakki til á hverj-
um morgni að mæta í vinnuna.
25
Aldrei að vita
nema okkur detti í
hug að taka karl-
menn í félagið
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
„Við erum rosalega montnar af
okkar vörum. Fólk, sem hefur heim-
sótt okkur og farið út á land, segir
að við séum með mjög góðar og
vandaðar vörur. Það sé ekki hægt
að fmna gallaðar og illa prjónaðar
vörur hjá okkur,“ segir Guðrún Júl-
íusdóttir, formaður Bjargar, félags
samstarfshóps um atvinnumál
kvenna á Suðurnesjum. Að sögn
Guðrúnar eru tæplega 40 konur í fé-
laginu og uppistaðan er atvinnu-
lausar konur. Félagið, Gallerí Björg,
rekur glæsilega verslun í Fischer-
húsi sem er við Hafnargötu í Kefla-
vík. Þær skipta dögunum í verslun-
inni á milli sín og vinna í sjálfboða-
vinnu. Vörutegundirnar eru rúm-
lega 40 talsins, allt handunnið og
engar eins - innan hverrar tegund-
ar eru síðan margar útgáfur. Þá era
jólavörurnar að streyma inn.
í félaginu era aðeins konur en
þrír karlmenn eiga vörar í verslun-
inni. Guðrún segir að þær taki vör-
urnar í umboðssölu ef þær era fram-
bærilegar. Hún segir að félagið sé
stofnað fyrir konur eingöngu en
ekki væri að vita nema þær hleyptu
hinu kyninu í félagið. Guðrún segir
að í haust hafi þær sett á fót gæða-
nefnd sem fer í gegnum allar vörur
áður en þær fara inn í búð. Það hafi
reynst mjög vel.
Þær Elsa Björnsdóttir og Una Hallgrímsdóttir voru eldhressar þegar DV leit
inn í verslunina. Þær voru sammála um að vöruúrvalið væri glæsilegt og
jólavörurnar eru þegar komnar í hillurnar.
Ég hef veriö mjög heppin:
Fyrirtækið hefur
gengið eins og
hálfgerð lygasaga
- segir Hrafnhildur Njálsdóttir
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
„Þetta hefur farið fram úr björtustu
vonum og hefur verið eins og hálf-
gerð lygasaga. Ég átti ekki von á því
að hafa manneskju í vinnu í heilu
starfi strax," sagði Hrafnhildur
Njálsdóttir sem hóf í júni fram-
leiðslu á hársnyrtivörum með ís-
lenskum villijurtum. Hrafnhildur
segir að rosaleg vinna sé að baki við
að koma fyrirtækinu, sem er stað-
sett í bílskúrnum, af stað og undir-
búningur hafi staðið í hálft annað
ár. Vörunar bera nafnið Jurtagull.
Hún segir það sem greini jurtagull
frá öðrum hársnyrtivörum sé fyrst
og fremst gæði og græðandi áhrif
jurtanna sem notaðar era í fram-
leiðsluna. Hún segist ekki hefði get-
að gert þetta án hjálpar frá eigin-
manni, föður og fleiri aðilum sem
hafa tekið henni opnum örmum
hvert sem hún hefur komið og
kynnt vörur sínar. Hrafnhildur
kaupir þurrkaöar jurtir eftir vigt af
verktökum sem hún hefur á sínum
snærum víðs vegar um landið. Hún
notar mikið magn jurta í framleiðsl-
una eða sama magn og notað er í
jurtalyf, þess vegna er virknin þetta
góð á hársnyrtivöranum. Hrafnhild-
ur telur að jurtir sem vaxa á íslandi
séu miklu betri, þær vaxi hægar og
séu kraftmeiri. Hún er þegar með
fimm tegundir af hársápu og eina
tegund af hárnæringu og stefnir á
fleiri tegundir næsta ár.
Hrafnhildur Njálsdóttir, eigandi
Jurtagulls, hefur varla haft undan
viö að afgreiða pantanir. Hún hefur
útbúiö fallega gjafapakka fyrir jólin.
„Markaðssetningu er ekki nærri
lokið og ég tel að framleiðslan eigi
eftir að aukast mikið á næsta ári. Þá
stefni ég á markað erlendis og aö-
eins tímaspursmál hvenær það
veröur," segir Hrafnhildur sem er
hárskeri að mennt og nýtur sér-
fræðiaöstoðar Kolbrúnar Bjöms-
dóttur grasalæknis. Hún gerir ráð
fyrir að bæta einum starfskrafti við
á næsta ári vegna mikillar sölu.