Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR lð96
Fréttir_________________________________________________
Tugir fugla olíublautir eftir olíuslysiö á Álftanesi:
Sökudólganna
verður leitað
- segir Davíö Egilsson hjá Hollustuvernd ríkisins
„Þaö er nokkuð ljóst að olían hef-
ur komið frá skipi sem hefur verið
að fara inn í Hafnarfjarðarhöfn eða
Straumsvík. Strax eftir helgina
verður farið að skoða hverjir hafa
farið inn eða út og reynt að finna þá
sem þarna hafa verið að verki.
Mönnum er algerlega óheimilt að
lensa i sjóinn, hvort sem það hefur
verið óhapp eða viljaverk," segir
Davíð EgÚsson hjá Hollustuvernd
ríkisins. Hann segir svona mál fara
hefðbundna leið fyrir dómstóla.
Olíunnar varð fyrst vart úti fyrir
Álftanesi daginn fyrir gamlársdag
og strax í birtingu dáginn eftir voru
gerðar ráðstafanir til þess að kanna
umfang mengunarinnar. Davíð
sagöi mönnum ekki sýnast hún
vera þess eðlis að það svaraði kostn-
aði að hreinsa olíuna upp. Hann
hvatti fólk til þess að láta Landhelg-
isgæsluna vita ef það yröi vart við
mengun af þessu tagi. Hollustvemd
hefði heyrt af þessari mengun í fjöl-
miðlum kvöldið fyrir gamlársdag og
þá hafi verið orðið of dimmt til þess
að gera nokkuð.
Strax á gamlársdag var farið í að
leita uppi olíublauta fugla. Kristinn
H. Skarphéðinsson líffræðingur fór
ásamt fleiri mönnum á staðinn.
„Mér virðist þetta sem betur fer
ekki hafa verið mjög alvarlegt
mengunarslys en þó hafa líklega
einhverjir tugir fugla lent í þessu.
Veður hefúr verið hagstætt og enn
sem komið er hefur einungis verið
hægt að ná fjórum olíublautum fugl-
um. Á næstu dögum verða fjörur
gengnar til þess að leita uppi fleiri
fugla,“ segir Kristinn.
í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
fengust þær upplýsingar í gærkvöld
að þangað hafi verið komið með
flóra fugla en enn væri ekki farið að
hreinsa þá. Ráðlegast væri að láta
þá biða i sólarhring meðan þeir
væru að ná sér eftir mesta sjokkið.
Starfsmaðurinn, sem DV ræddi við,
sagðist vonast til að hægt yrði að
bjarga þessum fjórum.
-sv
Áramótin í Reykjavík:
Annríki hjá lögreglu en
rólegt hjá slökkviliðinu
- oft rólegra en áður á slysadeild
Talsvert annríki var hjá lögregl-
unni í Reykjavík á nýársnótt. Alls
voru 248 mál bókuð til afgreiðslu
þar. Á slysadeild Borgarspítala, nú
Sjúkrahúss Reykjavíkur, var oft ró-
legra en áður um áramótin en 135
manns leituðu þar aðstoðar á einum
sólarhring til klukkan 10 á nýárs-
morgun.
Alls voru sjö líkamsárásir til-
kynntar til lögreglunnar en engin
þeirra var stórfelld, 17 tilkynningar
voru um eignaspjöll og 8 manns
voru teknir grunaðir um ölvun-
arakstur. Þá var lögreglan kölluð í 6
heimcihús vegna ófriðar þar og einn
ungur maður á Seltjarnarnesi
brenndist á fótum eftir flugeldaslys.
Hann fékk þó að fara heim af slysa-
deild eftir að gert hafði verið að sár-
um hans eins og allir aðrir sem leit-
uðu þangað vegna brunaslysa.
Einn þurfti að leita á slysadeild
eftir að ekið hafði verið utan í hann
við Breiðholtskjör klukkan fimm í
gærmorgun. Hann mun hafa misst
framan af fingri og skrámast.
Klukkan hálfníu ók ölvaður öku-
maður niður umferðarljós við Stöng
í Breiðholti. Við ákeyrsluna brotn-
aði framhjól bílsins af en ökumað-
urinn lét ekki staðar numið heldur
ók í ofboði á undan lögreglu niður
Breiðholtsbraut með þrjú hjól undir
bílnum og stöðvaði ekki fyrr en nið-
ur við Skeiðarvog. Hann var vistað-
ur í fangageymslu. Ásamt honum
voru vistaðir nokkrir sem fundust
dánir áfengisdauða á víðavangi í
Reykjavík.
Lögreglan telur að um 3 þúsund
manns hafi safnast saman í miðbæ
Reykjavíkur þegar mest var um
klukkan 4 í morgun en frá klukkan
10 í gærmorgun var rólegt að mestu.
Að sögn Slökkviliðsins í Reykja-
vík var tiltölulega rólegt á áramóta-
vaktinni þar á bæ. Slökkviliðið var
kallað út 10 sinnum og var um
minni háttar útköll að ræða í öllum
tilvikum. Þá voru um 27 útköll
vegna sjúkraflutninga og slysa.
-PP
Reiknao er með að tugir fugla hafi orðið olíubiautir eftir olíuslysið við Alfta-
nes á föstudag. Starfsmaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal
heldur hér á olíublautum æðarblika og hefur nýlokið við að hreinsa þann
sem kúrir makindaiega neðst á myndinni. Starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýra-
garðsins mælist til þess við fólk að það reyni ekki sjálft að hreinsa olíublauta
fugla en komi þeim frekar í garðinn þar sem hlúð verður að þeim.
DV-mynd ÞÖK
Akureyri:
Róleg áramót hjá lögreglu
DV, Akureyri:
Þrátt fyrir nokkra ölvun voru
áramótin friðsæl í umdæmi lögregl-
unnar á Akureyri. Aðeins þrír gistu
fangageymslu á nýjársnótt og yfir-
leitt þurfti lögreglan ekki að hafa
sig mikið í frammi.
Þó lenti tveimur mönnum saman
í miðbænum við Landsbankann í
gærmorgun. Annar þeirra hlaut
nokkra áverka á höfðu þegar hnef-
arnir höfðu verið „látnir tala“ og
flutti lögreglan hann á slysadeild til
aðhlynningar. Þá þurfti lögreglan
að hafa afskipti er eldur varð laus í
vélum tveggja bifreiða og er þá það
helsta upp talið sem varðstjóri hjá
lögreglunni sagði fréttnæmt úr bók-
um varðstjóra. -gk
Dagfari
Ábataskipti
Rétt áður en nýja árið skall á
tókst flugumferðarstjóram að fá
samningamenn ríkisins til að
hjálpa sér við að þurfa ekki að
standa við uppsagnir sínar. Flug-
umferðarstjórar höfðu sem kunn-
ugt er sagt upp störfum hjá flug-
málastjóm í viðleitni sinni til að fá
hærri laun þar sem flugumferðar-
stjórar hafa staðið i þeirri mein-
ingu að þeir væru ómissandi.
Það var þess vegna mikið áfall
fyrir flugumferðarstjóra þegar
samgönguráðherra tók uppsagnir
þeirra til greina og auglýsti stöð-
urnar upp á nýtt. Allt frá þeirri
stundu hafa flugumferðarstjórar
leitað allra leiða til að fá ríkiö til
að taka ekki mark á uppsögnunum.
Fengu þeir sáttasemjara ríkisins
til liðs við sig.
Á endanum voru þeir skornir
niður úr snörunni með því að rík-
ið ákvað að semja við þá um sömu
hækkun og aðrir opinberir starfs-
menn hafa fengið án þess að segja
stöðum sínum upp og auk þess var
samið um óljós loforð um hagræð-
ingu í starfinu. Skilst manni helst
að þar sé átt við að flugumferðar-
stjórar minnki við sig yfirvinnu!
Þetta mun í fyrsta skipti sem heil
stétt berst fyrir þvi í kjaradeilu að
lækka við sig launin og draga úr
vinnu og dugði ekki minna til en
uppsögn á starfi til að fá þessu
framgengt.
Nú er það í sjálfu sér þakkarvert
af hálfu ríkisvaldsins að taka tillit
til þess óhagræðis sem flugumferð-
arstjórar hafa mátt þola af því að
vinna of mikið og of lengi og á móti
kemur að ríkið sparar fé þegar
launin lækka og eru þessir samn-
ingar kallaðir ábataskipti sem
væntanlega eru þá í því fólgin að
flugumferðarstjórar minnka við
sig vinnu gegn því að fá minna út-
borgað.
Þetta ákvæði í samningunum,
sem undirritaðir voru daginn fyrir
gamlársdag, er sem sagt það sem
átt er við þegar talað er um ábata-
skipti. Ábatinn er með öðrum orð-
um sá að vinnustundum fækkar og
launin minnka hjá stéttinni sem
háði kjarabaráttuna.
En annað og merkilegra kom í
ljós meðan á þessari deilu stóð.
Menn uppgötvuðu að flugumferð-
arstjórarnir skipta svo gott sem
engu máli að því er varðar flugum-
ferð og stjóm á henni. Kanamir á
Vellinum gátu auðveldlega annast
þessa flugumferðarstjórn svo að
fyllsta öryggis væri gætt. Stéttin er
sem sagt óþörf.
Við fyrstu sýn kann þetta að líta
illa út fyrir íslensku flugumferðar-
stjórana-sem hafa talið sig ómiss-
andi. En þegar betur er áð gáð á-
þessi staðreynd að geta komið
þeim í góðar þarfir næst þegar þeir
hóta að hætta störfum.
Hvernig þá? Jú, flugumferðar-
stjórar vilja helst losna við að
starfa of mikið sem maður skilur
vel þegar vesalings mennimir vita
að það skiptir ekki máli hvort þeir
séu í vinnunni eða ekki því að flug-
umferðinni er stjómað hvort sem
er. En það er einmitt lykilatriði
þegar þeir gera aftur kröfur um að
minnka við sig vinnu. Þá geta þeir
einmitt bent á að viðvera þeirra
skipti ekki máli. í raun og veru
ættu þeir að geta fært sig lengra
upp á skaftið í næstu kjaradeilu og
sett fram kröfu um að þeir fái laun
fyrir að vera heima. Þeir geta með
öðrum orðum rökstutt það að þeir
mæti alls ekki til vinnu þótt þeir
fái borgað fyrir að vera flugumferð-
arstjórar!
Að því leyti kom þessi kjaradeila
sér vel fyrir flugumferðarstjóra en
auðvitað verða þeir að gæta sín á
því að segja ekki upp störfum þótt
þeir séu óánægðir með launin og
vilji vera meira heima hjá sér og
helst ekki að mæta á vinnustað.
Aðalatriðið er að fá borgað fyrir að
vera til staðar án þess að leggja það
á sig að mæta til starfa þegar það
blasir við að vinnuálagið er of mik-
ið og hægt er að gera nýja kjara-
samninga sem taka tillit til þess að
það er ábati að því að stéttin
minnki við sig vinnu. Og flestir
geta tekið undir með flugumferðar-
stjórum þegar þeir benda á þá stað-
reynd að launin era of lág fyrir það
erfiði að gera ekki neitt.
Dagfari