Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1996 Utlönd Stuttar fréttir dv Díana prinsessa samþykkir skilnaö við Karl prins: Ég er ekki svarti sauðurinn í konungsfjölskyldunni „Ég geri mér ljóst núna að skiln- aður er óumflýjanlegur. Enginn get- ur staðið í vegi fyrir drottningunni til lengri tíma en ég hef gert það ljóst að skilnaðurinn verður að vera samkvæmt mínum skilmálum. Ég hef alltaf sagt að daman muni ekki fara hljóðlega og núna veit ég að þau trúa mér,“ segir Díana prinsessa í símtölum við ónafn- greinda vini sína og ráðgjafa. Það var dagblaðið Daily Mirror sem skýrði frá þessu í gær en þar kemur jafnframt fram að prinsessan hafi ákveðið að fallast á beiðni Elísabet- ar drottningar um að skilja við Karl prins. Blaðið hefur það eftir vini Díönu að aðalatriði samningaviðræðnanna snúist um hlutverk prinsessunnar en hún er alls ekki tilhúin að setjast í helgan stein. „Díana trúir því að hún hafi mikið að bjóða þessu landi og hún lætur ekki konungsfjölskyld- una kveða sig í kútinn,“ sagði einn vina hinnar 34 ára gömlu prinsessu sem þessa dagana dvelst í fríi á eyju í Karibahafi. Fréttin í Daily Mirror er sú fyrsta þar sem fram kemur að Díana sé til- búin að fallast á skilnað en ósætti hennar við konungsfjölskylduna var frekar undirstrikað um jólin. í hefðbundnu jólaboði drottningar- innar í höllinni í Sandringham var prinsessan hvergi sjáanleg. Gangi skilnaðurinn eftir getur Karl eftir sem áður tekið við krún- unni og jafnframt orðið yfirmaður ensku kirkjunnar. Kjósi hann hins vegar að kvænast á nýjan leik kann hann að mæta andstöðu þeirra kirkjunnar manna sem segja það ekki samræmast reglum hennar. Díana krefst þess að skilnaðurinn við Karl verði samkvæmt hennar skilmálum. Karl, sem er 47 ára, hefur sjálfur sagt að ekkert slíkt sé á dagskrá. Getgátur hafá samt verið uppi um það að hann muni ganga að eiga Camillu Parker Bowles, þá hina sömu og eyðilagði hið konunglega hjónaband, að mati Díönu. Einn þeirra sem hefur alfarið lagst gegn slíkum ráðahag er breski forsætis- ráðherrann, John Major. Haft er eft- ir honum í einu dagblaðanna að breskur almenningur myndi aldrei samþykkja slíkan ráðahag. Hverjum svo sem um er að kenna hvernig allt fór er þó prinsessan viss í sinni sök: „Þau munu aldrei gera mig að svarta sauðnum i kon- ungsfjölskyldunni," sagði Díana í einu af símtölum sínum frá Karíba- hafi. Reuter Handtekin fyrir aö selja barnið sitt Lögreglan í Egyptalandi hand- tók konu í Kaíró sem hafði orðið uppvís að því aö selja barn sitt. Konan sem um ræðir heitir Nadia Ali og er fertug. Hún lét stúlkubam sítt af hendi fyrir um 300 þúsund íslenskar krónur en kaupandinn var kynsystir henn- ar sem er mun betur stödd fjár- hagslega. Þegar barnið, sem var 45 daga gamalt þegar viðskiptin áttu sér stað, veiktist hugðist kaupandinn skila því til hinnar réttu móður. Þá upphófust slags- mál og var lögreglan kölluð til. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem lögreglan i Egyptalandi hef- ur afskipti af máli sem þessu en Nadia Ali gaf þá skýringu um „viðskiptin" að hún þyrfti pen- ingana til að framfleyta hinum börnunum sínum þremur. Borgarstjórinn faldi sig á klósettinu Borgarstjórinn í bænum MOa- gros í Argentínu mátti dúsa inni á klósetti fimmtán klukkustund- ir á meðan æstur múgurinn gekk berserksgang í kjölfar fjöldaupp- sagna. Málsatvik eru þau að eftir að borgarstjórinn tilkynnti að emb- ætti hans myndi segja upp 120 starfsmönnum varð fjandinn laus. Borgarstjórinn sá því ekki annað ráð en að læsa sig inni á klósettinu þar til öldurnar lægði. Fimmtán klukkustundum síðar var honum bjargað af lögreglu. Belgar minnka bjórdrykkjuna Belgar hafa minnkað bjór- drykkjuna hjá sér um 5% á milli ára. Frá þessu er skýrt í tímarit- inu Gondola og er ástæðan sögð vera hertar reglur um leyfilegt magn áfengis í blóðinu, svo og peningasektir. Áður máttu öku- menn mest hafa 0,8 millígrömm af áfengismagni í blóði sínu en á síðasta ári var það lækkað i 0,5. Samhliða var tekin upp sú aö- gerð aö beita ökumenn peninga- sektum fyrir drykkjuna. Bobby Brown dæmd- ur fyrir ofbeldi Söngvarinn Bobby Brown, eig- inmaður söngkonunnar Whitney Houston, var á fóstudaginn dæmdur í þúsund dala sekt fyrir að sparka í afturhlutann á örygg- isverði West Hollywood hótels- ins. Bijóti Brown af sér á næst- unni tekur við tveggja ára fang- elsisvist en söngvarinn var einnig skikkaður til að fara á námskeið þar sem mönnum er kennt að hemja skap sitt. Reuter Nyju ari Áramótunum var víða fagnað um heiminn en þó með misjöfnum hætti. Giuseppe Palmulli, 43 ára ítali, fékk sér t.d. smá sundsprett þegar hann kastaði sér í ána Tiber í Róm en sá siður mun hafa komist þar á fyrir um hálfri öld. Símamynd Reuter Áramót með ýmsum hætti Haldið var upp á áramótin með ýmsum hætti um heimsbyggðina og er óhætt að segja að geng- ið hafi á ýmsu. Á Filippseyjum féllu margir í valinn eins og sagt er frá annars staðar í DV en í Bandaríkjunum gengu .mtirnir þó öllu róleg- ar fyrir sig. Á Times Square var samankomin um hálf milljón manna en allt gekk þó að mestu áfallalaust utan þess að fáeinir voru handteknir fyrir óviðeigandi hegðun. Aldrei áður hafa svo margir verið þar samankomnir á gamlárs- kvöldi. Um 70 þúsund voru á Trafalgar Square í London og var hegðun þeirra góð. Nokkrir voru þó handteknir fyrir fyllirí en fyrir fáeinum árum krömdust þarna tvær konur til bana. í Ed- inhorg voru um 300 þúsund manns í miðbænum og gekk vel. Þrátt fyrir kuldann i Þýskalandi safnaðist fólk víða saman á síðasta degi ársins. Um 30 þúsund voru t.d. við Brandenborgarhliðið og fylgdust með ílugeldasýningu. Einn maður lést af völdum heimagerðs flugelds og þrír fórust í eldsvoða í Þýskalandi. Þrír dóu sömuleiðis á Ítalíu um áramótin en þar þurfti að gera að sárum nærri þúsund manns vegna óhappa tengdum flugeldum. í Moskvu urðu tveir gleðimenn úti eftir að hafa drukkið of mikið og i Argentínu hófu tveir ná- grannar árið með því að berjast með hnífum. Þeir eru nú báðir alvarlega slasaðir á sjúkra- húsi. Reuter Þúsundir Þjóðverja létu kuldann ekki á sig fá og komu saman við Brandenborgarhliðið til að fagna nýju ári og var myndin tekin við það tækifæri. Símamyrfd Reuter Pantað í tíma Mörg af vinsælustu veitinga- húsum Parísar eru uppbókuð á gamlárskvöld 1999. Eldflaugaárás á Kabúl Þrjú börn létust í eldflauga- árás á Kabúl í gær. 21 lést í svip- aðri árás þar í fyrrakvöld. Eldsvoði í Kóreu 150 verslanir eyðilögðust í eldsvoða í Suður-Kóreu um helgina. Tveir slösuðust. Major John Major, for- sætisráð- herra Breta, á nú í mikl- um vandræð- um með að halda úti stjórn sinni og er meiri- hluti hennar nú mjög naumur á þinginu. Emma Nicholson er nýjasti þingmaðurinn til að yfirgefa Major en hún hefur gengið til liðs við frjálslynda demókrata. Eldsvoði í Júgóslavíu Eldur braust út í bílaverk- smiðju Yugo á gamlárskvöld en þar eru árlega framleiddir 120 þús. bilar. Framleiðslan hefst aftur síðar í mánuðinum. 50 dóu í bílslysi Fimmtíu létust þegar trukkur steyptist niður í skurð í Zaír í gær. 100 manns voru í bifreið- irrni þegar óhappið varð. Árekstur í Mexíkó Tuttugu og fimm létust þegar tvær langferðabifreiðar rákust á nærri landamærum Mexíkó og Bandarikjanna. Flestir hinna látnu voru frá Mexíkó. Abdullah tekinn við Abdullah, krónprins í Sádi- Arabíu, hefur tekið við leiðtoga- hlutverki ríkisstjórnarinnar í stað bróður síns, Fahd, sem er að jafna sig eftir hjartaáfall. . Bonoí írska poppstjarnan Bono, söngv- ari hljóm- sveitarinnar U2, eyddi áramótunum í Sarajevo í boði stjórn- valda í Bosn- íu. Söngv- ar- inn tók ekki lagið í ferðinni en útilokaði ekki að halda þar tón- leika með U2 á næsta ári. Öflugur jarðskjálfti Öflugur jarðskjálfti skók hluta Indónesíu í gær. Eignatjón varð nokkurt en ekki er vitað um meiðsl á fólki. Tígrisdýr drap ungling Unglingur i Kalkútta lést þeg- ar hann reyndi að koma skreyt- ingu á tígrisdýr í dýragarðinum þar. Vinur hins látna slasaðist einnig og er vart hugað líf. Páfinn Jóhannes Páll páfi virt- ist við ágæta heilsu þegar hann flutti áramóta- ávarp sitt á Péturstorgi um helgina. Fórst í snjóflóði 35 ára gamall Frakki fórst í snjóflóði í Ölpunum í gær. Fimm var bjargað. Sprengjur á Korsíku Fjórar sprengjur sprungu á Korsíku um helgina. Reuter hressari Sarajevo i vanda

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.