Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Síða 28
36
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1996
Afmæli
Oddur Guðmann Jónsson
Oddur Guðmann Jónsson, deild-
arstjóri hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, Háaleitisbraut 107,
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Oddur fæddist að Veðrará í Ön-
undarfirði og ólst upp í Önundar-
firði. Hann var í barnaskóla til
fjórtán ára aldurs, stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík
1943-47, stundaði nám í rafvirkjun
hjá Sigurði Bjarnasyni rafvirkja-
meistara 1943-47, lauk sveinsprófi
1947, öðlaðist meistararéttindi
1950 og löggildingu til rafverk-
takastarfsemi 1951.
Oddur var rafvirki til sjós í tvö
ár, starfaði slðan við raflagnir í
Reykjavík tO 1955, hóf þá störf hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur sem
rafmagnseftirlitsmaður og hefur
verið þar yfireftirlitsmaður og
deildarstjóri frá 1976.
Fjölskylda
Oddur kvæntist 28.5.1950 Ernu
Heiðrúnu Jónsdóttur, f. 20.10.
1925, d. 13.5. 1989, húsmóður. Hún
er dóttir Jóns Almars Eðvaldsson-
ar, vélstjóra á Akureyri, og Jak-
obínu Guðbjartsdóttur húsmóður.
Börn Odds og Ernu Heiðrúnar
eru Jóna G. Oddsdóttir, f. 8.12.
1951, skrifstofumaður í Garðabæ,
gift Jóni M. Þórarinssyni kennara
og eru dætur þeirra Erna H. Jóns-
dóttir, f. 18.6. 1984, og Arna M.
Jónsdóttir, f. 31.7.1990; Gunnar Ö.
Oddsson, f. 7.8.1962, rafvirki i
New York, kvæntur Þórdísi
Gunnarsdóttur, starfsmanni Flug-
leiða á Kennedy-flugvelli; Elín J.
Oddsdóttir, f. 9.3. 1964, hjúkruna-
rfærðingur við Landspítalann, gift
Hannesi K. Þorsteinssyni kennara
og eru dætur þeirra Gunnhildur
V. Hannesdóttir, f. 3.8. 1987, Val-
gerður A. Hannesdóttir, f. 22.6.
1992, og Agnes Nína Hannesdóttir,
f. 17.9. 1995.
Hálfbróðir Odds, sammæðra,
var Jón Franklín, nú látinn, út-
gerðarmaður í Reykjavík.
Alsystkini Odds eru Guðmund-
ur Franklín Jónsson, nú látinn,
verkstjóri hjá Eimskip í Reykja-
vík; Guðrún Ingibjörg Jónsdóttir,
húsmóðir í Reykjavík; Gróa Mar-
grét Hildur Jónsdóttir, húsmóðir í
Reykjavík; Haraldur Jónsson, nú
látinn, útgerðarmaður á Flateyri;
Stefán Jónsson, nú látinn, bifvéla-
virki í Hafnarfirði; Ólafur Jóns-
son, nú látinn, trésmiður í
Reykjavík.
Foreldrar Odds voru Jón Guð-
mundur Guðmundsson, f. 29.9.
1892, d. 4.10. 1971, bóndi og verka-
maður í Önundarfirði, og Jóna
Guðrún Jónsdóttir, f. 7.8. 1892, d.
24.10. 1930, húsfreyja og ljósmóðir.
Oddur tekur á móti gestum í fé-
lagsheimili Rafmagnsveitunnar í
Elliðaárdal, í dag, 2.1., milli kl.
18.00 og 20.00.
Oddur Guðmann Jónsson.
Ríkharður Brynjólfsson
Ríkharður Brynjólfsson, aðal-
kennari Búvísindadeildar við
Bændaskólann á Hvanneyri,
Norðurási, Hvanneyri, Andakíls-
hreppi, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Ríkharður var sérhæfður að-
stoðarmaður við Rannsóknastofn-
un landbúnaðarins 1970-71, hefur
verið kennari við Bændaskólann
á Hvanneyri frá 1976 og aðalkenn-
ari við Búvísindadeild frá 1979.
Ríkharður hefur setið í hrepps-
nefnd Andakílshrepps frá 1986, er
en ólst upp í Reykjavík. Hann maður Norrænna búvísinda- lauk búfræðiprófi frá Bændaskól- manna NJF, 1992-95 og er formað- anum á Hvanneyri 1965, varð þar ur íslandsdeildar NJF frá 1992. búfræðikandidat 1970 og er Dr.Sci í plöntukynbótum frá Landbúnað- FjÖlskylda arháskólanum í Ási í Noregi frá 1977. Ríkharður kvæntist 1.9. 1968
Tll hamingju meö
afmælið 2. janúar
90 ára 60 ára
Valborg Þorsteinsdóttir, óskar Helgi Einarsson, Klúku, Fljótsdalshreppi. Hátúni 6bi Reykjavík. Guðjón Ölafur Auðunsson, Jóhanna Þuríður Bjamadóttir, Dvalarheimilinu Lundi, Hellu. Njörvasundi 40, Reykjavík. Eiríkur Guðmundsson,
oc - Brimnesi 2, Fáskrúðsfirði. OO ara Giiðnuindnr Kristjánsson,
Unnur Ólafsdóttir, Tangagötu 8, Stykkishólmi. Kirkjuteigi 16, Reykjavík.
Anna V. Jónsdóttir, „„ , Kópavoasbraut lb. KóDavoai. ara
Þóra Ragnarsdóttir,
0« , Setbergi 10, Þorlákshöfn. ÖU ara .Inn Óskar Garlsson.
Vilborg Sigfúsdóttir, Hraunbæ 128, Reykjavík. Faxatröð 8a, Egilsstööum. Hallfríður Bjarnadóttir, Lára Júlíusdóttir, Stekkjarbrekku 2, Reyðarfirði. Austurbraut 5, Keflavík. LiUa BJörS Olafsdóttir, Kárastöðum, Rípurhreppi. Hildor Metiísalemsdnttir,
75 ára Bleiksárhlíð 51, Eskifirði.
— Ulol (jruömuiiusuoiiir, Friðrik Vilhjálmsson, Háeyrarvöllum 4, Eyrarbakka. Klapparstíg 1, Reykjavík. Sigurftur Guftmundsson,
Álfhólsvegi 82, Kópavogi. 40 ára
Jóhanna Runólfsdóttir, Hamraborg 32, Kópavogi. Jóna Sigrlður Steingrúnsdóttir, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Grettisgötu 31, Reykjavík. Sandabraut 8, Akr£mesi. Valdimar Einarsson, Leynisbrún 14, Grindavik. Marfa Kristjánsdnttir,
70 ára Traðarbergi 11, Hafnarfirði.
Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Oddur Björnsson, Skeggjagötu 7, Reykjavík. Unalæk, Vallahreppi.
Sesselju Bjarnadóttur, f. 29.8. 1941,
rannsóknarmanni. Hún er dóttir
Bjarna Jónssonar og Laufeyjar
Valgeirsdóttur, bænda í Bjarnar-
höfn á Snæfellsnesi.
Synir Ríkharðs og Sesselju eru
Ragnar Ríkharðsson, f. 6.3. 1971,
nemi í matvælafræði við HÍ;
Steinar Ríkharðsson, f. 4.6. 1976,
nemi við ML.
Hálfsystir Ríkharðs, samfeðra,
er Bryndís, f. 9.3. 1925, hjúkrunar-
fræðingur í Kanada.
Alsystkini Ríkharðs eru Ragn-
heiður, f. 17.3. 1935, d. 20.4. 1971;
Þorvarður, f. 4.5. 1938, læknir í
Svíþjóð; Anna, f. 19.7. 1939, skrif-
stofumaður í Reykjavik; Ásthild-
ur, f. 13.8. 1944, sölufulltrúi í
Bandaríkjunum; Eiríkur, f. 28.12.
1950, stærðfræðikennari við MA;
Stefán, f. 28.8. 1952, byggingafull-
trúi á ísafirði.
Foreldrar Ríkharðs: Brynjólfur
Þorvarðarson, f. 6.5. 1902, d. 19.12.
1974, skrifstofumaður á Reyðar-
firði og í Reykjavík, og Ásta Þor-
björg Beck, f. 14.9. 1913, iðnverka-
kona.
Ríkharður verður að heiman á
afmælisdaginn.
Þorgrímur Jónsson
Þorgrímur Jónsson tryggingayf-
irtannlæknir, Hólavallagötu 7,
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Þorgrímur fæddist að Klepp-
járnsreykjum í Reykholtsdal.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1947, tannlæknaprófi frá HÍ1959
og var i framhaldsnámi í tann-
vegsfræði og röntgenfræði við
Tannlæknaháskólann í Bergen
1967-70.
Þorgrímur var tannlæknir í
Reykjavík 1959-66, tannlæknir við
Gladsaxe Kommune Börnetanpleje
1966-67, stundakennari við tann-
læknadeild HÍ 1973-75, lektor þar
1975-78, tryggingatannlæknir hjá
Tryggingastofnun ríkisins frá 1978
og er tryggingayfirtannlæknir frá
1990.
Þorgrímur var formaður Félags
tannlæknanema 1955, sat í rit-
nefnd Árbókar TFÍ 1964-65 og í
fræðslunefnd TFÍ 1972-79.
Fjölskylda
Þorgrímur kvæntist 2.7. 1956
Huldu Jósefsdóttur, f. 6.12. 1930,
listhönnuði og kennara. Hún er
dóttir Jósefs Ingvars Jakobssonar,
bónda á Bálkastöðum, og Gróu
Jónasdóttur.
Dóttir Þorgríms og Huldu er
Anna Þorgrímsdóttir, f. 12.11. 1956,
tónlistarkennari.
Systkini Þorgríms: Ingibjörg
Birna Jónsdóttir, f. 2.12.1919, hús-
móðir í Reykjavík; Stefán Jóns-
son, f. 30.12. 1920, d. 23.8. 1971,
skrifstofustjóri í Reykjavík; Jó-
hann Jónsdóttir, f. 2.4. 1922, mat-
ráðskona og húsmóðir í Reykja-
vík; Guðrún Jónsdóttir, f. 22.9.
1923, húsfreyja á Kópareykjum í
Reykholtsdal; Bjarni Jónsson, f.
23.10. 1927, kennari í Reykjavík;
Jóna Anna Jónsdóttir, f. 23.4. 1929,
d. 3.11. 1930.
Foreldrar Þorgríms voru Jón
Bjamason, f. 7.10. 1892, d. 2.1. 1929,
héraðslæknir á Kleppjárnsreykj-
um, og k.h., Kristín Kristjana Þor-
Þorgrímur Jónsson.
grímsdóttir, f. 5.12. 1894.
Þorgrímur er að heiman á af-
mælisdaginn.
•• 903 • 5670 ••
Aöeins 25 kr. mínútan. Sama verö fyrir alla landsmenn.
Munið
nýtt
símanúmer
550 500®