Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Qupperneq 32
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Hafnarfjörður: Varðhalds krafist yfir þrítugum karlmanni - lagði til manns með hnífi Tæplega þrítugur karlmaður var handtekinn í gær grunaður um að hafa ráðist á sér litlu eldri mann í heimahúsi í Hafnarfirði í gærmorg- un og vegið að honum með hnífi. Hnífslagið kom á háls mannsins sem fluttur var á slysadeild þar sem mikið blæddi úr skurði sem hann hlaut. Gert var að sárum hans og var hann, ekki í lífshættu í gær- kvöldi að sögn lækna sem höfðu í hyggju að hafa hann á sjúkrahúsi í nðtt til eftirlits. Eins og fyrr segir átti verknaður- inn sér stað í heimahúsi í Hafnar- firði að morgni nýársdags. Árás- armaðurinn var óboðinn gestur i húsinu og höfðu húsráðandi og gest- ir haft áfengi um hönd. Eftir árás- ina flúði árásarmaðurinn af vett- vangi en stúlka i húsinu lét lögregl- una í Hafnarfirði vita. Slóð manns- ins, sem grunaður er um verknað- inn, var rakin að öðru húsi og var hann handtekinn í kjölfarið. Hann hefur áður komiö við sögu lögregl- unnar. , . Engar upplýsingar fengust hjá RLR i gærkvöldi, sem fer með rann- sókn málsins, um hvort maðurinn "hefði játað verknaðinn. Reiknað er með að farið verði fram á gæslu- varðhaldsúrskurð yfir manninum í dag. -pp Áramót á Eskifirði: Eins og í sunnudaga- skóla „Nóttin var rosalega róleg framan af og í raun eins og í sunnudaga- __^kóla fram til klukkan sjö þegar ég ætlaði að fara að skríða í bælið. Þá byrjuðu læti i heimahúsum hingað og þangað og ég var að til klukkan tvö í dag,“ sagði lögreglumaður a Eskifirði í samtali við DV í gær- kvöldi, aðspurður hvernig nýár- snóttin hefði gengið fyrir sig í hans umdæmi. -sv 20 skip á sjó um áramótin Samkvæmt upplýsingum frá Til- kynningaskyldu Slysavarnafélags- ins voru í kringum 20 skip á sjó um áramótin. Það er heldur minni sjó- sókn en verið hefur undanfarin ár. JJm það bil helmingur þessara 20 skipa eru flutningaskip þannig að fáir hafa róið til fiskjar. -bjb MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 2. JANUAR 1996 VAR HANN A VEGUM KIRKJUNNAR ÞESSI SUNNUDAGASKÓLI? Vísbendingar um að verkjalyf séu að aukast á fíkniefnamarkaðnum: Fimm látnir eftir neyslu verkjalyfja þarfnast rannsóknar, segir eiturefnasérfræðingur „Við getum rakið fimm dauðs- föll hér á landi á seinasta ári til neyslu sterkra verkjadeyfandi lyfja. Ef ég man rétt eru tvö „af völdum" metadons, tvö af völdum condalgins og eitt af völdum ketog- ans. Ég segi af völdum innan gæsalappa því að þessi efni koma ekki ein við sögu. Hér getur líka verið um að ræða önnur lyf og áfengi samhliða. Það eru vísbend- ingar um að þessi lyf séu að koma inn á fikniefnamarkaðinn í aukn- um mæli,“ segir Jakob Kristins- son, dósent í eiturefnafræði á Rannsóknarstofu Háskólans í lyfjafræði. „Dauðsfollin hafa aldrei verið eins mörg og á nýliðnu ári. Ef menn hins vegar vilja sjá ein- hveija þróun verðm- að gera rann- sóknir á þessu þvi oft verða tilvilj- anakenndar sveiflur á dauðsfoll- um af völdum eitrana." Umrædd lyf eru öll eftirritunar- skyld og undir eftirliti Lyfjaeftir- litsins, þ.e. Lyfjaeftirlitið fylgist bæði með því hvaða læknar gefa þau út og einnig hvaða sjúklingar nota þau. Lyfin eru öll vanabind- andi verkjalyf en metadon þó sýnu minnst en heróínfiklar nota það gjarnan til að losna úr vítahring neyslu sinnai-. Meðal innihalds- efha condalgins er morfín. „Það er alveg klárt að þetta er ekki lyfjaneysla samkvæmt lækn- isráði. Þessi fimm manna hópur sem um ræðir er hins vegar dálít- ið blandaður og því erfitt að full- yrða að þama séu á ferðinni ávana- og fikniefnaneytendur. Þrátt fyrir þetta hef ég áhyggjur af því að fíkniefnaneyslan sé að fær- ast yfir í neyslu sterkra verkja- lyfja - ávísanaskyld lyf, sérstak- lega ef haft er í huga að við emm að finna þau meðal efna sem fikni- efhalögreglan leggur hald á. Það þarf að skoða þetta mun betur. Eins og stendur er þetta áhuga- vert. Það er ekki hægt að fullyrða að hér sé um að ræða lyf sem læknar hérlendis hafa gefið út. Þeim getur líka hafa verið smyglað eða vísað á þau erlendis," segir Jakob. Gunnlaugur Geirsson, prófessor í réttarlæknisfræði, leyfir sér að efast um að um sé að ræða lyf sem ávísað sé af innlendum læknum. Hitt sé annaö mál að það verði að skoða hvernig fólk kemst yfir lyf af þessu tagi sem eru gagnleg við vissar aðstæður. Þetta sé okkur nýtt. -pp Alvarlega slasaður eft- ir flugeld Sjö ára drengur liggur nú á augn- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir að flugeldur skaust í auga hans. „Drengurinn er alvarlega slasað- ur á auga. Flugeldurinn lenti í auga- brún hans og höggið var mikið. Við skoðuðum hann í gær með það í huga að gera á honum aðgerð en hættum við það þar sem blæðingar eru talsverðar í auga hans,“ sagði Óli Björn Hannesson, sérfræðingur á augndeild Sjúkrahúss Reykjavík- ur, í samtal við DV í gær. Drengurinn mun aftur verða skoð- aður í dag og vonast menn þá til að sjá hvemig honum muni reiða af. Þá var ung kona, sem fékk blys í augað, flutt á augndeildina og að- gerð gerð á henni í gærmorgun. Óli Bjöm sagði við DV að aðgerðin hefði heppnast vel og vonast hann til að konan muni ná sér. -pp Læknafélag íslands: Bíður úrskurðar Landsmenn fjölmenntu að brennum á gamlárskvöld og kvöddu gamla árið og fögnuðu því nýja með blysum og skot- eldum margs konar. Ljósadýrðin var mikil og naut sín vel í góðviðrinu. Það var engu að síður frostkuldi og eins gott að klæða sig vel eins og frændurnir Atli og Þórhallur gerðu. Þá komu loðhúfurnar sannarlega að góðum notum. DV-mynd Teitur félagsdóms Félagsdómur kveður upp úr- skurð um lögmæti uppsagnar Læknafélagsins á samningi félags- ins frá 30. nóv. síðastliðnum. Úr- skurðarins er að vænta á fimmtu- daginn. -sv L O K I Veörið á morgun: ■í Austlægar áttir ' J''W, ’ •. ' Veðurstofan gerir ráð fyrir að á morgun verði austan- og norð- austanstrekkingur og snjó- eða slydduél norðanlands en hægari suðaustanátt og skúrir um sunn- anvert landið. Hiti verður á bil- inu 1 til 6 stig, kaldast norðan- lands. Veðrið í dag er á bls. 37 brother Litla merkivélin Loksins með Þ ogÐ Nýbýlavegi 28-sími 554-4443 Ltm alltaf á Miövikudögnm w t t t t t t t t t t t t t t t t t t t t t t t t i í í í í í á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.