Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1996, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1996, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 3 Fréttir Fyrsti bresturinn í stjórnarsamstarfinu: Munum krefjast svara frá Sjálfstæðisflokki - segja þingmennirnir Magnús Stefánsson og Hjálmar Árnason Geirfinnsmálið: Álits- gerð fyrir sumarið „Ég reikna með að skila skýrslu um sjónarmið mín til Hæstaréttar fyrir sumarið," segir Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður sem skipaður hefur verið til að fara yfír Geirfinnsmálið að nýju samkvæmt ósk Sævars Ciesielski um að málið verði tekið upp að nýju. • Áður hafði Ragnar Hall far- ið yfir málið og skilað áliti á síðasta ári af hálfu ákæru- valdsins. Honum þótti ekki ástæða til að taka málið upp aftur. Rétt þótti að Sævar nyti jafnræðis og fengi að velja sér lögmann til að fara yfir málið frá sinni hlið. Dómurinn einn í Geirfinns- málinu var meira en 500 síðna langur. Auk þess liggja fyrir málskjöl mikil að vöxtum og Ragnar Aðalsteinsson útilokai' ekki að hann afli nýrra gagna. -GK „Ég er að vonum afar óhress með þessi vinnubrögð í stjómar- samstarfi sem ég hef talið að gengi vel. Ég tel að við framsókn- armenn höfum lagt okkur fram um að vinna að heilindum í stjórnarsamstarfinu. Það getur auðvitað ekki gengið að fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins komi með frumvarp sem gengur í þveröfuga átt við ríkisstjómar- frumvarp. Við erum ekki ailtaf ánægðir með stjórnarfrumvörp og þá er það kannski leiðin að vinna svona. Ég er búinn að krefja þing- flokk Sjálfstæðisflokksins svara um þetta mál,“ sagði Magnús Stef- ánsson, þingmaður Framsóknar- flokksins, um frumvarp fjögurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins um eignaraðild útlendinga í sjáv- arútvegi. Það gengur miklu lengra en stjórnarfrumvarp um sama efni sem er til umræðu í þinginu. Framsóknarmenn eru æfir út í samstarfsflokkinn fyrir að leyfa þingmönnunum Kristjáni Páls- syni, Pétri H. Blöndal, Vilhjálmi Egilssyni og Guðjóni Guðmunds- syni að bera þetta frumvarp fram. Og ekki bara það heldur létu þeir hvorki viðskiptaráðherra né þing- menn samstarfsflokksins vita um frumvarpið fyrr en það hafði ver- ið lagt fram. Margir framsóknar- menn höfðu að orði að þarna hefði fyrsti bresturinn orðið í stjórnarsamstarfinu. Þeir sem tóku þessu léttar töluðu um hina nýju ríkisstjórn Kristjáns Páls- sonar. „Ég er auðvitað reiður vegna þessa og mun taka málið upp þeg- ar umræðan um frumvarpið held- ur áfram," sagði Hjálmar Áma- son, þingmaður Framsóknar- flokksins á Reykjanesi. „Þetta eru mjög sérkennileg vinnubrögð, enda verður maður að ætla að stjórnarfrumvarpið um þetta efni hafi verið lagt fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Ég held að þetta sé einhver tilraun hjá fjórmenningunum til að slá um sig meðal ákveðinna hópa í þjóðfélaginu. Það eru vinnubrögð sem þingmenn eiga ekki að stunda," sagði Jón Kristjánsson. „Við urðum hissa þegar við sáum þetta frumvarp vegna þess að við vissum ekki til þess að neinn fyrirvari væri í Sjálfstæðis- flokknum vegna stjórnarfrum- varpsins um sama efni. Hins veg- ar held ég að þetta dragi ekki dilk á eftir sér. Þetta frumvarp fjór- menninganna bara lognast út af,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir, for- maður þingflokks Framsóknar- flokksins. -S.dór Skipbolti 21 • frmi 511 5111 Heimasióart: bttp:llwww. apple. is Macintosh - eins og hugur mannsl Agústa Johnson Likcmsrcektar/jálfciri o# frmtkvæmdasljóri PowerMacintosh 5200 8-64 ,\IB innnsluminni 800 \IB harödiskitr Cdshulrif og hálalaiw

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.